Vísir - 04.03.1974, Side 4

Vísir - 04.03.1974, Side 4
4 Visir. Mánudagur 4. marz 1974. i Hannyrðavörur frá Jenný prýða heimilið HATTA- OG HANNYRÐAVERZLUNIN Jettný SkólavörOustíg 13a • Sími 19746 - Pósthólf 58 - Reykjavík AP/IMTB UTLÖNDI MORGUN ÚTLÖND í MORGUN Rœndu vél og brenndu Eins og fætur toguðu hlupu nær 100 farþegar út úr brezkri farþegaf lugvél, sem flugræningjar höfðu neytt til lendingar á flug- vellinum við Amsterdam í gær. Voru sumir ekki komnír i öruggt skjól, þegar vélin sprakk i loft upp og logaði endanna á milli. „Þarna er illa farið með góðan skota,” sagði flugstjórinn, meðan viski-birgðir vélarinnar loguðu glatt. — Engan sakaði alvar- lega. Tveir Arabar höfðu hertekið vélina, þegar hún var i flugi yfir Júgóslaviij, en haldið er, að þeir hafi stigið um borð i hana, þegar hún tók 15 farþega i Beirút. Mennirnir voru vopnaðir vél- byssum og handsprengjum Fréttir hermdu, að þeir hafi ætlað að neyða flugstjórann til að fljúga til Aþenu og heimta þar lausa tvo Palestinuskæruliða, sem þar sitja inni fyrir að hafa orðiðaðbana 5manns og sært 55 i ágúst i fyrra. En flugvallaryfir- völd i Aþenu segjast ekki hafa heyrt neitt frá véiinni. Vélinni var snúið til Amster- dam, Um leið og vélin hafði stöðvazt, kveiktu ræningjarnir i henni og sögðu fólkinu að forða sér út. — Þeir voru svo handteknir, þegar þeir ætluðu sér að komast undan i uppnáminu. Blaðamaður Lundúna-blaðsins Times, sem var i vélinni, segir, að Palestinuarabarnir hafi tekið vélina, vegna þess að ameriskar flugvélar notuðu Heathrow-flug- völl i októberstriðinu, þegar þær flugu i njósnaferðir yfir egypzku herina. Farþegavélin, sem var af gerðinni VC-10, er metin á 3 milljónir sterlingspunda (eða hátt á sjötta hundrað milljóna isl. kr.) Efraim Katzir forseti sést hér segja nokkur hughreystingarorð við Goldu Meir, þegar hann veitti henni viku viðbótarfrest á sinum tima til að mynda stjórn. Tókst henni þá að mynda minnihluta- stjórn, en ráðherralistinn fékk dræmar undirtektir i Verkamanna- flokki hennar. Brezka farþegaflugvélin i ljósum iogum á flugvellinum I Amsterdam, eftir að Arabarnir kveiktu I henni. Farþegunum tókst með naumindum að forða sér úr vélinni og hlaupa i skjól, áður en sprengingarnar kváðu við. Goldu nóg boðið Neftar að gera fleiri tilraunir til stjórnar- myndunar og tilkynnir afsögn sína „Þetta eru lokaorð mín í málinu," sagði Golda Meir á þingf lokksf undi Verka- mannaflokksins í gær, þar sem hún tilkynnti, að hún mundi segja af sér og hætta frekari tilraunum til stjórnarmyndunar. „Ég hef reynt að gera mitt bezta," er haft eftir henni á þessum fundi. „Það hefði verið betra, að ég hefði sagt af mér í ágúst eða september, fyrir stríðið." Stjórn Goldu Meir lá undir gagn- rýni fyrir að hafa verið óviðbúin árás Arabanna i október, en Golda Meir visaði slikum ásökunum á bug. ,,Við i stjórninni brugðumst ekki, né nokkur annar.” Um leið og Golda Meir tilkynnti þingflokknum ákvörðun sina ætlaði allt vitlaust að verða. Þingmenn- irnir hrópuðu á hana að halda áfram, en hún lét sem hún heyrði ekki köllin, gekk út úr herberginu og lét aka sér burt. — Hennar nán- ustu samstarfsmenn segja, að það mundi þurfa pólitiskt kraftaverk til þess að fá hana ofan af þessari ákvörðun sinni. Golda veitti enga skýringu á þvi, hvers vegna hún bregst svona við núna, eftir að hún er nýbúin að mynda minnihlutastjórn. En þeir, sem til þekkja, segja, að það hafi verið henni mikil vonbrigði, þegar einn af leiðtogum flokksins, Ben Aharon, gagnrýndi ráðherralista hennar og sagði, að slik stjórn mundi vera of veik til að glima við efnahagsvandamál landsins. Aður hafði annar framám. flokksins spáð stjórninni hrakförum, og Moshe Dayan, sem tveim vikum fyrr setti allt á annan endann i flokknum með þvi að neita að setj- ast i nýju stjórnina, greiddi at- kvæði gegn ráðherralistanum á flokksfundinum, þar sem hann var lagður fram. Golda Meir á eftir að tilkynna formlega Efraim Katzie forseta Israel þessa ákvörðun sina. Bókamarkaöur Bóksalafélags íslands, í noróurenda Hagkaups, Skeifunni 15 Góöar bækur- gamatt verö

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.