Vísir - 24.05.1974, Page 11
Vísir. Föstudagur 24. mai 1974.
Vísir. Föstudagur 24. mai 1974.
Zd
Streyma tíl œfinga
á erlenda grund!
U G A R D
L U R
Það verða 15-16 frjáls-
iþróttamenn og koniir við æf-
ingar og keppni erlendis i
næsta mánuði, sagði Guð-
mundur Þórarinsson,
iþróttakennari, þegar við
hittum hann að máli i
morgun.
Ég var að fá fréttir af keppni þeirra
Lilju Guðmundsdóttur, ÍR, og Júliusar
Hjörleifssonar, sem bæði eru við
æfingar i Norrköping. Lilja hljóp 400 m
. á 61.5 sek. og varð i fjórða sæti af átta á
móti i Uddavalla. Keppnisaðstæður
voru slæmar. Július hljóp 800 metra á
tveimur min. sléttum og þau verða út
júni að minnsta kosti við æfingar, sagði
Guðmundur.
Þrlr af strákunum minum i tR, þeir
Gunnar Páll Jóakimsson, Jón Sævar
Þórðarson og öskar Jakobsson, fara til
Sviþjóðar á sunnudag, sagði Guð-
mundur ennfremur. Þeir verða i Norr-
köping við æfingar eins og Lilja og
Július. Ég hef góð sambönd þar — vann
þar I sjö ár. Sonur minn, Jóhannes
Guðmundsson, sem dvelur þarna i
Nörrköping hefur veitt iþróttafólkinu
fyrirgreiðslu, þegar það kemur út.
Nú, og eins og við sögðum frá fer
Ragnhildur Pálsdóttir til æfinga og
keppni I Þýzkalandi á laugardag — og
innan skamms fer hópur Iþróttafólks úr
Ármanni til keppni og æfinga i Noregi.
Þar verða fremstu iþróttakonur
félagsins og hlauparinn ungi, Sigurður
Sigurðsson. —hslm.
Hermann er kominn
heim af spífalanum
i
Hermann Gunnarsson
Hermann Gunnarsson, landsliðsherj-
inn góðkunni úr Val, er nú kominn heim
af spitalanum, þar sem hann var i að-
gerð eftir meiðslin slæmu, sem hann
hlaut i 1. deildarleiknum á Akranesi sl.
laugardag. Hermann ökklabrotnaði,
ristarbrotnaði og liðbönd slitnuðu. Þrátt
fyrir það gerir hann sér vonir um að
leika knattspyrnu i sumar.
Þegar m eistaraflokksmenn 1.
deildarliðs Vikings fréttu að Hermann
væri kominn af spitalanum sendu þeir
honum mikla blómakörfu og blómunum
fylgdi sú ósk, að þeir fengju að sjá hann
sem fyrst aftur á vellinum i keppni.
Hermann, sem dveljast mun heima
við næstu vikurnar, var mjög glaður
vegna þessarar hugulsemi Vikinga.
—hsim.
Leikið á Laugardalsvelli í 1. deildinni á morgun
„Við ætlum að gera tilraun með
að taka Laugardalsvöllinn i notk-
un á morgun með leik á milli KR
og Keflavikur” sagði Baldur
Jónsson vallarstjóri, er við rædd-
um við hann i morgun.
„Það hefur verið unnið mjög
vel að viðhaldi og endurbótum á
vellinum í vor og hann er allur að
koma til . Það er búið að bera á
hann þrisvar sinnum en það er
meira en borið er á nokkur önnur
tún þá hefur verið sáð i hann,
skipt um þökur og hann loks
gataður.
„Við höfum hugsað um hann
eins og hvitvoðung, en hann þarf
að fá að jafna sig og vaxa eins og
annað. Hann kom illa undan vetri
eins og margir aðrir grasblettir
hér i Reykjavlk og nágrenni, i
honum voru stórir kalblettir og
skemmdir, en þó höfum við samt
séð hann verri.
Þær hafa komið okkur illa taf-
irnar, sem orðið hafa við fram-
kvæmdir við hina vellina hér i
dalnum, en þeir komast nú ein-
hverjir i gagnið i sumar. Þegar
völlur 3, sem er fyrir neðan Höll-
ina verður tilbúinn, verður
Laugardalsvöllurinn tekinn upp,
lagðar hitaleiðslur undir hann og
siðan sáð i hann fræi, sem er talið
það bezta i heiminum i dag þá
ætti hann að geta orðið eins og
beztu vellir verða erlendis.
—klp—
Mikið hefur verið unnið vjð
Laugardalsvöllinn að undanförnu
og þar er allur gróður á réttri leið
— enda hugsað um hann eins og
hvitvoðung. Ljósm. Bjarnleifur.
Þrír yfir 20 metra {Urslitin framundan ef
liðið sigrar Rúmenana!
