Vísir - 07.10.1973, Page 3

Vísir - 07.10.1973, Page 3
Visir. Laugardagur 6. október 1973. 3 Hvers virði er „lausn" Einars í Einar Agústsson utanrikisráö- lier.ra heiur i viötölum i Banda- rikjunum látiö aö þvi liggja, aö slikar hugmyndir séu helzt á dag- skrá. Er þetta einhver „lausn” á öryggismáiunum eða aðeins sjón- spil? Visir spuröi forystumenn stjórnmálaflokkanna um það. varnarmálunum? Fara flestir eða allir bandarisku hermennirnir af vellinum en bandariskir og íslenzkir „tækni- inenn" komi i þeirra stað? Verður áfram NATO-stöð á Keflavikurflugvelli án rcglulegs hers. en NATO auki eftirlitsstarf frá stöðvum i Skotlandi i staðinn? Sjálfstœðisflokkurinn sigraði þegar kosið var um varnarmálin — rœtt við Jóhann Hafstein formann Sjálfstœðisflokksins „Öryggismálin eru okkar alvarlegustu mál", sagði Jóhann Hafstein, formaður Sjálfstæðisflokksins, i viðtali við Visi i morgun. „t landhelgis- máiunum eigum við að geta staðið saman allir, en ágreiningur er um öryggis- málin. Meðan sumir vilja við- halda og styrkja samstarf vest- rænna þjóða um öryggismálin, eru aðrir, sem viija halda i austur. Um för utanrikisráðherra vil ég litið segja á þessu stigi. Hann hefur sagt, að það sé Alþingis að taka ákvörðunina og það verður viðfangsefni þingflokks og miðstjórnar Sjálfstæðis- flokksins og annarra flokka að bregðast við málunum með ábyrgð og alvöru. Ég vil minna á, að einu sinni var kosið um varnarmálin i þingkosningum. Það var ekki i siðustu kosningum, heldur árið 1956, þegar allir flokkar nema Sjálfstæðisfl. höfðu fyrir kosningar lýst þvi yfir, að varnarliðið skyldi fara. Sjálf- stæðisflokkurinn fékk i þeim kosningum meira fylgi en hann hafði haft um langan aldur. Hinir flokkarnir breyttu siðar stefnu og sömdu i nóvember 1956 um, að varnarliðið skyldi vera áfram. Við sjálfstæðis- menn erum enn sömu skoðunar og þá, og ég hygg ekki, að hugur fólksins sé mikið breyttur i þessu máli. Afstaða Sjálfstæðisflokksins er skýrt mörkuð i ályktun lands- fundarins i vor og sérstökum bæklingi um öryggismálin, sem flokkurinn gaf út. Hún er i stytztu máli sú: „Að haga öllum aðgerðum og ákvörðunum i varnarmálum á þann veg, að öryggi lands og þjóðar verði ekki stofnað i hættu," eins og segir I ályktun flokksins” —HH ## Tímabœrt að Íslendingar taki meiri þátt í eftirlitsstarfinu — segir Gylfi Þ. Gíslason Gylfi Þ. Gislason, formaður Alþýðuflokksins, tekur hug- myndum utanrfkisráöherra um varnarmálin ekki óliklega. „Fyrir Alþingi liggur þings- ályktunartillaga um endur- skoðun varnarsamningsins, flutt af öllum þingmönnum Alþýðuflokksins. Við erum þeirrar skoðunar, að tslend- ingar eigi að vera áfram i Atlantshafsbandalaginu. Fyrst og fremst með aðild að þvi verða varnir tslands tryggðar. En við teljum orðið timabært að endurskoða núverandi skipan varnarmálanna”, sagði Gylfi Þ. Gislason, i viðtali við Visi I morgun. „Stöðin i Keflavik gegnir mjög mikilvægu eftirlitsstarfi á Norður-Atlantshafi. Þvi starfi verður að halda áfram. Við teljum hins vegar, að tslendingar eigi og geti tekið þátt i þvi i vaxandi mæli og að nú beri að tryggja, að svo veröi. Til þeirra starfa þarf ekki fyrst og fremst hermenn I venjulegum skilningi þess orðs. íslenzkir tæknimenn land- helgisgæzlan og islenzk lögregla gætu i siauknum mæli tekið að sér störf i þágu þessa eftirlits. Einnig ætti að skilja algerlega milli allrar starfrækslu eftirlits- stöðvarinnar og farþega flugsins. Mér hefur til dæmis alltaf verið mikill þyrnir i augum, að tslendingar skuli þurfa að aka framhjá banda- riskum hermönnum, þegar þeir fara inn á og út af Islenzkri flug- stöö. Ég geri ráð fyrir, að við- ræöur utanrikisráðherra séu á algeru byrjunarstigi og get ekkert um þær sagt án nánari vitneskju. Úrsögn úr