Vísir - 21.06.1974, Page 8
Vlsir. Föstudagur 21. júnl 1974
v íaii . r uaiuuagui jum
Umsjón: Hallur Símonarson
'f
kk
WM
Aldrei fleiri
bókanir á HM
Það hafa verið sett met i
heimsmeistarakeppninni i
knattspy rnu — met hvað bókanir
og brottrekstur ieikmanna við-
kemur, og svo að öðru leyti, að
enn hefur ekki verið dæmd vita-
spyrna i keppninni. Þó hafa
sextán leikir verið háðir i keppn-
inni hingað til.
Dómarar hafa visaö þremur leikmönnum
af leikvelli — einum frá Chile, einum frá
Uruguay og einum frá Zaire. í Mexikó 1970
var engum leikmanni visaö af leikvelli. Þá
hefur 31 leikmaöur fengiö aö sjá gula spjaldiö
hjá dómurunum. Hafa veriö bókaöir og er
slikt algjört met eftir ekki nema 16 leiki á
HM. Dómarar voru ákveönir fyrir keppnina
að taka strangt á brotum — og hafa ekki hikað
viö að bóka leikmenn. Þá vekur þaö athygli,
að vítaspyrna hefur enn ekki verið dæmd.
Þar hafa dómarar sýnt linkind — vissulega
hefur veriö ástæða til að dæma viti, en þar
hefur dómara skort kjark.
Neeskens til
Barcelonol
Hinn ungi hollenzki framvöröur Johan
•Jeeskens undirritaði I gær samning. til
iriggja ára viö spánska liöið Barcelona — en
tar leikur einmitt félagi hans úr holienzka
andsliöinu og dýrasti leikmaöur heims, Jo-
tan Cruyff.
Barcelona borgaöi 350 þúsund sterlings-
lund fyrir Neeskens — en I sambandi viö þá
ipphæö hefur félag hans, Ajax I Amsterdam,
’ertkröfu upp á 250 þúsund pund vegna þess,
iö leikmaöurinn á enn eftir nokkur ár af
amningi sinum hjá Ajax. Þegar Barcelona
teypti Johan Cruyff borgaöi félagiö tæplega
nilljarö sterlingspunda — eöa um 200 millj-
inir Islenzkra króna.
Aginn allt of
mikill____!!
öryggisráðstafanir I sambandi viö heims-
meistarakeppnina eru farnar aö taka á taug-
arnarhjá keppendum. —Viö missum vitiö ef
sliku heldur áfram, sagöi fyrirliöi vestur-
þýzka liösins, Franz Beckenbauer, I gær og
félagi hans Gunther Netzer var honum alveg
sammála.
Franz bætti viö. Sá, sem ætlar sér aö
„giröa” 22 fulloröna menn af I sex vikur án
nokkurs fris veit ekki hvaö hann er aö gera.
Þaö eina, sem maöur sér utan leikvallanna,
eru lögreglumenn meö sjálfvirk vopn —her-
þyrlur, sem stööugt sveima yfir, I leit aö
spreng jukösturum.
Já, þetta tekur á taugarnar — og þaö tekur
ekki nokkru tali, aö viö skulum ekkert fá aö
sjá eiginkonur okkar, varla aö viö fáum aö
ræöa viö þær I slma!
Leikmenn á HM búa sig undir lokaátökin I riölunum — hafa fengiö frl I tvo daga frá leikjum. En á morgun hefst allt á ný — fjórir leikir meöal
annars leika Austur- og Vestur-Þýzkaland. Myndin aö ofan er frá leik V-Þjóöverja. Þaö er Cullmann, sem stekkur hæst og skallar I mark
Astrallu — annaö mark þýzka liösins I leiknum.
Enn hafa efstu liðin í
2. deild ekki tapað leik
— FH og Þróttur gerðu jafntefli í Kaplakrika í gœrkvöldi án þess mark vœri skorað
Hvorki Þrótti né FH
tókst að ná afgerandi for-
ustu í 2. deildarkeppninni í
knattspyrnu t gærkveldi,
en þá mættust þessi lið,
sem enn hafa ekki tapað
leik f deildinni, á heima-
velli FH í Kaplakrika.