Birgir „drukkn-
aði" í blómum
Bandariski heimsmethafinn i kúlu-
varpi, A1 Feuerbach, setti nýtt brezkt
met á alþjóðlegu Iþróttamóti i
Lundúnum á miðvikudag. Feuerbach
varpaði kúlunni 21.12 metra á leikvang-
inum I Crystal Palace og það er bezti
árangur, sem náðst hefur i þessari
Iþróttagrein I keppni á Bretlandseyjum.
Enski samveldismeistarinn Geoff
Capes, lögregluþjónn i Peterborough,
veitti heimsmethafanum harða keppni
Varpaði lengst 20.81 metra og i þriðja
sæti varð Mike Winch, sem einnig
varpaði yfir 20 metra markið — 20.43
metra.
— Ísland og Skotland gerðu jafntefli
í UEFA-keppni unglingalandsliða
LEIKMAÐUR SLO DÓMARA
Sá fáheyrði atburður gerðist á Mela-
vellinum i gærkvöldi, að leikmaður sló
og sparkaði i dómara leiksins eftir að
dómarinn hafði visað honum af leikvelli.
Þetta var rétt fyrir leikslok hjá KR og
Viking I Reykjavikurmóti 1. flokks.
Staðan var 2-0 fyrir KR, þegar miðherji
KR, Baldvin Baldvinsson, sló til mark-
varðar Vikings. Dómarinn, Vilhj. Þói
Vilhjálmsson, visaði Baldvin af velli, en
hann missti þá alveg stjórn á skapi sínu,
og lét það bitna á dómaranum. Leik-
menn KR reyndu að halda Baldvini og
þjálfarinn, Tony Knapp, dró hann
ómildum höndum af leikvelli. Baldvin
hefur verið kærður fyrir aganefnd KS
vegna þessa atburðar — hsim.
Heimsmeistari kemur!
í byrjun júni er væntanlegur hingað til
lands einn af sænsku heimsmeisturun-
um i borðtennis, Anders Johanson.
Hann mun dvelja hér i hálfan mánuð
og m.a. kenna á námskeiði I borðtennis,
sem haldið verður I Reykhoiti I Borgar-
firði dagana 20. til 30. júni.
Anders Johanson var i landsliði Svia
stóð sig svo frábærlega I HM-keppninni I
Sarajevo i Júgóslavíu. Þá hefur hann
oftast staðið sig mjög vel I öðrum stór-
mótum, m.a. varðhann annar á Norður-
landamótinu I Randars s.l. haust, en þar
kynntust íslendingarnir, scm þar
kepptu, honum vel og fengu hann til að
koma hingað til lands i sumar.
Aðeins munu 30 manns komast á þetta
námskeið, sem hann mun stjórna. Allar
nánari upplýsingar um það gefa stjórn-
armeðlimir Borðtennissambands Is-
lands. — Klp—
Það veltur allt á úrslitunum við
Rúmena I kvöld — ef islenzka
liðinu tekst að sigra blasa úrslitin
við framundan, sagði Árni
Ágústsson, fararstjóri isl. ungl-
ingalandsliðsins i -Sviþjóð i
morgun. Eftir leik Rúmena við
Finna á miðvikudag — Rúmenia
sigraði 1-0 — að dæma ætti iið
okkar að hafa allgóða möguleika
gcgn Rúmenum.
Viö þurfum ekki að kvarta
undan jafnteflinu við Skota i
Karlshamn á miðvikudag 1-1, en
sigurmöguleikar, sem ekki
nýttust, voru þó talsverðir i þeim
leik. Að visu skoraði skozka liðið
á undan, en Árni Sveinsson,
Akranesi, jafnaði á 30.min. Vissu-
lega eru þetta athyglisverð úrslit
— skozku strákarnir leika nær
allir með þekktum, skozkum at-
vinnuliðum.
1 A-riðlinum eru Rúmenar þvi
efstir með 2 stig, Island og Skot-
land hafa eitt stig, en Finnar
ekkert. 1 kvöld leikum við gegn
Rúmenunum i Ronneby.
1 B-riðlinum urðu úrslit þau, að
Austur-Þýzkaland vann Pólland
1-0, en Tyrkland og Júgóslavia
gerðu jafntefli 0-0.
1 C-riðlinum kom það mjög á
óvart, að-Danmörk sigraði Wales
með 3-1, en það var einmitt
Wales, sem sló England og Hol- |
land út i undankeppninni. Það var
það óvæntasta i undankeppninni,
þvi England hefur sigrað i keppn-
inni þrjú siðustu árin. Danir voru
i sjöunda himni eftir sigurinn
gegn Wales. 1 hinum leiknum i
riðlinum vann Búlgaria
Luxemborg með 2-1.
