Vísir - 13.06.1974, Qupperneq 1
Rœða um
frið og
horfa á
magadans
— sjá bls. 4
Verða frarnin
pólifísk
hryðjuverk á
heimsmeist-
arakeppninni í
knattspyrnu?
— sjá bls. 5
. •
Vígamenn
á vappi við
Valsheimilið
— sjá bls. 2
Frœgt
fólk spilar
undir fyrir
fuglana
— sjá viðtal
við Cleo Laine
og Johnny Dankworth
við komuna
til Reykjavíkur
í gterkvöldi
— Sjá baksíðu
Póstferðir
ekki alveg
liðnar
undir lok
%
- sjá í SKYNDI
á bls. 8
Álafoss að
500 milljónir
Skuldir
nálgast
— Forstjóri dregur úr framleiðslu í öllum
deildum nema spunaverksmiðju —
harðorður i gagnrýni —
Skuldir Álafoss nálgast óðuni
500 milljónir. Verksmiðjuhús fyr-
irtækisins, geymslur og íbúðar-
hús eru að undantekinni nýju
verksmiðjubyggingunni gersam-
lega úrelt og ónýt. Taka verður
afstöðu til þess, hver vera skal til-
gangurinn með áframhaldandi
rekstri fyrirtækisins, hvort það
eigi að reka sem hvert annað fyr-
irtæki eða með bullandi tapi sem
þjónustufyrirtæki, fyrir mörg
mismunandi vel rekin smáfyrir-
tæki í prjóna- og saumaiðnaði úti
á landi.
Þetta segir forstjórinn, Pétur
Eiriksson, i skýrslu sinni um
reksturinn.
Mikil mannaskipti hafa valdið
þvi, að gölluð vara hefur aukizt og
hlaðizt upp, svo að mikið magn er
óseljanlegt á innanlandsmarkað-
inum. Búið er að afskrifa mikið af
þessari gölluðu vöru en lager-
pláss er á þrotum og varan liggur
undir skemmdum.
Tap á rekstrinum varð 29,4
milljónir i fyrra.
Búast má við 60-70 milljóna tapi
i ár.
Þá segir i skýrslunni, að for-
stjórinn hafi gripið til viðtækra
ráðstafana til að draga úr fram-
leiðslu i öllum deildum nema
spunaverksmiðjunni. Með þvi
muni tapið i ár vaxa, en við þvi
sé ekkert að gera.
1 skýrslunni er sagt, að
fatnaðarútflutningurinn hafi
einungis aukizt um 8% i fyrra.
Þar megi mörgu um kenna, með-
al annars lélegri hönnun, og verði
að „teljast útilokað finna inn-
lenda aðilja, sem hafa inngrip i
þessi mál”, segir þar. Einnig sé
um að kenna, að starfsfólk á
saumastofum, sem séu dreifðar
um allt land, sé óvant. Gæðaeftir-
lit sé lélegt og mistök hafi orðið i
pökkun og afgreiðslu, og mis-
munur á stærð og gæðum valdi
einnig vandræðum.
Væri raunverulegur kostnaður
við útflutningsdeild færður á
hana, segir i skýrslunni, yrði
hann rúmar 30 milljónir króna ár-
ið 1973, og er nefnt til „sölu- og
ferðakostnaður erlendis, ellefu
flugferðir til Vestmannaeyja með
84 gesti, innlenda og erienda,
auglýsingakostnaður og heimboð
erlendra umboðsmanna, ásamt
pólitiskum gjöfum og afslætti af
gólfteppum siðustu árin”. f
skýrslunni segir, að þessum
kostnaði verði áram „hagrætt’^J
bókhaldi, það er skipt á aðrar
deildir.
Þvi miður virðast öll rök hniga
að þvi, að innlendur gólfteppa-
vefnaður verði ekki samkeppnis-
fær við innflutn. eftir fáein ár.
Virðist þvi ekki ástæða til að ráð-
ast i fjárfestingar i gólfeppavefn-
aði. Framtið dúkavefnaðar sé
næsta vonlaus. Gjörbylta þurfi
fataútflutningi, Alafoss megi ekki
vera skyldugt að flytja út alls
konar fatnað fyrir hálfa aðra
tylft framleiðenda. Álafoss verði
að yfirtaka og sameina þessar
verksmiðjur ellegar hætta þess-
um rekstri, sem megi kalla ,,um-
bun og styrktaraðstoð”. — HH.
Sumarstúlka Vísis á Mallorca
Þeir eru eflaust margir, sem
vildu vera i sporum hennar
Magðalenu ólafsdóttur, Suinar-
stúlku VIsis frá þvi i fyrrasumar.
Hún spókar sig nú á sólar-
ströndum Mallorca, en ferðin
þangað er verðlaunin, sem hún
hreppti.
Meö henni er einn af blaða-
mönnum VIsis, Edda Andrés-
dóttir.
Magðalena gat ekki farið i
þessa ferð fyrr, þar sem hún stóð i
ströngu við menntaskólanám sitt.
Stúlkurnar eru á Mallorca i
boði ferðaskrifstofunnar Sunnu.
Aö sjálfsögu skin sólin glatt á
Mallorca, yfirleitt þannig, að
hitinn kemst upp i 30 gráður.
Sumarstúlkan okkar mun
ferðast viðs vegar um Mallorca I
boði Sunnu og skoða það mark-
verðasta. M.a. ætla þær I einn
sérstæðasta dýragarö i heimi, en
þar er fólkið i búrum, en dýrin
spóka sig fyrir utaan þau.
Þær Magðalena og Edda hafa
hitt marga tslendinga I sólskins-
paradisinni, ma.a'. hóp af
Frömurum, sem dveija þar sér til
afslöppunar. Og auðvitað hafa
þeir beðið fyrir kveðjur heim.-OH
12 SIÐNA AUKABLAÐ
BÍLA OG UMFERÐ
FYLGIR VÍSI í DAG
UM