Vísir - 20.10.1973, Síða 6
6
Visir. Laugardagur 20. október 1973.
VÍSIR
Otgefandi:-Reykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 32. Simar 11660 86611
' Afgreiösla: Hverfisgötu 32. Simi 86611
Ritstjórn: Sihumúla 14. Simi 86611 (7,lfnur)
Askriftargjald kr. 360 á mánuöi innanlands
i lausasölu kr. 22.00 eintakiö.
Blaöaprent hf.
r
Olafur hopar hvergi
Forsætisráðherra virðist ætla að standa og falla
með samningsdrögunum i landhelgismálinu.
Það sýna ummæli hans i gær, á þá leið, að hann
muni ,,ekki treysta sér til að bera ábyrgð á þvi”,
að þeim yrði hafnað. Ekkert bendir til þess, að
hann muni láta sjávarútvegsráðherra beygja sig
með bragðvisi. Enda liggur i augum uppi, að
heiður Ólafs Jóhannessonar sem stjórnmálaleið-
toga er i veði.
Fáir munu efast um, að forsætisráðherra hefur
komið með fullri sæmd frá viðræðunum við
Heath. Nú getur sérhver einstaklingur i landinu
kynnt sér, hve miklar tilslakanir Breta urðu i
viðræðum forsætisráðherranna. Ólafur
Jóhannesson skýrði frá þvi i gær, að hann hefði i
viðræðunum gert tillögur á eigin ábyrgð. Hann
hefði ekki haft aðstöðu til að bera þær undir aðra
ráðherra. Málin hefðu staðið þannig, að sér hefði
virzt, að upp úr mundi slitna, ef hann gerði ekki
tilboð, er sýndu mjög áþreifanlega samningsvilja
íslendinga. íslenzki forsætisráðherrann tók þvi
þann kostinn að leika sig úr úr þráteflinu, og hann
náði með þeim leik góðri stöðu.
íslendingar eru óvanir svokölluðum ,,topp-
fundum”. Hins vegar er tiðast, þegar æðstu menn
rikja hittast til að leita úrræða i deilumáli, að þeir
standi að málum með svipuðum hætti og hér var
gert. Þetta á einnig við um rikisstjórnir, sem eru
samsteypa flokka. Þannig gerðist það i London,
að forsætisráðherrarnir skiptust á skoðunum og
tillögum og niðurstöðurnar urðu drög eða kjarni
að samningi um lausn landhelgisdeilunnar.
Forsætisráðherra leggur að sjálfsögðu áherzlu
á, að hann hafði ekki umboð til að ganga á eigin
spýtur frá slikum samningi. Til þess þurfti hann
samþykki rikisstjórnar og Alþingis. Hann fór
hvergi út fyrir umboð sitt. Hins vegar féllst hann
á þann kjarna að samningi, sem fyrir liggur, og
beitti sér fyrir þvi, að hann næði fram að ganga.
Nú liggur fyrir, að allir stjórnmálaflokkar
nema einn, hafa tekið samningsdrögunum vel.
Hins vegar eru málin flóknari og mikilvægari en
svo, að þeir hafi að svo komnu tekið endanlega
afstöðu til þeirra. t fljótu bragði virðist vera
nokkuð auðsær ávinningur að þvi að fallast á
samkomulag á þessum grundvelli i samanburði
við hinn kostinn, sem væri að hafna þvi og halda
deilunni enn áfram. Hins vegar verður að gæta
þess, að hvergi leynist afleikur i svo flókinni
stöðu.
Alþýðubandalagið snerist hins vegar strax
gegn samningsdrögunum. Þingflokkur þess og
málgagn flýttu sér sem mest mátti vera að gera
þá andstöðu heyrinkunna, svo að greinilegt var,
að koma átti forsætisráðherra i klipu.
Forsætisráðherra hefur brugðizt við þvi tilræði
af manndómi. Hann reynir enn að halda opnum
leiðum, ef unnt yrði að leysa ágreininginn án
stjórnarslita, en hann hopar hvergi.
Sú leið, að Alþýðubandalagið „láti bóka” and-
stöðu við málið og sitji áfram i rikisstjórn, þótt
það yrði samþykkt og samningur gerður við
Breta á þessum grundvelli, gæti þó ekki kallazt
viðunandi lausn ágreinings i rikisstjórninni i
þessu máli málanna. Enda mundi aldrei gróa um
heilt. —HH
tsraelskir striösfangar, sem teknir voru i Sinai
RAUÐI KROSSINN
FYLGIST MEÐ
STRÍÐSFÖNGUNUM
Alþjóðlega Rauða
kross-nefndin tilkynnti á
fimmtudag, að israel
hefði lagt fram lista yfir
707 arabiska striðs-
fanga, sem þeir hafa i
haldi. Jafnframt lögðu
þeir fram nafnalista yfir
,,um það bii” 300
israelska hermenn, sem
er saknað og taldir vera
i haldi hjá Aröbum.
