Vísir - 24.03.1973, Side 1
ENN JAFNT í NORDMANNASLAG
isienzka landsliðiö hafði mikla möguleika til að ná sigri gegn Noregi i landsleiknum i handknattleik i
gærkvöldi. Var með kuöttinn. en siðasta skot leiksins — islenzkt skot — fór fram hjá norska markinu, og
fjórða jafnteflið i fimm siðustu landsleikjum þjóðanna var staðreynd. 15:15. Sjá iþróttir i opnu.
í JÁRNUM ÚR LAUGINNI — sjá baksíðufrétt
83. árg. — Laugardagur 24. marz 1973 — 71. tbl.
Eldur laus í
Grjótaþorpi
Eldur koin upp i gömlu
timburhúsi við Mjóstræti um
klukkan 11.30 i gærkvöldi.
Kviknað hafði i út frá út-
varpstæki, og komst eldur i
vegg i risibúð hússins. Eld-
urinn var slökktur fljótlcga.
Illuti af varaliði slökkvi-
liðsins var kallaöur út strax,
til viðbótar við þá, sem á
vakt voru. En það er föst
regla, þegar tilkynnt er um
hruna á stöðum, sem kalla
má „eldgildrur”, eins og
þarna i Grjótaþorpinu. — ÓG
•
„Bíðum með
að setja eldgosið
á SVÍð" — Leikfélag
Vestmannaeyja komið
í gang Sjó bls. 3
Bensín eftir
dúk og disk
Sjó lesendabréfin bls. 2
Yarið ykkur á
veskjaþjófum
Sjá bls. 3
Þeir eru
skotharðir,
landarnir
Það vcrður með sanni
sagt, að þeir eru skotharðir i
meira lagi, landsliðs-
mennirnir okkar i liand-
knattleik. Sem betur fer eru
flestir áhorfenda óhultir
fyrir þeim skotum, sem fara
framhjá marki, ncma frétta-
Ijósmyndararnir, sem eru i
stööugri hættu.
Myndin sýnir hvernig
leifturljósið hans Hjarnieifs
Bjarnleifssonar fór cftir að
skot frá einum islenzku
sóknarmannanna fór fram-
hjá marki Norðmanna og i
standinn undir Ijósinu.
iirökk þetta sterklega stykki
i sundur eins og eldspýta.
Fyrr i vetur fékk Ijós-
myndari annars blaðs bolt-
ann i sig og varð af þeim sök-
um að leggjast inn á sjúkra-
hús um tima. Já, það er
sannariega ckki hættuiaust
að vera ljósmyndari á
iþróttasviðinu. — JBP. —
Lappodrífa í lygnu veðri
Fallegt veöur láppadrifa.
Flygsurnar svifa hljóölega til
jarðar i stillunni og setjast þar
sem þær lenda. Nokkrar flygs-
anna, sem virtust ætla að lenda i
Lækjargötunni, fengu óvænta
millilendingu, þar sem var
skegg Gisla G uðm undssonar
alþingismanns. Hann var á leiö-
inni vestur götuna, svo að þær
hafa ekki fengiö þann heiöur að
Ieka i formi vatns i teppin i
Alþingishúsinu.
Hafi einhver veriö húinn að
gera sér grillur um, að nú væri
veturinn liðinn og frost og snjór
kæmu ekki fyrr en næsta haust,
þá hefur hann fengið staðfest að
óskhyggja hans var misskiln-
ingur i gærmorgun. Eftir auöar
götur vikum saman var
mönnum aftur hugsað til snjó-
dekkjanna undir bilunum
sinum.
Þessa stórgóðu ljósmynd tók
Bjarnleifur. —Ló
/,Eins og ólétt kerling"
í öllum ömurleikanum er enn
gálgahúmor i mönnum, sem
stappa i sig stálinu með þvi.
„Þetta er eins og ólétt kerling”,
var kallað úr einum lögreglu-
bilnum gærkvöldi. „Hvað held-
urðu, að hún sé komin langt á
leið?” var svarið. „Ég held, að
hún sé alveg að fæða”. Og vel að
merkja. Hraunið var bólgið og
virtist aö þvi komið að „fæða”.
Menn álitu, að skriður kæmist
aftur á það á hverri stundu.
öskugos var i allan gærdag, en
það breyttlst i hraungos, þegar
leið á kvöld. Búið er að grafa nið-
ur i nokkrar götur og taka-ösku og
vikur, sem var notað i varnar-
garða. Sums staðar halði ösku- og
vikurlagiö verið 3—4 jafnvel 5
metrar á götunum.
Hraunið skreið litið fram i gær-
dag, en hlóðst upp.
Bláir gaslogar sáust á hraun-
jaðrinum.
ömurlegt var um að litast.
Ilúshæðir voru sumstaðar hállar
og heilar, sem hrauniö hafði borið
fram.
Edda Andrésdóttir, Eyjum.
Akveðið var i gær að byggja
enga varnargarða aftur. Hins
vcgar skyldi halda kælingu
ál'ram, aðallega við Skansinn.
