Vísir - 20.10.1973, Síða 8
8
Vlsir. Laugardagur 20. október 1973.
VÍGÐIR 1972:
1. Úlfar Guðmundsson........................til Ólafsfjarðar
2. Einar Jónsson.......................................til Söðulsholts
3. Ólafur Jens Sigurðsson...............................til Kirkjuhvols
4. Haukur Agústsson.....................til Hofs I Vopnafirði
5; Gunnar Kjörnsson.......................til Bolungarvikur
(i. Ilalldór Gröndal...................................scm farprestur
7. Arni Bergur Sigurbjörnsson...........................til ólafsvíkur
VÍGÐIR 1973:
1. Karl Sigurbjörnsson...................til Vestmannaeyja
2. Valgeir Astráðsson..................... til Eyrarbakka
3. Gylfi Jónsson.......................................til Staðarfells
4. Sveinbjörn S. Bjarnason.........aðst. prestur að Búðardal
5. Páll Þórðarson ..........................til Norðfjarðar
(i. Birgir Asgeirsson..................................til Siglufjarðar
7. Jakob A. Hjálmarsson....................til Seyðisfjarðar
Nú munu ekki nema 7 prestaköll prestslaus, flest fámenn og
þeim þjónað af nágrannaprestum. I nokkrum prestaköllum eru
settir prestar, eins og t.d. Reykhólum, þar sem vlgslubiskup
Suðurlands, sr. Sigurður Pálsson, þjónar sóknum við norðan-
verðan Breiðafjörð.
VETRARSTARF-
SEMI
KFUK OG KFUM
Alltaf siðan sr. Friðrik Frið-
riksson stofnaði Kristilegt félag
ungra manna hér i bænum um
aldamótin slðustu, hefur sá
ágæti félagsskapur haldið uppi
kristilegri starfsenii fyrir börn,
unglinga og fullorðna. Nokkru
seinna tók svo K.F.U.K. til
Vetrarstarf félaganna hófst
að venju i byrjun þessa mánað-
ar. Og i viku hverri — flesta
daga vikunnar — eru fundir og
samkomur og tómstundastarf á
sex stöðum i borginni á vegum
félaganna, einnig i Kópavogi,
þar sem félögin eiga hús i bygg-
ingu.
bað er vissulega þess vert að
vekja athygli foreldra og ann-
arra forráðamanna barna og
unglinga á starfi K.F.U.M. og
K., hvetja þau til að vera með i
þvi, sækja fundi og samkomur
og hljóta af þvi margs konar
blessun.
Prestsvígsla í Dómkirkjunni — Fjölgun í prestastéttinni
LAUSUM BRAUÐ-
UM FÆKKAR
— fjórtón guðfrœðingar hafa verið vígðir
Sunnudaginn 7. okt s.l.
vígöi herra biskupinn tvo
guðf ræðikandidata í
Reykjavíkurdómkirkju/ þá
Birgi Ásgeirsson og Jakob
Ágúst Hjálmarsson. Báðir
þessir ungu prestar hafa
nýlega lokið guðfræðiprófi.
Svo sem kunnugt er, hef-
ur verið nokkur skortur á
prestum, ekki síður en
læknum, undanfarið úti á
landsbyggðinni.
sl. 2 ór
Alls eru 111 prestsembætti hér á
landi samkvæmt gildandi presta-
kallalögum, sem samþykkt voru
á Alþingi 1970. Þar af eru 17 i
Reykjavik og Kópavogi. Hafa þau
jafnan veriö fullskipuö, þótt oft
hafiverið fáir (jafnvel einn) um-
sækjendur
öðru máli gegnir um þau brauð
— 94 — sem eru utan Reykiavik-
ur. Þar hefur oft verið prests-
laust, sums staðar langtimum
saman i 12-15 prestaköllum. Sið-
ustu 2 árin hefur hér mikil bót á
orðið, þvi aö á árinu 1972 og þaö
sem af er þessu ári hafa hvorki
meira né minna en 14
guðfræðingar alls verið vigðir til
prests. Eru þeir nú allir, utan
einn, i þjónustu utan Reykja-
vikur. Þessir guðfræðingar eru:
Frá Prestsvigslu i Dómkirkjunni 10. okt.
