Vísir - 21.06.1974, Page 7
Vísir. Föstudagur 21. júni 1974
cTYLenningarmál
7
tslenski dansflokkurinn: Höfuðskepnurnar, ballett eftir Alan Carter við tóniist eftir Askel Másson
ELDSKÍRN
Þjóðleikhúsið:
BALLETTSÝNING
tslenski dansflokkurinn, stjórn-
andi Alan Carter,
ásamt
Sveinbjörgu Alexanders og Wolf-
gang Kegler.
Rétt tvö ár éru siðan
Dame Margot Fonteyn
dansaði i Þjóðleikhús-
inu. Hún var kynnt fyrir
nokkrum meðlimum
Fél isl listdansarai. Þau
báðu hana um hjálp að
finna mann er komið
gæti á legg dansflokki
skipuðum nemendum úr
dansskóla Þjóðleikhúss-
ins. Hún hafði samband
við Alan Carter sem hún
kynntist þegar árið 11932
er þau bæði nutu per-
sónulegrar tilsagnar
Seraphin Astafievu
prinsessu i klassiskum
ballett. Seinna urðu þau
bæði félagar i Konung-
lega breska ballettinum.
Það var svo í marz 1973 að Alan
Carter og kona hans, Júlia Claire,
komu til íslands til að ganga úr
skugga um hvort I raun og veru
mætti koma saman dansflokki i
sliku fámenni sem hér er. Alan
Carter segir i leikskrá að þegar til
kastanna kom við könnun skól-
ans hafi komið i ljós að fremur
myndi standa á fé en mannvali.
Með afdráttarlausum stuðningi
Bandalags isl. listamanna, góð-
um orðum menntamálaráðuneyt-
is, Sveins Einarssonar þjóð-
leikhússtjóra auk Félags is-
lenskra listdansara var samning-
ur endanlega undirritaður 3. april
sl., og þar með rættist gamli
draumurinn um islenska atvinnu-
dansara.
Það má segja að sýningin i
Þjóðleikhúsinu 19. júni sl. hafi
verið eldskirn flokksins sem sliks,
og verð ég að segja að flokkurinn
stóðst hana framar minum von-
um þrátt fyrir að nú gerir maður
meiri kröfur til dansaranna eftir
að þeir urðu atvinnudansarar.
Fyrst á efnisskránni var
frumsýndur ballettinn Höfuð-
skepnurnar eftir Alan Carter,
sem einnig var höfundur leik-
mynda og búningateiknari, tón-
list og hugmynd Askels Máss. 1
fornöld héldu menn að heimurinn
væri samsettur af fjórum „frum-
efnum” („elementum ”) eða
„höfuðskepnum” eins og það var
kallað á islensku: lofti, jörð, vatni
og eldi. Tónlistin var góð og sér-
lega falleg við „vatnið”, leik-
myndir og ljós voru vel unnin
verk. Ballettinn skemmtilega
saminn, framúrstefnulegur og ýt-
ir undir imyndunaraflið hjá
manni. Túlkun íslenska dans-
flokksins var frábær með Júliu
Claire I fararbroddi. Hún var
yndisleg. Ég sé ekki ástæðu til að
nafngreina fleiri i flokknum, enda
koma þær yfirleitt fram sem heild
og allar dansa sóló. Þeim hefur
öllum farið fram, misjafnlega
mikið. Ballettinn fékk verðskuld-
að klapp áhorfenda, sem seint
ætlaði að linna.
„Þá var komið að Sveinbjörgu
Alexanders og Wolfgang Kegler
er dönsuðu sem gestir. Þau hafa
bæði starfað hjá Kölnar-ballettin-
um. Hún er nú aðaldansmær
flokksins „Tanz Forum”, auk
þess er hún dansskrifari (Choreo-
logist) flokksins. Hann er einn af
aðaldönsurum „Tanz Forum”.
Þau dönsuðu „Dagur einn” eftir
Gray Veredon, tónlist eftir
Brahms. Það var munur að fá að
sjá Sveinbjörgu á gamla sviðinu
sinu en á fyrstu listahátið, er hún
dansaði I Háskólabiói. Nú fannst
mér hún vera komin „heim” til
að dansa. Hún hefur gifurlega
tækni og er auðsjáanlega sviðs-
vön og örugg. Hann virtist þægi-
legur og öruggur mótdansari.
Þriðja atriði á efnisskránni var
Tilbrigði fyrir 9 dansara eftir
Alan Carter, tónlist eftir
Brahms, leikin á pianó af
Krystinu Cortez. Þessi ballett var
frumsýndur I vor i Háskólabiói á
10 ára afmælissýningu Dans-
kennarasambands íslands. Og
það var eiris með hann og Svein-
björgu að dansinn náði betur til
manns i Þjóðleikhúsinu. Þar
dönsuðu allir dansarar flokksins
sóló með tengingum fleiri dans-
ara á milli. Helga Eldon, Kristin
Björnsdóttir, Asdis Magnúsdóttir
og Auður Bjarnadóttir stóðu sig
mjög vel i sinum sólóum.
Slðast á efnisskránni var svo
Pas de deux eftir Gray Veredon,
tónlist eftir Berlioz: Romeo og
Rómeó og Júlla: Sveinbjörg Alexanders og Wolfgang Kegler.
Júlia sem Gray Veredon samdi
sérstaklega fyrir Listahátið. Tón-
listin var flutt af hljómplötu og
var sungin, en ekki var getið i
leikskrá um nafn söngkonunnar.
Þetta er i fyrsta skipti sem ég sé
ballett við söng, en það fór hreint
ekki illa saman. Ballettinn er i
klassiskum stil, fallegur, hugljúf-
ur og ljóðrænn. Tækni þeirra
Sveinbjargar og Wolfgang Kegl-
ers kom nú enn betur i ljós,
lyftingarnai' og samdansinn
frábær. Hafi listahátiðarnefnd
þökk fyrir að stuðla að hingað-
komu Sveinbjargar Alexanders.
Þetta ballettkvöld á Listahátið
staðfesti þá trú mina, að islenskir
listamenn standi erlendum ekki
að baki, hvort sem þeir starfa
erlendis eða hér heima.
eftir
Lilju Hallgrimsdóttur
Höfuðskepnurnar: örn Guðmundsson og Julia Claire
Kennarastöður
Sauðárkróki
Nokkrar kennarastöður við barnaskólann
og gagnfræðaskólann á Sauðárkróki eru
lausar til umsóknar. Kennslugreinar m.a.
islenska, enska, handavinna pilta, söngur,
leikfimi pilta.
Allar nánari upplýsingar veita skólastjór-
ar.
Fræðsluráð.
Skrifstofustarf
Óskum að ráða stúlku til skrifstofu-
starfa. Verslunarskóla- eða hliðstæð
menntun æskileg. Umsóknir með upp-
lýsingum um menntun og fyrri störf send-
ist Vegamálaskrifstofunni, Borgartúni 1,
Reykjavik, fyrir 30. þ.m.
Vegagerð rikisins.