Vísir - 24.03.1973, Blaðsíða 4
4
Vísir. Laugardagur 24. marz 1973.
UNNUSTI FAITHFULL VILL HJÁLPA
Söngkonan Marianne Faithfull
hefur hvatt unnusta sinn,
Rossmore lávarö, 41 árs gamlan,
til aö leggja liö baráttunni gegn
fíknilyfjum. Lávaröurinn 'hyrjaöi
á aö opna umsvifamikla upplýs-
inga- og ráðleggingamiöstöö fyrir
þá fiknilyfjaneytendur, scm snúa
vilja til betri vegar.
Er miðstöðin rekin i gamalli, en
iburðarmikilli villu lávarðarins i
Dublin.
Rossmore lávarður fer ekki
dult með það, að það hafi verið
ástarsamband hans við hina 25
ára gömlu Marianne, sem fékk
hann til að takast á við vandann.
En sjálf á Marianne i miklu basli
með að losna úr neti heróín-
löngunarinnar. Hefur hún þurft
að liggja langtimum á sjúkra-
húsum i þeirri viðureign.
Lávarðurinn vinnur sjálfur við
upplýsingamiðstöð sina, en hann
hafði legið i fræðibókum um þessi
efni myrkranna á milii og aflað
sér allrar þeirrar þekkingar, sem
honum var framast unnt. 1 þeim
tilgangi fór hann á milli allra
þeirra stofnana, sem hafa fikni-
lyfjaneytendur til meðferðar.
Vorið er hondan við...
„Hún er falleg.spræk og langleggja,” segir fréttastofan NTB,
sem sendi okkur þessa mynd. Meira hafa þeir eiginlcga ekki að
segja um stúlkuna, en okkur finnst þó full ástæöa til að sýna
ykkur hana. Þetta er svo anzi hreint falleg stúlka, spræk og lang-
leggja, þar sem hún — kiædd samkvæmt vortízkunni — hoppar
himinglöö frammi fyrir húsi sinu I Frakklandi. Stúlkan er
annars vestur-þýzk og heitir Marlene Charbell og starfar meö
þekktum sýningarflokki, sem þegar er byrjaður að kynna
vortizkuna.
Þessi ágæta stúlka minnir okkur einmitt á, að vorið er að heita
má HANDAN VID IIORNID...........
Jackie leiddist —
fór út og verzlaði
fyrir 2,5 milljónir!
Ameríski slúðurdálka-
höfundurinn Fred Sparks
hefur um nokkurt skeið
stundað þá iðju að elta á
röndum heimsfrægar kven-
persónur í verzlunarleið-
öngrum. Hefur hann
komiztað þeirri niðurstöðu,
að það kaupi engin eins
hratt inn og Jackie Onassis.
Fred Sparks segir: — Þegar
Jackie er leið i skapi kann hún
aðeins eitt ráð til bóta, nefnilega
það að kaupa, kaupa, kaupa og
kaupa. A hrútleiðinlegum
rigningardegi i Paris núna fyrir
skömmu tók það hana ekki nema
tæpa tvo klukkutima að kaupa
sumarkjóla fyrir samtals 2,5
milljónir isl. króna hjá tizku-
frömuðinum Emanuel Ungaro.
Og Sparks getur lýst fleirum at-
hyglisverðum kaupleiðöngrum
frægra kvenna.
Þar t.d ekki gleyma þvi
þegar hin vellauðuga Barbara
Hutton rakst einn daginn inn i
tizkuhús Lanvins i Paris. Þar var
þá einmitt verið að stilla fram
nýjustu tizkunni. Umsvifalaust
snaraði Barbara fram þvi sem
þurfti til að geta haft með sér
heim 158 kjóla, kápur og annan
fatnað, sem henni leizt vel á. Voru
það ekki nema sem svarar liðlega
22 milljónir islenzkra króna, sem
hún þurfti að borga fyrir öll
ósköpin.
Þá verður þess sennilega
minnzt í veraldarsögunni, þegar
Sirikit drottning verzlaði ein-
hverju sinni við Balmain fyrir 64
milljónir króna. Fékk hún allan
lager verzlunarinnar sendan til
sin til Thailands til að geta valið
úr það sem henni leizt á. Þar
hafði hún til reiðu heilan hóp
tizkusýningarkvenna, sem slógu
upp tizkusýningu fyrir hana svo
hún þyrfti ekki sjálf að máta alla
kjólana. Að lokum gat hún valið
sér 200 kjóla til eignar, þar á
meðal einn kvöldkjól sem siðar
var finaður til með demöntum
fyrir 130 milljónir isl. króna úr
hinum konunglega fjársjóði.
Loks er þess minnzt þegar
Sophia Loren skrapp til Givenchy
til að kaupa sér kvöldkjól. Henni
veittist valið erfitt, svo hún keypti
fjóra til að þurfa ekki að gera upp
á milli þeirra. Verðið var eitthvað
nálægt ein og hálf milljón króna
Umsjón:
Þárarinn Jón
Mognússon
Og svo má ekki gleyma þvi,
þegar Richard Burton stundi ein-
hverntima eftir búðarráp með Liz
sinni Taylor: — An þess svo mikið
sem depla auga verzlaði hún fyrir
allt að 100 þúsund krónur á
minútu.
Jackie Onassis kann aðeins eitt
ráð við leiðindum, nefnilega
kaupa, kaupa, kuupa og kaupa,
segir Fred Sparks.