Vísir - 07.10.1972, Qupperneq 6
6
Visir Laugardagur 7. október 1972.
vísrn
Útgefandi: Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
RRstjórnarfulltrúi: Valdimar H. Jóhannesson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
Afgreiðsla: Hverfisgötu 32. Simi 86611
Ritstjórn: Siðumúla 14. Simi 86611 (5 linur)
Askriftargjald kr. 225 á mánuði innanlands
i lausasölu kr. 15.00 eintakið.
Blaðaprent hf.
Allt stefnir að einu marki
Strax þegar skattskrár komu fyrir almennings-
sjónir i sumar vakti undrun flestra sú meðferð, sem
gamla fólkið fékk eftir hinum nýju skattalögum
rikisstjórnarinnar. Reiðin út af þessu hneyksli var
svo almenn, að stjórnin sá sér ekki annað fært en að
láta lækka þessar álögur nokkuð, þótt það væri
hvergi nærri nóg. Þar með hafði rikisstjórnin þó
viðurkennt einn af mörgum ágöllum þessarar laga-
smiði sinnar Sú skoðun er mjög almenn, ekkert
siður innan stjórnarflokkanna en meðal and-
stæðinga þeirra, að þetta flaustursverk, sem
skattalögin eru, þurfi rækilegrar endurskoðunar
við, og er vart annað hugsanlegt en stjórnin neyðist
til að láta undan þeim kröfum.
Þeirri skoðun vex stöðugt fylgi, að þeir sem lokið
hafa fullu ævistarfi eigi að vera skattfrjálsir, eða
þurfi a.m.k. ekki að greiða skatt af eftiríaunum og
ellilifeyri. Óliklegt er þó að sú breyting verði gerð
meðan þessi rikisstjórn er við völd, þvi -aó eftir
ráðsmennsku hennar hingað til að dæma mun henni
ekki veita af öllu, sem hún getur seilzt eftir niður i
vasa þegnanna. En einhvern tima hlýtur að þvi að
koma, að þetta réttlætismál aldraðs fólks verði
borið fram til sigurs.
Málgögn rikisstjórnarinnar hafa talið það mikinn
kost á nýju skattalögunum, að nefskattarnir skyldu
vera felldir niður Var jafnvel stundum gengið svo
langt i þeim skrifum, að helzt var að skilja þau svo,
að álögurnar hefðu lækkað sem nefsköttunum
næmi. Nokkuð fóru þau þó að draga i land i þvi efni,
þegar ljóst var orðið að heildarhækkun skatta var
gifurleg hjá öllum þorra gjaldenda. Þá var það
einnig notað til réttlætingar lagabreytingunni að
ungt fólk hagnaðist á henni vegna þess að nef-
skattarnir voru felldir niður. Ekki verður þó séð að
það breyti neinu fyrir unga fram yfir fullorðna. Þeir
ungu greiða skatta sina eftir sömu reglum og hinir,
nema rétt skyldi vera það sem einhvers staðar
hefur verið bent á, að með niðurfellingu nefskatt-
anna kunni eitthvað meira af álögum ungmenna að
lenda á foreldrum þeirra eftir breytinguna en áður.
Var það rökstutt með þvi að nefskattareikningarnir
voru sendir beint til æskufólksins og sumt af þvi,
sem hafði sæmilega sumarvinnu, taldi sóma sinn að
greiða þá sjálft, en nú séu þessi gjöld lögð á
foreldrana með nýjum hætti.
Það versta við skattalögin er þó, að þau miða að
þvi eins og fjármálastefna stjórnarinnar öll, að
draga fjármagnið frá borgunum og fyrirtækjum
þeirra til rikisins og efla þannig miðstjórnarvaldið
eftir austrænni fyrirmynd. Valdsvið sveitarstjórn-
anna hefur verið þrengt stórlega og tekjustofnar
þeirra rýrðir jafnframt þvi sem skattheimta rikis-
ins hefur vaxið úr hófi fram. Þar á ofan reynir rikis-
valdið að ná til sin sparifé landsmanna með öllum
tiltækum ráðum, eins og útgáfu spariskirteina,
rikissjóðsvixlum o.s.frv.
Hér stefnir allt að einu marki og þjónar sama
vilja. Það leynir sér ekki hverjir hafa mótað stefnu
og málefnasamning rikisstjórnarinnar. Hand-
bragðið er auðþekkt. Alþýðubandalagsmenn mega
sannarlega vel una sinum hlut. Þeir hafa fengið
vilja sinum framgengt i flestum efnum, og þeir
hugsa sér áreiðanlega að fylgja þeim sigri eftir og
herða sóknina fremur en að draga úr henni, ef
dagar stjórnarinnar eru ekki senn taldir.
„Þegar Colosseum
fellur, fellur Róm-
og heimurinn með'
Kæruleysi yfirvalda, óhreinindi
og stöftugur titringur vegna um-
fcröarinnar er smátt og smátt aö
eyöileggja hinar fornu og fögru
byggingar i Itóm. Fyrir 1.200
árum spáöi engilsaxneski
munkurinn Kcda, „Svo lengi sem
Colosseum stendur, stendur Róm.
Pegar Colosscum fellur, fellur
Kóm — og heimurinn meö” Nú er
svo komiö aö hinir hjátrúafullu
geta fariö aö veröa hræddir, þvi,
aö Coloseum er aö falli komiö.
iMánuöum saman hafa steinar
hruniö úr múrnum og sprungur
myndazl i vcggi.
