Vísir - 17.12.1972, Blaðsíða 7
Visir. Mánudagur 18. desember 1972
7
cyyienningarmál
Ólafur Jónsson skrifar um bókmenntir:
Handan hugsunar
og skilnings
Kristmann Gubmundsson:
BROSIÐ
Skáldsaga
Prentsmiðja Jóns Helgasonar
1972. 2«:! bls.
Þetta er sannkölluð
sólskinssaga — saga um
sigur hins góða, dyggðanna
yfir löstunum, ástarinnar á
mannvonzkunni. Þetta er
saga tilveru sem ber bros
guðlegrar gæzku. Hún
gengur út á það hvernig
,,hún mamma og hann
Jesús" sjá fyrir sínum góðu
börnum.
Systkinin i Hallveigarbæ, sex til
seytján ára gömul, hafa misst
foreldra sina, sem bæði dóu á
bezta aldri eftir flekklaust lif i
heiðvirðilegri fátækt. Ekki standa
börnin sjö þó með öllu allslaus
eftir. Foreldrar þeirra létu kotið
skuldlaust eftir sig, skemmu,
hjall og geitur i kofa og dálitið
færeyzkt tveggjamannafar. Og
þau eru ekki vinalaus heldur.
Ekki bara læknishjónin i þorpinu,
frú Lisabet og Hermann, heldur
BROSIÐ
SkiHdHttf/# rfiir
KIUSTMAW
CilDMIXDSSOA
einnig Sigursteinn kaupmaður og
kona hans, hún Jónasina, standa
með börnunum gegnum þunnt og
þykkt og gefa þeim gjafir, bæði
fatnað og bezta mat. Kaupmaður
veitir Valintinusi stórabróður
vinnu i búðinni hjá sér og ver
hann mynduglega fyrir fulltrúum
mannvonzkunnar i Strandaþorpi.
Þvi að vitaskuld á hið illa sina
agenta i plássinu undir forustu
hreppsnefndaroddvitans. t krafti
þeirrar stöðu hyggst hann svæla
kotið þeirra undir bróður sinn,
ræfilinn Jóakim spira, en setjast
sjálfur að vinnukrafti þeirra.
Það er nú ekki að þvi að spyrja
hvernig þessi viðskipti fara, svo
ójafn sem leikurinn er — og tekst
þó að spinna furðu langan lopa úr
litlu efni. Börnin i kotinu eru
bráðger og myndarleg og fjarska
fróm. Þeim veitist lika auðvelt að
sjá skilsmun góðra manna og
illra i þorpinu. Svona er góðri
konu lýst:
,,Frúin.. var há og grönn, með
koldökkt hár og brúnir, langleit
nokkuð og frið sýnum, augun stór,
gráblá og dapurleg, nefið fingert,
kinnarnar ávalar, hakan litil en
sterkleg, munnurinn stór með
amorsbogamynduðum vörum.
Einhver skuggi i svipnum benti til
að hún byggi yfir dullinni
hryggð.”
Og svona vondum manni:
„Bárður oddviti var langur
maður og mjór, fremur slyttis-
legur. Höfuð hans var einnig
ilangt og minnti dálitið á hross-
haus, nefið stórt og frambogið,
svo að það slútti niður á efri
vörina, munnurinn viður og vara-
þunnur, augun stálgrá, litil og
stingandi, hárið tjásulegt og
eyrun útstæð. Hann var tötralega
klæddur og fötin hengu á honum,
ekki ósvipað og á fluglahræðu. En
röddin var mild og ismeygileg.”
Yfir öllu vakir mynd móður
þeirra sálugu á veggnum — sem
enski málarinn málaði af henni
daginn eftir að hún dó. Um varir
hennar leikur undursamlegt bros.
Þetta bros eiga systkinin bágt
með að skilja eins og aðrir i
sögunni, allir nema tvibura-
systurnar, svo fjarska veiklaðar
og eiga bráðum að deyja. En þær
standa i yfirskilvitlegu firðsam-
bandi, ekki aðeins sin i mílli,
heldur einnig við mömmu og
hann Jesús handan um dauðann.
■ Svo er það ástin: án hennar
væri engin saga.
