Vísir - 20.10.1973, Síða 1
63. árg. — Laugardagur 20. október 1973 — 242. tbl.
íslendingar í fjórflutningum
milli Sovét og Indlands
— sjá baksíðu
Klippti framan
af fingri í
göngu-
grindinni
Innflutt göngugrind varö
þess valdandi, aö barn missti
framan af fingri, er þaft var
aö hossa sér i grindinni. Setti
harniö fingur á milli, þar
sem járnin skerast.
Sjá baksiðu
Aðeins 7
prestaköll
ón presta
Það virðist i tizku mcðal
ungra menntamanna að læra
til prests. Guðfræðideildin
útskrifaöi sl. 2 ár 14
guðfræðinga, og nú er svo
komiö, að aðeins 7 brauö eru
prestslaus á öllu landinu. 1
fyrra voru 7 ungir prestar
vigðir og 7 hafa þegar tekið
vigslu i ár.
Sjá Kirkjusiðuna á bls. 8
„Lóta hin um
að hugsa"
Ráðlegging danska skák-
mannsins og stórmcrstarans
Bent Larsens til þeirra,
sem lenda i þeirri aðstöðu að
tefla á móti einhverjum, sem
lent hefur i timahraki, er sú,
,,að fá sér tesopa eða súkku-
laðibita, slappa af og láta
hinn um að hugsa”.
Sjá nánar í skákþætti
á bls. 14.
Alþýðubandalag einangrað
Magnús Kjartansson telur ólíklegt en ekki útilokað að afgreiða mólið með /7bókun#/
Magnús Torfi Ólafsson og Björn
Jónsson, ráðherrar Krjálslyndra
og vinstri manna i rikisstjórninni.
stvðja Ólaf Jóhannesson i land-
helgismálinu. Þetta kom fram i
viðtölum Visis við þá i gærkvöldi.
I>ar með er Ijóst, að Alþýðu-
bandalagið er einangrað i rikis-
stjórninni.
Forsætisráðherra sagði i sjón-
varpsviðtali i gærkvöldi, að hann
mundi tæplega treysta sér til að
bera ábyrgð á þvi, að samnings-
drögum hans og Heath yrði
hafnað.
Hann gefur þar i skyn , að hann
muni standa og falla með
afgreiðslu þessa máls.
Hvað segja Alþýðubandalags-
menn, vilja þeir einnig standa og
falla með sinni afstöðu?
„Þingflokkur Alþýðubanda-
lagsins álitur, að þessi grund-
völlur sé ekki eins og er þess
eðlis, að rétt sé að samþykkja
hann, ” sagði Magnús Kjartans-
son iðnaðarráðherra. ,,l>etta er
okkar mat á hlutunum, svo
verður haldið ál'ram að athuga
málið, og hvað út úr þvi kemur,
veit maður auðvitað ekki.
Magnús Kjartansson taldi mjög
óliklegt, að þetta mál yrði afgreitt
með bókun mótmæla ráðherra
Alþýðubandalagsins. En slika af-
greiðslu hlaul ákvörðun um leng-
ingu á flugbraul Kellavikurflug-
vallar, sem Alþýðubandalags-
menn voru mótfallnir á sinum
tima. Hann vildi þó ekki útiloka
þann möguleika, að „bókunar-
aðferðin” yrði notuð. Efnisatriði
málsins vildi Magnús ekki ræða
að svo stöddu.
„Eg tel réll að ganga til
samninga á þeim grundvelli, sem
forsætisráðherra lagði með för
sinni til London”, sagði Magnus
Torfi Ólafsson menntamálaráð-
herra. Efnislega sagði Björn
Jónsson það sama i ræðu sinni i
útvarpi i fyrrakvöld, og staðfesti
hann það aftur i viðtali i gær-
kvöldi.
Þingfiokkar allra flokka voru
á fundum i gær. Afstaða
Framsóknarflokksins er vafa-
laust með forsætisráðherra
sinum. Þingflokkar sjálfstæðis-
manna og Alþýðuflokks eru enn
að kanna málið, og vildu þeir
(ívlfi 1>. Gislason og Geir
Hallgrimsson ekkert um málið
segja að svo stöddu.
—ÓG
Ólafur Jóhannesson for-
sælisráðherra kynnir bre/ku
tillögurnar fyrir blaða-
inönnuni á fundi i gær.
