Vísir - 11.12.1972, Blaðsíða 3
Vísir. Mánudagur 11. desember 1972
skoðanakönnun var gerð fyrir
um mánuði og miklar
breytingar kunna að hafa orðið
á vinsældum rikisstj. á
skemmri tima en þeim. Þannig
var t.d. mjög almennt svar hjá
spurðum, að þeir sögðust vera
fylgjandi rikisstjórninni enn
sem komið væri, þeir teldu rétt
að gefa henni tækifæri til að
sýna, hvað hún gæti. Það er hætt
við, að renni tvær grimur á
þetta fólk, þegar valkostirnir
eða „ókostirnir” eins og margir
vilja nefna þá, fara að snerta
daglegt lif þeirra, sem nú telja
sig fylgja rikisstjórninni. Þvi
væri mjög fróðlegt að endurtaka
þessa skoðanakönnun aftur ein-
hvern timann eftir áramót.
Ekki var sláandi munur á af-
stöðu manna eftir búsetu á land-
inu, a.m.k. ekki svo að markan-
legt sé i skoðanakönnun, þar
sem úrtakið er ekki meira en
tvö hundruð. Þó virtust heldur
fleiri vera andvigir rikisstjórn-
inni hér á höfuðborgarsvæðinu
en utan þess. En athyglisverður
munur var á afstöðu kynjanna.
Karlmenn voru miklu fleiri en
konur i hóp fylgismanna rikis-
stjórnarinnar. Konur mynduðu
hins vegar meirihlutann i hóp
andstæðinganna. 1 hópi óákveð-
inna voru hlutföll kynjanna hins
vegar mjög áþekk.
Þessi mismunur á fylgi
stjórnarinnar hjá veika og
sterka kyninu var meiri en svo,
að tilviljun ein gæti ráðið. Tölu-
lega séð kom þetta þannig út, að
51% allra kvenna, sem spurðar
voru, voru andvigar rikisstjórn-
inni, meðan aðeins 25% þeirra
voru fylgjandi, en 24% kvenn-
anna voru óákveðnar. Hjá körl-
um voru tölurnar þannig, að
43% karla fylgdu stjórninni, en
37% voru á móti, en 20% voru
óákveðnir.
Það er út i hött að ætla að fara
að bollaleggja eitthvað i fullri
alvöru um skýringar á þessum
mun. Kannski má spyrja, hvort
konur finni betur fyrir öllum
verðhækkunum i verðstöðvun-
inni en karlmenn, þar sem
konur kaupa til heimilisins. Ef
til vill teljakarlmenn það heilla-
merki á rikisstjórninni, að at-
vinnuleysi hefur ekki verið til
undanfarna mánuði nema
kannski núna að aðeins er farið
að brydda á þvi. — Eða er skýr-
ingin kannski bara sú, að stjórn-
ina vanti „sexapil”?
Þessa siðustu spurningu, sem
er sett fram fyrst og fremst til
gamans, má styðja nokkrum
rökum. I skoðanakönnun um
vinsældir einstakra stjórnmála-
manna og birt var hér i Visi
fyrir hálfum mánuði kom i ljós,
að miklu færri konur en karlar
tilnefndu alla eftirfarandi
menn. Einar Ágústsson, Ólaf
Jóhannesson, Lúðvik Jósefsson
og Magnús Kjartansson. —
Hannibaleinn ráðherranna fékk
jafn mörg atkvæði frá konum
sem körlum.