Valintinus er anzi hreint gervi-
legur piltur, friður og langleitur,
með koldökkan hárlubba og
dimmblá augu. I búðinni kemst
hann brátt i tæri við Boggu kaup-
mannsdóttur, sem er andlitsfrið
en búlduleit og budduleg, með
blóðrauðar varir og þrýstinn
barm. Hún er til i tusk, bæði úti i
skemmu og uppi i hlöðu. En
kossar hennar láta eftir sig ein-
hvern kaldrana og tómleika i
sinni piltsins. Á Bakka handan
við fjörðinn býr á hinn bóginn
önnur ung stúlka, Berglind, sem
tekur hug hans fanginn:
,,Það voru geislar i silfurbleiku
hárinu, er féll i tveimur digrum
fléttum niður að mitti hennar, og
stór dýragrasblá augun lýstu með
kyrrum ljóma, vökul og dreymin i
senn. Andlitið var bjart, sem
heiðrikja yfir þvi, alvara og mild
gleði..Og enn sá hann glögglega
að eitthvað i svip hennar minnti á
bros móður hans — eitthvað sem
snerti hug hans og hjarta með
ljúfsárri dul.”
Þetta fer nú allt eins vel og á
verður kosið. Það er liklega
mátulegt á Boggu búlduleitu að
lenda i flangsi við Jónka spila-
gosa —sem kaupmaðurinn, faðir
hennar verður löks að vikja brott
úr riki sinu. En systkinin i Hall-
veigarbæ komast til manns, öll
nema tviburarnir, þær deyja og
verða alfarið að englum. Læknis-
hjónin góðu taka að sér litlu syst-
kinin, Lisu og Narfa sem þau ætlá
að setja til mennta. ,,Hann hafði
staðið sig mjög vel á vorprófinu i
barnaskólanum og orðið einn af
þremur hæstu nemendunum.”
Heiðrún stórasystir nær sér i
bráðefnilegan kærasta og fer að
búa, en Björn tekur kaupmaður i
brauð sitt i búðinni, Valintinus
hyggst hann gera að bókhaldara
hjá sér. Kaupmaður býr yfir afli
þeirra hlula sem gera skaí i sögu:
hann verður beinlinis að stjaka
bókhaldara sinum af stað til að
sækja Berglindi handan yfir
Kristmann Guðmundsson.
fjörðinn heim i kotið til sin. En þá
er lika allt komið i kring. Og i
þessum svifum verður Valintin-
usi loks ljóst brosið á mynd
móður sinnar:
,,Nú skynjaði hann, á hverfulli
svipstund, að dauði og lif voru
óaðskiljanlega samofin og hvort
tveggja jafn eðlilegt, eins og
svefn og vaka. Hvorugt varð um-
flúið og þvi ráðstöfun Skaparans
og nauðsyn i tilverunni. Þess
vegna var bros dauða og lifs hið
sama — bros dauðans einnig bros
lifsins ... Það var bros lifsins,
bros móðurinnar dánu, nú skynj-
aði hann boðskap þess, handan
hugsunar og skilnings. Það var
leyndardómurinn mikli sem allir
þrá i djúpum verundar sinnar,
sjálfur grunntónninn i tilverunni,
nafnlaus, upphafslaus og án
endis, hið óræða tákn eilifðar-
innar — og aðeins flekklaust
hjarta fær höndlað það.”
Þótt einkennilegt megi virðast
tel ég að Brosið sé bezta skáld-
saga Kristmanns Guðmundsson-
ar um langt, langt skeið. Má vera
að hún minni einhverja lesendur
á sumar hinar fyrri sögur hans,
sögur eins og Góugróður eða
Ströndin blá... 1 þessari sögu eins
og öðrum seinni verkum höfund-
arins er að visu þrotin hin sál-
fræðilega spenna sem bar uppi öll
hans fyrri verk, og þau firrast
þau ransæissnið, ytra og innra,
sem fyrri sögurnar nutu.
Eftir standa i sögunni mann-
gervingar legurðar, hreinleika og
sakleysis á annan veg, spillingar
og mannvonzku á hinn i dulspak-
legri litadýrð. En það hygg ég að
Brosið geri liísýn höfundar á efri
árum, þeim listræna hædti sem
honum er laginn, eins ýtarlega
skil og á verður kosið.