Margt fólk kom til aö horfa á
leikinn, þótt inn i Reykjavlk væri
leikur á milli efstu liðanna I 1.
deild, og fékk þaö ágæta skemmt-
un þarna I „krikanum”, þvl leik-
urinn var fjörlega leikinn.
FH-ingar voru mun betri i fyrri
háifleik og áttu þá tækifæri til aö
skora a.m.k. tvö til þrjú mörk, en
góö markvarzla Jóns Þorbjörns-
sonar svo og klaufaskapur fram-
linumanna FH kom I veg fyrir
þaö.
Einn þeirra stóö eitt sinn svo aö
segja inn i markinu — eöa varla
meir en 2 til 3 metra frá þvl — en
hitti boltann illa og hann skoppaöi
framhjá stönginni...réttu megin
fyrir Þróttara séö.
1 slðari hálfleik byrjuöu FH-
ingarnir af sama krafti, en er á
leikinn leiö, fóru Þróttararnir aö
láta sjást til sln og voru hvaö eftir
annað i góöu færi. Jóhann Hreiö-
2. deild
Staöan I 2. deild eftir leikinn I
gærkveldi:
FH-Þróttur 0:0
FH
Þróttur
Breiðablik
Haukar
Völsungur
Selfoss
Ármann
ísafjöröur
13:2
9:5
13:2
7:6
9:10
6:10
6:15
1:14
Markhæstu menn:
Guöm. Þóröars. Breiöabl. 5,
Ólafur Danivalss, FH 5
Leifur Ilelgason, FH 4
Sumarliöi Guöbjartss., Self. 4
Jóhann Hreiöarsson, Þrótti 4
Næstu leikir:
i kvöld kl. 20.00 leika á
Ármannsvelli, Armann-Breiöa-
blik. Á morgun kl. 15.00 leika I
Hafnarfirði Haukar-Selfoss og á
Húsavik Völsungur-Breiöablik.
arsson stóö t.d. einn fyrir opnu
marki — Ómar markvörður á
feröalagi og ekki nokkur maöur
náiægur — en þá hitti þessi
markaskorari Þróttar ekki tuör-
una..??
Flest þessi tækifæri Þróttar
komu eftir slæm varnarmistök
FH-inga, en vörn þeirra var oft
tætingsleg I slöari hálfleiknum.
Þaö fór ekki á milli mála, aö þeir
léku betri knattspyrnu og kunnu
meira fyrir sér á þvl sviöi en
Þróttararnir, en þaö er ekki alit-
af nóg.
Þróttararnir leika fast og
stundum alls ekki illa...þ.e.a.s.
þegar einhver gefur sér tima tii
aö hugsa áöur en hann sparkar,
en þaö var oft heldur litið um þaö
i þessum leik. Þaö var einna helzt
gllmumaöurinn Gunnar Randver
Ingvarsson, sem eitthvaö geröi af
þvi aö ráöi. En þeir eiga tvlmæla-
laust einhvern bezta markvörö-
inn i 2. deild, og jafnvel þótt þeir I
1. deildinni séu meötaldir, og hef-
ur þaö ekki svo lltiö aö segja —
eins og bezt kom fram I þessum
mikilvæga leik. — klp —
Með slíku láni verða
Skagamenn meistarar
- Voru yfirspilaðir af Víking í 1. deildinni á Laugardalsvelli í gœrkvöldi, en hlutu
samt bœði stigin í leiknum, og hafa nú fjögurra stiga forustu i deildinni
Skagamenn voru lukk-
unnar pamfíiar á Laugar-
dalsvellinum í gærkvöldi.
Þeir voru yfirspilaðar af
miklu betra liði, Víkingi,
en svo fimm mín. fyrir
leikslok skoraði Eyleifur
Hafsteinsson fyrir Akra-
nes — í öðru af tveimur
umtalsverðum upphlaup-
um liðsins í ieiknum. Það
mark nægði til sigurs. Vik-
ingsvörnin hafði hætt sér
of framarlega í sóknar-
þunganum — langsending
fram kom varnarmönnun-
um í opna skjöldu. Eyleif-
ur komst frír upp að víta-
teig—lyfti knettinum ró-
lega og yfirvegað yfir
Diðrik ólafsson, og knött-
urinn skoppaði hægt og ró-
lega í markið. Diðrik ætl-
aði að hlaupa á eftir hon-
um — en féll kylliflatur i
svaðið við syðra markið og
knötturinn sniglaðist inn.
