Vísir - 24.05.1974, Page 13
Visir. Föstudagur 24. mai 1974.
13
Brúðkaupsnóttin, sem heimurinn vildi vita um
— Nei,segir hún
— Já,segir hann
Fréttin um aö mann-
fræöingurinn Wyn Sargent
heföi gifzt mannætu-
höfðingjanum Obaharok,
langt inni í frumskógum
Nýju Guienu, vakti á sin-
um tíma heimsathygli.
Eitt af því fyrsta, sem
blaðamenn spuröu frú
Obaharok um, eftir að hún
kom aftur út í hinn „sið-
menntaða heim", var,
hvort hún hefði ekki sofið
vel á brúðkaupsnóttina í
örmum síns heittelskaða
mannætuhöfðingja.
Blöðin buðust til að borga henni
háar upphæðir fyrir lýsingu henn-
ar á þessari nótt og öllu þvi, sem
þau hefðu sagt og fram hefði far-
ið á milli þeirra. En frúin neitaði
öllum slikum boðum og hún
þvertók fyrir að þau hefðu..?
Heimurinn lét sér þetta svar vel
lika, en þó ekki allir. Blaðamaður
frá þýzku blaði vildi fá hina hlið-
ina á málinu og gerði sér ferð inn i
skóginn — ásamt fjölda fylgdar-
manna — og ræddi þar við eigin-
manninn yfirgefna, herra
Obaharok, og hann hafði allt aðra
sögu að segja.
Hún var n grísa virði!
,,Hún benti á mig og siðan á sig
og loks á kofann,” sagði herra
Obaharok. ,,Ég skildi strax hvað
hún var að fara, og ég var ekki
ófáanlegur, þrátt fyrir að hún
væri með mjótt nef — (slikt þykir
ekki fallegt i skóginum hans
Obaharok) — og að af henni væri
óþægileg lykt” — (frúin fór i bað
þegar heim var komið, en slikt
telja mannæturnar á þessum
slóðum hinn mesta óþarfa).
Obaharok lýsti siðan vandlega
öllum viðskiptum þeirra hjóna
fyrir blaðamanninum, svo og
brúðkaupinu og undirbúningi
þess.
Hann sagði m.a. frá þvi, að frú-
in hefði ekki átt neitt til að láta sig
hafa i heimanmund og þvi keypt
11 svin og ýmislegt annað til að fá
að giftast honum. Viðurkenndi
hann að hafa sjálfur sett upp
þetta verð til að losna við að gift-
ast henni — þetta væri vel tvö-
faldur heimanmundur.... ,,En
hún vildi fyrir hvern mun giftast
mér, og ég gat ekki slegið hendi á
móti 11 svinum” — sagði þessi
svarti sjarmör og brosti ánægju-
lega framan i þýzka blaðamann-
inn.
Bók Wyn Sargent um ferðina i
frumskóginum og hið skamm-
vinna hjónaband sitt með
mannætuhöfðingjanum mun
íoma út i sumar. Biða menn nú
spenntir eftir að vita, hvort hún
segi þar frá ÖLLU.
— klp —
*D
SIGUR
REYKJAVÍKUR
+ 1
Wyn Sargent ásamt syni sinum —af fyrra hjónabandi — við komuna til
Los Angeles, eftir að henni hafði vcrið visað úr landi I Indónesiu.
Opið til kl. 10 í kvöld
og hódegis laugardag
JAKOBS tekex
LIBBY’s tómatsósa
4x250 gr. RÍÓ kaffi
Strásykur, 2 kg,
COCOA PUFFS
CHEERIOS
Eldhúsrúllur
Toilet pappir — 25 rl.
kr. 36.00
kr. 59.00
kr. 316.00
kr. 196.00
kr. 84.00
kr. 66.00
kr. 88.00
kr. 515.00
Kjöt, smjör,
ostar og mjólk
ó nýja verðinu.
Kaupgarður
.... á leiðinni heim
Smiöjuvegi 9 Kopavogi
Hjónin Wyn Sargent frá Bandarikjunum og mannætuhöfðinginn
Obaharok frá Nýju Guineu eftir hjónavigsluna. Nú ber þeim ekki sam-
an um hvað gerðist á brúðkaupsnóttina.
2748.-
Ritari
Starf ritara á skrifstofu landlæknis er
laust frá 1. júli næst komandi. Nánari upp-
lýsingar á skrifstofu landlæknis.
Landlæknir
(SKÓÖÚD
SUÐURU€RS
Kr. 2462.-