Vísir - 24.03.1973, Blaðsíða 3
Vísir. Laugardagur 24. marz 1973.
3
BÝLI Á SUÐURLANDI í
HÆTTU AF FLÚORMENGUN
Ekki nóðist að
frysta loðnu
upp í
samninga
— Bœndum róðlagt að hafa skepnur sínar inni
Eiturefnið flúor hefur
borizt ti I lands með ösku frá
Eyjum og búfé stafar
hætta af. Bændum er ráð-
lagt að hafa fé sitt inni eins
lengi og kostur er.
Mælingar hafa leitt i ljós tals-
vert magn af flúor, einkum á
svæðinu frá Ytri-Rangá til Vikur i
Mýrdal. öskufalls hefur gætt á
Rangárvöllum og i Fljótshlið.
Flúór safnast fyrir i likama
skepnanna. Þvi kunna eitur-
áhrifin að koma fram eftir
mánuði eða ár.
Skemmdir af völdum efnisins
eru nú þegar áberandi á mosa og
greni. Hins vegar hefur eitrunar
Varizt
veskja-
þjófa
Stolið af fólki ó
veitingastöðum
Þeir fóru fyrir litið pcningar
manns eins, sem hugðist gera sér
giaðan dag á einu veitingahús-
anna um siðustu helgi.
Skömmu eftir að hann kom inn
á veitingastaðinn, ætlaði hann að
fá sér hressingu við einn barinn.
Þar var nokkur þröng manna, og
þurfti hann að biða nokkra stund
eftir afgreiðslu. Þykir honum þá
maður nokkur, er einnig stóð þar,
gerast heldur nærgöngull og
ýtinn, svo hann spyrnir við fótum.
Það kunni hinn aðilinn aftur á
móti ekki að meta og fóru svo
leikar að þar hófust miklar
stimpingar og hark. Lauk þeim
þannig að öðrum manninum var
visað út af veitingastaðnum, en
hinn stóð eftir sigri hrósandi og
hugðist nú halda áfram við
skemmtunina, þar sem frá var
horfið.
Honum brá þó heldur i brún,
þegar hann ætlaði að gripa til
veskis sins, þvi það var þá horfið
og fannst hvergi, er að var leitað.
Manninum var aftur á móti sagt
af einum gestanna, sem horft
hafði á atburðinn ásamt fjölda
annarra að hann hefði séð veski
detta á gólfiö, meðan á
stimpingunum stóð, og hefði
nærstödd stúlka tekið það upp.
Ekki gaf sig þó fram nein stúlka
með veski mannsins, og varð
hann að hverfa á brott nokkrum
þúsundunum fátækari.
Þvi miður er það alls ekki
óalgengt, aö fólk sem er að
skemmta sér á veitingahúsum
borgarinnar, verði fyrir þvi, að
stolið sé frá þvi veskjum eða fjár-
munum.
Að sögn rannsóknarlögregl-
unnar er alltaf töluvert um það,
að henni berist kærur um veskja-
þjófnaði. Einnig er ástæða til að
ætla, að ekki komi nema hluti
þjófnaðanna til kasta lögregl-
unnar. Oft er lögreglan lætur
aðila vita um veski, sem fundizt
hafa, kemur i ljós að aðilar hafa
talið tilgangslaust að kæra eða
hafa af ýmsum ástæðum heldur
óljósar hugmyndir um, hverju
þeir hafa eytt af fjármunum
sinum.
Alltaf eru lagðar fram nokkrar
kærur eftir hverja helgi og hefur
fjöldi þeirra eitt sinn komizt upp i
10 að sögn rannsóknarlög'regl
unnar.
—ÓG
enn ekki orðið vart i dýrum, sem
hafa verið rannsökuð.
Eitrun getur annaðhvort verið
bráðeitrun eða langtimaeitrun.
Hinnar siðarnefndu gætti mest i
Heklugosinu 1970.
Sérfræðingar segja, að verði
framhald á öskufalli með svipuðu
flúormagni og mælzt hefur, sé
vist, að gróður mengist svo, að
hætta verði mikil. Raunar sé
hættan nú þegar talsverð.
Mælingar sýna, að i ösku frá
Heimaey er sizt minna af flúor en
var i ösku frá Heklu. Það fer að
sjálfsögðu mest eftir vindi og
vindátt, hvenær askan berst til
lands.
Flúor er tiltölulega mest i
fingérðri ösku. Það sezt á ylir-
borðið. Fingerða askan berst
einmitt lengst með vindi. Halldór
Pálsson búnaðarmálastjóri segir,
að fé á þessu svæði eigi ..hvorteð
er ekki erindi út fyrr en i lok
april ". Efnahagslega borgi sig
ekki fyrir bændur að beita búfé
fyrr vegna skemmda á grasi.
—HH
samningá, sem gerðir voru uin
sölu á frystri loönu til Japans i
þetta sinn.
Samið liafði verið um sölu á
28.000 lestum en heiidarfrysting
mun hafa numiö nálægt 19000
lcstuni.
Útflutningsverðmæti þessa
inagns nuin vera 500 til 600
milljónir.
—ÓG
Nokkrir leikaranna í einu atriði úr Margt býr I þokunni. Frá v. Asta Bjartmars, Edda Aðalsteinsdóttir, Marta Björnsdóttir, Jóhann Björns-
son og Unnur Guðjónsdóttir.