Já, þetta var mikill heppnissig-
ur — það verður sennilega að fara
16 ár aftur i timann til að finna
hliðstæðu hér. Þegar KR vann
Bury, sem frægt varð.
Það var eins og hulinn verndar-
vættur væri við mark Skaga-
manna. Vikingum tókst ekki aö
skora, þrátt fyrir auðveldustu
tækifæri og þvivegis tóku stangir
Skagamarksins ómakiö af ágæt-
um markverði liðsins, Davið
Kristjánssyni. Það er kannski
skýring á lánleysi Vikinga — þó
ekki einhlit — aö beztu tækifæri
sin fékk liðið einmitt i svaðinu viö
syöra markiö, þar sem allt gat
skeö — en aö ööru leyti hefur
Laugardalsvöllurinn furðulega
náö sér á skömmum tima. Var
bara ágætur i bllðviðrinu i gær-
kvöldi.
Það er mikið undrunarefni —
eins slaklega og Akurnesingar
hafa leikiö á Laugardalsvellinum
siöustu tvær vikurnar, gegn
Fram og Vikingi — að liðið skuli
vera meö fjögurra stiga forustu i
1. deildinni. En lán liösins hefur
verið mikiö, þegar mótherjarnir
hafa vaöið I tækifærum — þó
sjaldan hafi þau komið eins á
færibandi og hjá Vikingum i gær.
Lániö er fallvallt — þó svo allt
viröist nú benda til þess, aö Akur-
nesingar verði Islandsmeistarar,
Liöiö hlýtur að veröa fyrir áföll-
um eins og þaö hefur leikiö siö-
ustu leikina. Raunverulega eitt af
slökustu liðum 1. deildarinnar.
Vörnin er sú lélegasta i 1. deild
— aðeins einn leikmaöur, sem
hægt er að kalla varnarmann,
Þröstur Stefánsson. Daviö mark-
vörður er heppinn og góður — en
framlinumennirnir, sem geta
verið leiknir og skemmtilegir,
sáust litið i gær. Tvivegis komst
Eyleifur i færi eftir langsending-
ar fram — spyrnti framhjá i fyrra
skiptið, en skoraöi i það síðara.
Það var raunverulega hið eina,
sem Diðrik, markvörður Vikings,
þiirfti að glima við i gær. Hann
hefur sjaldan átt rólegri dag — og
það er alltaf hættulegt, þegar á
reynir. Aðall Skagaliðsins er leik-
reynsla leikmanna — og leik-
reynslunni fylgir ávallt heppni —
leikmenn flana ekki að neinu I
stundaræsing.
Þrátt fyrir tapið hafa Vikingar
ýmislegt til að ylja sér við. Liðið
hefurekkii annan tima leikið bet-
ur, þó mörkin létu á sér standa —
samleikur oft ágætur, nokkuð,
sem maður vissi að var til hjá lið-
inu. Liðið er mjög jafnt — hvergi
veikur hlekkur, þó svo bakverð-
irnir, Eirikur og Magnús, séu
traustustu leikmenn liðsins — og
ungi leikmaðurinn óskar Tómas-
son á eftir að skemmta islenzkum
knattspyrnuáhugamönnum. Frá-
bært efni, aðeins 17 ára, en lék sér
að Benedikt bakverði eins og sá,
sem valdið hefur. Já, það er mik-
ið i þessu Vikingsliði — sjaldan
hafa Akurnesingar veriö eins
yfirspilaðir i leik hér siöan þeir
urðu stórveldi I islenzkri knatt-
spyrnu 1951.
Snúum okkur aöeins að leikn-
um. Það byrjaði á 3. min. Mið-
^herji Vikings, Kári Kaaber, stóð
fyrir opnu marki — en spyrnti
1. deild
Staðan i 1. deiid eftir ieikinn I
gærkveldi:
Vikingur-Akranes 0:1
Akranes
KR
Víkingur
Keflavlk
ÍBV
Valur
Fram
Akureyri
2 1
1 3
11:3 10
5:4 6
6:5
6:5
4:4
7:8
6:8
4:12
Markhæstu menn:
Matthlas Hallgrimsson, Akran., 4
Kári Kaaber, Vlking 3
Teitur Þórðarson, Akran. 3
Steinar Jóhannsson, Keflavlk 3
Jóhann Torfason, KR 3
Næstu leikir:
A morgun laugardag-Akureyri
kl. 14.00 ÍBA-ÍBV og i Keflavlk kl.