Vestmannaey var i gangi og
Sandey sett i gang i gærkvöldi.
Menn voru óánægðir með dælurn-
ar og vilja fá fleiri.
Akveðið var að stöðva bræðslu
i Fiskimjölsverksmiðjunni. Eftir
er að bræða um 3600 lestir. Það
verður klárað, en siðan sjálfsagt
öllu lokað og farið að bjarga verð-
mætum þaöan i land.
Hafizt var handa að bjarga öll-
um verðmætum úr nýja sjúkra-
húsinu, enda vantar ekki nema
lOOmetra að hraunið nái þangað.
Byrjað var að bjarga kirkjugrip-
um úr Landakirkju, en margir
Vestmannaeyingar eru þvi and-
vigir, og mótmælaaðgerðir
komu til tals. Telja margir, að
kirkjugripirnir eigi skilyrðislaust
að vera hér, hvað sem á dynur.
Þarna eru margir mjög verðmæt-
ir gripir.
Valþór GK 25
STRANDAÐIVIÐ
KEFLAVÍK
Vélbátinn Valþór (JK 25 rak
upp i Stekkjarbamar I Kefla-
vikurhöfn ré'tt lyrir klukkan tnlf
siðaslliöna nótt.
Báturinn mun hafa verið að
færa sig úr Njarðvikurhöfn yfir i
höfnina i Keflavik, þegar
óhappið varð.
1 þann mundvarms. Bakkafoss
að fara úl úr höfninni og fór Val-
þór þar rétt hjá. Virtist þá eins
og eitthvað færi i skrúfu hátsins
— mannbjörg
Og rak hann viðstöðuiaust upp i
klettana.
Ahöfnin komst af eigin ramm-
leik i land. Leiðindaveður var i
Kcflavik i nótt N-A-rok og leið-
inda sjólag.
Valþór er 70 lesta tréskip,
skipstjóri er isleifur Guðleifs-
son.
Skipið liggur i klettunum og er
liætt við að það brotni mikið.
—ÓG
. 0G FÆREYSKUR A ALFTANESI
Ilétt eftir að tilkynningar bár-
ust um strand við Keflavik,
fréttist af enn einu strandinu.
Færeyskt skip Pétur á Görðun-
um strandaði innarlega á Alfta-
nesi. Slysavarnadeilain Fiska
klettur i Hafnarfirði fór þegar á
strandstað. Hafnarbátur frá
Hafnarfirði hélt þangaö. Fær-
eyski skipstjórinn tilkynnti, að
allt væri i lagi og mundi hann
með skipshöfn biða þess að
skipið Goðinn kæmi og reyndi að
draga á flot. —HH
HÆTT VIÐ BRÆÐSLU
Menn eru sárir vegna brottflutnings kirkjugripa
Síðustu ^kveðið var þrátt fyrir allt að hefja byggingu
fr**ttir varnargarðs við Urðarveg, en það er gert til að |
’ ^tt- ver'a rafstööina ' Eyjum i lengstu lög.
OFSAAKSTUR LANDGONGUUÐA
Á STOUNNI BIFRHÐ
— lögreglunni heimilað að beita
skotvopnum við töku hans
— Þegar ökumaðurinn haföi
lokiö helreið sinni um götur
Keflavikur sneri hann aftur út á
Reykjanesbraut. Lögreglan
hafði viðbúnað á móts við Fisk-
iöjuna en þegar ökumaðurinn
kom þar að gerði hann sér litiö
fyrir og reyndi að aka á lög-
reglumennina, sem gáfu honurn
stöðvunarmerki.
Hann fór siðan á ofsahraða
eftir Reykjanesbrautinni, 130 til
140 kilómetra hraða og skeytti
þvi engu, þótt mikil umferð
væri. öllum stöðvunartilraun-
um lögreglunnar, en hún fylgdi
honum fast eftir, svaraði hann
með þvi aðsveigjaiveg fyrirbif
reið þeirra og reyndi jafnvel
að þvinga þá út af veginum.
Þegar hér var komið sögu
hafði lögreglan fengið leyfi yfir-
manna sinná til þess aö stöðva
ökumanninn með skotvopnum,
þar sem maðurinn var talinn
vopnaður en til þess kom þó ekki
þvi i þvi bili tókst að þvinga bif-
reið hans út af veginum og lauk
ökuferöinni úti i hrauni. Ekki
voru hafðar rí^inar vöflur á,
heldur var laíidgönguliðinn
handjárnaður. ökumaðurinn
virtist ódrukkinrliog gat læknir
ekki sé neitt athugavert við
hann við fyrstu sýn.
Þannig lauk ofsaakstri
bandarisks landgönguliða, sem
ók stolinni bifreið viðstöðulaust
út af Keflavikurflugvelli i gær-
kvöldi. Hann hélt rakleitt til
Keflavikur þar sem hann var
oftsinnis nærri búinn aö valda
stórslysi þar sem hann sinnti
engum umferðarreglum. Undir
það siðasta tóku þátt i eftirför-
inni 4 lögreglubilar. —ÓG