Vísir - 03.04.1973, Qupperneq 1
vísm
63. árg. — Þriðiudagur 3. april 1973. — 79. tbl.
„GRÆÐUM A GOSINU"
— lœknir kœrir blaðamonn SE&HÖR
fyrir fölsuð ummœli — BAKSÍÐA
Einar Valur Bjarnason, læknir i Vestmannaeyjum er hér I Kaup-
mannahöfn og sýnir hnefafyili af öskunni dr Heimaey.
Glistrup fram
með sinn O-lista
Hann Glistrup er ekki á þvi
að borga skatta. Samkvæmt
njiverandi „kerfi” gerist
þess ekki þörf, álitur hann,
og þvi þá að vera að borga
skatta? Og nú er Glistrup
farinn að vasast i stjórnmál-
um, — hann er með O-listann
og tekur við þar sem islenzk-
ir O-Iistamenn hættu. — Sjá
bls. 6.
Kostar
samkomu-
lagið 200
milljónir
Laxárdeilan virðist veraað
leysast? Og sannarlega
verður það samkomulag
keypt dýru verði. Svo virðist
sem 200 milljónir króna fari i
súginn þar nyrðra. Við rædd-
um við Knút Otterstedt, raf-
veitustjóra á Akureyri i gær.
— Sjá bls. 2.
Hver er eftirlœtis-
maturinn þinn?
— Sjó Vísir spyr
á bls. 2
Skorið á togvíra —
Togari reynir
ásiglingu
Varðskip skar á
togvira brezka
togarans St. Leger
H-178 klukkan rúm-
lega 10 i morgun, þar
sem hann var á veið-
um á Selvogsbanka.
Brezki togarinn
Maretta FD-245, sem
var á sömu slóðum
reyndi að sigla á
varðskipið en tókst
ekki. -ÓG.
Tvœr konur létust
í hörðum árekstri
DAUÐASLYS
A REYKJANESBRAUT
Tvær konur létust i
mjög hörðum bifreiða-
árekstri, sem varð á
Reykjanesbrautinni á
móts við veginn upp á
Keflavikurflugvöll.
Slysið varð klukkan
rúmlega tólf i nótt.
Konurnar voru á leið suður til
Keflavikur i litilli fólksbifreið, en
á móti þeim kom stór fólksflutn-
ingabifreið. Er bifreiðarnar
mættust, virðist konan, sem ók
litlu bifreiðinni, hafa misst stjórn
á henni og var hún komin á rang-
an vegarhelming. Töluverð hálka
var á Reykjanesbrautinni er
þetta varð.
Skullu framendar bifreiðanna
saman án þess að nokkuð fengizt
að gert. Báðar konurnar munu
hafa látizt samstundis, bifreið
þeirra er mjög illa farin og talin
gjörónýt. Hin bifreiðin er mikið
skemmd og ekki ökufær. I henni
var fólk, sem var að koma frá
vinnu í frystihúsi i Keflavik, ekki
urðu nein meiðsli á farþegum
hennar.
Konurnar tvær, sem létust voru
báðar giftar, önnur var á sextugs-
aldri en hin rúmlega þritug. Ekki
er unnt að segja frá nöfnum
kvennanna, þar sem ekki hafði
náðst til allra aðstandenda.
—ÓG
ÞJÓNAR FARA
í VCRKFALL
— Vfnveitingahúsin lokuð og hótelin geta
ekki sýnt fulla þjónustu
Þ jónar eru komnir í verk-
fall, vínveitingahús lokuö
og hótel færðu gestum í
rúmið í morgun, salir eru
lokaðir. Tilefnið er hækkun
söluskatts um tvö prósent,
sem varð fyrsta marz og
rennur í Viðlagasjóð Vest-
mannaeyja.
„Okkar skilningur er, að sölu-
skattur eigi að vera siðasta álagið
og þjónustugjald eigi ekki að
leggja á söluskatt, segir Haraldur
Arnason deildarstjóri söluskatts-
deildar skattstofunnar. Þjónar
vilja leggja þjónustugjaldið ofan
á verðið, eftir að söluskattur er
kominn á það, sem er auðvitað
þeim mun hærri upphæð.
