Vísir - 11.12.1972, Blaðsíða 11
VÍSIR
Rowenfa
Vísir. Mánudagur 11. desember 1972
Stúdentar fóru létt með Þór
íþróttafélag stúdenta
átti ekki i erfiðleikum
með að ná sigri i
leiknum við Þór, sem
fram fór á Nesinu á
laugardaginn. Þórsliðið
virðist vera orðið alger-
lega máttlaust eftir hina
grimmil. blóðtöku, sem
liðið hefur orðið fyrir, og
virðist varla eiga mikla
von um sæti i 1. deild,
nema eitthvað sérstakt
komi til i vetur.
bó er ekki hægt að segja annað
en að Þórsliðið sé sæmilega vel
leikandi lið eftir sem áður, en það
sem vantar fyrst og fremst er
meiri hæð og betri hittni — og er
það allnokkuð. Smæð leik-.
mannanna gerir þeim erfitt um
vik að komast að körfu andstæð-
inganna, svo að þeir verða að
treysta á langskotin, sem eru
hvergi nærri nógu örugg hjá
liðinu. Flest skotin hafna með
viðkomu i körfuhring eða spjaldi i
höndum andstæðinganna, þvi að
vegna hæðarmismunar hafa flest
liðin yfirburði i fráköstum.
Átta stiga munur var i hléi, 29-
21, en fyrstu 10 minúturnar af
siðari hálfleik náði ÍS 21 stigs
mun, 50-29. ÍS beitti mjög hrað-
upphlaupum sem tókust mjög vel,
en auk þess sýndi ÍS algera yfir-
burði i fráköstum, en af þeim var
nóg vegna afspyrnulélegrar hittni
Þórsara. Lokatöflur urðu svo 68-
45 fyrir ÍS.
Bjarni Gunnar Sveinsson varð
stigahæstur stúdenta eins og svo
oft áður, með 16 stig, en hjá Þór
skoraði Eyþór Kristjánsson mest,
eða 14 stig. gþ
Vonbrigði
með Val!
— sem tapaði illilega fyrir KR
KIl og Valur mættust i
íslandsmótinu i körfu-
knattleik á laugar-
daginn vestur á Nesi.
Átti maður jafnvel von á
jölnum leik, eða að
minnsta kosti að Valur
myndi standa i KR, eftir
sigur Valsmanna gegn
ÍR fyrir nokkrum
dögum, en það fór á
annan veg — KR lék sér
að Valsmönnum og
sigraði með 24 stiga
mun, 90-66.
Ekki var leikurinn þó ójafn
fyrstu 15 mfnúturnar eða svo, en
skömmu fyrir hlé stóð 28-26 fyrir
KR. KR lagði alla áherzlu á að
gæta Þóris Magnússonar, sem
tókst mjög vel. Reyndar skoraði
hann 26 stig þrátt fyrir gæzluna,
en einhvern veginn hafði varnar-
leikur KR þau áhrif á Valsliðið,
að það náði sér aldrei verulega á
strik, og virtist allt vera óöruggt,
bæði i samleik og körfuskotum.
i hléi var staðan 41-33 fyrir KR,
og framan af siðari hálfleik dró
ekki svo mjög sundur með lið-
unum, en smám saman tók KR öll
völd á vellinum, og fyrr en varði
var munurinn orðinn 20 stig, 76-
56. KR-liðið komst mjög vel frá
þessum leik,og er sennilega lang-
sterkasta liðið i 1. deild um þessar
mundir.
Ekki virðist þó vera mikil
breidd i KR-liðinu, þvi hjá KR,
eins og reyndar hjá ÍR lika, eru
alltaf 2-3menn sem helzt fá aldrei
að fara inná nema þegar húið er
að ná 25-30 stiga forskoti, og 1-2
minútur eftir af leiknum. Sem
betur fer sleppa þó sumir hinna
ungu leikmanna við þessi illu
örlög, eins og Ólafur Finnsson,
sem er nýbyrjaður að leika með
KR á ný eftir nokkurt hlé.Ólafur er
frábær skytta og góður leik-
maður og sýndi i þessum leik
ágæta frammistöðu. Sömu sögu
er að segja af Bjarna Jóhannes-
syni, sem er orðinn einn bezti
leikmaður okkar i körfubolta.
Hann skoraði 28 stig, en næstur
honum kom Kolbeinn Pálsson
með 21 stig.
Valur mætti þarna ofjarli
sinum og náði aldrei að sýna
hvað liðið getur, en það verður þó
ljósara með hverjum leik liðsins,
að þarna er á ferðinni lið, sem i
framtiðinni á eftir að láta meira
að sér kveða. Það er vegna hinna
ungu og efnilegu leikmanna, sem
Valur á nóg af. Nægir að nefna
menn eins og Torfa Magnússon og
Jóhannes Magnússon, sem eru 17-
18 ára gamlir, en gefa þeim eldri
ekkerteftir. Auk þeirra má nefna
Jens Magnússon, Kára Marisson
og Stefán Bjarkason, sem ásamt
Þóri Magnússyni eru greinilega á
réttri leið undir stjórn Ólafs
Thorlacius. gþ.
Jafn leikur Vals
og ÍS í leynimóti
Leynimótiö svokallaöa,
eöa Reykjavikurmótiö i
körfuknattleik hélt áfram i
kyrrþey i gærdag. Svo litið
bar á mættust Va lur og í S i
Laugardalshöllinni/ og
eftirharða og jafna baráttu
þar sem Valur hafði þó
alltaf nauma forystu,
sigraöi Valur meö 79
stigum gegn 76.
Á undan þessum leik átti að
fara fram eini leikur mótsins i
kvennaflokki og þá jafnframt úr-
slitaleikurinn, milli ÍR og KR, en
honum varð að fresta, þar sem
veðrið hindraði ÍR-stúlkurnar i að
mæta til leiks. gþ
VERÐ 26.956,00.
^ SAMBAND ISLENZKRA SAMVINNUFELAGA
$ Véladeild
ÁRMÚLA 3 REYKJAVÍK, SÍMI 38900
SÖLU- OG SÝNINGARSTAÐIR: Liverpool, Laugavegi 18 a, Domus, Lauga-
vegi 91, Gefjun, Austurstræti, Dráttarvélar, Hafnarstræti 23, Véladeild SlS,
Ármúla 3 og kaupfélögin um land allt.
Tökum gamlar vélar sem greiðslu upp í nýjar.
#Algerlega sjálfvirkur hnappagatasaumur. Talan er sett í fótinn og vélin
saumar sjálfvirkt rétta stærö af hnappagötum. # ÞræSingarspor, alit frá
1/2 cm til 5 cm langt. # Sérstakur fótur fyrir köflótt efni. # Hraðastillir á
vélinni sjálfri. # Sjálfsmurð. # Sjálfvirk þræðing.
Eín ég sit
og sauma
Einu sinni áttu þessi orð rétt á sér. En ekki lengur.
Þú ert ekki ein með nýju SINGER saumavélina við
höndina, SINGER 760, fullkomnari en nokkru sinni
Straujárn, gufustraujárn,
brauðristar, brauðgrill,
djúpsteikingarpottar,
fondue-pottar, hárþurrkur,
hárliðunarjárn og kaffivélar.
Heildsölubirgöir:
^Callclór -^iríkóóon^ 2o.
Ármúla 1 A, sími 86-114
SIIVII 86611