Vísir - 20.10.1973, Page 16
16
___________________________________________________________Vlsir. Laugardagur 20. október 1973.
| í DAG | í KVÖLD | í DAG j í KVÖLD | g DAG | í K
1 1ÍTVARP •
Laugardagur
20. október
7.00 Morgunútvarpí' Veöur-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Fréttir kl. 7.30, 8.15
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Lalli, Sólbrá og tröll-
iö”, ævintýr eftir Hjálmar
Bergman, siöari hluti.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12f.00 Óskalög sjúklinga.
Kristin Sveinbjörnsdóttir'
kynnir.
14.30 Á Iþróttavellinum. Jón
Asgeirsson segir frá.
15.00 Vikan sem var,
Umsjónarmaöur Páll Heiö-
ar Jónsson.
16.00 Fréttir.
16.15 Veöurfregnir. Tiu á
toppnum.örn Petersen sér
um dægurlagaþátt.
17.20 1 umferðinni. Þáttur I
umsjá Jóns B. Gunnlaugs-
sonar.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.30 Fréttir.
18.45 Veöurfregnir.
18.55 Tilkynningar.
19.00 Veöurspá . Finnskt
kvöld.a. Spjali um land og
þjóö. Kristin Þórarinsdóttir
Manthyla flytur. b. „Bezti
leikari Finnlands”, smá-
saga eftir Veijo Meri i þýö-
ingu Kristinar. Erlingur
Gislason les. c. Lög eftir
Yrjo Kilpinen-Marti Talvela
syngur. Irwing Gage leikur
á pianó. d. Finnsk ljóö i Is-
lenzkri þýöingu Einars
Braga og Hannesar Sigfús-
sonar. Steinunn Jóhannes-
dóttir les. e. Pianókonsert
nr. 2 op. 33 eftir Selim
Palmgren. Izumi Tateto og
Filharmóniusveitin i Hel-
sinki leika, Jorma Panula
stj.
20.35 Gaman af gömlum blöö-
um. Umsjón: Loftur
Guömundsson.
21.05 Hljómplöturabb. Guö-
mundur Jónsson bregður
plötum á fóninn.
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Eyjapist-
ill.
22.30 Dansiög.
23.55 Fréttir i stuttu máli.
Dagskrárlok.
1 SJÓNVARP •
Laugardagur
20. októberi 1973
16.30 Þingvikan Þáttur um
störf Alþingis. Umsjónar-
menn Björn Teitsson og
Björn Þorsteinsson.
17.00 lþróttir Umsjónar-
maöur Ömar Ragnarsson.
18.00 Enskp knattspyrnan
Hlé
20.00 Fréttir
20.00 Veöur og auglýsingar
20.25 Söngelska fjölskyldan
Bandariskur söngva- og
gamanmyndaflokkur. Þýð-
andi Guörún Jörundsdóttir.
20.50 Vaka. Umsjónarmenn
þáttarins ’Olafur H. Simon-
arson, Björn Th. Björnsson,
Einar Þ. Ásgeirsson, Jón
Asgeirsson, Ólafur Kvaran,
Siguröur Sv. Pálsson,
Stefán Baldursson og Þor-
leifur Hauksson.
21.35 FuglaTinurinn á
Alcatraz (The Birdman of
Alcatraz) Bandarisk bió-
mynd frá árinu 1962, byggö
á ævisögu Roberts Straud
eftir Tom Gaddis. Leikstjóri
John Frankenheimer. Aöal-
hlutverk Burt Lancaster,
Karl Malden, Neville Brand
og Betty Field. Þýðandi
Heba Júliusdóttir. Robert
Straud er dæmdur I lífstiöar
fangelsi fyrir manndráp.
Hann er haföur einn i klefa I
öryggisskyni. Þröstur, sem
hann hefur fundið i
fangelsisgaröinum, hænist
mjög aö honum, og þar með
byrja rannsóknir hans á
fuglum, sem verða sifellt
umfangsmeiri þrátt fyrir
bágbornar aðstæöur.
23.55 Dagskrárlok.
Sjónvarp kl. 20.25:
HRÆÐIÐ UR HONUM
LÍFTÓRUNA,,,! ...!
Söngelska fjöldskyldan
skemmtir sjónvarpsáhorf-
endum I kvöld meö hressileika,
sem hennar er von og vísa.
Þáttur þessi veröur liklega á
dagskrá sjónvarpsins i aílan
vctur, og þá sýndur annan
hvern laugardag.
1 kvöld taka þau sér fyrir
hendur aö syngja i Las Vegas.
Danny, sem ekki er nema 10
ára gamall, kynnist ungri
stúlku, sem er vinkona háttsetts
forstjóra á staðnum.
Viðkomandi forstjóri veröur
afbrýðisamur, þegar hann
kemst að þessu, og fær sig ekki
til þess að trúa þvi, að Danny sé
aöeins 10 ára gamall. Hann
hefur þó ekki séð hann.