14.00 ÍBK-Valur....Mánudag kl.
20,0 0 LaugardalsvöIIur
KR-Fram.
Bréf til íþróttasíðunnar:
Að mega eða mega ekki
— Nokkur orð til knattspyrnudómara og forustumanna þeirra
Tilefni þess að ég sting niður
penna er það herfilega misræmi I
dómum knattspyrnudómara, sem
við þurfum endalaust að horfa
upp á hér.
Það má ætið deila um störf
knattspyrnudómara I leikjum.
Yfirleitt eru þeir óvinsælustu
mennirnir á vellinum — og alveg
sérstaklega hjá áhangendíim
þess liðs, sem tapar.
I mörgum tilvikum geta dóm-
arar sjálfum sér um kennt. Það
er ekki nóg að halda ráöstefnur og
fræðslufundi, gera ályktanir og
samþykktir til samræmingar,
þegar svo heim er komið fari hver
út I sitt skot til að hugsa málið og
dæmi síöan eftir eigin höfði, þeg-
ar út á völl er komið.
Dómaranámskeið eru haldin
nokkuð reglulega til að reyna aö
fjölga dómurum fyrir yngri flokk-
ana. Dómaraefnin fara á viku-
eða hálfsmánaðar námskeiö hjá
okkar hæfustu dómurum. Siðan
taka þeir munnlegt próf...og allir
standast prófið.
Þeir fá siðan send I pósti öll
gögn og staðfestingar á þvi, að
þeir geti farið að dæma leiki i
yngri flokkunum. Þessi námskeið
sækja þvi miður of oft menn, sem
aldrei hafa nálægt knattspyrnu
komið. Hlýtur þvi að vera erfitt
fyrir þá að setja sig inn i knatt-
spyrnuleik, þegar þeir vita litið
annað en að knötturinn er hnött-
óttur.
Þvi finnst mér vera brýn þörf á
þvi, að dómaraefnin gangist und-
ir verkleg próf og dæmi a.m.k.
tvo leiki, þar sem „alvörudóm-
ari” eða þeir, sem álita sig topp-
dómara, meti verk þeirra.
Alveg hiklaust á að fella þaö
dómaraefni, sem ekki stenzt próf-.
ið — eins og gert er i öllum öðrum
prófdm, sem menn taka. Afturför
virðist vera i þessum málum, að
þvi leyti til, að hér áður fyrr
þurfti dómaraefni að dæma próf-
leiki og var þá dómnefnd viöstödd
til að dæma um hæfni hans.
Ég hef verið þátttakandi og á-
hugamaður i knattspyrnu i 25 ár
og hef aldrei vitað til þess, að
dómaraefni hafi fallið á knatt-
spyrnudómaraprófi. En oft hefur
mér fundist vera brýn þörf á þvi.
En nóg um þetta. Aðalatriðið,
sem fyrst og fremst knúði mig til
að skrifa þessar linur, eru hin
svokölluðu LÖNGU INNKÖST,
sem hafa fariö eins og eldur i
sinu um knattspyrnuheiminn,
enda skapa þau oft mikla hættu
við mörkin.
Hjá knattspyrnudómurum okk-
ar er ósamræmið þar i algleym-
ingi. Ég fullyrði, að 50 til 60% af
þeim löngu innköstum, sem nú
eru tekin, séu ólögleg...a.m.k.
voru þau ólögleg hér áöur fyrr, ef
maður kastaði knettinum meö
annarri hendi og lét hina hvila á
knettinum til málamynda. Og
ekki veit ég til þess að þessum
lögum hafi verið breytt.
Ég sæki mikið leiki hjá yngri
flokkunum, og þá yfirleitt leiki
hjá KR, enda fæddur KR-ingur.
Með fyrstu leikjunum i sumar lék
KR við Ármann I 5. flokki inn á
Armannsvelli.