Fyrir stuttu skipuðu yfirvöld i
Róm að girða Colosseum af. Það
var orðið of hættulegt að hleypa
fólki til að skoða það. Núna geta
ferðamenn aðeins skoðað
Colosseum með þvi að ganga eftir
þröngum gangi sem gerður hefur
veriö meðfram veggjum þess.
Vegna þrengsla sem myndast i
ganginum, þegar margir ferða-
menn eru þar i einu, hafa leið-
sögumenn nú komið upp hrað-
skoðunarferðum. Sumum ferða-
mönnum gefst aðeins timi til að
smella af einni eða tveim mynd-
um.
Aðalorsök fyrir niðurniðslu
byggingarinnar er ófullnægjandi
eftirlit og viðhald, hristingur af
völdum umferðar og eyðingar-
máttur veðra og vinda. Illgresi
hefur vaxið upp á milli steina og
losað um þá.
Colosseum var byggt árið 80
e.K. og gat rúmað allt að 53000
áhorfendur. Vigsluleikirnir stóðu
yfir i 100 daga. Á miðöldum
eyðilögðu jarðskjálftar tvo yztu
múrana. Mikið af steinum þeim,
sem hrundu úr veggjunum þá,
voru teknir og notaðir i aðrar
byggingar. I byrjun 19. aldar
fyrirskipaði páfinn viðgerð á
Colosseum og 1924 reyndi
Mussolini að festa 10.000 verka-
menn við viðgerðir og endur-
byggingu Colosseum.
Núna vakna ttalir upp við
vondan draum. Þeim hefur allt i
einu orðið ljóst að ekki aðeins
Colosseum, heldur tugir annarra
fornminja Hggja undir
skemmdum. Leikhúsið Forum
Romanum varð að girða af vegna
öryggis ferðamannanna. Dóm-
kirkjan i Milano sekkur á hverju
ári einn cm. „Milano sekkur með
kirkjunni eins og Feneyjarborg
sekkur” segir vikuritið Oggi. 1
byrjun september lokuðu yfirvöld
i Milano dómkirkjutorginu fyrir
allri umferð til að reyna að
vernda kirkjuna fyrir titringnum.
Árangurinn varð algjört um-
ferðaröngþveiti i miðborginni.
Rómverskir sérfræðingar
hugsa sér frekar að reyna að
stöðva titringinn i jöröinni um-
hverfis Colosseum með sérstök-
um dempurum. heldur en að
banna umferð i nágrenni 'þess.
Gúmmiframleiðslufyrirtækið
Pirelli hefur nú þegar notað slika
dempara tvisvar i Róm. Lagðar
Colosseum, ein frægasta bygging heims, meö áróðursspjöldum stjórn-
málaflokkanna frá kosningu i vor fyrir framan.
Illlllllllll
Umsjón:
Þór Matthiasson
eru gúmrrHplötur undir akbraut-
irnar. Þær minnka titringinn um
80%.
Aðrir aðilar en Rómaborg vilja
núna reyna að bjarga Colosseum.
Bandariskur milljónamæringur
Thomas. Merrick að nafni vill
kaupa Colosseum. Merrick sendi
umboðsmann sinn, sem er kona
Fausta .Vitali að nafni. til Rómar,
þar sem hún átti að reyna að
komast að samkomulagi við róm-
versk yfirvöld. Hafði hún i fórum
sinum ávisun sem hljóðaði upp á
10.000 dali. átti þessi upphæð að
Eins og sjá má er Colosseum illa farið, enda hefur litið sem ekkert
verið gert til að halda byggingunni við.
vera fyrirframgreiðsla fyrir
Colosseum.
Tilboðið er upp á 900 milljónir
króna, en einnig býður hann 1.800
milljónir króna sem verja á til
viðhalds og endurbóta á
Colosseum.
Tilboð þetta hefur mælzt mjög
misjafnlega fyrir á ltaliu. Mörg
itölsk blöð segja, að það sé hrós-
vert að Amerikumaðurinn sýni
meiri áhuga á viðhaldi Collosse-
um heldur en rómversk yfirvöld
hefi gert. Aftur á móti hafa mörg
blöð lýst þvi yfir að Merrick sé
brjálæðingur. Margir hafa kallað
hann mann haldinn stórmennsku-
brjálæði. Rómverskur embættis-
maður sagði, að Merrick væri
einn þeirra manna, sem héldu að
þeir gætu gert allt fyrir peninga.
Sum blöð hafa sagt að Rómverjar
ættu að vera Merrick þakklátir
fyrir það sem hann vill gera til að
vernda Colosseum frá skemmd-
Merrick var orðinn milljóna-
mæringur þegar hann var þritug-
ur. Peninga sina hefur hann grætt
með að fylgja dyggilega máltæki
sinu, sem er „griptu tækifærið
þegar það býðst”. Hann hefur
keypt mikið af fornminjum viða
um heiminn og haldið þeim við.
Siðan hann gerði tilboð sitt i
Colosseum hefur siminn ekki
þagnað heima hjá honum eitt
augnablik. Hringt er til hans frá
öllum hlutum heims. Ýmist er
það fólk sem vill þakka honum,
eða aðrir sem vilja skamma hann
og svivirða. Merrick er ýmsu
vanur og lætur sér þvi ekkert
bregða vegna allra látanna, sem
tilboð hans hefur ollið.
Hvort sem itöisk yfirvöld sam-
þykkja tilboð hans eða ekki. þá er
nauðsynlegt að eitthvað róttækt
verði gert til að bjarga Colosseum
og öðrum fornminjum sem iiggja
undir skemmdum, hvort sem það
er á ítaliu eða annars staðar i
heiminum.