Hann sendir þegar i stað tvo
af bófum sinum og skipar þeim
að hræða úr Danny liftóruna.
Þeim tekst það næstum þvi, en
á endanum fer þó allt vel.
Við látum það nægja að segja
þetta um þáttinn, enda harla
litið spennandi að vita
nákvæmlega, hvernig fer.
—EA
Sjónvarp kl. 20.50:
30. þáttur Vöku í kvöld
Vaka aftur ó dagskró sjónvarpsins, með nokkrum breytingum.
Einn liður bœfist við - arkitektúr
Böövar Guömundsson Iltur inn
til Gunnars Gunnarssonar i
Vöku I kvöld.
Þátturinn Vaka, dagskrá um
bókmenntir og listir, er aftur
kominn á sjónvarpsdagskrána,
og verður þar hálfsmánaðar-
lega I vetur. A móti honum,
þ.e.a.s. annan hvern laugardag,
veröur sýndur skemmtiþáttur.
Þetta er 3. áriö, semþátturinn
Vaka er á dagskrá sjón-
varpsins, og T kvöld verður
sýndur 30. þátturinn. Nokkrar
breytingar hafa átt sér stað á
skipulagi þáttarins. Bætt hefur
verið inn i hann nýjum lið, þ.e.
arkitektúr, en ekki reyndist
unnt að taka þann þátt fyrir i
kvöld. Þá sjá fleiri um þáttinn
en áður, en umsjónarmaður er
ólafur Haukur Simonarson.
En látum okkur þá sjá, hvað
boðið verður upp á i kvöld.
1 fyrsta lagi er það leiklistin,
en það er Stefán Baldursson,
sem ræöir um leikrit Þjóðleik-
hússins, Hafið bláa hafið. Sýnd
verða atriði úr leikritinu, og
Stefán segir frá þvi.
Jón Asgeirsson fjallar um Pál
tsólfsson i tilefni 80 ára afmælis
hans á dögunum. Hann ræðir
stuttlega um hann, og brugðið
veröur upp myndum af Páli og
úr lifi hans.
Sigurður Sverrir Pálsson
ræðir við þrjá kvikmynda-
gerðarmenn, þá Asgeir Long,
Pál Steingrimsson og Ernst
Kettler. Rætt verður um kvik-
mynd þeirra, Eldeyjuna, og i
fyrsta skipti í sjónvarpinu
verður nú sýndur stuttur kafli
úr henni.
Sigurður Sverrir litur einnig
við á vinnustofu Asgeirs Long,
og svo eru þeir félagar að
koma sér upp sameiginlegum
bústað, sem þeir nefna Kvik sf.
Þangað fer sjónvarpið einnig i
heimsókn.
Björn Th. Björnsson tekur
fyrir þrjár sýningar, sem nú
standa yfir. Það er sýning
Hrings Jóhannessonar i
Norræna húsinu, sýning Alfreös
Flóka i Bogasal Þjóðminja-
safnsins og sýning Asmundar
Sveinssonar i Listasafninu.
Þá fer Böðvar GuðmundssonT
heimsókn til Gunnars Gunnars-
sonar rithöfundar i tilefni af þvi,
að Gunnar er að gera nýja
þýðingu á Fjallkirkjunni.
Ólafur Kvaran fjallar um
sýningu Sverris Haraldssonar,
og þar með er vist flest upptalið.
Það er ekki hægt að segja annað
en þátturinn Vaka sé hinn
fjölbreytilegasti, og sjálfsagt er
þar eitthvað að finna fyrir alla.
Vaka er á dagskrá klukkan
20.50.
—EA
Jón Asgeirsson ræöir um Pál
isólfsson itiiefni 80 ára afmælis
hans á dögunum.
Sjónvarp kl. 21.35:
Rannsóknir á
fuglum við
bágbornar
aðstœður
The Birdman of Alcatraz, eöa
Fuglavinurinn á Alcatraz,
nefnist laugardagskvikmyndin
að þessu sinni. Myndin er
bandarisk og er frá árinu 1962.
Hún er byggö á ævisögu Roberts
Straud eftir Tom Gaddis.
Efnisþráður myndarinnar er
á þá leið, að Robert Straud er
dæmdur i lifstiðarfangelsi fyrir
manndráp. Hann er hafður einn
I klefa i öryggisskyni. Þröstur,
sem hann hefur fundið i fang-
elsisgarðinum, hænist mjög aö
honum, og þar með byrja rann-
sóknir 'hans á fuglum, sem
verða sffellt umfangsmeiri
þrátt fyrir bágbornar aöstæður.
Leikstjóri myndarinnar er
John Frankenheimer. Meö
aðalhlutverk fara Burt
Lancaster, Karl Malden,
Neville Brand og Betty Field.
A meðfylgjandi mynd sjáum
við atriði úr myndinni, en hún
hefst kl. 21.35. —EA