Vísir - 13.06.1974, Blaðsíða 5
Vlsir. Fimmtudagur 13. júní 1974
5
ÚTLÖNDÍ MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND í MORGUN ÚTLÖND llmsjón: BB/GP
Frúin fékk ekki að
halda gjöf Mobutu
Hubert H. Humprey öldunga-
deildarþingmaöur skiiaði i gær til
ráöuneytis átta karata demanti,
sem Jósep Mobutu forseti Kongó
gaf honum eitt sinn.
Einn samstarfsmanna
Humpreys skýröi frá þvi, aö flog-
iö hefði verið meö demantinn frá
Minneapolis til Washington, þar
sem hann var fluttur svo frá
skrifstofu þingmannsins tii próto-
kollmeistara þess opinbera.
Að undanförnu hafa orðið tölu-
verðar umræður i Bandarikjun-
um um gjafir, sem ýmsir framá-
menn þjóðarinnar hafa þegið af
útlendum þjóðhöfðingjum, er þeir
hafa sótt heim i nafni Bandarikj-
anna. Hefur þeirri spurningu ver-
ið varpað fram, hvort lita beri á
þessar gjafir sem gefnar banda-
risku þjóðinni, eða fulltrúa henn-
ar persónulega.
Meðal þeirra, sem borizt hafa i
tal i þessu samhengi, eru eigin-
konur þeirra Nixons forseta,
William Rogers fyrrum ráðherra,
William Fulbrights þingmanns og
Spiro Agnews, fyrrum varafor-
seta.
Mobutu-demanturinn og tiu
hlébarðaskinn um leið voru gefin
konu Humpreys 1968. Hlébaröa-
skinnin voru gjöf frá einum ráða-
manna Somaliu og voru seld á
árinu 1970 fyrir 7500 dali, en and-
virðið var látið renna til skóla
vangefinna barna.
Humprey sagði, að hann hefði
ekki gert sér grein fyrir, að gjafir
gefnar konu hans heyrðu undir
rikið. Sagði hann, að hann hefði
ávallt á ferðum sinum haft með
fulltrúa prótókollmeistara, og
þetta hefði aldrei veriö fært i tal
við sig.
Þingmaðurinn tók það fram, að
Humprey bætti konu sinni,
Muriel, upp demantsmissinn
ineö kossi.
það hefði ekki verið kallað eftir
gjöfum þessum af hálfu fulltrúa
rikisins, né á neinn hátt gefið i
skyn, að þær væru ekki réttmæt
eign konu hans. Engu að siður
valdi hann að skila þeim.
-* 4-— ^.i«orcott.»orcw«irwii_nB f* inm«niiM«,»M'.ll.;.mr|4wni
KMa-auuumaiMUim-f
Glistrup sviptur
þinghelginni
Danska þjóðþingið
samþykkti i gær að
svipta Mogens Glistrup
þinghelgi, og þar með
liggur ljóst fyrir, að for-
maður Framfara-
flokksins verður
ákærður fyrir skattsvik
og fjársvik.
Greiddu 134 þingmenn
tillögunni atkvæði,
meðan 2 sátu hjá, 17
voru fjarstaddir og allir
26 þingmenn Framfara-
flokks Glistrups voru á
móti.
Kom til ákafra umræðna á
þinginu milli þeirra, sem vildu
svipta Glistrup þinghelginni, og
hinna, sem ekki vildu slikt. Eftir
Peron hótar
Rikisstjórn Argentinu sagði af
sér I gærkvöldi eftir viðburða-
rikan dag, sem hófst með þvi aö
Juan Per.on forseti landsins
hótaöi að segja af sér og draga sig
i hlé, þvi að „eitthvað óeðlilegt”
— að hans dómi — „væri á seyði i
landinu”.
Peron mun i dag ákveða, hvort
hann mun gera einhverj-
ar breytingar á stjórn sinni.
Ráðherrarnir átta og 20 ráðu-
neytisstjórar sögðu allir af sér
með tölu til þess að gefa „for-
sétanum frjálsar hendur til ráð-
stafana”, sem hann kann að telja
þurfa með. — Er litið á afsögnina
að forseti þingsins, Karl Skytte,
hafðimæltfyrir áliti meirihlutans
og Glistrup sjálfur fyrir áliti
minnihlutans, gengu þingmenn i
ræðustólinn i löngum bunum og
tóku til máls.
Þingmenn Framfaraflokksins
fullyrtu, að hérna væri um
pólitiskar ofsóknir að ræða
á hendur Glistrup og vildu þeir að
beöið yrði með að ákveða, hvort
hann skyldi sviptur þinghelgi, þar
til eftir sumarhlé.
Glistrup, sem er einnig for-
maður þingflokks Framfara-
flokksins, sagði, að eini tilgang-
urinn með málsókninni á hendur
sér væri að hindra hann i að sinna
málum þeirra 400 þúsund
kjósenda, sem hefðu treyst hon-
um. Hann og menn hans hafa
einnig haldið þvi fram, að ekki
lægju fyrir nógu greinagóð gögn
frá saksóknara, sem hafði óskað
þess, að Glistrup yrði sviptur
þinghelgi.
að fara frá
einfaldlega sém tryggðaryfir-
lýsingu við Peron, en hann hefur
sætt töluverðri gagnrýni jafnt frá
hægri og vinstri siðustu mánuðina
fyrir efnahagsstefnu sina.