Siglufjarðarkirkja Seyðisf jaröarkirkja
Ljósm. Jóh. Björnsd. Ljósm. Jóh. Björnsd.
1 þessum kirkjum munu þeir messa prestarnir, sem hr. biskupinn vigði I Dómkirkjunni 10. okt. sl.
Lausar
lögregluþjónsstöður
Umsóknir skulu stilaðar á sérstök eyðu-
blöð er fást i skrifstofu minni.
Umsóknarfrestur er til 30. október.
Umsækjendur skulu vera á aldrinum 21-30
ára, hafa lokið gagnfræðaprófi, eða hafa
aðra hliðstæða menntun.
Þeir er áður hafa sótt um lögreglustarf
skulu endurnýja umsóknir sinar.
Lögreglustjórinn á Keflavikurflugvelli
18. október 1973.
Björn Ingvarsson.
Merkjasala Blindra-
vinafélags lslands
verður sunnudaginn 21. okt. og hefst kl. 10
f.h.
Sölubörn komið og hjálpið blindum. — Góð
sölulaun.
Merkin verða afhent i anddyrum allra
barnaskólanna i Reykjavik, Kópavogi og
Hafnarfirði, Barnaskóla Garðahrepps og
Mýrarhúsaskóla.
Hjálpið blindum og kaupið merki dagsins.
Merkið gildir sem happdrættismiði.
Blindravinafélag íslands
FRÆKORN
Staka
eftir sr. Gunnar prófast Páls-
son:
1 fæðingunni veit enginn hvað
um hans hagi þá skeður.
Viltu þá fremur vita um það
hvað verða mun þá þúkveður?
Úr bænabók:
Kenn oss, góði Guð, að þjóna
þér eins og ber, að gefa án þess
að hugsa um hvað það kostar,
að berjast góðu baráttunni án
þess að lita á sárin, að erfiða án
þess að leita hvildar, að vinna
án þess að lita á önnur laun en
þau að vita að vér höfum þjónað
þér og gjört vilja þinn.
Góð kirkjusókn:
Sumarið 1935 ferðuðust þeir
sr. Arni Sigurðsson og sr. Sigur-
björn A. Gislason um Vestur-
Skaftafellssýslu og fluttu mess-
ur i öllum kirkjum héraðsins.
Þá voru þar 1718 ibúar. Af þeim
sóttu 700 manns messur hjá
þeim ferðafélögum.
Ljósin á fljótinu.
Ferðamaður úr Norðurálfu
var á ferð austur á Indlandi,
staddur við heilaga Ganges-
fljót. Það var heitt og dimmtog
kyrrt — og ferðamaðurinn horf-
ir út yfir þessa miklu móðu, sem
sigur hægt og tígulega i átt til
úthafsins. En nú vekja athygli
hans litlir ljósdeplar, sem liða
niður ána með straumi fljótsins.
— Þetta eru litlir lampar. Ljós
þeirra nærast af feiti dýra. Þeir
hafa verið settir út á ána, til að
lýsa sálum þeirra framliðnu
manna, hverra ösku hefur verið
dreift út á hið heilaga fljót.
^ v' .h
PÓSTUR OG SlMI
S1'íS Laus staSa
hjá Radiótæknideild
Staða skrifstofufólks IV, (15. Ifi. við
fulla starfsþjálfun). Verzlunarpróf
eða hliðstæð menntun æskileg, en
einnig kemur til greina að ráða mann
með tækniþekkingu.
Umsóknir á þar til gerðum eyðu-
blöðum sendist póst- og simamála-
stjórninni fyrir 22. október n.k.
Hve lengi viltu
biða
ef tir fréttunum?
Mltu fá þærheim til þín samdægurs? Eóa viltu bíóa til
næsta niorguns? VÍSIR flytur fréttir dagsins ídag!