Vísir - 11.12.1972, Side 12

Vísir - 11.12.1972, Side 12
Visir. Mánudagur 11. desember 1972 Visir. Mánudagur 11. desember 1972 13 Umsjón: Hallur Símonarson Jóbannes (iunnarsson, linumaburinn snjalli hjá ili, sendir kniittinn í mark llauka. l.jósmynd Bjarnleifur. Flautukonsert í höllinni Kæruleysislegur leikur Hauka upphafsminútur siöari hálfleiks rændi þá öllum möguleikum á aö ná stigi gegn iR i Laugardals- höllinni i gærkvöldi. Bryn- jólfur Markússon var þá af- ar virkur i liði í R — renndi sér inn i sendingar Hauka og skoraöi fjögur mörk i röö. IR-ingar komust sjö mörkum yfir 14-7 og eftir þaö var sáralítil spenna í leiknum þó svo Haukum tækist aö minnka mjög •oooooooooooooooooooooooo• SKIÐA SKIÐA- jakkar SKÍÐA- buxur hanzkar SKIÐA- gleraugu SKIÐA- SKIÐA- skór stafir Aldrei meira úrval Póstsendum Sportval l...... Hlemmtorgi — Simi 14390 OOOOOOOOOOO0OOOOOOOOOOO®' muninn og töpuðu aðeins meö tveggja marka mun 20-22. Annars einkenndist þessi leikur af miklum flautukonsert og bein- linis töfum annars dómara leiks- ins, Hannesar Sigurðssonar, þannig, að hann stórskemmdi leikinn. Hinn ágæti orðstir Hannesar sem dómara fer vissu- lega að komast i hættu ef þeim ósköpum heldur áfram, sem hann helur tamið sér i siðustu leikjum. Hinn ágæti dómari Karl Jóha-nns- son beinlinis gafst upp á þvi að taka þátt i flautukonsertinum — nákvæmlega eins og Jón Frið- steinsson á dögunum — snerti varla flautu sina, en áfram gall flauta Hannesar, stöðugt og nær ærandi fyrir leikmenn og áhorf- endur. Hann dæmdi leikinn að mestu einn — tók leikmenn hvað eftir annað i kennslustund og þær tafir, sem við það sköpuðust, urðu margar minútur, auk þess sem leikmenn stóðu oft hreyfingar- lausir 10-15 sekúndur i einu, með- an dómarinn var að skrifa ein- hverjar athugasemdir niður i bók sina. Það er talað og skrifað um leiktafir liða — en er það ekki skylda hvers dómara að láta leik- inn ganga sem snuðrulausast fyr- ir sig — koma i veg fyrir tafir leikmanna og sjálfs sin? Og er það ekki leikmanns eða leik- manna að leika aðalhlutverk leiksins — en ekki dómara?. — Haukar byrjuðu betur — skor- uðu tvö fyrstu mörkin i leiknum. En siðan komust ÍR-ingar i gagn- ið — fjögur næstu mörk leiksins voru þeirra, og eftir það hafði tR oftast örugga forustu til loka. Munurinn var þrjú til fjögur mörk siðari hluta fyrri hálfleiks- ins og staðan i feikhíéi 10-7. Þegar svo Brynjólfur skoraði fjögur fyrstu mörkin i siðari hálfleik og IR-ingar komust i 14-7 gátu úrslit- in varla orðið nema á einn veg — sigur 1R. En eftir hina góðu byrj- un i siðari hálfleiknum fóru 1R- ingar að gefa eftir — Brynjólfur var tekinn útaf um tima — og Haukar skoruðu nokkur mörk. Staðan varð 14-11, en þá kom Brynjólfur inn á aftur og eftir 12 min. var staðan orðin 17-11 fyrir 1R. Og fjögurra til fimm marka munur hélzt lengi vel — en svo skoruðu Haukar þrjú mörk i röð og á 26 min. var staðan orðin 20-18 fyrir ÍR. Smá von vaknaði hjá Haukum um stig, þó vonin væri ekki mikil i þessum tafanna leik. Og það reyndist ekki — timinn rann i burtu og bæði liðin skoruðu tvö mörk. Lokasekúndurnar voru tveir IR-ingar út af vegna brott- reksturs, Vilhjálmur og Ólafur, og allt tók þaö sinn tima. Lokatöl- ur urðu þvi 22-20 fyrir ÍR — vissu- lega minni sigur en útlit var fyrir um tima. Þrátt fyrir 20 mörkin átti Geir