Fró Sjúkrasamlagi
Reykjavíkur
Halldór Hansen læknir lætur af störfum
frá næstkomandi áramótum# Samlags-
menn sem hafa hann að heimilislækni,
vinsamlegast snúi sér til afgreiðslu sam-
lagsins, meðsamlagsskirteini, og velji sér
lækni i hans stað.
SJÚKRASAMLAG REYKJAVÍKUR.
HHJNN HLADBÚD
BÆKUR '72
HEIMUR DANÍELS
Skáldsaga eftir hlnn kunna, danska rithöfund, Lelf Panduro,
GATA BERNSKUNNAR
Skáldsaga eftir dönsku skáldkonuna Tove Ditlevsen.
SÓL Á SVÖLU VATNI
Ný skáldsaga eftlr hina þekktu frönsku skáldkonu Francoise
Sagan.
ÞAÐ VORAR Á NÝ
Mjög skemmtileg og spennandl ástarsaga eftir hlnn vln-
sæla ameríska metsöluhöfund, Phyllis A. Whitney.
BJARNAREY
Hinn margfalda metsöluhöfund Allstair MacLean þarf ekkl
að kynna.
KAFBÁTAHELLIRINN
Ný bók eftir brezka metsöluhöfundinn Hammond Innes.
HEFNDARLEIT
Þetta er fyrsta bókin sem kemur út á Islenzku eftlr James
Hadley Chase, víðfrægan brezkan metsöluhöfund.
SJÓR ÖL OG ÁSTIR
Ný bók eftir Ása í Bæ, sem löngu er þjóðkunnur fyrlr
ritstörf, yrkingar, aflamennsku og ævintýri.
FERÐIN FRÁ BREKKU
Þriðja og slðasta bindr endurminnlnga Snorra Sigfússonar.
HEIMDRAGI IV
Fjórða bindl Heimdraga flytur eins og fyrrl blndin marg-
háttaðan fróðleik, gamlan og nýjan, vlðsvegar af landlnu.
MIÐTAFLIÐ
Bók þessi um miðtaflið eftir hinn kunna skákhöfund Znosko-
Borovsky er sfgilt verk I skákbókmenntum heimslns
Kaupið aðeins
daðar barna og
'ingabækur
BÓKIN UM JESÚ
Þessi fagra myndabók er gerð af frönsku listakonunni
Napoli I samvinnu við foreldra og uppeldisfræðlnga.
JONNI OG KISA
Gullfalleg og skemmtileg myndabók gerð af sömu höfund-
um og PRINSESSAN SEM ÁTTI 365 KJÓLA og LITLA
NORNIN NANNA.
BÓKIN UM VATNIÐ,
BÓKIN UM HRAÐANN,
BÓKIN UM HJÓLIÐ
Þetta eru fyrstu bækurnar I nýjum bókaflokki, LITLU
UGLURNAR, sem ætlaður er börnum 4—7 ára.
PÉTUR OG SÓLEY
Nútímaleg og heillandi barnabók eftir Kerstin Thorvall,
STÚFUR OG STEINVÖR
Þriðja bókin um Litla bróður og Stúf eftir hinn frábæra
norska barnabókahöfund Anne Cath.-Vestly.
ÁRÓRA OG LITLI BLÁI BÍLLINN
Þetta er þriðja bókin um Áróru eftir Anne Cath.-Vestly.
LITLU FISKARNIR
Áhrifamikil og frábærlega vel skrifuð barnabók
MAMMA LITLA
Sígild barnabók eftir E. De Pressensé.
ÞRENNINGIN OG GIMSTEINARÁNIÐ
Á FJALLINU
Fyrsta bókin [ nýjum bókaflokki eftir danska höfundinn Else
Fischer.
DULARFULLA MANNSHVARFIÐ
Þetta er 12. bókin I bókaflokknum „Dularfullu bækurnar"
KATA OG ÆVINTÝRIN Á SLÉTTUNNI
Önnur bókln um Kötu eftir norska höfundinn Johanna
Bugge Olsen.
TVÖ ÁR Á EYÐIEY
Spennandi og skemmtileg saga eftir hinn heimskunna höf-
und Jules Verne.
IÐUNN, Skeggjagötu 1