Vísir


Vísir - 07.10.1973, Qupperneq 2

Vísir - 07.10.1973, Qupperneq 2
2 Visir. Laugardagur 6. október 1973. vtenism: Finnst yöur, aö stjórnmálamenn- irnir okkar mættu vera liflegri i kosningaáróöri? Brynja Kristjánsdóttir, húsmóö- ir: — Sumir þeirra koma afleit- lega fyrir, t.d. i sjónvarpi. Mér finnst þaö fara mjög mikið eftir manngerbum, hvernig áhrif þeir hafa á mann. Þeir mættu vera innilegri og mannlegri. Mér finnst þaö oft vanta hjá þeim. Sjöfn Benónýsdóttir, húsmóöir: — Já, það mættu þeir gjarnan. Einnig mættu vera fleiri yngri menn, sem sæju um pólitfsku kynninguna. Theódór Nordquist, fram- kvæmdastjóri: — Þeir eiga ekki að vera með neinn „sjóbisniss”. Þeir eiga að kynna sinn málstað fyrst og fremst. Ég er ekkert óánægður meö þá kynningu. Hún hefur breytzt með tilkomu sjón- varpsins, en ég hef þó ekki trú á, aö pólitiski áróðurinn verði eins og i Bandarikjunum, þar sem hann er nokkurs konar sirkus. Jón Guöjónsson, frv. rlkisstarfs- maöur: — Nei, þaö held ég ekki. En ég er svo ópólitiskur og læt mér nægja aö hlusta á pólitikus- ana með öðru eyranu og láta það fljóta út um hitt. Ilrafnhildur Amundadóttir, skrif- stofustúlka og húsm.: — Mér finnst þeir fulldaufir, en þeir mega auðvitað ekki fara aö spila sig neitt. Maður má ekki fá á til- finninguna, að veriö sé að spila með mann. Valdimar Helgason, leikari: — Hvað er aö vera liflegur? Ég veit ekki, hvernig þeir geta verið lif- legir. Svo ber ég ekkert skyn- bragð á pólitik. LCSENDUR HAFA ORÐIÐ fg| Seðlabankann um borð í Gullfoss Ólafur Hauksson skrifar: — Allir eru að kvarta út af Seðlabankanum. Tveimur árum eftir að ákveðið er aö reisa hann við Sölvhólsgötu, þá ris fjöldi manna upp og mótmælir stað- setningunni. Seðlabankann vantar húsnæði, og þá er ég kominn að merg máls- ins. Miðlunartillaga, sem ætti að gera Arnarhólsverndunarmenn ánægða og útvega húsnæði fyrir bankann. Þar að auki bjargar þessi tillaga (ef einhver sam- þykkir hana) sjálfu óskabarni islenzku þjóðarinnar frá glötun og gleymsku. Gullfoss, flaggskip lslendinga var að fara i sina seinustu ferð fyrir nokkru. Ég legg til að Seðlabankinn fái húsnæði sitt i Gullfossi. Hægt er að leggja skip- inu við einhverja litið notaða höfn, þar sem nóg er af bila- stæðum. Nú, ef Seðlab.. afsakið, Gullfoss, skyggir á útsýnið, þá er varla mikil fyrirhöfn að ræsa vél- arnar og flytja hann á annan staö. Nordal gæti nú kallað sig skipper og bankaráðsmenn fengju ýmsar ekki ófinni nafn- giftir. Talað er um, að Seðlabankinn stjórni i raun og veru öllu at- hafnalifi landsmanna. Þvi væri ekki úr vegi að leigja rikisstjórn inni káetu til stjórnarstarfa. Þá er lika komin sú margumrædda Þjóðarskúta, sem skopteiknarar hafa verið að gera sér i hugar- lund. Og úr þvi að Seðlabankinn verður þarna, þá á skútan auð- vitað að heita Gullfoss áfram. Sjálfsagt er, aö ráðherrarnir fái að taka I stjórnvölinn við og viö. Þá geta þeir siglt þjóðarskútunni i strand í sinu eigin kjördæmi. Eflaust er nóg rými um borð i Gullfossi til að hýsa allt kerfið. Ef báknið þenst út, þá má setja það á pramma sem dregnir eru af skip- inu. Svoleiðis prammar eru notaðir i New York og viðar til að ferja rusl út i hafsauga. Ómögulegt er að telja upp allt það gagn sem nú fengist úr hús- næði rikisbáknsins. Allir valda- mennirnir geta farið i sumarfri i einu og tekið skrifstofuna með sér. Þarna er óskabarni islenzku þjóðarinnar sem sagt bjargað. Einsýnt þykir að tekinn verði upp nýr þjóðsöngur, eða lagið sem hljómsveit Ingimars Eydal sönglar stundum: Gullfoss með glæstum brag greiðir oss heillaför.. Aðeins tvœr eiturœtur af hundrað bjargast ,,Eitt af sterkustu eitur- og fikniefnum veraldar er heróin. Það brýtur niður hvern sem er á stuttum tima og gerir hann eða hana að viljalausum vesa- ling. Samkvæmt visindalegum rannsóknum bjargast aðeins tveir af hverjum hundrað, sem farnir eru að sprauta i æð þessu eitri. Og til þeirrar björgunar eru þó viða notuð öll ráð, sem sérlærðir læknar og fagmenntað hjúkrunarfólk hefur yfir að ráða. Þvi er spurt: Er ekki hægt að útrýma sliku eitri? Er ekki hægt að koma i veg fyrir, að það verði á vegi fólks? Jú, sjálfsagt er það hægt. En i kjölfar tóbaksreykinga og á sömu vegum er það orðið auðs- uppspretta til handa samvizku- lausum einstaklingum annars- vegar og heilum auðhringum hins vegar Peningar, peningar, fjárvon, fjárvon... eru