Oddamenn stjórnarandstöð-
unnar fóru miklu betur út úr
þessu með „sexapilið”, sérstak-
lega Geir Hallgrimsson og Gylfi
Þ. Gislason. Hinir, Jóhann Haf-
stein, Magnús Jónsson og Gunn-
ar Thoroddsen reyndust allir
njóta ámóta vinsælda hjá báð-
um kynjum. __yj
Nú hafa þeir líklega slegið öll met: w ^
Borgin logaði öll í |ám
• I . .. W JL_______________
Vmningsnúmer
Dregið var i skyndihappdrætti
Sjálfstæðisflokksins hjá borgar-
l'ógeta s.l. laugardagskvöld. Upp
kom númerið 4947 og getur
eigandi þcss miða snúið sér til
skrifstofu Sjálfstæðisflokksins,
l.aufásvegi 4(1, og farið heim á
vinningnum, sem er bifreið af
gerðinni Volvo 142 Grand Lux.
innbrotum
— mikil skemmdarverk og
talsvert miklu stolið
Sennilega hafa innbrotsþjófar i
Keykjavik sett nýtt islandsmet
um helgina. Þegar rannsóknar-
lögreglumenn komu á vaktina á
sunnudagsmorgun, bókstaflega
.köfnuðu þeir i tilkynningum af
innbrotum hvarvetna um borg-
ina. Skrifstofur i húsi Nýja biós
urðu þó mest fyrir barðinu á inn-
hrotsþjófi, sem rannsóknarlög-
reglan náði i gærdag. „Við könn-
umst við manninn, hefur verið i
innbrotum áður", sögðu þeir hjá
rannsóknarlögreglunni, þegar
þeir skýrðu Visi frá þvi sem gerð-
ist um helgina.
Farðmiðadeild Flugfélags Is-
lands varð verst úti i innbrotinu i
Nýja bió. Þar var allt á tjá og
tundri. „Ég hef að visu ekki séð
mörg innbrot um ævina”, sagði
Sigurður Guðmundsson bióstjóri i
Nýja biói, ,,en þetta er það versta
sem ég hef séð”. Þjófarnir höfðu
farið um allt þetta stóra hús og
hvarvetna blöstu við brotnar
hurðir og hurðakarmar, skúffum
hafði verið snúið við og skjöl lágu
eins og hráviði um allt. Verst var
ástandið hjá þeim i Flugfélagi Is-
lands og i Vátryggingastofu
Sigfúsar Sighvatssonar, en einnig
hafði verið farið inn i lögmanns-
skrifstofur og fasteignasöluna
Miðborg. Þjófurinn virðist hafa
farið yfir járnrimlana rammgeru
Austurstrætismegin. og siðan
brotið rúðu við innganginn og
komizt þannig inn, þó traust væri.
Liklega hafa mestu verðmætin
verið filmusafn biósins, en i það
komst þjófurinn ekki, enda eru
filmurnar i eldtraustum stálskáp
i sýningarklefanum.
Ægilega var aðkoman i félags-
heimili Rafveitunnar við Elliða-
ár. Þar var eins og vitskertur
maður eða menn hefðu verið á
ferðinni. Tertum, sem þarna
voru, hafði verið klint upp um
allt, leirtau brotið i mél, en litlu
eða engu stolið.
En þjófar náðu i talsverðan
feng um helgina, enda þótt
skemmdirnar sem þeir hafa vald-
ið, séu mun meiri en það býtti
sem þeir fengu. Hjá heildverzlun
John Lindsay i Skipholti var
snyrtivörum stolið fyrir 40-50 þús-
und krónur, að sögn. I Alþýðu-
brauðgerðinni var stolið 6-7
eggjabökkum að þvi talið var,
enda er talsverður hörgull á eggj-
um núna fyrir jólin. Hjá Magnúsi
Baldvinssyni á Laugaveginum
var brotin rúða og greipar látnar
sópa, skartgripir og úr fyrir 60-70
þúsund krónur.
Og ekki er sagan öll. Brotizt var
inn i mannlausa ibúð við Fram-
nesveg og mikið skemmt, þegar
þjófurinn notaði fæturna til að
komast gegnum hurðina að ibúð-
inni, en það er helzta innbrotstæki
þjófanna að þvi er virðist. Engu,
virtist hafa verið stolið. Enn einu
sinni var brotizt inn i Kaffistofu
Guðmundar. Peningakassa með
litilræði af peningum var stolið
auk stálbakka og nokkurra
brauðsneiða. I Byggingavörubúð
SIS við Suðurlandsbraut var engu
stolið að þvi bezt varö séð, en i
Slippfélaginu nokkur hundruð
krónum.
