Vísir - 24.03.1973, Side 15

Vísir - 24.03.1973, Side 15
Vlsir. Laugardagur 24. marz 1973. 15 n □AG | D KVÖLD | Q □AG | D * 0: r □ Q □AG | Sjónvarp kl. 20.25, sunnudag: HRESST UPP Á SKAPIÐ: með söng Verzlunarskólakórsins Meðal efnis á dagskrá sjón- varpsins á morgun er Verzlunarskólakórinn. Kór skólans er löngu orðinn þekktur fyrir söng sinn, og þetta er vist ekki I fyrsta sinn, sem hann kemur fram i sjónvarpssal. Flestir muna eftir þvi, þegar hann kom fram og söng lög úr Jesú Kristi súperstjörnu i fyrra, en þá voru þau lög sungin opinberlega á Islandi i fyrsta sinn. Þá söng Pálmi Gunnars- son hlutverk Jesú Krists, en i sýningu Leikfélags Reykjavikur hafa heldur betur orðið enda- skipti á hlutunum, þvi þar syngur Pálmi Júdas. Við ræddum við Magnús Ingi- marsson um lög þau, sem kórinn syngur í sjónvarpinu annað kvöld, en Magnús hefur stjórnað kórnum i þrjá vetur. Lögin sem sungin verða, eru úr ýmsum áttum. Magnús sagði, að hingað til hefði kórinn æft lög úr leikritum eða heilum söngleikjum en nú hefur þessu verið breytt að nokkru. Elzta lagið, sem kórinn mun syngja, er lagið um hana Disu i Dalakofanum. En það lag var fyrst flutt opinberlega árið 1950 á reviu i Sjálfstæðishúsinu i Reykjavik. Textanum er örlitið breytt hjá kór Verzlunar- skólans. Nýjasta lagið, sem kórinn syngur hins vegar, er lagið Care, sem Gilbert O’Sullivan hefur sungið og sem leikið hefur verið hvað eftir annað i óska- lagaþáttum útvarpsins. Kórinn starfar eingöngu á veturna, á meðan skólaár stendur yfir. A haustin hefjast æfingar fyrir nemendamót skólans, sem haldið var nú um miðjan febrúar siðastliðinn, en siðan hefur kórinn komið fram opinberlega eftir það og sungið sömu lög eða verk. A milli 50 og 60 nemendur eru nú i kórnum, þar af 12 piltar. Magnús sagði mikinn söng- áhuga rikja og að meðlimir kórsins væru mjög áhugasamir Og þar sem nú liður skjótt að prófum i Verzlunarskólanum, sem og i öðrum skólum, þá verða þetta liklega siðustu for- vöð að hlusta á kórinn syngja. Verzlunarskólakórinn er á dagskrá kl. 20.25 —EA Sjónvarp klukkan 20.50 í kvöld: FJÖLBREYTT KVÖLDSTUND Viihjálmur Vilhjálmsson kemur sérstaklega fljúgandi frá Luxemburg til að syngja lagið,,Komdu pabbi, komdu heim” i Kvöldstundinni i kvöld. Nokkrar breytingar verða á kvöldstundinni að þessu sinni. Gisli Rúnar og Júlli koma ekki fram að þessu sinni. Þeir fóru til útlanda til aö leika i auglýsinga- myndum fyrir innlend fyrirtæki. Munu þeir vera i London núna. Ekki munu þeir vera hættir i Kvöldstundinni, og verður fólk að bita á jaxlinn og þola fjarveru þeirra i þetta eina sinn. 1 staðinn koma tveir strákar, sem kalla sig Diddi og Dódó (eða Kaldur og Nonni). Þessir firar leika búktalara og brúðuna hans. Einnig kemur galdramaður þáttarins fram, en eftir þvi sem við höfum heyrt, er það frekar misheppnaöur sem slikur. Þessir tveir skemmtikraftar verða kannski áfram, þó að Gisli Rúnar og Júlli komi aftur, það er ekki að vita. Arni Johnsen kemur fram og syngur tvö frumsamin lög. Dixeland hljómsveit kemur fram og leikur tvö eldfjörug lög. Dansaður verður ballett Það er Unnur Guðjónsdóttir, sem mun hafa gert afbrigði við dans eftir annan höfund. Ungurmaður, Hjörtur Blöndal, syngur frumsamið lag. Söng- konan meðal gestgjafanna Berg- lind Bjarnadóttir syngur einsöng, og er það nýlunda, aö einn af meðlimum Litils eins taki sig útúr og syngi án þess að hin komi þar nærri. Ung stúlka Gyða Baldursdóttir, 15 ára, syngur lagiö og ljóðið: Bréfið hennar Stinu, og þá ætti allt að vera talið. —LÖ „Brellin blaðakona" Sjónvarp laugardag kl. 20.25: Sjálfsagt hafa margir skemmt sér vel yfir fyrsta þættinum um brellnu blaðakonuna. i kvöld er hún aftur á dagskrá, en það er Shirley MacLaine, sem fer með aðalhlut- verkið í þessum brezka gamanmyndaf lokki. Með henni á myndinni er Nicky Henson, en hann kemur fram i þættinum i kvöld, sem nefnist: Kappaksturinn. Blaðakonan lendir vist i hinum mestu ævintýrum, og þó að hún sé vel pennafær, er ekki öll sagan sögð, þvi að hún er jafnfær á myndavélina lfka. Brellin blaðakona er á dagskrá kl. 20.25. Útvorp kl. 16.25, laugardag „STÖLDRUM VIÐ OG STOKKUM UPP SPILIN í VOR ## Stanz tekur þó breytingum ,,£g er aðeins