Vísir - 15.06.1974, Side 20

Vísir - 15.06.1974, Side 20
VÍSIR Laugardagur 15. júni 1974 Þessi mynd af Erlu Norftfjörð — til vinstri á myndinni — birtist I einu viðlesnasta biafti heims, Newsweek, á dögunum. Þarna er hún aðsýna nýju hausttizkuna frá Randarikjunum. íslenzk tísku- sýningardama í Newsweek Ung Islenzk stúlka, Erla Norft- fjörð, hefur á undanförnum mánuðum aukið mjög hróður sinn sem tizkusýningardama I New York og myndir af henni birtast i fjölda bandariskra blaða. t nýjasta hefti af Newsweek er mynd af henni ásamt annarri stúlku, þar sem þær sýna nýju hausttizkuna frá Geoffrey Beene, sem er einn þekktasti tizku- frömuður Bandarikjanna, en fyrir hann starfar Erla mjög mikið. Erla, sem er tvitug — hún verður 21 árs i dag — er dóttir hjónanna Grétars og Jóhönnu Norðfjörð. Hún hefur verið starf- andi tízkusýningardama i New York sl. fjögur ár, og er hún að verða með þeim þekktari á þvi sviði i stórborginni. Hún vann við tizkusýningar hér heima áður en hún flutti utan með foreldrum sinum. Þau eru nú komin heim, en Erla varð eftir, enda ólikt skemmtilegra og meira spennandi að vinna við þessi störf i New York en i fá- menninu hér. Hún kemur þó heim i öllum frium, sem eru ekki mörg i svona störfum, er hún t.d. væntanleg hingað i lok þessa mánaðar. —klp— „Hef fœkkað starfsfólki og dregið úr rekstrinum — en mjög margt í „skýrslunni" hreinasta vitleysa," segir forstjóri Álafoss — „Á engan þótt i þessu," segir Asbjörn Sigurjónsson, fyrrv. eigandi fyrirtœkisins „Ég viðurkenni, að sumt af þvi, sem nefnt er i skýrslunni, á við rök að styðjast. Ég hef t.d. fækkað starfsfólki talsvert og dregið úr rekstri sem ég taldi ekki hagnað af. Sumar töiur, eins og t.d. framleiðslutölurnar, eru tiltölulega réttar. Og ég tek fyllilega undir þaft, sem sagt er um húsnæfti verksmiftjunnar, það er óhentugt og ófullnægj- andi. En flestallt annað i skýrslunni kemur eins og þruma úr heið- skiru lofti, og margt er hrein- asta vitleysa”. Þetta sagði Pétur Eiriksson, forstjóri Álafoss, i viðtali við Visi i gær um „Alafossskýrsl- una”, sem fölsuð var. „Ég hef fulla trú á Álafossi, og aðeins þess vegna hefði ég ekki farið að semja skýrslu sem væri dauðadómur. Þessi skýrsla er eitthvert furðulegasta plagg sem ég hef séð”. Pétur sagðist ekki sjá neinn annan tilgang með útgáfu skýrslunnar en einhver væri að reyna að skaða fyrirtækið. Óánægðastur sagðist Pétur vera vegna umsagnarinnar um léleg gæði vörunnar sem fram- leidd væri, og áhugaleysi starfs- fólks, þvi væri þveröfugt farið. „Sá sem stendur að baki þess- ari skýrslu hefur meira að segja lagt það á sig að senda flestum viðskiptaaðilum okkar úti á landi skýrsluna. Siminn hefur verið rauðglóandi i dag, prjóna- og saumastofur úti á landi að mótmæla, enda vegið hart að þeim i þessari fölsuðu skýrslu”, hélt Pétur áfram. „Ég var meira að segja niðri i banka i dag og mætti þá banka- stjóra, sem þakkaði mér fyrir skýrsluna sem ég hefði sent honum!” Við spurðum Pétur, hvort töl- urnar um skuldir Álafoss — 500 milljónir — hefðu við rök að styðjast. „Ég get sagt það, að eignir fyrirtækisins eru meiri en skuldirnar. En skuld er einhver hættulegasta tala sem maður notar. Það er hægt að segjast eiga ákveðna upphæð og að skulda þá sömu upphæð og segja satt i bæði skiptin. En skuldirnar greinast i föst lán, rekstrarlán, við lánum og okkur er lánað. En þessi tala hefur ekki við rök að styðjast”, svar- aði Pétur. „Virðist þessi falsskýrsla hafa skaðað fyrirtækið?” „Eftir að leiðréttingarnar komu fram i föstudagsblöðun- um, finnst mér afstaða fólks hafa snúizt okkur i hag. Bezta dæmið er kannski það, að við seldum 800 fermetra af gólf- teppum i dag — gólfteppum sem sagði i skýrslunni, að gætu ekki keppt við erlenda framleiðslu”, sagði Pétur að lokum. „Nei, ég hef ekki veitt upplýs- ingar svo að hægt væri að skrifa skýrsluna, né skrifað hana sjálfur. Enda ekkert getað fyjgzt með fyrirtækinu, þar sem ég hef ekki starfað þar i þrjú ár,” sagði Ásbjörn Sigurjóns- son, fyrrverandi eigandi Álafoss i viðtali við Visi i gær. Asbjörn Sigurjónsson var fyrrum eigandi Álafoss, og hafa þvi verið uppi getgátur um, að hann hafi e.t.v. veitt upplýsing- ar um einhver þau atriði, sem nefnd voru