Vísir - 21.06.1974, Side 4
4
Vísir. Föstudagur 21. júni 1974
Þióðhótíðarplattar
þjóðhótíðarnefndar og einnig
REYKJAVÍKURPLATTI teiknaður af
Halldóri Péturssyni. framleiddur hjó
Bing og Gröndahl.
Sendum i póstkröfu
FRÍMERKJAMIÐSTÖÐIN
Skólavörðustíg 21a Simi 21170 Reykjavik
l *
LAUST EMBÆTTI,
r
er forseti Islands veitir
Tvö prófessorsembætti, annað i barna-
sjúkdómafræði en hitt i geislalæknisfræði,
við læknadeild Háskóla íslands eru laus til
umsóknar.
Umsóknarfrestur er til 20. júlí n.k.
Laun samkv. launakerfi starfsmanna
rikisins.
Umsækjendur um prófessorsembætti
þessi skulu láta fylgja umsókn sinni ræki-
lega skýrslu um visindastörf þau, er þeir
hafa unnið, ritsmiðar og rannsóknir, svo
og námsferil sinn og störf.
Menntamálaráðuneytið,
18. júni 1974.
Hér með eru auglýstir
til umsóknar 10 styrkir, sem veittir eru þeim, sem i vor
Ijúka stúdentsprófi eða prófi frá raungreinadeild Tækni-
skóla tslands og hyggjast hefja nám i háskóla eða tækni-
skóla á komandi hausti.
Sá, sem hlýtur sllkan styrk, heldur honum I alit að 5 ár,
enda ieggi hann árlega fram greinargerð um námsárang-
ur, sem lánasjóðurinn tekur gilda. Þeir einir koma til
greina, sem hlutu ágætiseinkunn eða háa fyrstu einkunn.
Styrkir verða veittir til náms bæði I raunvisindum og hug-
visindum.
Umsóknir, ásamt afriti af prófskirteini, eiga að hafa bor-
ist skrifstofu lánasjóðs Islenskra námsmanna, Hverfis-
götu 21, fyrir 3. júll n.k.
Skrifstofan afhendir umsóknareyðublöð og veitir allar
nánari upplýsingar.
Reykjavik 19. júni 1974
Lánasjóður isl. námsmanna
Starf bæjarstjóra í
er laust til umsóknar, og er umsóknar-
frestur til 20. júli n.k. Starfið veitist frá
n.k. áramótum, og skulu umsóknir send-
ar forseta bæjarstjórnar, Ármanni Þórð-
arsyni, Ægisgötu 1, ólafsfirði, og veitir
hann nánari upplýsingar. Simi 62120.
Bæjarstjórn ólafsfjarðar
í BOTN-
LAUSUM
SKÓM!
Það vita allir, hvað það er orðið
dýrt að lifa í dag, en ætli það sé
orðið svo dýrt, að stjórnmálamenn
i Bandarikjunum verði að ganga
um í gömlum skóm með götugum
sólum?
Það er a.m.k. að sjá, ef maður skoðar þessar
þrjár myndir af þekktum bandariskum stjórn-
málamönnum. Þar má fyrst finna með eitt
myndarlegt gat á hægri skónum Edward
Kennedy öldungardeildarþingmann, og ekki er
annað að sjá en skórinn meiði hann þar að
auki.... sjálfsagt nagli ibotninum???
Þá má sjá sjálfan Henry Kissinger, mættan á
eina af sinum mörgu friðarráðstefnum I
Austurlöndum með tvö glæsileg göt á sólanum...
Kissinger
Kennedy
Dunlop
hann hefur sjálfsagt valið þessa skó með
hliðsjón af hitanum I Egyptalandi, en það getur
verið gott að láta lofta um tærnar, þegar maður
þarf að sitja lengi á leiðinlegum fundi og þrasa
við Araba.... Varla er nýja konan hans svo dýr i
rekstri, að hann hafi ekki efni á þvi að fá sér nýja
skó????
En stórkostlegustu götin af þessum öllum eru
samt götin hans John T. Dunlop sem er yfir-
maður „Cost of Living Council”... en það er ein-
hvers konar sparnaðarnefnd, sem er að ergja
Bandarikjamenn þessa dagana.... og það bezta
við myndina er, að hún er tekin, þegar hann var
að tilkynna nýja reglugerð um að stemma stigu
við verðhækkunum — og voru þar meðtaldir
skór.
Nýi fró Wolfsburg heitir
,Volkswagen
Golf'
t sumar er væntanleg á
markaðinn ný tegund af Volks-
wagen frá verksmiðjunum I
Wolfsburg I Vestur-Þýzkalandi.
Það er smábill, sem hlotið
hefur nafnið Volkswagen Golf.
Þessi bill er 10 sm breiðari, en
venjulegur Volkswagen, en þó
er lengd hans aðeins 3,60
metrar. „Golf gerðin” kemur á
markaðinn ýmist 3ja eða 5 dyra,
og er væntanleg i haust, eins og
fyrr segir. Margar nýjungar eru
i þessum bil, sem er sagður
sparneytinn og mjög þægilegur.
Sérfræðingar i Vestur-Þýzka-
landi telja, að verð bilsins þar
verði um 8000 m örk.... en ekki er
gott að segja, hvað það verður,
þegar „Golf-billinn” er kominn
á götu hér.