hrópin, sem þarna eru orðin yfirskrift, Einkum láta þau sætt I eyrum allslausra unglinga, hugsunar- lausra heimskingja, sem telja sig gripa i stélið á gullgæs hamingjunnar á þann hátt að útvega eitur og selja það siðan. Þetta er ein hræðilegasta freisting á vegum frjálsrar æsku. Allt, sem gert er til að varna útbreiðslu, sölu út- vegun, kaupum og gjöfum á þessu eitri er þvi þýðingar mikið. En er ekki hægt að stöðva ræktun og framleiðslu? Það er erfitt, segja visindin. Ræktun slikra • plantna er at- vinnuvegur margra milljóna. Plönturnar eru raunar ekki notaðar beint. En eitrið er unnið úr þeim I vissum verksmiðjum. Og það er aftur atvinna annarra tugþúsunda eða mill- jóna. Úr sömu plöntum er nefnilega unnið codein, sem notað er að meinalausu við verkjum og kvillum, sem einkum þjáir taugaveiklað fólk. .Samt er von, segja sér- fræðingarnir. Það er hægt að vinna codein úr annarri ná- skyldri jurt, sem ekki er skað- leg. Væri unnt að fá framleiðendur til að skipta og rækta hana i staðinn, væri miklu bjargað. Og sú planta hefur þann kost, að hún er fjölær. En valmúinn, sem heróinið er unnið úr, er aðeins einær jurt. — En fyrir hann er boðið meira fé. Það gerir muninn. önnur mikilsverð athugun hefur einnig verið gerð. Hún er kennd við Norðmanninn, Olav Brænden, og er i þvi fólgin, að reikna út, hvaðan efnin koma og stöðva þau á leiðinni, helzt áður en þau fara af stað eða eru afgreidd. Margar þjóðir mundu vilja greiða stórfé, aðeins til að fá þau eyðilögð áður en þau yrðu send á markaðinn. En þessi aðferð hefur tapað Hringið í síma 86611 6 milli kl. 13-15 Gjafa- barna- deildin ,,Nú er kjörið tækifæri fyrir fæðingalækna að sýna kærleik sinn á borði, svo og fyrir aðra lækna t.d. tauga- og geðlækna að sýna ást sina á andlegum heilindum sam- borgarans og fyrirbyggjandi aðgerðum. Stofnið nú öfluga, verndaða kjördeild- gjafa- barnadeild- i hinu nýja húsnæði fæöingadeildar- innar og bjóðið öll börn velkomin. Hafið eina opna sjúkrastofu fyrir stúlkutetrin og styðjið þær og styrkið á allan hátt. Upprætið hinn aldagamla hugsunarhátt, að það sé smán og skömm að gefa sitt barn. Það er nefnilega ólikt meiri gæfa að gefa barn sitt góðu fólki en að láta deyða það. Lofthænur og aðrir skammsýnir menn, sem barizt hafa fyrir frjálsum fóstureyðingum, þekkja ekki þjáningar þeirra ógæfusömu súlkna, sem hafa látið eyða börnum sinum. Margar þeirra eru meira og minna sálsjúkar alla sina ævi. Sumar geta aldrei átt börn. Tómt hús er að tala um kostnaðarhliðina á þessu máli, almannafé er svo bruðlað og sóað i þarflaus mál eins og t.d. fóstur- eyðingardoðrantinn, að engu tali tekur. Hvað skyldi hann hafa kostað? Svo er að sjá og heyra eftir nýjustu tölum frá fæðingadeildinni, að fóstur- eyðingar séu orðnar frjálsar hér og það fyrir löngu. Hver ber ábyrgð á þessu þjóðar- morði? Fer kannski fram skipulögð upptaka á borg- urunum jafnt fæddum sem ófæddum á vegum rikis- stjórnarinnar? Varla hinir góðhjörtuðu fæðingalæknar, sem ekki vilja koma nálægt þessu? Mörg barnlaus hjón hafa tekið börn áf erlendum uppruna. Sum meira að segja dökk á hörund. Það er hvorki gæfulegt fyrir viðkomandi barn né þjóðina i heild. Garún — Garún” gildi, vegna þess að nú er farið með auðveldum hætti að vinna ópium, morfin og herónin úr plöntum, þar sem þær eru rækt- aðar og hráefnið þvi ekki flutt út heldur fullunnin vara, sem ómögulegt er að fylgjast með. Olav Brænden telur ,,hash” eða heróinblöndur meiri hættu en allt annað á vegum mann- kynsins, einkum vegna þess að hash rænir neytandann allri dómgreind og tilfinningu á ör- stuttri stund. Hann getur framið hryllilegustu glæpi með köldu blóði, þótt hann annars væri hið mesta göfugmenni. Segja má þó, að rannsóknir á þessum efnum, samsetningu þeirra og verkunum séu enn á byrjunarstigi. Sumt ungt fólk, sem segist hafa reykt „hash”, telur það meinlaust og áhrifalitið. En sérfræðingarnir segja við þessu fyrirbæri nokkuð, sem er vert er að taka með i reikningin- „Þá hefur þú verið svikinn og fengið heyblöndu i staðinn, sem lyktar svipað og er kannske framleidd á svipuðum slóðum. Einhver milliliðanna hefur viljað fá peningana þina fyrir litið’.’ En þakkaðu samt fyrir. Þú hefur þá ekki glatað sál þinni, meðan þú reyktir heyið. Hún er meira virði en peningar. Arelius N'ielsson”

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.