Vísir - 07.10.1972, Síða 7
Visir Laugardagur 7. október 1972.
7
| IIMIM 1
s SÍÐAIM =
Umsjón:
Edda Andrésdóttir
Enn er ekki hægt að segja
með vissu hvort efnið Bcg sem
við sögðum frá hér á siðunni er
töfralyf, sem kemur til með að
útrýma krabbam einssjúk-
dómum. Það hefur vakið geysi-
lega athygli, og stöðugar um-
ræður og rannsóknir fara fram.
israelskur sérfræðingur Dr.
Jókvœðar og neikvœðar niður-
stðður í tilraunum ó bcg
David W. Weiss, hefur ásamt
nokkrum öðrum sérfræðingum
komizt að raun um það eftir
rannsóknir og tilraunir, að þrátt
fyrir það að bcg sé til þess hægt
aö drepa niður krabbameins-
bakteriur i ýmsum dýrum sem
tilraunir hafa verið gerðar á,
geti það haft þau slæmu áhrif aö
það æsir krabbameiniö upp i
öðrum dýrategundum. Hverjar
ástæöurnar eru fyrir þvi, er ekki
vitað.
Þvi sézt að enn er ekki hægt
að fullyrða um töframátt þessa
lyfs, þrátt fyrir það að áður
hafi verið gefin út skýrsla af Dr.
Michael Hanna, sérfræðingi hjá
Alþjóðlegu Krabbameinsstofn-
unni, sem haldið hefur þvi fram
að rannsóknir á dýrum og
árangur við þær hafi reynzt 100
prósent, og vakið þar með vonir
fólks um of.
Nokkuð af þvi, sem þar var
sagt, var þó borið til baka af
Krabbameinsstofnunni.
En aðrir vilja þó sanna ágæti
þessa efnis bcg. Hópur rann-
sóknarmanna i Chicago heldur
þvi fram að bcg, sem samsett er
af berklabakterium úr naut-
gripum, sé hugsanleg vörn gegn
einni tegund af krabbameini i
börnum, þ.e. hvitblæöi.Það sem
þeir hafa fyrir sér i þeim
efnum, er rannsókn og tilraun
sem gerð var á þúsundum barna
i Chicago á árunum 1964 til 1969.
1 rannsókninni var athuguð
heilsa svartra barna i gegnum
sex ár. Fylgzt var með 54.414
börnum, sem sprautað höfðu
verið við fæðingu með bcg og
öðrum 172.986, sem ekki höfðu
verið sprautuð.
Af þeim börnum, sem
sprautuð höfðu verið með bcg
lézt aðeins eitt barn úr hvit-
blæði, en vitað var um 21 barn,
sem látizt hafði úr hvitblæði af
þeim, sem ekki höfðu verið
sprautuð við fæðingu.
Astæðan fyrir þvi að svört
börn voru aðeins rannsökuð er
sú, að 97% af öllum þeim sem
fæðast i Cook County Hospital i
Chicago, eru svartir. En á þvi
sjúkrahúsi var rannsóknin gerð
og byggð á þeim skýrslum, sem
þar voru til.
1 skýrslum sem borizt hafa
frá Alþjóðlegu Krabbameins-
stofnunni segir, að þrátt fyrir
þessa jákvæðu niðurstöðu, megi
ekki fullyrða að bcg sé lyf sem
geti komið til með að varna
hvitblæði, og telja rannsóknina
ekki fullnægjandi.
Þrátt fyrir allt er þó augljóst
aö tilraunum við lækningu þessa
algenga og erfiða sjúkdóms
miðar mjög áfram, og eins og
einn af öllum þeim fjölmörgu
sérfræðingum sem nú starfa við
rannsóknir sagði: „Þrátt fyrir
neikvæðar niðurstöður i sumu,
miðar okkur áfram. Nú er rétti
timinn, og — haldið áfram við
vinnuna”. — EA
Samkvœmisklœðnaðurinn
í vetur
Fnlkinu er aftur farið að
fjölga i bænum. Þeir sem fóru af
landi brott yfir sumartimann
eru nú flestir komnir heim
aftur, annað hvort til náms eöa
vinnu, og nú fækkar ekki fólkinu
vegna sumarleyfa. Og um leið
og skammdegið færist yfir og
fólkihu fjölgar, lifna dans-
staðirnir við og sainkvæmÍsUfið
fer i fullan gang.
Samkvæmislifið i heild sinni
krefst þess i flestum tilfellum að
fólk sé sæmilega til fara, og á
ffnni dansstöðunum er þvi
þannig háttað að flestar konur
kjósa að koma i siðum kjólum.
Kjólakaupin hljóta þvi að
hefjast af krafti þegar vetrar,
enda yfirleitt nóg úrvalið af
siðum kjólum og stuttum i
verzlunum hérlendis.
Myndirnar hérá siðunni gætu
verið ágætis hugmynd um það
hvernig hafa á kjólinn, ef ein-
hver veltir fyrir sér sniði ein-
mitt nú.
Flestir eru kjólarnir einfaldir
i sniði og saum, nema þá einna
helzt samfestingurinn sem sést
á einni myndinni, en hann krefst
kannski ofurlitið lengri tima við
saumavélina en kjólarnir.
Samfestingurinn er úr gulu
þunnu efni, en við hann er
borinn svartur, nokkurs konar
túrban. Kjóllinn við hliðina er úr
svörtu ullarkrepefni.
Stuttu kjólarnir tveir á
annarri mynd eru úr bleiku og
gulu efni. Ekki finir, en þó lát-
lausir og skemmtilegir. A enn
annarri mynd er blár kjóll úr
eins konar nælon efni, en við
hann er borin rauð hálsfesti og
rauðir skór. Hálsmál og ermar
á kjólnum sem sést á einni
myndinni er mjög skemmtilegt.
Þetta snið má nota bæði við
siða og stutta kjóla, og fer
sennilega bezt á þunnu efni.
—EA
Það er mælt með
STANLEY
málböndum
Næst þegar þú kaupir verkfæri,
vertu viss um að það sé
STANLEY