Ilannes Jónsson blaðafull-
trúi situr við lilið hans og
tekur allt upp á segulhand.
(Ljósm. Visis BG)
„Vil semja ó grundvelli
okkar Heath,f - se9ir ö|(rfur
— vildi ekkert segja um andstöðu Alþýðubandalagsins í múlinu
„Ég tel ekki rétt að kalla
brezku tillögurnar úrslita
kosti. fcg tel að þetta séu tillögur
eða grundvöllur tillagna, sem
orðiö hefur til viö skoöanaskipti
og tillagnaskipti á milli min og
forsætisráðherra Breta”. Þetta
sagði Ólafur Jóhannesson i gær
um túlkun Þjóðviljans, mál-
gagns Alþýöubandalagsins, á
þeim grundvelli að samkomu-
lagi viö Breta, sem Ólafur
kynnti á blaðamannafundi i
gærdag.
,,Þó er það svo, að ég hef ekki
samþykkt þennan grundvöll, til
þess hafði ég ekkert umboð”,
sagði forsætisráðherra enn-
fremur.
Forsætisráðherra var spurður
að þvi, hvort hann vildi segja
alveg hreint út um, hvort hann
vildi samþykkja þessar tillögur.
Svar forsætisráðherra var
skýrt og greinilegt -JÁ-. Engin
afstaða hefði verið tekin til til-
lagnanna i þingflokki
Framsóknarflokksins frekar en
öðrum þingflokkum, nema ef
vera kynni i þingflokki Alþýðu-
bandalagsins.
,,Ég vil ganga til samninga
við Breta á grundvelli þessara
niðurstaðna af fundinum i
London.sagði Ólafur Jóhannes-
son. „Það þýðir ekki endilega,
að ég sé ánægður með allt i
samkomulaginu. Sérstaklega
vil ég þar nefna veiðisvæðin. Þó
vil ég sérstaklega vekja athygli
á þvi, að með þessu eru verk-
smiðjutogarar algjörlega úti-
lokaðir frá veiðum hér við land.
Þetta er að minu áliti mjög
mikilsvert atriöi, sem hefur
ávallt verið okkur mikiö kapps-
mál að ná fram”.
. Ólafur Jóhanne'sson var
spurður að því, hvað andstaða
Alþýðubandalagsins- gegn
þessum samningum þýddi,
þegar upplýst væri, aö hann
vildi ganga til samninga á
þessum grundvelli.
„Min skoðun er sú, að þetta
mál sé það mikilvægt, aö það sé
hafið yfir öll flokkspólitisk
sjónarmið”, sagði forsætisráð-
herra. Hann vildi ekki svara
þeirri spurningu, hvort hugsan-
legt væri, að þetta mál yrði af-
greitt i rikisstjórninni með
bókun andmæla fulltrúa
Alþýðubandalagsins. Málið
væri ekki á þvi stigi, aö tima-
bært væri aö ræða það á þeim
grundvelli.
Ekkert væri ákveðiö, hvenær
ákvörðun yrði tekin i málinu, i
svona mikilvægu máli væri
nauðsynlegt að gefa sér góðan
tima.
„Þá verðum við lika að
athuga, hver hinn valkosturinn
er, ef við ekki viljum ganga að
þessum tillögum”, sagði
forsætisráðherra. „Við erum
ákaflega reiðir við Breta og það
er skiljanlegt, og þetta er
ákaflega mikið tilfinningamál.
En ég held, að þegar ákvöröun
er tekin i þessu máli, þá verði að
láta skynsemina og kalda rök-
hyggju ráða, en ekki til-
finningar”.
„Ég vil taka fram, að þéssar
tillögur, sem lagðarvoru fram i
London, eru algjörlega minar
tillögur og á mína ábyrgð. Ég
hafði ekki aðstöðu til þess að
bera mig saman við rikisstjórn
um það. Málin stóöu þá þannig,
að þvi er mér virtist, að svo leit
helzt út fyrir, að upp úr
samningum mundi alveg slitna.
Ég taldi okkur þá geta staðið
heldur illa gagnvart
almenningsálitinu erlendis, ef
að við hefðum ekki sýnt mjög
áþreifanlegan vilja til
samkomulags og lagt fram
tillögur.
—ÓG