Veitingahúsaeigendur álita það
óréttlæti, að þjónar taki laun af
söluskattinum. Þjónustugjald er
15%.
Hins vegar segir Haraldur, að
þjónar hafi áður fengið þannig
uppgert, að söluskattur hafi verið
lagður ofan á verðið á undan
þjónustugjaldi.
Þjónar eru þvi komnir i verk-
fali og krefjast sinnar prósentu af
hækkuðum söluskatti. Þeir and-
mæla einnig þvi fyrirkomulagi,
sem veitingahúsaeigendur hafa
ákveðið að taka upp, að setja á
matseðla verð réttanna að öllu
meðtöldu, einnig þjónustugjaldi.
Þjónar báru undir Alþýðusam-
band íslands skilning sinn á
samningum og telja þeir það
samningsrof að fá ekki hækkun.
Málið er fyrir Félagsdómi.
CO
—HH
Mörgum mun víst finnast „huggulegt” að fá morgunveröinn
upp i herbergi, enda ekki annarra kosta völ I morgun vegna
verkfalls þjóna. Þcssi gestur á „Borginni” naut ástandsins í
morgun.
TAUGASTRÍÐ í
MJÖLYIÐSKIPTUM
— sjá bls. 3
GERÐU INNRÁS í SKÓLA!
— Nemendurnir urðu að sœkja um inngöngu í skólann að nýju
Fyrsta april-ærsl hlupu I nem-
endur nokkurra gagnfræðaskóla
borgarinnar i gær — einum degi
of seint að visu — en það hefur
lengi verið nokkuð árviss at-
burður.
Stór hópur nemenda úr einum
gagnfræðaskólanna kom i nokk-
urs konar heimsókn i Gagn-
fræðaskólann við Ármúla og var
þar töluvert aðsópsmikill að
sögn skólastjórans.
Hann sagði okkur, að þetta
hefði verið svona á hverju ári,
en aldrei valdið neinum vand-
ræðum fyrr en nú. „Gestirnir”
komust inn um allar stofur,
lömdu hurðir og jafnvel munu
hafa verið unnar skemmdir á
rofum og tenglum.
„Ég tel, að hér þyrfti ekki að
vera um neitt vandamál að
ræða, ef tekið væri á þessu fast-
ari tökum i öllum skólunum”,
sagði skólastjórinn. Aðkomu-
hópurinn hvarf siðan á brott og
fylgdu honum einhverjir nem-
endur Ármúlaskólans.
„Við gerðum manntal i öllum
bekkjum i næsta tima og til-
kynnti ég i morgun þeim
nemendum, sem fjarverandi
reyndust, að þar sem þau væru i
frjálsu skólanámi, teldi ég þau
hafa gengið úr skóla, og yrðu
þvi að sækja um skólavist að
nýju, ef þau óskuðu. Það gerðu
þau nær öll strax i morgun og
mun þeim verða tilkynnt um af-
greiðslu málsins kiukkan fimm i
dag. Með þessu viljum við að-
eins undirstrika það álit okkar,
að við teljum, að nemendur,
sem eru að skólanámi að eigin
vali, hafa ekki leyfi til að yfir-
gefa skólann — fyrirvaralaust
ogánleyfis— án þess að til ein-
hverra mótaðgerða sé gripið.
Hér er ekki um neinar hefndar-
aðgerðir að ræða, heldur álitum
við, að hafa eigi reglur i heiðri”,
sagði skólastjórinn að lokum.
Við ræddum við nokkra nem-
endur, sem höfðu farið brott úr
skólanum i gær, og sögðu þau
okkur, að þetta hefði komið
þeim mjög á óvart. „Bæði þykir
okkur slæmt að missa úr einn
dag og svo finnst okkur þetta
ekki réttlátt, þvi það vantar oft
krakka i tima og jafnvel heilu
dagana, án þess að nokkuð sé
gert.”
—CG.