Thorsteinsson enn einn stórleik- inn i marki 1R — en varnarleikur liðsins var ekki alltaf sem skyldi. Gunnlaugur Hjálmarsson var góðu gamni fjær — veðurtepptur á Akureyri með liðinu, sem hann þjálfar, Þrótti. Mörk ÍR skoruðu Brynjólfur 9 (1 viti), Vilhjálmur 7 (4 viti), Ágúst 3, Ólafur. Jóhanns og Þórarinn Tyrfingsson eitt hver. Fyrir Hauka skoruðu Ólafur 6 (5 viti), Sigurgeir 3, Frosti 2, Sturla 2, Stefán Jónsson 2, sem þó er merkilega slakur núna, Þórður 2, Guðmundur. Svavar og Sigurður Jóakimsson eitt hver. —hsim. Markvarzlan réð úrslitum í leik meistaraliðanna þegar íslandsmeistarar Fram sigruðuReykjavíkurmeistara Víkings 21:18 Enn einu sinni varð mark- varzlan Vikingum að falli i hin- um þýðingarmikla leik við is- landsmeistara Fram í Laugar- dalshöllinni i gærkvöldi — Framliöiö vann sigur á miklu betri markvörzlu Guöjóns Er- lendssonar, sem beinlínis lok- aði marki sínu alveg langan tima i síðari hálfleik, þó svo leikur liösins væri lakari en Vikings og miklu mun fá- breyttari úti á vellinum. Loka- tölur uröu 21-18 Fram i vil — en einni minútu fyrir leikslok haföi Fram aöeins eitt mark yfir og allt virtist geta skeð. Fram var með boltann og þá gerði sóknarmaðurinn ungi hjá Fram, Guðmundur Sveinsson, mikla vitleysu, sem heppnaðist. Hann átti laflaust skot i mitt mark Vikings, sem lak inn, þegar Vikingsmarkvörður.inn Jón Hákonarson, sem lék i stað Rósmund- ar Jónssonar, sem var veikur, féll aft- ur fyrir sig og knötturinn sigldi yfir hann og innsiglaði sigur Fram. Skot, sem markvörðurinn átti að gripa, og Vikingur hefði þá haft minútu til að jafna. En nú var munurinn tvö mörk og vonin engin. Fram skoraði svo aftur á siðustu sekúndunum eftir að Guðjóni Magnússyni hafði verið visað af leik- velli. Þetta var lengstum jafn leikur og allgóður, þó svo leikur Fram virkaði á köffum þunglamalegur. Axei Axels- son lék nú með að nýju eftir langt hlé og var það vissulega styrkur fyrir Fram. En sigur vann Fram þó fyrst og fremst á þvi hve markvarzla hjá Vik- ing var gloppótt og þau voru mörg ódýr mörkin, sem Fram fékk i leikn- um. Hins vegar varði Jón stundum fallega linuskot Björgvins Björgvins- sonar — vissulega óvænt. Björgvin gekk ekkert i haginn allan fyrri hálfleikinn og gerði sig svo sekan i lok hálfleiksins um atvik, sem maður hefði illa trúað á hann. Sigfús Guð- mundsson — áberandi bezti maður á vellinum i þessum leik — gætti Björg- vins mjög vel allan hálfleikinn og i þau fáu skipti, sem Björgvin kom skoti á markið varði Jón. Sigfús fór að visu engum silkihönzkum um Björgvin, en þó kom eins og þruma, þegar Björgvin sló Sigfús svo hann steinféll i völlinn. Það varð að styðja hann af leikvelli og Björgvin fékk ekki einu sinni tiltal frá dómurum leiksins. En vissulega hafði atvikið áhrif. Sigfús yfirgaf völl- inn fljótt i siðari hálfleik og á meðan skoraði Björgvin tvö mörk. Eftir að Einar Magnússon lét Guðjón Erlendsson verja frá sér vita- kast á fyrstu minútu leiksins tókst Stefáni Halldórssyni að skora tvö fyrstu mörkin fyrir Viking. Ingólfur Öskarsson jafnaði úr tveimur vita- köstum fyrir Fram, en á S.min.komst Vikingur afturyfir með marki Einars. En Ingólfur var aftur á ferðinni og skoraði tvö mörk fyrir Fram með laus- um lágskotum. Vikingur jafnaði með marki Páls á 9.min. Pétur Jóhannsson náði aftur forystu fyrir Fram, en það stóð ekki lengi. Einar jafnaði úr viti og Sigfús skoraði sjötta mark Vikings fallega af linu — hið fyrsta af fimm góðum mörkum hans af linu, flest skoruð eftir sendingar Einars. Enn fékk Fram tvö viti i röð og Ingólfur renndi rólega i markið — alltaf á sama hátt. Sigfús skoraði tvö næstu mörk og Páll kom Viking i 9-7 á 20.min. En lokakafla hálfleiksins varði Guðjón vel og Fram jafnaði með mörkum Axels og Ingólfs (viti). 