Vísir - 13.06.1974, Side 20

Vísir - 13.06.1974, Side 20
Fimmtudagur 13. júnl 1974 Kaupendur róða ekki við innborgunina: smíðaðir bílar liggi" óseldir Skortur ó varahlutum Þegar 25% innborgunarskyldan var sett á, var von á um 200 vöru- bifreiðum og um 25 langferðabil- um til landsins. Vegna afgreiðslu- tafa, meðal annars vegna far- mannaverkfallsins, hafði bif- reiðunum seinkað. Töfin orsak- aði, að þær liafa hækkað mikið i verði vegna gengisbreytinga og hækkunar innflutningsgjalds. Nú má gera ráð fyrir, að marg- ir kaupendur hætti við eða fresti kaupum, þar sem þeir eru yfir- leitt ekki færir um að leggja fram 25% innborgunina og meiri lána- fyrirgreiðsla fæst yfirleitt ekki, samkvæmt upplýsingum frá Bil- greinasambandinu! Innborgunin er 300-500 þúsund krónur af stór- um vörubifreiðum. Flestar þess- ar bifreiðar eru sérsmiðaðar fyrir islenzkar aðstæður og þvi mjög erfitt að selja þær annars staðar en hér á landi. Hætta er á, að þær muni að miklum hluta liggja óseldar hér heima eða erlendis fram á næsta vor. Innborgunarskyldan kemur einnig hart niður á þeim, sem verzla með varahluti i vélar og bifreiðar. Það mun hafa þau áhrif að skortur verður á ýmsum nauð- synlegum varahlutum, segir Bil- greinasambandið, sem þýðir, að sérpanta verður i mun rikara mæli en áður ýmsa hluti, sem verða þvi dýrari. Mikilvæg at- vinnutæki kunna að stöðvast vegna tafa af þessu tagi. —HH Neðansjávarhitinn við Kolbeinsey: SÝNIN SÖGÐU LITLA SÖGU Sýnin, sem tekin voru við Kol- beinsey, hafa nú verið rannsökuð. Kom i ljós aö gassýnin, sem tekin voru við yfirborðið höföu litla sögu að segja. Gasið hefur mettazt mikið af uppleystum lofttegundum sjávar- ins, svo sem súrefni og köfnunar- efni á 90 metra leið sinni upp á yfirborðið. Veldur það þvi, að ekki er hægt að lesa neinar nyt- samlegar upplýsingar úr sýnun- um. Gott sýni getur hins vegar gefið til kynna hvort viðkomandi jarð- hitasvæði er háhitasvæði eða lág- hitasvæði. Það var tvennt, sem benti leiiT- angursmönnum á að hér væri um jarðhitasvæði að ræða. Bæði var að kisilmagn i sjónum var helmingi meira en annars staðar og hitt að megn brennisteinsfýla var af honum., Botnsýnin sem tekin voru á' sama stað voru einkum fornt brunagrjót og aska. Er þaö berg af svipuðu tagi og búast má við að finna á gömlum eldfjallahrygg eins og þeim, sem gengur suður og norður af Kolbeinsey. — JB. Þröstur og nœturgali Syngja dúetta við undirleik meistaranna rabbað við hin frœgu jazz-hjón, DankwortJf og Laine við komutp til Reykjavíkur „Blðið þið augnablik, ég skal athuga hvort konan min er ekki sofnuð standandi, þar sem hún er niður komin”, sagði John Dankworth, en hann og Cleo Laine voru nýkomin á Loftlciða- hótelið, þegar Visismcnn bar aö. Og við fengum viðtalið við þessi hjón, sem ætla að skemmta ásamt fleirum með jasstónleikum i Háskólabiói i kvöld á vegum Listahátiðar i Reykjavik. „Við fórum á fætur kl. 5.30 i morgun og ætlum beint i hátt- inn. Auövitað ættum við að fara á hljómleikana hjá André Previn, en það væri vist i frá- sögur færandi, ef við stein- sofnuðum undir músikinni,” segir John Dankworth og brosir við. „Það eina sem kemst að hjá mér núna er rúmið,” segir Cleo Laine. Það er nú samt engin þreytumerki að sjá á henni. Bæði höfðu þau komið fram fyrr um daginn við minningar- athöfn Duke Ellingtons, sem haldin var i kirkju Saint Marti- nes in the Field i London. Var athöfninni bæði útvarpað og sjónvarpað. Um það, hvort þau ættu sér