Vísir - 08.11.1973, Page 13
Vlsir. Fimmtudagur 8. nóvember 1973.
13
ekki kúrekaföt
Rauðskinnaklœði
Tizkukóngarnir i Paris og London hafa kynnt næstu vor- og sumar-
tizku með miklum lúörablæstri, og nú eru þeir I Ameriku sömuleiöis
byrjaðir aö móta tizku næstu sumarmánaöa. Vestanhafs eiga þaö
að verða indiánabúningar af ýmsu tagi, sem hæst ber. Undir slag-
oröinu „frisklcgt og fallegt” kynna tizkuteiknararnir tizkufatnaö,
sem gerður er aö fyrirmynd búninga rauöskinna. Og þennan skrúöa
vilja þeir láta koma i staö kúrekafatanna, sem tröllriöu tízkuheim-
inum núna siðast. Og hér á meöfylgjandi myndum getum við séö,
hvernig hvítar stúlkur taka sig út skreyttar fjöörum, perlum og
leöurpjötlum aö hætti rauöskinna...
Brúðguminn á eftir
að dúsa í steininum
fram til ársins 1984
„Þið eiturpöddur,” æpti leik-
konan Sue Lyon aö Ijós-
myndurunum, sem biöu hennar
i rikisfangelsinu i Colorado
siöastliöinn sunnudag, þegar
hún kom þangað til aö láta
pússa sig i hjónaband meö ein-
um fanganna þar. Hiö kalda
viömót hennar gagnvart frétta-
Ijósmyndurunum á staönum
geröi þaö aðeins að verkum, aö
þeir uröu enn sólgnari i aö ná af
lienni nærmyndum.
Einsög við skýrðum frá hér á
NÚ-siðunni fyrir skemmstu, er
brúðguminn 33ja ára gamall
morðingi, sem hefur setið á bak
við lás og slá siðan á árinu 1964.
Hann heitir Cotton Adamson
og situr inni fyrir morð og of-
beldisárásir. Sömuleiðis var
honum á sinum tima fundið það
til foráttu að hafa rænt banka og
verzlað með eiturlyf. Dómurinn
var þungur, og þarf Adamson
tæpast að gera sér vonir um að
komast út aftur fyrr en árið
1984.
Hin 27 ára gamla Sue Lyon
öðlaðist heimsfrægð aðeins 14
ára gömul. Hún fór þá með titil-
hlutverkið i myndinni „Lolita”.
Mótleikari hennar i þeirri mynd
var James Mason, en hann
hreifst svo af stúlkunni, að hann
varði nokkrum mánuðum i
klaustri eftir kvikmyndatökuna
til að gleyma henni.
Vinskapur þeirra Sue Lyon
og Cotton Adamson upphófst
fyrir nokkrum árum, og þá
fyrir tilstilli kunningja leikkon-
unnar, sem hafði fengið að dúsa
i fangelsinu með morðingjan-
um. Sue og Adamson byrjuðu
að skrifast á, en siðan fór hún að
heimsækja hann öðru hvoru, og
loks voru þau sannfærð um, að
Sue Lyon ræöst aö einuin Ijósmyndaranna, sem vildi Ijósmynda
leikkonuna, er hún mætti til þriöju hjónavigslu sinnar....
hjónabandið væri óumflýjan-
legt.
— Við þekkjum hvort annað
betur en nokkurt annað par,
sagði Sue fyrir vigsluna
Sambandokkar byggist ekki á
kynferðislöngun, heldur ein-
la'gri vináttu. Hiðin verður
okkur léttbær, af þvi að við elsk-
um hvort annað.
Kappaksturshetjan ók
skólabörnunum heim
Kappaksturshetjan Jackie
Stewart viö akstur skólavagns!
— Þessir nemendur viö einn
barnaskólanna I Saint Cergue
nærri Genf i Sviss ætluöu varla
að trúa sinum eigin augum.
Þetta hófst allt með þvf, að
Jackie skýröi fjölskyldu sinni
frá þvi, að hann væri hættur
kappakstri eftir að hafa tekið
þátt i 99. Grand Prix-keppninni.
Sonur hans, sjö ára gamall,
Paul heitir hann, kom þá um-
svifalaust með hugmynd: „Ef
þú þarft að vinna þér inn pening
með ööru ep kappakstri, pabbi,
þá getur þú nú alltaf keyrt
skólarútuna.”
Og Jackie Stewart ákvað að
koma syni sinum á óvart með
þvi að gera einmitt þaö. Þegar
svo sonur hans og skólafélagar
hans komu hlaupandi út úr
skóla sinum einn daginn og
stigu upp i skólavagninn, sáu
þeir kappaksturshetjuna undir
stýri.
Jackie ók börnunum heim við
óstöövandi húrrahróp, og alla
leiðina kepptust börnin við að
tjá honum aðdáun sina.
En þetta var aðeins „stutt
gaman, skemmtilegt”. Þrátt
fyrir að börnin gæfu Jackie sin
allra beztu meðmæli, gat hann
ekki fallizt á aö gera akstur
skólavagnsins að atvinnu sinni.
Hann er fastráðinn til næstu ára
hjá Ford-verksmiðjunum, en
þar er hanneinhverhæstlaunaði
ráðunautur hönnuðanna....
—ÞJM