i plagginu. En þeirri spurningu svaraði hann sem sagt neitandi. Sakadómsrannsókn vegna „Alafossskýrslunnar” hefst i Hafnarfirði á þriðjudag. Form- leg beiðni um rannsóknina barst sýslumanninum i Kjósarsýslu i gær. Dagblaðið Visir vill taka skýrt fram, að það harmar mjög að liafa látið blekkjast af hinu fals- aða plaggi og birt rangar upp- lýsingar um hag Álafoss. HH/ÓH Meiri jazz á Listahótíð „Nei, mér bregður ekkert við þetta veður, það hefur ekki komið sumar- veður i Finnlandi fyrr en í gær, og það er nú heidur óvenjulegt." Þetta sagði Lasse Mártensson, þegar við Visismenn hittum hann i Norræna húsinu i gær. Hann og 4 aðrir Finnar skemmta á vegum Listahátíðar I Reykjavik i Menntaskólanum viö Hamrahlið i kvöld. Þetta eru listamenn sem eru meðal beztu jazz hljómlistar- manna Finna. ,,Ég er núna að gera sjónvarps- þátt um tivóliið i Helsinki bæði er skemmtiefni og fræðsluefni. Einnig er ég að gera LP plötu með vinsælum finnskum söngv- um.” „Ætlið þið nú að fara að mynda okkur” varð nú einum úr hópnum að orði. „Maður er bara ekki nógu sætur, svona nýkominn úr flug- vélinni.” Þeir féllust samt á að stilla sér upp og voru sammála um að öll fegurð sæist ekki utan á fólki. Lasse Mártensson fer beint til Finnlands héðan, en kvartettinn fer til Danmerkur og skemmtir Kaupmannahafnarbúum með jazzi i tvo daga, áður en þeir halda heim. Lasse er á myndinni aftast til hægri. —EVI/Ljósm. Bragi Loðnumjölið: Þriðjungur er enn óseldur 200 tonn brotajórns til líknarmóla Þeir eru nú búnir aft safna i bæinn og safna þar”. Þetta nafði kringum sig um 200 tonnum af Asgeir Lárusson, Lionsmaður á brotajárni, Lionsfélagarnir á Neskaupstað, að segja. Neskaupstaft, og þeir búast vift aft safna 30 I viftbót. „Við fáum þetta i gömlu sildar- verksmiðjunni, er hefur verift að endurnýja vélakost sinn. Hjá dráttarbrautinni og viða annars staðar hirðum við bilhræ og annað járnarusl. Við ætlum lika aft gera út leiðangur út fyrir t samráði við Heilbrigðiseftirlit rikisins hafa einstakir Lions- klúbbar viða um landið tekið að sér að safna saman brotajárni og koma þvi til skips. Seinna i þessum mánuði eru væntanleg til landsins työ skip á vegum spánskra aðila, sem hyggjast kaupa allt það járn, sem hér safnast saman. Munu þau sigla i kringum landið og lesta á nokkuð mörgum höfnum fyrir norðan, vestan og austan. „Ég held það séu allmargir klúbbar, sem taka þátt i þessu” sagði Ásgeir „Ég held t.d. að þeir séu búnir að safna um 150 tonnum á Eskifirði. Við fáum krónu fyrir kilóið og munum nota féð til liknarmála. Okkar stærsta verkefni hér á Neskaupstað er að kaupa tæki til sjúkrahússins. Þessi járnsöfnún er okkar stærsta verkefni til þesaa, en við félagarnir höfum áður landað úr togara og hreinsaft timbur I fjár- öflunarskyni”. —JB „Ástandið í þessari atvinnu- grein er vægast sagt mjög dökkt. Þaft er ekki nóg meft aft lofinumjölið sé á mjög lágu verfti, heldur er áhugi fyrir kaupum Htill.” Þetta sagfti for- stöðumafiur einnar lofinu- bræöslunnar I samtali vift blaft- ift. „Við erum nú að vona að sal- an gangi eitthvað betur; þegar verðið er komið svona langt nið- ur, en það er ómögulegt að spá um nokkurn hlut.” Verð á loðnumjöli er nú komið i 5 dali á eininguna. I fyrra fékkst mjög gott verð fyrir loðn- una eða 10 dalir á einingu. Vegna þessa háa verðs i fyrra fóru kaupendur viða um lönd að leita sér að öðru hráefni til skepnufóöurs. Það var tekið að nota soyamjöl, sem er öllu ódýr- ara, en loðnumjöl. „Sannleikurinn er sá, að þetta lága verð stjórnast af sam- keppninni við soyamjölið. I raun og veru er núverandi verð ekki svo ýkja slæmt. En þegar einu sinni er búið að venjast svo háu söluverði er erfitt að fá verðið á hráefninu niður aftur.” Verðlagsráð sjávarútvegsins reiknaði með, að mjölverðið yrði 9.50 dalir þegar verð á loðnu var ákveðið I ár. A seinna verðlagstimabilinu var reiknað með 8.25 dölum. „Ég held við getum aldrei reiknað með 10 dölum fyrir mjölið aftur. Það ve'rður bara að lækka loðnuverðið, þegar mjölverðið lækkar svona, þá fyrst verðum við samkeppnis- færir á ný.” Nú eru til óseld i landinu 20 þús. tonn af loðnumjöli, sem er 1/3 af ársframleiðslunni. —jb

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.