Vísir - 05.01.1974, Blaðsíða 5
Vlsir. I.augardagur 5. janúar 1974
5
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón Guðmundur Pétursson
Ströng gœzla
ó flugvelli
Rómaborgar
HANN SÁ
HANA LANG
FYRSTUR
Meö stæröar vegg-
mynd af halastjörnunni
Kohoutek i bak-
grunninum sést
Tékkinn Lubos
Kohoutek, stjarn-
fræðingurinn, sem
fyrstur kom auga á
'stjörnuna, flytja fyrir-
lestur á vegum
bandarisku geimferða-
stofnunarinnar i
Washington á dögun-
um. Þangað var honum
boðið á vegum hennar.
llér á inyndununi til hliðar
má sjá italska lögreglu- og
öryggisvcrði á Ciampinoflug-
vellinum við Kóm, þar sem
strangur viðbúnaður hefur verið
viðhafður eftir blóðbaðið á
dögunum, þegar 5 arablskir
skæruliðar myrtu 32
manneskjur. Á neðri myndinni
hafa þeir brynvagn sér til
fulltingis, þvi að allur er varinn
góður.
Myndin að ofan er tekin á
I.eonardo da Vinci-flugvellin-
um, Ifka við Kóm, við það tæki-
færi, þegar Boeing 727 þota
I.ufthansa kom með itölsku
gislana, sem skæruliðarnir
höfðu með sér alla leið til
Kuwait.
SPILAÐI
SPÓLU
NIXONS
í PARTÍI
William A. Dobrovir heitir maðurinn á myndinni hér, en hann
er einn úr lieilum flokki lögfræðinga, sem starfað hafa fyrir
neytendapostulann bandariska, Kalph Nader. Hann játaði núna
ekki alls fyrir löngu fyrir dómara, að hann hefði „gert heimsku-
lega skyssu”, þegar hann spilaði eina af segulspólum Nixons
forseta i kokkteilpartii. Myndin er tekin, þegar hann ræddi við
fréttamenn eftir yfirheyrslurnar hjá dómaranum. — Segul-
spólan, sem Dobrovir leyfði partigestunum að heyra, var
hljóðritun af fundi, sem Nixon forseti átti með mjólkurbústjór-
um 23. marz 1971.