Vísir - 03.04.1973, Page 7
Þriðjudagur 3. aprfl 1!)73.
7
Æfingar fyrir sundbolinn
og sólina
sem gera mó hvar sem er
Minni og sterkari
bakhluti.
Sitjið með bakið beint og fæt-
urna stöðuga á gólfinu. Dragið
siðan vöðva bakhlutans saman,
þannig að þið lyftizt upp i stóln-
um og athugið að horfa beint
fram og hafa bakið beint. Teljið
upp að fimm og endurtakiö
æfinguna.
K>
Grennra mitti
Lyftið höndunum upp og teygið
siðan til skiptis hægri og vinstri
hönd upp i loftið, eins hátt og
mögulega er hægt að komast.
Látið eins og verið sé að tina ber
af trjágreinum. Þessa æfingu
má gera oft a dag, svo sem i
vinnunni, ef möppur og bækur,
sem nota þarf, eru settar I hillu
hátt uppi á vegg, þannig að ekki
sé hægt að komast I þær nema
teygja sig verulega.
Sumarið er i nánd.
Að minnsta kosti virð-
ist okkur sem sólin sé
talsvert farin að hækka
á himni, og dag hvern
lengist sá timi, sem
hún er á lofti. Það liður
ekki á löngu áður en
fólk getur farið að
ganga léttklætt um bæ-
inn, og brátt fyllast
sundstaðirnir af mann-
skap, sem ólmur vill ná
sér i lit á skrokkinn.
Svo er lika hægt að
notast við báðströndina
okkar Reykvikinga,
Nauthólsvikina, og þá
er aðeins að vona að
sumarið verði gott. En
áður en sundbolurinn
og bikinið er dregið
fram úr skáp, þá er
Fallegri og þrýstnari
upphandleggir
Réttið handleggina beint út frá
hliðunum. Snúiö siðan lófunum
meðsnöggum hreyfingum, fyrst
fram, sfðan aftur. Endurtakiö
æfinguna mörgum sinnum á
Kilóin burtu af
lærunum
Til þess að ná kílóunum burt af
lærunum og styrkja vöðvana
má gera skemmtilega æfingu.
Safnið saman nokkrum síma-
skrám og setjið þær á gólfið á
milli fótanna. Stillið ýkkur svo
upp eins og teikningin sýnir og
dragið siðan hælana að bókun-
um eins og það ætti að pressa
þær saman. Teljið upp að sex,
hvilið siðan, en endurtakið
æfinguna nokkrum sinnum.
Grannir ökklar og
sterkar ristar
Sitjið eins og teikningin sýnir.
Snúið siðan öðrum fætinum i
hringi, eins og verið sé að hjóla,
og hafið hreyfingarnar stórar og
hægar. Skiptiö siöan um fót og
gerið æfinguna oft á dag. Þeim
mun fyrr sést árangurinn.
Tannhurstinn notaður einu sinni
og síðan fleygt
Tannbursti, sem ekki er
notaður nema einu sinni, er Iík-
lega eitt af þvi nýjasta á mark-
aönum i dag. Eftir að búið er að
nota hann, má fleygja honum.
Furðulegt en samt satt. Okkur
finnst það kannski óþarfa
peningaeyðsla að kaupa einn
tannbursta fyrir hverja tann-
burstun kvölds og morgna, en
þcssir tannburstar virðast þó
ryðja sér mjög til rúms viða
eriendis.
Sérstaklega þvkja þeir hent-
ugir fyrir þá, sem ferðast mikiö
og sem næstum þvi ,,búa i
ferðatösku”, þvi að það þarf
ekki að hafa neitt tannkrem
með sér i töskunni. Tannkremiö
er i tannburstanum.
Sérstaklega virðast slikir
tannburstar ná miklum vin-
sældum á hótelum, mótelum,
skipum, i flugvélum og á
sjúkrahúsum.
Tannburstinn er tekinn úr
umbúðunum, bleyttur litillega,
og siðan byrjað að bursta.
Tannkremið kemur siöan af
sjálfu sér úr burstanum. Það
kannski nokkuð, sem
þarf að hugsa fyrir, og
það með þokkalegum
fyrirvara. Aukakilóin
eru ekkert sérlega
skemmtileg, þegar vel
á að taka sig út i sól-
inni. Aðferðirnar til
þess að losna við þau
eru nógar, en þá fyrst
kemur árangurinn i
ljós, ef viljinn er fyrir
hendi, og ef ekki er
læðzt i sæta köku eða
„gotteri”, þegar slikt á
ekki við.
Meðfylgjandi æfing-
ar ættu að hjálpa eitt-
hvað upp á sakirnar.
Þær eiga að hjálpa til
við að gera mittið
grennra, hendurnar
sterkari og fæturna
grennri. Þessar ein-
földu æfingar má gera
hvar sem er. Það þarf
engan leikfimisal eða
sérstakan búning til
þess að gera þær, en
aftur á móti verður að
gera þær hvern einasta
dag!
Umsjón:
Edda
Andrésdóttir
þarf ekki aö setja á. — Og síðan
má bara fleygja burstanum.
L4NDHELGIS
PEniMGumnn
MINNISPENINGUR UM
ÚTFÆRSLU
FISKVEIÐILÖGSÖGUNNAR
1. SEPTEMBER 1972
Allur ágóöi af sölu peninganna rennur f Landssöfnun
Landhelgissjóðs.
STÆRD & IIAMARKSUPPLAG:
Stærð peningsins er 33 mm i þvermál. Hámarksupplag er:
Gull IX karöt: 1000 stk. Silfur 925 (sterling): 4000 stk.
Bronz: 4000 stk.
PENINGURINN er gerður hjá hinni þekktu myntsláttu
AB Sporrong, Norrtiilje, Svlþjóð.
Hver peningur er auðkendur mcð hlaupandi núméri.
Sölustaðir:
JENS GUDJÓNSSON, gullsmiður, Laugavegi 60.
JÓN DALMANNSSON, gullsmiður, Skólavörðustig 21.
AFGREIÐSLA LANDHELGISPENINGSINS Armúla 1. —
Simi 82420.
TIL EFLINGAR
ISLENZKRI
FISKVEIÐILOGSÖGU.