Vísir - 24.05.1974, Page 20
Reifar aö afioknu stúdentsprófinu Sif, Maria og Sigrún
VÍSIR
Vfsir. Föstudagur 24. mai 1974.
„Treystum
þvi að fóik
muni
kjördeiida-
skiptingu"
„Við auglýsum kjörstaöina
samkvæmt lagaskyldu, en kjör-
deildaskiptingu auglýsum viö
ekki núna. Þaö er þó engin
breyting af okkar háifu, þvi hún
var ekki auglýst siöast heldur. En
við treystum þvi, að fólk muni
almennt kjördeildaskiptinguna
frá þvi þá, þvi hún hefur
ekkert breytzt að ööru leyti en
þvi, að íbúar i Breiðholti III kjósa
i Fellaskóia”.
Þetta sagði Jón Tómasson,
skrifstofustjóri á borgarskrif-
stofum, þegar Visir hafði
samband við hann I morgun
vegna kjörstaða- og kjördeilda-
skiptingar við borgarstjórnar-
kosningarnar nú. Kjörstaðir eru
eingöngu auglýstir, en margir
sakna þess að fá ekki nákvæma
kjördeildaskiptingu birta.
„Það þarf heldur ekki að leyna
þvi”, sagði Jón ennfremur, „að
það hefði kostað okkur 1200
þúsund krónur að auglýsa þetta i
tvigang núna, og þar sem þetta
var umfram skylda, vildum við
spara það. En engar breytingar
hafa sem sagt átt sér stað, og ef
fólk er ekki alveg visst, þá liggja
allar upplýsingar frammi i
skólunum”.
Þá skal þess getið, að skráð
heimilisfang 1. desember sl.
ræður kjörstað. —EA
Bjarni úti í
kuldanum
„Við treystum okkur ekki til að
tryggja Bjarna Guðnasyni fyrir-
fram öruggt sæti á lista”, segir
Kristján Bersi ólafsson. Hann
var fulltrúi Samtaka jafnaðar-
manna I viðræðum við Frjáls-
iynda flokkinn.
Frjálslyndi flokkurinn hefur
skipað menn til viðræðna við
Samtök frjálslyndra og vinstri
manna, Möðruvallahreyfinguna
og Samtök jafnaðarmanna um
sameiginlegt framboð við þing-
kosningarnar. Mundu Frjáls-
lyndir, ef af yrði, væntanlega
skipa sér undir merki F-lista. I
viðræðunum tóku þátt auk
Kristjáns Bersa Magnús Torfi
ólafsson og Kristján Thorlacius
og þrir fulltrúar Frjálslynda
flokksins, þó ekki Bjarni Guðna-
son sjálfur. En frjálslyndum var
fremur illa tekið.
Forvigismenn hinna þriggja
flokksbrota, sem hyggjast standa
að F-lista, hörmuðu, að fulltrúar
Frjálslynda flokksins skyldu ekki
hafa kynnt sér sameiginlega
stefnuyfirlýsingu þeirra, áður en
þeir komu til viðræðnanna. „Við
erum til viðræðna um málefna-
samstöðu”, segir Kristján Bersi.
—HH
FRA FARSKOLA
TIL STÚDENTS-
PRÓFS
„Eigum við ekki að segja, að
það sé Iestur og liðugar sellur”
sögðu dúxarnir i M.H. eftir
brautskráningu I gær, þegar við
spurðum um ástæðuna fyrir
árangrinum. Hvitu kollarnir
hafa aldrei verið fyrr á ferðinni
en i ár og ástæðan er sú, að
lengd námsanna fyrir og eftir
jól hefur verið jöfnuð.
Elzti dúxinn i ár er 47 ára, er
það Guðný Sigurgisladóttir úr
öldungadeild, sem stökk i einu
stökki frá farskóla til stúdents-
prófs. „Þetta er mest að þakka
strangri vinnu auk þess sem ég
byggi á almennri þekkingu úr
skóla lifsins”. Og i Háskólann
var hún staðráðin i að fara
næsta haust.
Frá' M.H. voru nú braut-
— hvítu kollarnir fyrr
ó ferðinni en vant er
— og þeir fyrstu
koma fró
öldungadeildinni
skráðir stúdentar úr öldunga-
deild og áfangakerfi i fyrsta
sinn og úr bekkjakerfi i siðasta
sinn. Var stúdentaaldurinn þvi
að þessu sinni frá 17 til 47 ára.
Rektor sagði okkur einnig frá
þvi, að nú hafi einnig verið tekin
upp sú nýbreytni fyrir tilviljun
eina að halda stúdentspróf úti i
hrauni. Er komið var til eins
munnlega prófsins, var próf-
dómarinn ókominn og fannst að
lokum við gróðursetningu úti i
Hafnarfjarðarhrauni, og var þvi
prófið haldið þar i vorgrænni
náttúrunni. jg
Dúxar úr þremur kerfum. Sigrlður Jónsdóttir eðiisfræðideild,
Guðný Sigurgísladóttir öidungadeild, Hrönn Ríkharðsdóttir
máladeild, GIsli Torfason náttúrufræðideild, Kjartan Ottósson
úr áfangakerfi og yngsti stúdentinn Helgi Þorleifsson 17 ára. JB
Dauðaslys í Heiðmörk
— ungur moður fannst þar lótinn skammt fró bíl sínum, sem
hafði oltið út af veginum
Þritugur maður lézt
af slysförum uppi i
Heiðmörk i gær-
morgun, þegar bifreið
hans valt út af veginum
og fór nokkrar veltur.
