Vísir - 07.10.1973, Blaðsíða 9

Vísir - 07.10.1973, Blaðsíða 9
Visir. Laugardagur 6. október 1973. Umsjón : Stefán Guójohnsen I S*a*5 !♦ ♦ ♦ +*+ + +it ♦ ♦ ?♦'♦? ♦ ♦ *♦ ♦ Fyrri hálfleikur okkar við Norðmenn á Evrópumótinu i Ostende var okkur hagstæður um 30 punkta og hjálpuðu gróf mistök þeirra norsku mikið. Þetta var spil nr. 6, a-v á hættu og austur gaf. A D-8-6 V D-10-3-2 ♦ D-G-3 4» D-10-9 4V 4y A V A K-10-9-5-3-2 V A-G-6 A-6 K-2 * 7-4 ekkert K-10-7-4 A-G-8-7-6-5-4 1 opna salnum gengu sagnir þannig: Austur Suður Vestur Norður Páll Breck Jón Lien 1 A 2 4* 3 * D ! V 4 «» Báðir norðurspilararnir spil- uðu út laufatiu og fyrstu fjórir slagirnir voru eins. Kóngur úr blindum, ás og laufafjarka spil- að til baka. Sagnhafi trompaði, tók hjartakóng, svinaði hjarta- gosa og spilaði spaða. Hér skildu leiðir, Jón drap eðlilega á ásinn, spilaði meiri spaða á kónginn, trompaði spaða og fékk auðveldlega 11 slagi. Norski sagnhafinn fékk hins vegar þá hugdettu að svina spaðagosa og þegar norður drap með drottningu og spilaði tígli, þá var pottþéttur samningur gjörtapaður. Sagnhafi fékk að lokum 8 slagi og Island græddi 850 eða 13 IMP. Það er athyglisvert að hvorugur norðurspilarinn býður Gróf mistök norskra hjólpuðu mikið Og i þeim lokaða þannig: Austur Suður Vestur Norður Finnvold Karl Andreass. Stefán 1A 2 3 ¥ upp á fórnina með þvi að taka undir laufið, en fórnin er mjög góð. Eftir að makker hefur sagt tvö lauf, þá er ekki ósennilegt að fjögur hjörtu tapist, enda varð sú raunin i lokaða salnum til allrar hamingju. Tveimur spilum seinna kom þetta: Allir utan hættu, vestur gefur. A K-G-10-7-3-2 ¥ G \ 2 * A-9-6-5-4 A A-8-S A D-8-6-3 * A-D-7 * D-7-2 A 5-4 ¥ A-K-10-5-4-2 0 G-5-4 A G-3 A D-9 y 9-7 4 K-10-9-8-6-3 A K-10-8 1 opna salnum voru sagnir stuttar en ótrúlegar: Vestur Norður Austur Suður 1 G 4A! D - Austur spilaði út hjartaás og Siðan laufagosa. Sagnhafi drap með kóng, spilaði spaðadrottn- ingu, sem var gefin og siðan spaðaniu. Vestur drap og siðar fengu a-v tvo slagi i viðbót, 100 til íslands. 1 lokaðasainum gengu sagnir hins vegar þannig: Vestur Norður Austur i ¥ 2 * 3 ¥ 2 A Suður 3 A Laufagosinn hafði jafnmikið aðdráttarafl i lokaða salnum og að vörmu spori lá hann á spila- borðinu. Norður drap með kóng, spilaði spaðadrottningu, sem vestur gaf. Þá kom laufatia og svinað, siðan spaðania. Vestur drap á ásinn og a-v fengu siðan á rauðu ásana, slétt unnið og 420 til tslands, 11 IMP. Bæði þessi mistök kostuðu Norðmennina 24 IMP en þeir töpuðu leiknum með 8 IMP eða 12-8. Meistaratvimenningskeppni Bridgefélags Reykjavikur hófst s.l. miðvikudagskvöld i Domus Medica. Fjörtiu og átta pör taka þátt i keppninni og eru þessir efstir: 1. Hannes Jónsson og Oliver Kristófersson 259. 2. Asmundur Pálsson og Stefán Guðjohnsen 257. 3. Hörður Blöndal og Simon Sfmonarson 253. 4. Gunnar Guðmundsson og Orn Guðmundsson 241. 5. Sigtryggur Sigurðsson og Anton Valgarðsson 241. 