1 D-riðli urðu úrslit þau, að
Sviþjóð sigraði Portúgal 1-0,
Grikkland — mjög óvænt — vann
Spán með 1-0. Efsta liðið úr
hverjum - riðli kemst i úrslita-
keppnina.
Griðarstórt borð, sem stóð á
miðju gólfinu fyrir kveðjuleik
Birgis Björnssonar i íþróttahús-
inu I Hafnarfirði I gær, nægði
varla undir öll þau blóm og gjaf-
ir, sem honum var sent.
Gjafirnar komu bæði frá
iþróttafélögum og aðdáendum
og var „gamli maðurinn” eins
og FH-ingarnir hafa kallað hann
að undanförnu, bókstaflega að
drukkna i þeim.
Honum var fagnað vel og inni-
lega bæði meðan á athöfninni
stóð og einnig i leiknum, sem
var við biandað lið yngri og
eldri Framara, er hann skoraði
hvert markið á fætur öðru.
Leiknum lauk með sigri FH
22:20, og var i honum leikinn
léttur og opinn handknattleikur,
sem allir höfðu gaman af.
Karl West sveiflaði
sér yfir 2.01 metra
Annar bezti árangur íslendings í hástökki
##
Karl West Frederiksen, UBK,
stökk 2.01 metra i hástökki á Vor-
móti tR á Melavellinum á mið-
vikudag. Það er annar bezti
árangur íslendings i greininni —
Jón Þ. Ólafsson, tR, á tslands-
metið 2.10 metra, og tveir ts-
lendingar hafa stokkið tvo metra,
Jón Pétursson, KR, og Elias
Sveinsson, ÍR.
Karl er i mikilli framför sem
iþróttamaður og lætur þarna
áreiðanlega ekki staðar numið i
sumar. Elias varð annar með 1.94
m og var óheppinn að stökkva
ekki hærra. Þá hljóp Bjarni
Stefánsson, KR, 100 m á 10.7 sek.
og er það gott afrek, sem sýnir, að
Bjarni er að ná sér vel á strik að
nýju. Hliðarvindur var nokkur i
Léttur sigur
„Blikanna
Guðmundur Þóröarson,
markakóngur Breiðabliks úr
Kópavogi, var heldur betur á
skotskónum, er Breiðablik lék við
Selfoss á Vallargerðisvellinum i
gærkvöldi.
Hann skoraði öll mörk liðsins i
leiknuin — þrjú að tölu, og voru
þau flest skoruð af hans alkunnu
hörku og harðfylgi.
Leikurinn i heild var heldur fá-
tæklegur hvað knattspyrnu snert-
ir, en þó brá fyrir „perlum” við
og við á báða bóga.
Selfyssingar voru ekki mikið
síðri en Kópavogsbúarnir — þar
til koma að marki — þá brást
þeim bogalistin, og urðu þeir þvi
að sætta sig við 3:0 tap. —klp—
Góður
œfinga-
hringur
Golfkeppnin I Sviþjóð, sem 1
Björgvin Þorsteinsson tekur þátt I,
hófst i morgun á hinum erfiða velli I
i Falsterbro.
i gær var ákveðið að fjölga i I
keppninni um 10 manns, og eru þar
nú 160 keppendur, sem allir hafa I
forgjöf 3 eða lægra, þar af eru 34
með forgjöf 0 og nokkrir með +i.
Björgvin lék i gær æfingahring
með brezka meistaranum Gordon
Clark, og lék hann þá 18 holurnar á
76 höggum, sem er 3 yfir pari vall-
arins. Mótspilari hans lék á 75
höggum.
Nánar verður sagt frá úrslitum
keppninnar eftir helgina —-klp—
Malmö sœnskur
bikarmeistari
Malmö FF var sænskur bikar-
meistari i gær annð árið í röð,
þegar liðið vann öster 2-0 i
úrslitaleiknum, sem háður var i
Hamstað. Bæði mörkin voru
skoruð i siðari hálfleik — Thomas
Sjöberg og Steffan Tapper
skoruðu.
hlaupinu, hagstæður.
Að öðru leyti var ekki mikið um
fina drætti á mótinu. Nokkur von-
brigði urðu i kúluvarpinu —
Hreinn Halldórsson varpaði ekki
„nema” 17.48 m en 18 metrarnir
hljóta þó að koma fljótlega hjá
honum. Hann sigraði og i kringlu-
kasti með 50.60 m. Guðni Hall-
dórsson, HSÞ, varð annar báðum
greinum, 15.05 m og 44.32 metra. 1
100 m hlaupinu varð Sig. Sigurðs-
son, A, annar á 11.2 sek. 1 110 m
grindahlaupi sigraði Stefán Hall-
grimsson, KR, á 15.5 sek. Gunnar
Páll Jóakimsson, ÍR, i 800 m
hlaupi á 2:00.8 min. og Gunnar
Snorrason, UBK, i 3000 m hlaupi á
9:45.4 min.