Óvist er um tildrög slyssins,
þvi að ekki hefur náðst til
neinna sjónarvotta, en
lögreglan óskar að pá tali af
manni, sem var með hinum
látna i bifreiðinni snemma
morguns.
Það varfuglaskoðari á leið um
Heiðmörk um kl. 9 i gærmorgun
i veðurbliðunni, sem fyrstur
kom að rauðri stationbifreið
(Skoda) á hvolfi utan vegar.
Nokkra metra frá bílflakinu lá
maður látinn.
Við rannsókn kom i ljós, að
hinn látni var umráðamaður
bifreiðarinnar, og sýnist svo
sem hann hafi misst stjórn á
henni þarna á veginum
einhverra hluta vegna. Löng för
á veginum benda til þess að
bifreiðin hafi rásað til á honum,
áður en hún valt út af.
Sennilega hefur bfllinn oltið
nokkrar veltur og við það hefur
maðurinn hrokkið út úr henni.
Hefur maðurinn orðið undir
bilnum I einni veltunni og beðið
bana af.
Um ferðir hins látna I
fyrrinótt er litið vitað. Þó sást til
hans við nætursöluna i
Umferðarmiðstöðinni milli kl. 6
og 7 að morgni. Var þá i för með
honum annar maður, sem
lögreglan þarfnast aðstoðar frá
til glöggvunar á ferðum hins
látna.
—GP
F-listar verða í
öllum kjördœmum
r
— segir Kristjón Bersi Olafsson um sambrœðslu Magnúsar Torfa,
Möðruvallahreyfingarinnar og Samtaka jafnaðarmanna — Hannibal og
Björn ó A-lista?
„Ég geri ráð fyrir, að F-listar
verði I framboði við þingkosn-
ingarnar i öiium kjördæmum
landsins”, sagði Kristján Bersi
Ólafsson skólastjóri, einn for-
vlgismanna hinna nýju Samtaka
jafnaðarmanna, I morgun. Með
F-lista er átt við sameiginlegt
framboð Samtaka frjálslyndra og
vinstri manna, að minnsta kosti
þess hluta, er fylgir Magnúsi
Torfa Ólafssyni, Möðruvalla-
hreyfingarinnar og Samtaka
jafnaðarmanna.
Spurningin er, hvort sá hluti
Samtaka frjálslyndra og vinstri
manna, sem fylgir Hannibal og
Bírni Jónssyni muni bjóða fram
með Alþýðuflokknum, og þá A-
eða J-lista. Gylfi Þ. Gislason, for-
maður Alþýðuflokksins.sagði i
morgum, að þetta væri allt
óráðið, en „stöðugir fundir” væru
hjá forystumönnum Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna.
Þingmenn „Samtakanna”,
Hannibal, Björn og Karvel
Pálmason, verjast frétta.
Hve margir eru i hinum nýja
flokki, Samtökum jafnaðar-
manna? Það er ekki fullljóst, að
sögn forystumanna hans. „Við
vorum fáir i fyrstu, enda gerðist
þetta allt eins og i hraðskák”,
sagði Helgi Sæmundsson ritstjóri
i morgun. „Félögunum fjölgar og
menn geta gerzt stofnfélagar
fram til 1. júni”.
Hvaða afstöðu hefur þessi
flokkur i bæjar- og sveitar-
stjórnarkosningunum?
„Við höfum gefið yfirlýsingu
um, að við styðjum lista jafn-
aðarmanna og samvinnumanna
hvarvetna”, segir Helgi
Sæmundsson. Hann segir, að
Samtök jafnaðarmanna hafi ekki
orðið til, fyrr en búið var að
ganga frá framboðum fyrir
bæjar- og sveitarstjórnarkosn-
ingarnar. Sem dæmi um þá lista,
er flokkur hans styddi, nefndi
Helgi Sæmundsson J-lista i
Reykjavik, A-lista i Hafnarfirði
og lista vinstri manna á Sel-
tjarnarnesi.
Uppstillinganefnd Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna.
Möðruvallahreyfingarinnr og
Samtaka jafnaðarmanna I
Reykjavik hélt fund I gær. Þá
réðu forvigismenn Samtaka
frjálslyndra og vinstri manna i
Norðurlandskjördæmi eystra
ráðum sínum i gærkvöldi. Það er
kjördæmi Björns Jónssonar.
Framboðsfrestur rennur út eftir 6
daga, og forystumenn hinna
ýmsu flokka og flokksbrota
„jafnaðar- og samvinnumanna”
eru i miklu timahraki, en málin
hljóta að skýrast næstu daga.HH