Vísir - 21.06.1974, Page 1
64. árg. — Föstudagur 21. júnl 1974—103. tbl.
VEIKUR í FRÍHÖFN, -
HRESS í FRAMSÓKN
- BAKSÍÐA
stúlka
Vísis á
Mallorka
— bls. 2
Með slíku
láni verða
Skagamenn
meistarar
— sjá iþróttir í opnu
STJORN-
VITRINGAR
Á GÖT-
ÓTTUM
SKÓM
Nú-síða á bls. 4
Bróðir fjár-
málaráðherra
hœttir
að frysta
— baksíða
AP-skeyti í morgun:
Engin dagsetning í Haag
„50 mílurnar í rauninni varla á dagskrá
lengur ‘‘ segir Gunnar Thoroddsen
Um leið og blaðið okkar
með sólarlausu spánni
á forsiðunni tók að
rúlla gegnum prentvél-
arnar i gær, brauzt sól-
in fram og hefur varla
horfið siðan. Sólskin er
um mikinn hluta lands-
ins, og er við höfðum
samband við Akureyri i
morgun, sögðu þeir, að
veðrið þar væri dásam-
legt. Forsiðumyndin
okkar i dag er einmitt
tekin i sundlauginni á
Akureyri og sýnir okk-
ur, hvernig ungling-
arnir þar fagna góða
veðrinu. I dag er
lengsti dagur ársins.
Sólin sunnanlands reis
klukkan tæplega 3 i nótt
og sezt rúmlega 12 i
kvöld. Það er varla að
við þorum að hafa
meira eftir veðurstof-
unni. En þó er okkur
tjáð, að ef við biðjum
vel sé möguleiki, að við
fáum að njóta sólarinn-
ar fram yfir helgi. —
JB/ljósm. Ragnar Sig-
urðsson.
Alþjóðadómstóllinn
hefur ekki sett neina
dagsetningu fyrir úr-
skurði i máli Breta og
Vestur-Þjóðverja gegn
íslendingum út af 50
milna landhelginni, seg-
ir i skeyti frá fréttastof-
unni Associated Press til
Visis i morgun.
Fréttastofan kannaði þetta hjá
dómstólnum.
„ÞaB málsefni, sem Bretar
lögðu fyrir Alþjóðadómstólinn, 50
milurnar, er i rauninni varla á
dagskrá lengur i alþjóðarétti”,
sagði Gunnar Thoroddsen i morg-
un, þegar Visir bað hann að segja
álit sitt á þessari frétt.
,,Nú snýst allt um 200 milur og
reglur i sambandi við þær”, sagði
Gunnar.
„Breytingarnar á sviði hafrétt-
ar eru svo miklar og þróunin svo
ótrúlega ör, að það hlýtur að vera
afar erfitt verk fyrir dómstólinn
að kveða upp dóm i slikum mál-
um um þessar mundir”.
„Mér þykir þvi óliklegt, að úr-
skurður komi á næstunni”, sagði
Gunnar Thoroddsen.
— HH
Bandaríkin á
móti 200 mílum
— erlendar fréttir
á bls. 5
Listchátið að Ijúka:
Neituðu
að yf irgefa
miðasöluna
Svo niikill spenningur var I
fólki að fá miða á tónleikana i
kvöid 1 Laugardaishöilinni á
vegum listahátiðar, þar sem
óperusöngkonan Renata Te-
baidi syngur, að fólk neitaði að
yfirgefa miðasöluna. Nokkrir
voru svo staðfastir, að þeir
fóru ekki fyrr en miðasöiunni
var lokað. Það varð nú einum
þeirra til happs, þvl að rétt
fyrir lokun var hringt og af-
þakkaðir nokkrir miðar. Það
má segja að það hafi sannazt
að þolinmæðin og þrautseigj-
an hafi borgað sig eins og svo
oft áður.
ósóttar pantanir verða seld-
ar I dag kl. 2 og fá vist áreið-
anlega færri miða á þessa eft-
irsóttu tónleika en vildu.
— EVI —