„Bíðum með að setja
eldgosið á sviðl"
Leikfélag
Vestmannaeyja
hefur sýningar
að nýju á
Seltjarnarnesinu
,,Það þýðir vist litið að deila
við dómarann, og ekkert þýðir
að rifast við náttúruna”, sagði
formaður Leikfélagsins i
Vestmannaeyjum, Gunnar Sig-
urniundsson um eldsumbrotin,
þegar hann leit við hjá okkur
hérna á ritstjórnarskrifstofun-
um i gær.
En nú hefur Leikfélagið hugs-
að sér að fara af stað með leik-
sýningar á Seltjarnarnesinu.
Þrátt fyrir eld og eimyrju i
Eyjum verður sýnt sakamála-
leikritið „Margt býr i þokunni”.
Þau i Leikfélaginu voru svo
heppin að fá inni i félagsheimil-
inu á Seltjarnarnesi fyrir
æfingar, og einnig fengu þau til
afnota herbergi i Iðnó.
En það eru liklega fá leik-
félögin, sem hafa lent i öðru eins
og Vestmannaeyja^ leikfélagið.
Til þess að fá sviðsmyndina,
sem til þarf fyrir sýninguna,
þurfti að komast inn i hús i Eyj-
um sem fullt var af eiturgasi, en
það var reyndar ekki nema
helmingurinn, sem náðist. Hinn
hafði þegar verið fluttur hingað
Búið var að sýna þetta fyrr-
nefnda leikrit i Eyjum i nokkurn
tima, og einnig hafði veriö ferð-
azt með það um Austfirði, þar
sem það var sýnt á þremur eöa
fjórum stöðum.
A sunnudag verður leikritið
sýnt almenningi kl. 20,30, en það
má geta þess aö i gærkvöldi var
það sýnt fyrir hjálparfólk
Rauðakrossins.
Það mætti kannski ætla eftir
allt saman að leikfélagið setti á
svið eldgosið i Eyjum?
„Nei, ætli við geymum það
ekki til betri tima. Við sjáum að
minnsta kosti til hvernig fer”.
Annars er annað leikrit i bigerð
hjá þeim Eyjaskeggjum, og það
er leikritið „Kona i
morgunslopp”. Það er eftir Ted
Willis, sem samdi leikritið Hita-
byigju og er einn okkar bezti
stuðningsmaður i landhelgis-
máiinu.
Gunnar sagði okkur að kjark-
ur i leikfélagsmönnum væri
mikill, enda flestir komnir i
ibúðir og búnir að koma sér
fyrir. Það má geta þess I leið-
inni, að framkvæmdastjóri
Leikfélagsins er Unnur
Guðjónsdóttir, sú sem er
forstöðukonan i „kommúnunni”
i Kópavoginum, sem við
sögðum frá fyrir stuttu.
—EA
//
ÞURFUM AÐ VERA
ALFRÆÐIBÆKUR"
„Með nokkrum rétti má segja,
að leiösögumaður þurfi að vera
lifandi alfræðibók um allt, er
varöar island og islendinga i
nútlð og fortið”. Svo stendur
meðal annars á plaggi, sem félag
leiðsögumanna hefur látið frá sér
fara.
Þeir, sem þetta félag stofnuðu
nýlega, eru greinilega fullir
áhuga á, að eitthvað verði gert, til
að þessi starfsgrein njóti
virðingar og sannmælis, en gera
sér, að þvi er virðist einnig
grein fyrir, að til fólks i þessu
starfi þurfi að gera ýmislegar
kröfur. Þeir hafa sett sér það
markmið að til leiðsögu ferða-
manna á tslandi veljist aldrei
aðrir en þeir, sem inna störf sin af
hendi, svo sem bezt verður á
kosið, eða eins og bezt gerist
meðal annarra þjóða.
—Ló
60 milljómr úr flutningasjóði
Styrkirnir skipta millj-
ónum til sumra bótanna
Loðnulöndunarnefnd og flutningsstyrkir
hafa sannað ógœti sitt
Tæpar 60 milljónir hafa nú ver-
ið greiddar i flutningsstyrki
vegna loðnuveiðanna. Sjóöurinn,
sem er fjármagnaöur sameigin-
lega af séljendum og kaupendum
þ.e. sjómönnum, útgerðarmönn-
um og bræðslunum, hefur greitt
frá 10 aurum fyrir kg i flutnings-
styrk og upp i 1,75. Upphæðin fór
eftir fjarlægð löndunarhafnar frá
veiðistað og aöstæðum á hverjum
tima.
Óhætt er að fullyrða, að starf
loðnulöndunarnefndar hafi tekist
mjög vel. Það fjármagn, sem hún
hefur haft yfir að ráða, til að geta
dreift löndunum bátanna hefur
komið i góðar þarfir.
Siðastliðinn sólarhring veiddust
■ um 4500 lestir og fékkst sá afli á
mestöllu veiðisvæðinu. 24 bátar
tilkynntu afla og voru nokkrir
þeirra með fullfermi.
Greinilega er nú kominn þorsk-
hugur i menn og nokkurtlos komið
á ioðnuveiðarnar, enda má búast
við hún fari alveg að hverfa.
—ÓG