Vísir - 03.04.1973, Blaðsíða 5
Vísir. Þriöjudagur 3. apríl 1973.
5
AP/IXITB ÚTLÖNDÍ MORGUN UTLÖND I MORGUN ÚTLÖND Umsjón Guðmundur Pétursson
Verður mál Calleys
Podgornij
heimsœkir
Kekkonen
Forseti Ráðstiórnarrikjanna,
Nikolaj Podgornij, kom i dag til
Finnlands i fimm daga opinbera
heimsókn i tilefni þess, að 25 ár
eru liðin frá undirritun fyrsta
vináttusáttmála þessara tveggja
rikja. Munu þeir ræðast við for-
setarnir, Podgornij og Urho
Kekkonen, um samband
þjóðanna i framtiðinni.
Blóm að
skilnaði
Harðir í landhelginni
tekið fyrir að nýju?
William L. Calley/ liðs-
foringi/ hefur snúið sér til
hæstaréttar hersins og
óskað náðunar á dómn-
um, sem hann hlaut fyrir
fjöldamorðin i May Lai.
Byggir lögfræðingur
Calleys kröfuna um, að
áfrýjunarréttur hersins
taki málið fyrir aftur, á
nýlegum dómum, sem
hann telur, að hljóti að
breyta afstöðu herréttar-
ins.
Calley liðsforingi er enn i
stofufangelsi sinu i Benning-
virki i Georgiu. — Hans siðasta
hálmstrá, ef áfrýjunarrétturinn
bregzt honum, er Nixon forseti,
sem hefur lofað þvi, að
endurskoða mál hans sem æðsti
yfirmaður herjanna, þegar hin
ýmsu dómstig herréttarins hafa
fjallað um mál hans.
Hinn ungi liðsforingi var árið
1971 dæmdur i ævilangt fangelsi
fyrir herréttinum i Benning-
virki, fyrir morð að yfirlögðu
ráði ,,á ekki færri en 22 Viet-
nömum” og fyrir morðtilraun á
vietnömsku barni.
20. ágúst 1971 mildaði yfir-
maður þriðja hersins dóminn og
breytti honum i 20 ára
hegningarvinnu, sem herréttur-
inn staðfesti 16. feb. siðastlið-
Sagði herrétturinn, að 20 ára
hegningarvinna væri sizt of
strangur dómur fyrir fjölda-
morðin.
Calley, sem nú er 29 ára að
aldri, var 24 ára gamall, þegar
hann stjórnaði aðgerðum her-
flokks sins i May Lai sveita-
þorpinu þann 16. marz 1968. —
Framburður vitna i herréttin-
um leiddi i ljós, að herflokkur-
inn hafði ekki mætt neinni mót-
spyrnu, þegar hann kom til
þorpsins, en samt hafi fjöldi
þorpsbúa verið skotinn og drep-
inn.
Áfrýjunarrétturinn hefur 45
daga frest til þess að ákveða,
hvort hann taki til endurskoðun-
ar þetta heimsfræga mál.
t'alley liðsforingi
Frederick Weyand hers-
höfðingi, yfirmaður heraflans
iVietnam, fékk hlóm að skiln-
aði um leið og hann og siöustu
h a n d a r ís k u hermennirnir
urðu á Inirt úr Vietnam. Að
góðra dáta sið, þakkaði hers-
höfðinginn blómagjöfina með
kossi.
í ofsaroki
Vitað var um fimm skip, sem
leiítu i vandræðum vegna of-
viðrisins. Þar á meðal var eitt
skipið „sjóræningjaskip”, eins
og Bretar kalla þær ólöglegu út-
varpsstövar, sem hafðar eru um
borð i skipum utan við landhelg-
ina.
Veðrið skall á mjög skyndi-
lega og með miklum ofsa. 1 fjór-
um sýslum Englands varð mikil
ringulreið, þegar raflinur slitn-
uðu niður og hús urðu fyrir
skemmdum. Tveir menn létu
lifið, þegar tré brotnaði i veður-
hamnum og féll yfir bil þeirra i
þorpinu Scoulton.
Þrjátiu hjólhýsi fuku út af
bíiastæði i Great Yarmouth og
lentu niðri i fjöru, þar sem kom-
ið var að þeim eyðilögðum.