6. Benedikt Jóhannsson og Vilhjálmur Sigurðsson 238. 7. Hilmar Guðmundsson og Jakob Bjarnason 237. 8. Gyifi Baldursson og Sveinn Helgason 233. 9. Bragi Erlendsson og Rikharð- ur Steinbergsson 233. 10. Magnús Ingimarsson og Stefán Jónsson 233. Næsta umferð verður spiluð n.k. miðvikudagskvöld i Domus Medica og eru spilarar beðnir að mæta timanlega, eða kl. 19.55. Bridgefélagið Asarnir i Kópa- vogi hóf vetrarstaríið 1. okt. með 1 kvölds tvimenningi. Sigurvegarar urðu: Páll Þórðarson og Bergvin Oddsson með 155 stig. 1 öðru sæti: Gestur Sigurgeirsson og Vilhjálmur Þórsson með 132 stig. 1 þriðja og fjórða sæti: Hermann Lárusson og Lárus Hermannsson og Jón Her- mannsson og Hallvarður Guð- laugsson með 126 stig. Mánudaginn 8. okt hefst 3 kvölda tvimenningur og verður spilað i Félagsheimili Kópavogs efri sal. Keppni hefst kl. 8 stund- vislega. Þátttaka tilkynnist til Sveins A. Sæmundssonar i sima 40342 eða 41260. Vísnaþættir hafa notið mikilla vinsælda hér í blaðinu. Hefur því verið ákveðið að endurvekja þá nú. Verður þátturinn á laugardögum og þurfa botnar að hafa borizt blaðinu fyrir laugardag. Leyfilegt er einnig að senda þættinum vísur og geta þá gjarnan tilefnis. Utanáskrift þáttarins er ,,Dagblaðið Vísisr, Síðumúla 14, Vísnaþáttur. Svo er hér fyrsti fyrri- parturinn: Húmar að og haustið svalt hneppir ailt i dróma. Þótt margir hafi haldið þvi fram að nýja ljóðformið hafi gengið af þvi gamla dauðu virðist lausavisan enn lifa góðu lifi hér- lendis. Kemur þar trúlega margt, til, en það, sem gert hefur þaö að verkum, að erfitt hefur reynzt að gera út af við hana er það, hve margir geta ort sæmilegar stökur. Þó virðist manni þessi iðja fara heldur minnkandi, og þar sem skáld af yngri kynslóð- inni gera litið, ef nokkuð, að þvi að birta stökur i bókum sinum, verður fólk ekki eins mikið vart við þær og áður. Fólk er aldrei á einu máli um skáldskap, en trúlega eru einhverjir sammála Kankvis er hann segir: Við áttum skáld, sem ortu snilldar Ijóð og unnu bæði landi sinu og þjóö. En launin voru löngum fremur smá. — Vér ljóðin eiskuðum — en sveltum þá. En atómljóð, sem einskis eru verð, er okkar tima helzta Ijóðagerð. En til eru menn, sem skáldskap skilja og dá. — En skáldin eru nú að svelta þá-. En það var ekki ætlun min að fara að tala illa um atómskáldin eða það ljóðform, sem nú er rikjandi hér á landi: það lifir, hvaðsem hver segir. Hitt eraftur annað mál, að það er ef til vill óþarfi að varpa gamla ljóðforminu fyrir róða eingöngu fyrir elli sakir. Leirkveðskapur hefur alla tið lifað góðu lifi hér. Þegar Kisilgúrverksmiöjan var sett á stofn við Mývatn orti Kankvis. Áður var dýrasta útflutningsvara hin islenzka stórbrotna Ijóöagerð. Og kannski tekst nú vorum kaupsýsluskara að koma mývetnskum leir I verð. Þar sem nýju togararnir okkar hafa verið i hálfgerðum lama- sessi siðan þeir komu til landsins gæti manni dottið i hug að þeir hafi verið smiðaðir af svipuðum mönnum og næsta visa