eitthvert uppáhaldslag eða tón- verk voru þau bæði sammála að úr svo mörgu væri að velja að ekki væri nokkur leið að gera upp á milli. „Hvað við gerum þegar við eigum fri. Ja, Cleo er alveg snillingur i að gera hreint ekki neitt, en ég finn mér eitthvað til að dútla við.” Við erum að fara beint til Möltu i 10 daga fri. Þar eigum við sumarhús. Siðan er förinni heitið til Bandarikjanna, þar sem við tökum þátt i tón- listarhátiðum, sem haldnar verða i öllum stærstu borgum Bandarikianna. Annars erum við pýbúin að halda okkar eigin tónlistarhátið. Við eigum gamalt hús úti i sveit, sem við höfum lagað til. T.d. er hesthúsið orðið að hljómlistar- sal sem tekur 200 manns. Þar spila svo vinir okkar, eins og t.d. André Previn og Vladimir Ashkenazy þegar þeir eru i heimsókn. Það er ekki laust við að það sé dálitið fyndið, þegar verið er að spila eitthvert fallegt tónverk. Leikið er ósköp blitt, en útifyrir heyrist mö mö mö. Það er samkór beljanna nágranna okk- ar, sem komnar eru i heimsókn. Þvi er ekki að neita að það er skemmtilegra þegar þrösturinn og næturgalinn tekur undir með dúett”. Nú ætlar ljósmyndarinn að fara að smella af, og Cleo Laine segir manni sinum að greiða sér pinulitið. „Svona er ég, geri allt sem konan min segir mér”, segir John Dankworth og stendur upp. „Nei, annars ég er alveg nógu sætur svona”. „Þarna sjáið þið, hann lofar bara að vera hlýðinn, svona eru efndirnar”. — EVI. — Þessi sjón á götum Reykja- vikur er orðin svo algcng, að enginn kippir sér lengur upp við hana. En fjöidi þessara „smærri” árekstra, sem ekki er sagt frá i fjölmiðlunum er orðinn svo mikili, að daglega skemmast bílar fyrir hundruð þúsunda. Þessi árekstur á myndinni getur kostað milli eitt og tvö bundruð þúsund krónur, þegar allt er komiö. Og þegar 20 til 30 slfkir verða á dag, fara fjármunirnir fljótt forgörðum. —ÓH Friðrik vonlítill um A-flokk „Held að Svíar nói öðru sœti" — segir hann í viðtali við Vísi „Ég held, að Sviarnir nái öðru sætinu. Vestur-Þjóðverjar mega heita öruggir meö það fyrsta,” sagði Friörik ólafsson i viötali við Vísi I gær, áður en Is- lenzka skáksveitin gekk tii leiks gegn Trinidad. „Við urðum fyrir mestu von- brigðunum með tapið gegn Suð- ur-Afriku,” sagði Friðrit. „Við vanmátum þá liklega og vorum kannski ekki alveg komnir i gang. Þótt við höfum unniö Svia, segir það litið, þvi að þeir ættu, ef allt er „normalt” að vinna mikinn sigur á S-Afriku- mönnum.” „Keppnin er liklega milli Svia,okkar og Portúgala,” taldi Friðrik, þótt aðrir gætu blandað sér i leikinn. „Auðvitað getur allt mögulegt gerzt á svona móti,” sagði hann og benti á ýmis önnur óvænt úr- slit, þar sem aðrar sveitir, sem taldar voru sterkari, töpuðu fyr- ir þeim „veikari” eins og ís- lendingar fyrir Suður-Afriku- mönnum. Islenzka sveitin þyrfti að vinna stóran sigur á þeim, sem hún á eftir að mæta, eigi hún að uppfylla þær vonir, að hún kom- izt i A-flokk i úrslitunum. Tvær efstu sveitirnar i hverjum riðli fara i A-flokk. Möguleikar Is- lendinga voru taldir góðir, þar sem riðill þeirra er tiltölulega „léttur”. En i gærkvöldi vann tsland nauman sigur á smárikinu Trinidad, 21/2:11/2 vinningar. Með þvi fýkur enn mikið af von- inni. Það var rangt, sem kom fram hér i blaðinu og annars staðar, að Island hefði keppt við Hong Kong. Sú keppni er eftir, en mis- skilningur á erlendu frétta- skeyti olli villunni. Island var lesið fyrir írland. —HH

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.