Vísir - 21.06.1974, Page 16
VÍSIR
s ? o
Föstudagur 21. júnl 1974
„Líkur á að
aðrir mögu-
leikar verði
reyndir"
— segir
varaformaður
Alþýðuflokksins um
stjórnarmyndun
„Þessir möguleikar hafa verið
reyndir nýlega, og sagan kennir
okkur, að þá eru yfirgnæfandi llk-
ur á, aö einhverjir aðrir mögu-
leikar veröi reyndir næst,” sagði
Benedikt Gröndal, varaformaður
Alþýðuflokksins I viðtali við VIsi I
gær.
Benedikt sagði i sjónvarpi, að
hann teldi ólíklegt, að næsta
stjórn yröi ný viðreisnarstjórn
eða aö núverandi vinstri stjórn
héldi áfram.
„Hér verða eftir kosningar 3,4
eða 5 þingflokkar, og kjósendur
skera úr um, hvernig næsta stjórn
verður.” Hann vildi ekki tilgreina
nánar, hvaða samsteypustjórn
hann teldi líklegasta af þeim, sem
mögulegar yrðu, til dæmis ef 5
flokkar fengju þingmenn kjörna.
— HH.
„Vonum
að Nixon
komi plast-
pokafram-
leiðslu
okkar á lag"
— enn er
óþœgilegur skortur
á plasti vegna
olíuþvingana Araba
„Við erum aö gera okkur vonir
um, að ferð Nixons austur leiði til
þess, að plastpokaframleiösla
okkar færist I eölilegt horf,” sagði
Oddur Sigurðsson hjá Plastos, en
Oddur var fyrstur manna hér á
landi til að hefja framleiöslu á
plastpokum.
„Eins og nú er ástatt getur
Reykjalundur, sem er eini aðil-
inn, sem selur plast á Islandi,
ekki afgreitt til okkar nema 50
prósent þess magns, sem við
þurfum á að halda,” sagði Oddur.
„Hinn hlutann þurfum við að
sækja sjálfir út fyrir landstein-
ana.”
„Ég fór til Bretlands á slðasta
vetri og fór þar frá einu fyrirtæk-
inu til annars i leit að plasti, en
aðeins eitt einasta fyrirtæki
reyndist aflögufært. Þó var það
með herkjum, að því tækist aö ná
saman þvi magni, sem við þurft-
um á aö halda,” sagði Oddur frá.
„Þeir aöilar, sem framleiöa
plastpoka hér á landi, hafa átt ó-
yndislega daga frá þvi ollukrepp-
an fór að hafa áhrif á plastfram-
leiösluna,” sagði Oddur. „Þó að
okkur hafi tekizt aö afgreiöa þær
pantanir, sem borizt hafa, er það
svo, að allar plastbirgöir okkar
eru á þrotum, þegar ný sending af
plasti berst okkur i hendur. Þaö
getur ekki talizt eðlilegt ástand.
Það má engin sending klikka, þá
erum viö stopp,” sagði hann að
lokum.
— ÞJM.
— Aðstoðarkosningastjóri Framsóknarflokksins hefur verið ó launaskró
hjó Frihöfninni fró óramótum, en hefur ekki ennþó mœtt þar til starfa
Veikur hjá Fríhöfn — í
fullu fjöri hjá Framsókn
„Jú, það er rétt.
Alvar óskarsson var
ráðinn til afgreiðslu-
starfa hér við Frihöfn-
ina á siðasta vetri og
hefur hann verið á
launaskrá hjá okkur
siðan. Það er lika rétt,
að hann hefur ekki
mætt ennþá til starfa.
Hann lagði i upphafi
fram iæknisvottorð og
er hann ennþá veikur,
að þvi er við bezt vit-
um”. Þannig svaraði
ólafur Thordersen,
framkvæmdastjóri
Frihafnarinnar á
Keflavikurflugvelli,
spurningum Visis i
gær.
Þegar svo Visir hringdi i sima
kosningastjóra Framsóknar-
flokksins I Reykjavik, varð fyrir
svörum umræddur Alvar ósk-
arsson. Kvaðst hann vera eins
konar aðstoöarkosningastjóri
og væri búinn að vera i þvi starfi
um nokkurt skeið.
„Jú, ég er starfsmaður hjá
Frihöfninni, en er I frii þaðan
núna”, svaraði hann fyrstu
spurningu blaðamanns Visis.
„Er það veikindafri?”
„Nei”.
„En þú hefur ekki verið við
störf i Frihöfninni siðan um ára-
mót?”
„Nei, ég var i veikindafrii og
vann þá á hvorugum staðnum,
en núna, þegar ég er orðinn
þetta mikið betri og telst vera
orðinn vinnufær, þá tek ég út
mitt sumarfri og hef störf hér á
kosningaskrifstofunni”, svaraði
Alvar.
Samkvæmt þeim upplýs-
ingum, sem Visir hefur aflað
sér, hefur Alvar verið við störf
hjá Framsóknarflokknum
undanfarna mánuði og mun
hafa unnið mikið fyrir bæjar- og
sveitarstjórnarkosningarnar.
Ekki vitum við, hvort störf
Alvars i þágu flokksins sé
launalaust hugsjónastarf, en
hitt er vitað, aö laun hans frá
Frfhöfninni eru á bilinu frá 40 til
60 þúsund krónur.