Bandariski flugherinn sendi
þyrlu til aðstoðar 16 manna
áhöfn brezks flutningaskips,
sem rak stjórnlaust i 10 vind-
stigum út af Norfolk. Þrjár
brezkar þyrlur björguðu svo 16
manna áhöfn flutningaskipsins
Amberly, sem var komið með
mikla slagsiðu og tók inn sjó.
Rœndu framkvœmdastjóra
og flotaforingja
Vinstrisinnaðir skæru-
liðar rændu í gær fram-
kvæmdastjóra Eastman
Kodak-fyrirtækisins i
Buenos Aires og enn-
fremur öldruðum flota-
foringja, sem kominn
var á eftirlaun.
Skæruliðarnir, sem
kalla sig byltingaher al-
þýðunnar (ERP), lýstu
ráni flotaforingjans á
hendur sér, en þeir telja,
að hann hafi átt sök á
þvi, að 16 skæruliðar,
sem voru i flotafangelsi i
Trelew, voru drepnir i
ágúst s.I.
Yfirvöld höfðu lýst því yfir, að
fangarnir hefðu verið felldir á
flótta, en skæruliðarnir hafa
haldið þvi fram, að fangarnir hafi
verið leiddir út úr fangaklefum
sinum og teknir af lifi.
Framkvæmdastjórinn, sem er
bandariskur að þjóðerni, var á
leið til vinnu sinnar, þegar bifreið
mönnuð skæruliðum var ekið á bil
hans. Átta menn stukku út og
höfðu framkvæmdastjórann á
brott með sér.
Skæruliðarnir hafa siðan ekkert
látið frá sér heyra, annað en lýsa
þvi yfir, að þeir væru valdir að
mannráninu. Þeir hafa engar
kröfur sett fram ennþá til lausnar
föngum sinum.
Þetta tvöfalda mannrán þykir
hafa sett hinn nýkjörna forseta
Argentinu, Hector Campora, i
vanda. Hann hafði i kosninga-
baráttunni lofað öllum pólitiskum
föngum frelsi. Margir þessara
fanga liggja undir ákærum um
mannrán og hermdarverk.
Sýnist mönnum.að þetta siðasta
mannrán skæruliðanna, sem
mælist mjög illa fyrir i Argentinu,
muni styrkja herforingjaklik-
una, sem krefst þess, að lögum
verði komið yfir hermdarverka-
menn.
Uruguay mun taka
„mjög strangt" á þeim er-
lendu togurum, sem veiöa
leyfislaust innan 200 mílna
fiskveiðilögsögu landsins,
sagöi yfirmaður flota
þeirra í Uruguay, Nonrado
Olazabal.
Tilefni þessara ummæla flota-
foringjans eru þau, að tundur-
spillirinn Artigas tók á miðviku-
daginn japanskt fiskveiðiskip
Sumiyoshi Maru 16, og svo annað
á sunnudag, Suiyoshi Maru 86.
Bæði skipin voru færð til hafnar i
Montevideo, þar sem skipstjórar
þeirra biða dóms.
Frá þvi 1969 hefur Uruguay
haldið fram 200 milna fiskveiði-
lögsögu og voru báðir Japanirnir
innan hennar og voru komnir með
hátt i fullfermi af túnfiski, þegar
þeir voru teknir.
1 fyrstu fréttum, sem bárust af
töku Maru 16, var sagt, að
tundurspillirinn hefði skotið á
bátinn, en þær fréttir hafa nú
verið bornar til baka.
Hvað flotaforinginn á við,
þegar hann talar um að ,,taka
mjög strangt á landhelgisbrjót-
um,” liggur ekki Ijóst fyrir, en
mönnum verður hugsað til hinnar
háu sektar, sem Uruguaymenn
tóku af griska verksmiðjuskipinu
Mykinai i fyrra, en hún nam
96.000 dollurum, og varð til þess
að griski sendiherrann mótmælti
dómnum. Honum var þó ekki
breytt.
Sjórœningjar
llvassviðri geisaði á austur-
strönd Englands i nótt og rótaði
upp ólgusjó, svo að skip áttu i
crfiðleikum i Norðursjónum.
Flýia
fíóðin
1 þorpinu Bizerte i Túnis
urðu ibúarnir að flýja heimili
sin i flóðunum I siðustu viku,
sem við sögðum frá í gær. Tal-
iðvaraðnær 53 þúsund manns
hefðu misst heimili sin. — Úr-
hellisrigningar siðustu viku
ollu flóðunum.