Peron forseti sagði i gær, að
hann mundi segja af sér, ef hann
fengi minnsta grun um, að per-
sónuleg fórn hans til að axla
ábyrgðina væri gagnslaus. — Þvi
svöruðu landssamtök verkalýðs-
félaganna, sem telja 3 milljónir
félaga innan sinna vébanda, með
þvi að lýsa samstundis yfir alls-
herjarverkfalli það sem eftir var
dagsins i gær til að mótmæla
hugsanlegri afsögn leiðtoga sins.
spyrnu
Um gjörvallt V-Þýzkaland er
leitað hóps hermdarverkamanna,
sem grunaðir eru um að hafa á
prjónum ráðagerðir um hervirki
við setningu heimsmeistara-
keppninnar i knattspyrnu i dag.
Hryðjuverkamenn þessir komu
fyrir sprengju, sem sprakk við
sendiráð Chile i gær og olli bana
tveggja, en særði fleiri.
Leit lögreglunnar hefur verið
áköfust i Saarlandi, Norður-Rin-
Westfahlen og Baden Wúrtem-
berg. Reuterfréttastofan telur sig
hafa áreiðanlegar heimildir fyrir
þvi, að þýzka lögreglan hafi pata
af sjálfsmorðssveit 6 Araba og 2
Japana, sem stefni til Frankfurt,
þar sem heimsmeistarakeppnin
hefst i dag.
2000 skólabörn mynda heims
meistaramerkið á leikvanginum I
Framkfurt á „generalprufu”. —
óttast menn nú, að pólitiskir
h r y ð j u v e r k a m e n n noti
heimsmeistarakeppnina til ill-
virkja.
Mogens Glistrup meö skattframtöl skjólstæðinga sinna.
Pólitísk hryðjuverk
á heimsmeistara-
keppni í knatt-
Ballettinn olli
vonbrigðum
Almenn vonbrigði urðu I
Lundúnum með sýningu
Bolshoiballettsins á Svana-
vatninu, og sögðu sumir gagn-
rýnenda, að þessum heims-
fræga rússneska ballettflokki
hefði mikið hnignað, siöan
hann kom fram i Lundúnum
1956.
„Sýningin var kannski ekki
nógu légleg til að efna til alls-
herjarmótmæla vegna
hennar, en hún var einber
vonbrigði,” skrifaði gagn-
rýndandi Guardian.
Þar sneiddi hann að mót-
mælunum, er efnt hefur verið
til i kringum komu ballett-
flokksins til Lundúna, vegna
meðferðarinnar á Gyðingum i
Sovétrikjunum. — Þrátt fyrir
þau veittu leikhúsgestir
flokknum góðar móttökur, og
þökkuðu fyrir sýninguna með
10 minútna samfelldu lófa-
klappi.
Mótmælin, sem höfð voru i
frammi við komu ballett-
flokksins, voru m.a. viðhöfð til
stuðnings rússneska ballett-
dansaranum Valery Panov,
sem nú hefur loks fengið leyfi
fyrir sig og konu sina til að
flytja frá Sovétrikjunum, en
hann er Gyðingaættar.
Panov kom til Moskvu i gær
frá Leningrad til að sækja
vegabréfsáritun i hollenzka
sendiráðið, sem hefur milli-
göngu um flutning Gyðinga
frá Sovét til Israels. — Hann
sagði við sendiráðsmenn,
þegar hann kom að sækja
áritunina: „Þið eruð vitni að
hamingjurikasta andartaki
lifs mins.”
Mirage-þota.
Selja Grikkjum
Mirage-þotur
Frakkar hafa látið á sér
skilja, að þeir séu reiðubúnir
til að selja Grikkjum um 40
orrustusprengjuþotur af
gerðinni Mirage F-l. — Yrði
það stærsta vopnasala
Frakka, siðan Valery Giscard
d’Estaing varð forseti.
Reyndar er ekki vænzt rót-
tækra breytinga á stefnu
Frakklandsstjórnar i vopna-
sölum, en þó hefur nýi for-
setinn sagt, að hann muni ekki
leyfa sölu vopna til landa, sem
ekki virði sjálfsákvörðunar-
rétt þjóðarinnar.
1 Paris telja menn, að
Grikkir hafi falazt eftir flug-
vélakaupum við Frakka til
þess að vera ekki alveg upp á
Bandarikjamenn komnir með
flugvélar. — 1 bigerð er siðan
að fá franska tæknifræðinga
til að aðstoða Grikki við að
byggja upp flugvélaiðnað i
Grikklandi.
Jarðskjátfti
í Venezuela
Snarpur jarðskjólfti varð i
austurhluta Venzuela siðdegis
i gær. Þrir létust og nokkrir
særðust auk þess sern bygg-
ingar skemmdust.
Kippurinn mældist 5.5 stig á
Richters-kvarða og varð kl.
15.25 að islenzkum tima, upp-
tök hans eru talin vera 830
kilómetra austur af höfuð-
borginni Caracas.
Eftir að jarðskjálftinn hafði
gengið yfir, var skólum lokað i
borgum i nánd við upptök
hans. Sjúkrahús voru tæmd og
fólk hafðist við á götum úti.
1 hópi þeirra, sem létust var
kona, er fékk taugaáfall og
andaðist úr hjartaslagi. Hinir
tveir urðu undir húsveggjum,
sem hrundu yfir þá.