— ÞJM
SÁ STÓRI í ÞINGVALLAVATNI
Það var ekki laust við, að það
væri um mig fiðringur, þegar ég
varð vör við, að nú var ég ábyggi-
lega með þann stóra”, sagði
Eyþóra Valdimarsdóttir, er við
ræddum við hana i morgun.
Það var heldur engin furða, það
hefðu fleiri verið spenntir, sér-
lega af þvi að aðalveiðin i Þing-
vallavatni er litil murta.
Hún sagði okkur, aö hún og
systir hennar væru afar áhuga-
samar að veiða. Þær væru oft
með krakkana svona um miðjan
dag austur á Þingvöll i Vatnsvik-
ina.
Þegar sá stóri kom á land, var
hann auðvitað veginn og reyndist
vera 9 pund. Eyþóra var búin að
standa frá um 3.30 og var búin að
fá 5 fiska kl. 7, en þaö var þá, sem
hún kastaði út og sá stóri beit á.
„Ég var svo heppin að vera með
10 punda linu. En þegar ég var
komin með hann að landi eftir að
vera búin að þreyta hann i um
tuttugu min., þá var það heppni,
að ég náði honum, þvi að einmitt
þá slitnaði linan”.
Eyþóra er alltaf i klofháum
stigvélum, þegar hún er að veiöa.
Þar að auki hefur hun alltaf
regnkápu með sér. Hún er núna
búin aðeignast eina sem hún fékk
hjá öörum veiðimanni. A henni
hefur hún tröllatrú, þvi að hún
hefur aldrei veitt eins vel i Þing-
vallavatni eins og nú I ár.
Veiöimálastjóri var spurður,
hvort algengt væri að svona fisk-
ar veiddust i vatninu. Sagöi hann,
aö sér vitanlega hefði það ekki
gerzt i mörg ár.
— EVI —
Eyþóra Valdimarsdóttir er
heldur betur ánægð með 9 punda
urriðann, sem hún veiddi I
Þingvallavatni. Hún er alltaf I
klofháum stfgvélum við veiðar
og hefur tröllatrú á regnkápum.
Ferðamál
eiga
framtíð
— segir Björn
Vilmundarson
nýráðinn forstjóri
Ferðaskrifstofunnar
„Ég er bjartsýnn, endá þýðir
ekkert annað. Ég held, að þetta
séu tlmabundnir erfiðleikar hjá
Ferðaskrifstofunni”, sagði hinn
nýráðni forstjóri Feröaskrifstof-
unnar, Björn Vilmundarson, I
viðtali við Visi I gær.
Björn sagði, að islenzk ferða-
mál ættu mikla framtið fyrir sér,
og taldi, að þeir, sem með fjár-
málin fara, hljóti að sjá það og
styrkja þá Ferðaskrifstofuna eft-
ir þvi. Annars hefur Ferðaskrif-
stofan sina eigin tekjustofna. Arið
1971 var verulegur tekjuafgangur
og 1972 var lfka tekjuafgangur, þó
aö hann væri minni.. Hins vegar
var tap á rekstrinum 1973.
Björn sagðist hafa verið þátt-
takandi I rekstri Samvinnutrygg-
inga s.l. 26 ár. Þetta starf, sem
hann tæki nú við hjá Ferðaskrif-
stofunni, væri eins og hver annar
rekstur. I sambandi við einhverj-
ar breytingar taldi hann að ef
fólkið, sem t.d. vinnur á hótelun-
um, væri þátttakendur i rekstrin-
um, myndi það ýta undir, að það
legði meira á sig i von um meiri
hagnað.
Björn tekur við starfinu þann 1.
júli. Þeir, sem sóttu um starfið
auk hans, voru Bjarni Bjarnason,
Kjartan Lárusson, Lúðvik Hjálm-
týsson, Magnús Þorleifsson og
Haraldur Jóhannesson — EVI —
##
ASTANDIÐ EKKI GLÆSILEGT,
SEGIR BRÓÐIR HALLDÓRS E.
Frystihús ó Suðurnesjum loka vegna rekstrarörðugleika
#/
„Ég treysti mér ekki til að
halda frystingu áfram. Erfið-
leikar frystihúsanna eru geysi-
legir um þessar mundir og
framttðarútlitið er ekki bjart.
Við veröum bara að vona, að sú
rikisstjórn, sem tekur við eftir
kosningar, komi okkur til að-
stoðar”.
Þetta segir Þórarinn Sigurðs-
son, sem rekur fiskvinnsluna
Hafblik i Höfnum. Þórarinn hef-
ur nú hætt frystingu vegna
rekstrarörðugleika. Þórarinn
Sigurðsson er bróðir Halldórs E.
fjármálaráðherra.
Tvö frystihús á Suðurnesjum
hafa nú orðið að loka, en önnur
reyna að halda áfram rekstri
fram yfir kosningar i þeirri von,
að þá birti upp.
Rekstrarörðugleikar skuttog-
aranna eru ekki minni. Oliuverö
hækkar ásamt öðrum rekstrar-
kostnaði, bankar draga úr lán-
um og fiskverö lækkar. í mörg-
um tilfellum er talið, að skulda-
hali skuttogaranna lengist um
eina milljón i hverjum veiðitúr.
Ekki er vitað til, að neinum
skuttogara hafi verið lagt enn
sem komið er, en útgerðarmenn
eru svartsýnir á áframhaldandi
togaraútgerð undir þessum
kringumstæðum.
— JB