Allt þetta þurfti rannsóknarlög-
reglan að glima við i gærdag og
voru 2-3 menn á þönum allan dag-
inn við að reyna að upplýsa þessi
mál og höfðu þegar gripið tvo
menn fyrir Nýja bió-innbrotið,
sem var einna stærst i sniðum.
Ekki kvaðst rannsóknarlögreglan
geta fullyrt hvort hér stæðu að
baki skipulagðir hópar, eða hvort
einstaklingsframtak nokkurra
manna kemur til. — ,JBP
Hvað vantar ó myndina?
Og iiú er koinið að næstsiðasta hluta jólagetraunar Visis að þessu
sinni. Og hverjum mætir jólasveinninn okkar ekki að þessu
sinni? Liklega þekkja þeir, sem horfa á sjónvarpið á miðviku-
dögum.förumanninn mætavel, — þetta er hann Charles Chaplin,
og sannarlega reiinur manni til rifja að sjá þennan frægasta
landshornamann heiins staflausan i hálkunni. En semsé, — eitt-
hvað vantar á myndina. En hvað? Strikið yfir þann hlutinn á litlu
myndunum, sem líklegast er að vanti á myndina.
Margir liafa óskað eftir blöðum, sein vantar inn i til að allir
seðlarnir átta fáist til að senda til blaðsins eftir morgundaginn.
þegar gctrauninni lýkur. Kéttast er að skreppa i næsta sölustað
og atliuga, hvortblaðið fæst þar, — eða snúa sér til afgreiðslunn-
ar á llverfisgötu 32. En semsagt, á morgun kemur lokaseðillinn.
7. dag
B c
X
Land að mestu alhvítt
Nú er landið að mestu
alhvitt. Minnstur er
snjórinn þó á suðaustan-
verðu landinu, og i
Hornafirði er jörðin auð.
Flekkótt er einnig á
Kambanesi en annars
staðar er allt hvitt.
Eftir þeim upplýsingum, er
blaðið aflaði sér hjá vebur-
fræðingum er mestur jafnfallinn
snjór á Norðurlandi austanverðu,
svo sem á Akureyri, Staðarhóli i
Aðaldal, Grimsstöðum og á
Raufarhöfn. Þar er snjórinn um
25-50 cm jafnfallinn.
I morgun var rikjandi hægviðri
á landinu, en él var þó á stöku
stað sunnan og vestan lands. Hiti
var alls staðar undir frostmarki.
Gert er ráð fyrir norðaustlægri
átt framundan og er þá liklegt að
fremur svalt verði. Þurrviðra-
samt verður i Reykjavik, en sjó-
koma eða éljagangur norðan til á
landinu. -EA.
tizkuverzlun Kirkjuhv< íh
1 ’ - í \ \ \
blómið
Guómundur
Daníelsson
Einhver sérkennilegasta og
djarfasta skáldsaga Guðmundar
Danielssonar. Þetta er 30. bókin,
sem hann skrifar og tvímælalaust
ein hin merkasta.
Umdeilt stórvirki úr hendi þessa
afkastamikla rithöfundar.
Bók, sem á erindi til allra lesenda
góðra bókmennta.
bókaskrá
ísafoldar
bókaskrá
ísafoldar
Skrá yfir allar jólabækurnar á
einum stað. Forðizt ys og þys
á síðustu stundu, veljið bækurnar
í ró og næði heima.
Skóla
dagar
Stefán Jónsson
Annað bindið i heildarútgáfu
Isafoldar á bókum Stefáns
Jónssonar. Bókin er beint
framhald af Vinum vorsins,
sögunni af Skúla Bjartmer, sem
nú flytur í nýtt umhverfi í
Reykjavik.
ÍSAFOLD
argus