Talsmaöur Rauða krossins
sagði einnig, að Egyptar hefðu,
þegar hér er komið sögu i
striðinu, gefið upp nöfn 37
tsraelskra striðsfanga, sem gefizt
höfðu upp á varnarlinunni við
Súezbakka fyrir nær hálfum
mánuði. Vitað er um tvo Israels-
menn i Llbanon, en ekki er vitað
um neina i haldi I Sýrlandi.
„Allmargir fanganna eru
alvarlega særðir”, sagði tals-
maður Rauða krossins. En sam-
kvæmt ákvæðum Genfarsátt-
málans eiga særðir fangar kröfu
á þvi að verða samstundis sendir
heim til ættjarðarinnar.
Þessi mannúðarstofnun Sviss
hefur enn á ný skorað á Israel að
gerast aðili samþykktar um
reglur varðandi striðsrekstur,
sem miðast að þvi að vernda
óbreytta borgara”, sagði Alain
Modoux, blaðafulltrúi Rauða
krossins i samtali vð fréttamann
Associated Press.
Viðbrögð Sýrlands og lraks við
þessari áskorun Rauða krossins
ísraelskur herinaður með
sýrlenzkan striðsfanga.
Rauða kross maður veifar fána sinum til merkis um, að
ísraelsmennirnir í i víginu gefist upp.
til allra striðandi aðila, þar sem
nefndar voru i sömu andránni
„hrollvekjandi fréttir” af árásum
á borgaraleg skotmörk, urðu þau,
að þau samþykktu reglurnar.
Egyptaland sagði á miðviku-
daginn, að það mundi virða þær,
ef Israel vildi gefa tryggingu fyrir
þvi sama.
Þessar reglur voru samdar
eftir tvær ráðstefnur, sem
haldnar voru i Genf 1971 og 1972.
Þar hittust sérfræðingar frá
70löndum eða meir. Þær öðluðust
þó ekki gildi, þvi að þær þurftu
enn samþykki þriðju ráðstefn-
unnar, sem fulltrúar rikisstjórna
þessara landa munu sækja
snemma á næsta ári.
A nafnalistanum yfir arabisku
striðsfangana, sem Israel lagði
fram, voru tveir þriðju hlutar
fanganna Egyptar, og einn þriðji
voru Sýrlendingar, trakar og
Marokkó-menn. — Af tsraels-
mönnunum ,,ca. 300”, sem
saknað er, voru nær 200 á Sinai-
vlgstöðvunum, en hinir gegndu
þjónustu á Golanhæðunum og i
Sýrlandi.
Að sögn Modoux hefur Rauði
krossinn áminnt deiluaðilana um
skyldur þeirra samkvæmt
Genfarsáttmálanum til þess að
vernda fangana fyrir „almennri
forvitni”. Þetta ákvæði var sér-
staklega sett til þess að verja
fangana gegn auðmýkingu.
Modoux nefndi, að striðsfangar
hefðu verið sýndir i sjónvarpsút-
sendingum allra þriggja, Egypta,
Sýrlendinga og Israelsmanna. Þó
varaðist Modoux að nefna
nokkurt ákveðið dæmi um
einstaka tiltekin brot á
ákvæðunum um meðferð striðs-
fanga.
ísraelskur striðsfangi leiddur
fram i egypzka sjónvarpinu, þar
sem hann var spurður spjörunum
úr.
„Starfsliði alþjóðlegu Rauða
krossins verður fjölgað i Austur-
löndum nær, strax og erindrekar
Rauða krossins geta fengið að
heimsækja fangana reglulega og
oftar en núna”, sagði Modoux.
En á meðan heldur Rauði
krossinn áfram lyfjaflutningum
þangað austur eftir. Siðast i gær
fór flugvél með 8 smálestir af
hjálpargögnum frá Nicosiu til
Kairó.
Modoux upplýsti, að nú hefði
„Rauða stjarna Daviðs” I tsrael
tilkynnt Rauða krossinum i fyrsta
sinn, að samtökin mundu láta
lyfjabirgðir af hendi rakna.