Þar dæmdi einn af unglinga-
dómurunum. Snemma i leiknum
er innkast fyrir Armann. Innkast-
ið er framkvæmt, en þá verður
einum KR-ingnum á að hoppa upp
fyrir framan þann, sem kastar
inn. Dómarinn flautar og gengur
að drengnum og spyr með miklu
þjósti, hvað hann heiti.
Hann svarar þvi, en dómarinn
segir honum þá, aö ef hann geri
þetta aftur, verði hann rekinn af
leikvelli. Drengurinn tók þetta
mjög nærri sér og þorði ekki að
beita sér neitt eftir þetta af ótta
við dómarann. Já, þær eru við-
kvæmar barnssálirnar.
Eftir þetta hélt ég, aö eitthvaö
nýtt hefði komið fram á ráðstefn-
unni hjá dómurunum, sem haldin
var til að samræma gjöröir
þeirra. Brýndi ég þvi fyrir
drengjunum, að þeir skyldu vara
sig á þessu atriði, sem þeir og
gerðu.
En nokkrum leikjum siðar, er
KR lék við Val I þessum sama
flokki, gleymdi einn drengjanna
sér og hoppaði upp fyrir framan
Valsmanninn, sem kastaði inn á.
Þennan leik dæmdi einn af „al-
vörudómurunum” og dæmdi
hann umsvifalaust frispark og
ekkert meir. Það fannst mér hár-
réttur dómur, enda er þetta
háskaleikur.
Fyrir nokkrum dögum léku svo
KR og Valur á Laugardalsvellin-
um i 1. deild. Fyrir aftan mig i
stúkunni sátu drengir úr 5. flokki
KR. Þegar KR átti innkast nálægt
marki Vals, heyrði ég mikil öskur
i drengjunum, vegna þess að
dómarinn gerði enga athuga-
semd, þótt Valsmaður hoppaði
upp fyrir framan KR-inginn. Þá
heyrði ég þessi sigildu orð — fri-
■ spark, áminningu, útaf næst. En
, dómarinn lét þetta viðgangast á-
fram — og var þvi ekki að undra,
þótt þeir og aðrir drengir þarna i
stúkunni hrópuðu.. „Otaf með
dómarann” ...Þeir taka nefnilega
vel eftir hlutunum, litlu drengirn-
ir, sem eru að hefja sinn knatt-
spyrnuferil.
Að lokum þetta: Dómarar góð-
ir, ykkur finnst þetta ef til vill
vera smámunasemi og óþarfa aö-
finnsla, en ég er á öðru máli, eins
og þegar hefur komið hér
fram...og ég er ekki einn um það.
Þvi skora ég á ykkur aö setjast
niður og ihuga þetta augljósa atr-
iði, svo og önnur, sem þið vitið
um. Þá er ég viss um, að óvin-
sældir ykkar á leikvellinum
minnka stórlega. Meðvinsemd
Þorbjörn Friðriksson
Sérœfing og
fundur hjá
UL í golfi
Unglingalandsliðið i golfi hefur
að undanförnu æft með karla-
landsliðinu á völlunum hér
sunnanlands.
Á mánudaginn kl. 18,00 verður
séræfing og fundur hjá unglinga-
liðinu á Nesvellinum. Verður þar
m.a. rætt um þátttökuna I
Evrópumeistaramótinu, sem bú-
ið er að senda þátttökutilkynn-
ingu I, en það verður háö I Finn-
landi I lok júli.
ÆAuni
H--I5
framhjá og slikt endurtók hann
þrisvar siðar I leiknum. Eftir aö
Óskar hafði leikið á þrjá menn,
átt gott skot á markið, sem Daviö
varði, fóru atburðirnir að ske
hraðar. Hvilik upplausn i vörn
Skagamanna. Jóhannes Bárðar-
son gaf fyrir á Kára frian, sem
náöi ekki til boltans i svaðinu, en
Óskar var þá alveg frir, en
„kiksaði” og allt opið. Þá átti
Gunnar örn skot i þverslá Skaga-
marksins — Jóhannes komst i
dauðafæri. Gat ýtt knettinum i
markið, en lagði allt afl i skotið og
Davið varði i horn. Knötturinn
var nær alltaf á vallarhelmingi
Skagamanna — upp við vitateig.
Og enn komu tækifærin — Óskar
spyrnti framhjá innan markteigs,
og Kári lék sama leik rétt á eftir.