Atlants- hafsbandalaginu er ekki til umræðu, og ég hlýt að vona, aö niðurstaða viðræðnanna verði nýr samningur, i grundvallar- atriðum i anda þeirrar tillögu, sem við þingmenn Alþýðu- flokksins höfum flutt um máliö”. —HH Gylfi Þ. Gíslason „Ekki fyrirfram hafna því" bandalagsins um uppástungur Einars Eru Alþýðubandalagsmenn sáttir við þær hugmyndir, að hér verði bandarlskir tækni- menn og tslendingar verði þjálfaðir til að taka við störfum i NATO-stöðinni i Keflavik, en eiginlegir hermenn fari? „Persónulega tel ég það mjög mikinn áfanga, ef við losnum við hermcnn”, sagði Gils Guðmundsson, þingmaður Alþýðubandalagsins, I viötali við VIsi I morgun. „Viðhorf okkar i Alþýðu- bandalaginu er, að við ættum að hverfa úr NATO og þá væru fallnar brott hugsanlegar skyldur, sem við hefðum gagn- vart þvi. Nú er það ekki fyrir hendi að um það sé að ræða að við förum úr NATO, eins og undirstrikað var við myndun rikisstjórnarinnar”, segir Gils, „þar sem ekki var samkomulag milli stjórnar- flokkanna um það. Þá vaknar að sjálfsögðu sú spurning hvað á að taka við, þegar herinn fer. Alþýðubandalagið hefur ekki fyrirfram neitað þeim mögu- leika, að um þetta sé rætt, enda þótt við kysum, að allt, sem lyktar af njósnum og herstarfi, leggist niður og völlurinn verði eingöngu fyrir almennt flug, „civil”. Ég vil ekki á þessu stigi hafna því, áð það komi til umræðu, hvað tekur við, eftir að herinn fer”, sagði Gils. —HH Gils Guðmundsson HÆGRI/fUPPREISNARMENN" FRAMSOKNAR BÍÐA ÁTEKTA Það er forvitnilegt að vita, hver er afstaða þeirra þingmanna Framsóknar, sem höfðu lýst yfir andstöðu við brottför hersins, á hugmyndum utanrikis- ráðherra. „Ég hef ekki tekið ákvörðun um þessi nýju viðhorf þeirra”, sagði Björn Pálsson alþingis- maður i viðtali við blaöið i morgun. „Ég vil vera áfram I NATO og semja við Bandaríkjamenn,” sagöi Björn. Jón Skaftason alþingismaður lét einnig i ljós, að hann vildi bfða átekta, áður en hann tæki afstöðu til málsins. Asamt þeim tveimur höfðu að minnsta kosti þrir þingmenn Framsóknarlátiðað þvlliggja , eins og málin horfðu áður að þeir væru andvígir brottför hersins, Björn Fr. Björnsson, Ingvar Gislason og Steingrímur Hermannsson. —HH Björn Pálsson SÁ STÆRSTI VAR EIN MILLJÓN Skyndikönnun hjá Seðlabankanum Er almenningur aðþrcngdari peningalega um þetta leyti en aðra tima árs? Skyndikönnun Seðlabankans á innstæðulausum tékkum virðistgefa það til kynna. t fyrrakvöld fór ein slik fram og voru þá 616 innstæðulausir, sam- tals að upphæð 10.096.733 krónur. Sveinbjörn Hafliðason, lög- fræðingur Seðlabanka íslands, sagði okkur, að á sama tima i fyrra hefði verið gerð könnun og þá var upphæð innstæðulausra ávisana nær þvi sú sama og i gær. 1 tveimur siðustu könnunum, sem gerðar hafa verið snemma árs, er upphæðin aftur á móti nálægt helmingi minni. 1 öll skiptin er fjöldi ávisana alltaf mjög svipaður eða milli sex og sjö hundruð. Sveinbjörn Hafliðason sagði, að stærsta ávisunin, sem inn- stæðulaus hefði verið að þessu sinni, hefði verið að upphæð ein milljón króna. Hann sagði, að flestar ávisanir væru venjulega að upphæð undir 5000krónum og hefði einnig verið svo nú. Meðal þeirra reikninga, sem kemur i ljós að gefnar hafa verið út á innistæðulausir tékkar er alltaf töluvert af launa- reikningum, það er reikningum, sem fyrirtæki leggja launa starfs- manna sinna inn á. —ÓG Hvaða Steinunn? Steinunn Sigurðardóttir, einn fréttaskýrenda i Landshorni, þætti Sjónvarpsins, sem hóf göngu sina i gærkvöldi, cr ekki blaðamaður á Morgunblaðinu. Þannig kynntum við hana i blaðinu i gær, en það er sem sagt ekki rétt. Steinunn hefur starfað sem fréttamaður hjá Útvarpinu og einnig hefur hún ritað greinar i ýmis blöð. — ÓG

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.