meðlijáiparinn. Arni Þór Eyinundsson ber veg og vanda af þessu öllu saman. Hann velur músikina, en ég tek að mér að svara hinum ýmsu spurn- ingum”, sagði Pétur Svein- bjarnarson, framkvæmdastjóri Umferðarráðs, þegar viö röbbuðum við hann, en meöal efnis á dagskrá útvarpsins i dag er þátturinn Stanz/ Pétur fræddi okkur á þvi, að á öllum Norðurlöndunum væri um- ferðarþættir, og allir væru þeir i útvarpinu á laugardögum. Lik- legast vegna þess, að þá eiga flestir fri , og þá gefst helzt tæki- færi til þess að hlusta á útvarpið. t Danmörku er þátturinn feiknarlega vinsæll, en þar er hann i svipuðum dúr og Bein lina i islenzka útvarpinu.Hlustendur fá tækifæri til þess að hringja i út- varpið og leggja fram spurningar og fá bein svör við þeim. Hér á landi er þátturinn stytztur, en Pétur sagði, að þeir vildu gjarnan hafa þáttinn i svipuðum dúr og sá i Danmörku er, en það er ekki aðstaða til þess hér. Við komumst þó að þvi, að i vor er i bigerö, að þátturinn taki breytingum. „Viðerum að hugsa um að staldra viö og stokka upp spilin og breyta forminu. A hvern hátt er þó ekki vist ennþá”. Þá hefur Pétur Sveinbjarnar- son ákveðið að draga sig i hlé. ,,Ég er orðinn leiður á sjálfum mér og aðrir á mér”. Það má geta þess, að Pétur hætti um tveggja ára skeið með umferðar- þætti sina, en þegar hann hætti hafði hann tekiö þátt i 500 þáttum. ,,Nú er ég hættur að telja”, sagði hann. Það var árið 1968. Minnst koma 2-3 bréf á viku, en stundum koma 10. Pétur tjáði okkur, að mörgum þeirra væri erfitt að svara, þar sem þeir eru þá beðnir um úrskurð á ýmsum málum, hvað er rétt og hvað er rangt, sem erfitt er að segja um. „Við reynum að taka það fyrir, sem á við almenning, sem til- heyrir öllum, en fólk sýnir þessu áhuga, og það vildi gjarnan fá að ræða þessi mál. Músikina velur Arni, þannig að sem flestir hafi gaman af henni”. Þátturinn Stanz er á dagskrá kl. 16.25 og sjálfsagt ber þar eitt- hvað á góma, sem á erindi til allra úr umferðinni. —EA Sjónvarp kl. 18, suimudag: STUNDIN OKKAR r A annað hundrað bréf ó 3 dögum: I Stundinni okkar, sem er á dagskrá sjónvarpsins á morgun, koma meöal annars fram Baldur og Konni, sem ekki hafa komiö fram á sjónar- sviöið um langan tlma. Sjálf- sagt verður þaö jafn gaman fyrir fulloröna sem börn að fá tækifæri til þess að heyra þá og sjá á nýjan leik. Baldur hefur nýlega hafizt handa á þessu starfi á nvian leik, en hann hefur um nokkurra ára skeið kennt á Akranesi. Aður hafði hann „Konna”, ef svo má segja, að aðalstarfi og hyggst hann taka til við á nýjan leik. Baldur og Konni munu koma fram í þremur þáttum og koma fram i fyrsta sinn á morgun i Stundinni okkar og rabba þar um daginn og veginn. Annað efni i barnatimanum að þessu sinni er hann Máni páfagaukur. Máni páfagaukur er fugl, sem getur talað og sagt frá ýmsu, og hann er hinn sprækasti. Einhver áhrif hafa þó kvik- myndatökuvélarnar I sjón- varpssal haft á hann, þvi að þar vill hann fæst segja. En hann er þó allur aö koma til, og á morgun svarar páfagaukurinn (með hjálp þó) bréfum frá börnum á landinu. Þegar við höfðum samband við Hermann Ragnar Stefáns- son, sagði hann, að þau hefðu beðið börnin um að senda bréf til þáttarins, þar sem þau segðu frá hinu og þessu, en spyrðu einnig um það, sem þau langar til að vita. Þar fá þau tækifæri til þess að varpa fram spurn- ingum um ýmis málefni, og Máni ásamt Sigriði Margréti Guðmundsdóttur mun svara börnunum. Þetta er i fyrsta sinn, sem bréfum verður svarað i þessum þætti, en Hermann tjáði okkur, að i dag hefðu þegar verið komin hátt á annað hundruð bréf. 9. þáttur spurningakeppni barnaskólanna á landinu verður einnig á dagskrá, en þættirnir verða samtals 15. Koma alls fram 45 skólar. Hermann sagði að tilgangurinn með þessum spurningaþáttum væri að komast i samband við börnin úti á landi. Þarna fá þau tækifæri til þess að heimsækja Reykjavfk, sjónvarpið og margt fleira, en þurfa ekki ein- göngu að skrifa i barnatimann. Ennfremur er á dagskrá sovézk sirkusmynd og teikni- myndasaga um „Kurteisa köttinn”. Einnig syngur Arni Blandon og les sögu. —EA Baldur og Konni á skemmtun fyrir nokkrum árum.

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.