Þá átti Gunnar örn hörkuskot á
mark eftir aukaspyrnu, sem
Davið varði vel, en misheppnað-
ist siöan i opnu færi. Loksins á 38.
min. urðu áhorfendur varir við
sóknarmenn Akraness. Lang-
sending fram og Eyleifur komst
frir að markinu, en spyrnti fram-
hjá.
Siðari hálfleikur var siðri og
um miðjan hálfleikinn slösuðust
tveir leikmenn, fyrst Bjarni
Gunnarsson, Viking og siðar
Teitur Þórðarson, Akranesi.
Báðir urðu að vikja af veili. Tæki-
færi voru færri og leikurinn I heild
daufari. Enn fengu þó Vikingar
færi — Kári hið fyrsta strax I
byrjun, siðan áttu Óskar og
Gunnar örn skot i stangir Skaga-
marksins. Akurnesingar voru
skárri I þessum hálfleik — en
beinlínis engin ógnun i sóknar-
leiknum fyrr en Eyleifur-skoraði
undir lokin.
Magnús Pétursson dæmdi vel
auðdæmdan leik. —hslm.
Konurnar
byrjaðar
Fyrsti leikurinn i tslandsmót-
inu I kvennaknattspyrnu var leik-
inn I gærkveldi á Ármannsvellin-
um. Þar áttust við konur úr
Breiðablik og Ármanni, en þær
slðastnefndu urðu islandsmeist-
arar I fyrra.
Leiknum lauk með sigri Kópa-
vogskvennanna, sem skoruðu 3
mörk gegn 1 marki tslandsmeist-
aranna.
t kvennaknattspyrnunni I ár
leika 11 lið — öll af Suðvesturlandi
— og leika þau I tveim riðlum.
Tveir leikir fara fram I kvöid.
Stjarnan leikur við Þrótt I Garða-
hreppi og Vlöir við Fram.
Leika fram
á rauða
morgun!
Á þriðjudaginn í
næstu viku fer fram
keppni milli golf-
klúbbanna á Hval-
eyrarvelli í Hafnar-
firði. Þetta er hin ár-
lega Aðmírálskeppni
og taka 10 manna
sveitir frá hverjum
klúbb þátt í henni.
Búast má við, að lið komi
frá GR, GK, GS, og NK, og
einnig verður með að vanda
golflið frá Keflavikurflug-
velli. Ekki er vitað, hvort
Akurnesingar, Akureyringar
og Vestmannaeyingar senda
sin lið suður til keppninnar,
sem hefst kl. 17.00.
I fyrrakvöld kepptu á
Grafarholtsvelli sveitir frá
Golfklúbbi Reykjavikur og
Golfklúbbi Suðurnesja og
lauk þeirri keppni með sigri
GR, sem lék á 861 höggi, en
GS-sveitin var á 885 höggum,
A laugardaginn verður
golfskálinn i Grafarholti
formlega tekinn i notkun, en
nú er endanlega lokið við
smiði hans og hann kominn i
það form, sem hann á aö
vera.
Athöfnin verður eftir há-
degi, en um kvöldið hefst á
vellinum Jónsmessukeppnin
eins og reyndar á öllum
öðrum golfvöllum á landinu.
A flestum stöðum hefst
keppnin seint um kvöldið og
verður þá leikið fram eftir
nóttu.
Keppnisfyrirkomulagið er
misjafnt hjá klúbbunum i
þessum mótum, sem yfir-
leitt allir klúbbfélagar taka
þátt i — hvort sem þeir
kunna mikið eða litið fyrir
sér I golfi — Það nýjasta
verður hjá GN á Seltjarnar-
nesi, eða svonefndur snæris-
leikur”, þar sem forgjöf
manna er reiknuð i metrum,
en ekki höggum.
Ungmennafélagar
UMFÍ efnir til hópferðar til Noregs, ef
næg þátttaka fæst. Ferðin verður um
miðjan júli, og er áætlað að dvelja i Noregi
8-10 daga, ýmist i tjöldum eða á hótelum.
Væntanlegir þátttakendur láti skrá sig
fyrir 29. júni i sima 14317.
MJÖG ÓDÝR FERÐ.
Ungmennafélag íslands