1 kvennagreinum sigruðu þess
ar stúlkur. Hafdis Ingimarsd.,
UBK, i langstökki 4.94 m og Lára
Sveinsdóttir, A, stökk einnig 4.94
m. Ingunn Einarsdóttir, ÍR, I 200
m hlaupi á 26.1 sek., tveimur
sekúndubrotum frá Islandsmeti
sinu, og var þó óhagstætt að
England
komst í 2-0,
en Argen-
tína jafnaði!
Það var allt á suðupunkti i
landsleik Englands og
Argentinu á Wembley-leik-
vanginum I Lundúnum á
miðvikudag. Jafntefli varð
2-2 eftir að England
hafði skorað tvö fyrstu
mörkin, og jafnaði Argentina
úr vitaspyrnu þegar nokkrar
sekúndur voru tii leiksloka.
Argentina lék mjög vel I
byrjun án þess að skora, en
fyrirliða Englands, Enilyn
Hughes, tókst að snúa leikn-
um Engiandi i hag með
góðum sóknarlotum niður
kantinn. Hann lék nú sem
bakvörður, og kom mjög við
sögu — upphafsmaður að
mörkum Englands, en mis-
tök hans leiddu einnig til
þess að Argentina jafnaði.
Rétt fyrir hlé skoraði Mike
Channon fyrsta markið og
þegar liðin héldu í leikhléið
sló Claria Hughes. Argen-
tinumenn settu hann þá úr
liðinu. A 53. min. skoraði
Frank Worthington annað
mark Englands, en þremur
min. siðar varð mikill mis-
skiiningur hjá Shilton og
Hughes, sem varð til þess, að
Mario Kempes skoraði. Á
iokaminútu leiksins brá
Hughes sóknarmanni innan
vitateigs og Kempes jafnaði
úr vitaspyrnunni, seni
argentínski dómarinn Arth-
uro Ithurralde dæmdi (linu-
verðir enskir). Perfumo og
Channon voru bókaðir i
leiknum. Bezti maður
Argentinu var Ayela, fram-
herjinn, sem gat ekki leikið
úrslitaleiki Evrópubikarsins
með Atletico Madrid vegna
leikbanns. — hsím.
KR fœr þá beztu úr öðrum félögum
Allt útlit er fyrir að
bikar, Reykjavikur- og
íslandsmeisturum KR i
körfubolta bætist mikill
og góður liðsstyrkur
fyrir næsta keppnis-
tímabil
Heyrzt hefur, að þrir góð-
kunnir leikmenn, sem verið hafa
máttarstólpar sinna liða að
undanförnu, muni ganga yfir i
raðir KR-inga og æfa og leika
með þeim næsta vetur.
Þetta eru þeir Þröstur Guð-
mundsson, sem verið hefur einn
af beztu mönnum HSK og stiga-
hæsti maður liðsins á nýliðnu
keppnistimabili.
Eyþór Kristjánsson frá Þór á
Akureyri, en hann hefur verið
einn bezti leikmaður Þórs að
undanförnu, og loks Bragi Jóns-
son frá Borgarnesi, sem verið
hefur með atkvæðamestu Borg-
nesingum i 1. og 2. deild s.l. ár.
Tveir af þessum mönnum, Þröst-
ur og Bragi eru i landsliðshópnum
i körfuknattleik, og Eyþór er
sagður vera ekki langt frá þvi að
komast i hópinn.
Búast má við að hart þurfi að
berjast til að komast inn i KR
liðið á næsta keppnistimabili, ef
þessir sveinar bætast i þann stóra
og sterka hóp, sem þar er fyrir.
Aðeins er vitað um einn leik-
mann KR, sem lék með liðinu i
vetur, sem ætlar ekki að vera
með næsta vetur Það er Gutt-
ormur Ólafsson, en hann hefur nú
ákveöið að leggja körfubolta-
skóna á hilluna og taka að sér
þjálfun yngri flokkanna hjá KR.
—klp—
hlaupa. Ragnhildur Pálsdóttir,
Stjörnunni, i 800 m hlaupi á 2:21.4
min. en keppendur voru þar ell-
efu. 1 100 m hlaupi telpna sigraði
Ásta B. Gunnlaugsdóttir ÍR, á
13.3 sek. og i 400 m hlaupi sveina
(17 keppendur) sigraði Einar B.
Guðmundsson, FH, á 57.4 sek.
Mótið gekk nokkuð vel, þrátt fyrir
fjölda keppenda i einstökum
greinum, en áhorfendur voru fáir.
— hsim.
Karl West.
KJOSIÐ RETT!
Kjósið blaðið
sem segir sex
Mjög fjölbreytt efni
Eittbvað fyrír alla