9-9 i leikhléi. Páll skoraði 10. mark Vikings á 4. min. en Björgvin jafnaði nokkru siðar. Aftur komst Vikingur yfir á 8.min., en svo kom stórkostlegur leikur Guðjóns i markinu i veg fyrir Vikingsmörk iang- an tima — eða i 11 minútur. Á sama tima skoraði Fram sex mörk, Björgvin, Sigurbergur, Axel, Sveinn Sveinsson tvö og Ingólfur viti, og Fram komst i 16-11. En svo fór Viking- ur aftur að skora og smá saxa á for- skotið þar til staðan var 19-18 og rúm minúta til leiksloka. Og hætt er við, að Framarar hefðu ekki orðið hrifnir af framtaki Guðmundar að skjóta á mark, i stað þess að reyna að halda boltanum lokaminútuna. En skotið slaka lenti i markinu og sigur Fram var i höfn. Mörk Fram i leiknum skoruðu Ingólfur 8 (6 viti), Björgvin 3, Sigur- bergur 3, Axel 2, Sveinn 2, Guðmundur 2 og Pétur 1. Fyrir Viking skoruðu Sigfús 5, Páll 4, Einar 4 (3 viti), Stefán 3, Óiafur Friðriksson 1 og Viggó Sigurðsson 1. Dómgæzla Vals Benediktssonar var góð i þessum leik, en hins vegar er Ey- steinn Guðmundsson greinilega ekki i neinni æfingu til að dæma leiki i 1. deild. Það kom vel i ljós i leik FH og KR á dögunum og endurtók sig nú, þvi miður. Og þaðfurðuleta er að þrátt fyrir endurtekin mistök leyfir hann sér sem „útidómari" að breyta dómum meðdómara sins, sem margsýnt hefur að undanförnu að hann er i betri æf- ingu sem dómari en jafnvel nokkru sinni fyrr, enda mikiö dæmt bæði heima og erlendis. STAÐAN Tveir leikir voru háðir i 1. deild ís- landsmótsins i handknattleik i gær- kvöldi i l.augardalshöllinni og urðu úrslit þessi: ÍK-llaukar 22-20 Fram- Vikingur 21-18 Staðan i mótinu er nú þannig: FH 1 4 0 0 73-6 7 8 Valur 4 3 0 1 90-66 6 ilt 4 3 0 1 79-67 6 Fram 4 3 0 I 78-68 6 Vik. 4 2 0 2 81-79 4 Ilaukar 4 1 0 3 75-77 2 KK 4 0 0 4 61-82 0 Armann 4 0 0 4 58-89 0 Björgvin Björgvinsson fær „óblíðar" móttökur á linunni hjá þeim Guðjóni Magnússvni og Ólafi Friðrikssyni. Ljósmynd Bjarnleifur. Markahæstu leikmenn eru nú: Geir Hallsteinsson, FH 30 Bergur Guönason, V'al 25 Brynjólfur Markússon, ÍK 25 Ingólfur óskarsson, Fram, 25 llaukur Ottesen. KK 22 ólafur ólafsson, HaukUm, 21 Kinar Magnússon, Vik. 20 Vilberg Sigtryggsson, A 20 Vilhj. Sigurgeirss., ÍK 19 ólafur II. Jónsson, Val 15 Guðjón Magnússon, Vik. 14 Bjiirgvin Björgvins. Fram, 13 Þórður Sigurðsson, tlaukum 13 Agúst Svavarsson, ÍK 12 Agúst Oginundsson, Val II Gunnar Einarsson FH, ll Gunnst. Skúlason, Val, 11 Páll Björgvinsson, Vik. 11 Stefán Halldórsson, Vik. 11 Björn Blöndal. KK. 10 llörður Kristinsson, Á io N’æstu leikir eru á miðvikudags- kvöld, 13. desember' Þá leika Armann og Fram, Vikingur og KK. Sigfús Guðmundsson átti mikinn „stjörnuleik" með Vikingsliðinu af fimm mörkum sinum af linu i leiknum. I.jósmynd Bjarnleifur. gærkvöldi og hér skorar hann eitt Gefrnl skgpar* fótin fyrir manniníi ■ /: ÍllÍtlÍPjPll-f' tesm&te ; AUSTURSTRÆTI

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.