Vísir - 24.05.1974, Side 9
Visir. Föstudagur 24. mai 1974.
9
cTVIenningannál
í óendanlegu rúmi
Vilhjálmur Bergsson
er einn þeirra fjöl-
mörgu islensku
listamanna, sem bú-
settir eru erlendis.
Hann hefur undanfarið
dvalið i Kaup-
mannahöfn, þar sem
hann lærði á sinum
tima, unnið að mynd-
list og haldið sýningar.
Nú er hann hér i
skyndiheimsókn og
hefur opnað sýningu i
Norræna húsinu.
Það hefur færst i vöxt hér á
landi, að menn haldi yfirlits-
sýningar meðan þeir eru enn á
miðjum starfsaldri, og ber að
fagna þvi, vegna þess að alltaf
bætast nýir i hóp mynd-
listaráhugafólks, og svona
sýningar hjálpa þeim til að átta
sig á hlutunum og fá i þá sam-
hengi. Á yfirlitssýningu
Vilhjálms eru nokkrar teikning-
ar og 39 oliumálverk frá árun-
um 1961-’74. Sýningunni er
haganleg fyrir komið, og gefur
hún glögga mynd af ferli
Vilhjálms. Greinilegt er, að um
1967 verða miklar breytingar á
viðhorfum hans og vinnubrögð-
um. Hann tekur upp sjálf-
stæðari stefnu en áður, og frá
þessum tima má rekja óslitna
þróun. Ef horft er á lita- og
efnisval, má sjá hægfara
breytingu frá þungum svart-
brúnum litum yfir i hvella og
andstæða, og myndefnið virðist
nálgast æ meir hugarheim
raunvisindamannsins.
Nýjar uppgötvanir i visindum
og listum hafa alltaf farið
saman. Landafundirnir og
renaissansinn byggja á sama
grundvelli, einnig
surrealisminn og Sigmund
Freud, og þannig mætti lengi
tplja. A seinni hluta 20. aldar er
þvi ekki undarlegt að visinda-
legar uppgötvanir svo sem i
stjörnufræði, dragi að sér at-
hygli listamanna, a.m.k. þeirra
sem komið hafa auga á það
hlutverk sitt að vera ekki aðeins
þjónar timabundinna viðhorfa
og hugmynda, heldur einnig
hreyfiafl i framvindunni. Vist er
um það að Vilhjálmur hefur
orðið fyrir miklum áhrifum frá
þeirri nýju heimsmynd, sem
nútima stjörnufræði og skyldar
MYNDLIST
greinar hafa skapað. Margar
seinni mynda hans sýna hluti
svifandi i óendanlegu rúmi
Einnig reynir hann i öðrum að
sýna bæði tima og rúm i hinum
tviviða fleti málverksins, t.d. i
mynd nr. 35 Á strengjum II og
nr. 39 Ýmis stig II. Þar hefur
hann bætt timanum frá vexti til
hrörnunar við viðáttuskynið.
eftir Elísabetu
Gunnarsdóttur
Utan hrings og innan IV, máluð 1973.
í strand?
Þó val viðfangsefnisins sé
þannig mjög við hæfi þeirra
tima sem við lifum á, finnst mér
samt, þegar ég athuga feril Vii-
hjálms undanfarin ár, eins og
hann sé að sigla i strand.
Siðustu verkin frá '73 og ’74 tei
ég bera þetta með sér. Þrátt
fyrir langvinna og nákvæma
ihugun viðfangsefnisins, er eins
og honum hafi ekki tekist að
taka afstöðu til þess eða draga
af þvi ályktanir. Allavega tekst
honum ekki, að mér finnst, að
koma máli sinu nógu vel til
skila, og á ég þá ekki við hina
tæknilegu úrvinnslu, þvi þar er
Vilhjálmur vel að sér, heldur er
annað tveggja að hugmyndin,
sem býr að baki er ekki nógu
skýr eða að oliumálverkið er
honum ekki hentugur miðill.
En hvað sem annars má um
þetta mál segja, þá er sýningin
allrar athygli verð, timinn er þó
ekki langur til stefnu, þvi henni
lýkur á sunnudagskvöld.
MIKU&RAU7
HÚSGAGNAVERZLUN
GUÐMUNDAR
Skeifan 15 Sími 82898
0-lúsfroyjustóll
Hægindastóllinn vinsæli frá Módelhúsgögnum.
Hl/legur stóll, sem sæmir sér vel hvar sem er.
0Holsingi
Frábært sófasett fyrir vandláta. íslenzk eða
erlend áklæði eftir eigin vali. 2,3, eða 4 sæta sófi.
Velja má um stál eða tréfætur.
Húsbóndastólinn má kaupa sérstaklega.
°6ommoda
Sófasettið, sem endist helmingi lengur.
Formfagurt og sérlega þægilegt. Nýtízkulegt
í hönnun: tveir púðar í baki; allir slitfletir
viðsnúanlegir.
£>omino
Sófasettið vinsæla er komið aftur. Eldri
pantanir óskast endurnýjaðar. Takmarkaðar
birgðir.
GUÐMUNDSSONAR