lýsir. Vizkudrjúgur vinur minn af verklagni stýrir atinu. Þegar hann byggði bátinn sinn, hann byrjaði á neglugatinu. Og nóg frá Kankvis að sinni. Þar sem ég er byrjaður á að birta hér gamanvisur, en eins og mörgum er kunnugt orti Kankvis daglega i eitt dagblaðanna það lengi, að það gæti trúlega kallast heimsmet i yrkingum, þvi ekki úr vegi að minnast örlitið á annað gamanskáld, sem orti sinar visur og ljóð i annarri heimsálfu og það er K.N. Ekki veit ég hvort K.N. hefur verið trúaður öðrum mönnum fremur, en þó finnst mér eftirfar- andi visa benda til þess. Tilefni visunnar var það að trúboði kom til hans þar sem K.N. yar að moka flór. Þegar trúboðinn hafði lokið ræðu sinni sagði K.N. Kýrrassa tók ég trú, traust hefur reynst mér sú. t flórnum þvi fæ ég aö standa fyrir náð heilags anda. Svona finnst mér að trúaður maður ætti að bregðast viö mönn- um, sem eru að boða viðkomandi trú. En K.N. sækir mörg yrkisefni i Bibliuna, og á einum stað segir hann: Ef að kraftur orðsins þver á andans huldu brautum. Gefa á kjaftinn verðum vér vorum skuldunautum. Honum dettur einnig skemmti- lega i hug eftirfarandi visa, þegar manni var „gefiö á hann.” Lesið hef ég lærdómsstef, þótt ljót sé skriftin, og sist ég efa sannleiks- kraftinn að sælla er að gefa en þiggja — á kjaftinn. 1 næstu visu er einnig vitnað i Bibliuna. Ef ég man það ekki skakkt, — engan vil ég styggja, — Kristur hefur sjálfur sagt: „Sælla er að gefa en þiggja.” island mæta þjóðin þér þakkir bæri að votta, ef þú gætir gefiö mér gálga og snærisspotta. Ekki varð islenzka þjóðin við þessari bón, og ber að votta henni þakklæti fyrir það. Svo ég snúi mér að alvarlegri efnum, var örn Arnarson snill- ingur i visnagerð og þjóðskáld eins og allir vita. Nú er vetur að ganga i garð, kanski i tvennum skilningi hjá sumum, en um það yrkir örn: Herðir frost og byljablök. Ber mig vetur ráðum. Ævi min er vörn i vök. Vökina leggur bráðum. Adeilan var að minu áliti mikill þáttur i skáldskap Arnar. Hávært tal er heimskra rök. Hæst i tómu bylur. Oft er viss i sinni sök sá, er ekkert skilur. Nú er farið að hausta og vetur að ganga i garð og trúlega er vart hægt að lýsa þessu betur en i eftirfarandi visu Arnar: Norðanhitran bleikir völí, blöðin titra á greinum, hljóönar sytra, hvitna fjöll, hrimkorn glitra á steinum. Með þessum orðum og næstu visu kveður þátturinn. Sendiö okkur visna val, sem valda i lofti bliku. Vor þáttur kveður hrund og hal. Hittumst í næstu viku. Ben. Ax. A 'l Pf IÐNSK ÓLINN í REYKJAVÍK Ráðgert er að Meistaraskólinn 1973-74 taki til starfa hinn 19. október n.k. Fer innritun frarn dagana 8.-9. og 10. októ- ber, i skrifstofu skólans. — Teknir verða mest 50 nemendur og ganga þeir fyrir, sem lokið hafa sveinsprófi i múrun og húsasmiði árið 1971 eða fyrr—Skólagjald er kr. 5.000. Skólastjóri ____^roSrriurbrauðstofan 4 jr -----------—- BJaRINIIIMN Niálsgata 49 Sími '5105

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.