Vísir - 22.07.1974, Side 3
Vlsir. Mánudagur 22. júll 1974.
3
Hannes Gissurarson,
ritstjóri Vöku:
„Stódenta■
blaðið
misnotað"
VIsi hefur borizt athugasemd
frá Vöku, félagi lýöræðissinnaðra
stúdenta, vegna nýútkomins
Stúdentablaðs. t athugasemdinni
segir, að mjög sé hallaö réttu
máli i blaðinu og formaður
Stúdentaráðs og ritstjóri
Stúdentablaðsins fari með ósann-
indi um Vökumenn og sparnaðar-
tillögur þeirra. Vegna þessa sneri
Visir sér til ritstjóra Vöku,
Hannesar Gissurarsonar, og bað
hann að skýra málið.
„Við töldum ekki rétt að sitja
þegjandi undir þessum ósannind-
um og gripum þess vegna til þess
ráös að senda fjölmiðlum athuga-
semd. M.a. segir Arnlin óladótt-
ir, formaður Stúdentaráðs, að viö
hefðum ekki viljað skera niður
auglýsingatekjur vegna
Stúdentablaðsins jafnframt þvi
sem blaðið væri minnkað, en hið
sanna er, að við lögðum til 300
þús. kr. lækkun. Eins sagði hún,
að við gerðum ekki ráð fyrir nein-
um hækkunum i sparnaðartillög-
um okkar, en hið sanna er, að viö
gerðum ráð fyrirum 50% hækkun
frá siðasta ári á ráðstöfunarfé
Stúdentaráðs, og þannig mætti
lengi tina til. Það er einkennilegt,
að þessi oddviti Stúdentaráös
skuli ekki vera vandaðri að virð-
ingu sinni en það að segja ósatt á
opinberum vettvangi. — Hins
vegar eru „fréttaskrif” af þessu
tagi mjög algeng i Stúdentablað-
inu.”
— Er Stúdentablaðið ekki hlut-
laust i fréttaskrifum?
„Alls ekki. Ég flutti tillögu um
það i Stúdentaráði, að blaðiö gætti
hlutleysis i fréttaskrifum. Rót-
tæklingarnir felldu þessa tillögu
hins vegar.Þannig virðist beinlin-
is til þess ætlazt að blaðið sé hlut-
drægt. En Stúdentablaðið er kost-
að af sameiginlegum sjóöum
stúdenta, þannig að hér er um al-
varlega misnotkun að ræða. A
þessu ari er ætlunin aö verja
a.m.k. 1,4 milljónum króna i þetta
blað.”
— Eru stúdentar almennt
óánægðir með blaðið?
„Þaö held ég, að mér sé óhætt
að segja. Það hefur endurspeglaö
þá einkennilegu ástriðu
róttæklinganna i Stúdentaráði að
gefa i sifellu frá sér stóryrtar
yfirlýsingar um lands- og
utanrikismál i stað þess að sinna
beinum hagsmunamálum stú-
denta. Eins hefur mörgum gram-
izt hver meðferð ritstjóra er á
greinum, þar sem honum fellur
ekki inntakið. Þær prentar hann
með smærra letri, þrengir að
þeim i uppsetningu, breytir jafn-
vel texta og flennir út á sömu sið-
um einkahugleiðingar sinar um
greinarnar og höfunda þeirra. —
Ýmislegt annað hefur valdið þvi,
að samstarfið i Stúdentaráði er
ekki slikt sem skyldi. M.a. hafa
róttæklingarnir meinað okkur
Vökumönnum að sitja fundi
stjórnar Stúdentaráðs, en hún
annast allan daglegan rekstur
ráðsins, sem áheyrnarfulltrúar.
Enviðvonum þó, að þeir fáist til
samstarfs við okkur um þau mál,
sem eru sameiginleg hagsmuna-
mál allra stúdenta, og fylgja
verður fast og einarðlega eftir,
svo sem barnaheimilismál
stúdenta, friðindamál, innrétting 1
kjallara Gamla-Garðs til félags-
aðstöðu, atvinnumiðlum, að reisa
garða og hjónagarða, standa á
verði um lánakjör o.fl. baráttu-
mál Vöku,” sagði Hannes aö lok-
um.
Mikill árekstur á Barðaströnd
farþegar sluppu furðuvel
Mikill árekstur varð í
Kollafirði í Austur-
Barðastrandarsýslu um
helgina. Þurfti Slysa-
varnafélag Islands að
senda þyrlu Landhelgis-
gæzlunnar, TF-GNÁ á
vettvang til þess að f lytja
fólk til Reykjavíkur.
Áreksturinn átti sér
stað um klukkan eitt á
laugardag og varð hann
nánar tiltekið rétt við
svonefnda Eyri í Kolla-
firði.
Tveir fólksbilar voru á ferð,
og komu þeir nvor á móti öðr-
um. Areksturinn varð á blind-
hæð á veginum, og segja
kunnugir að þarna verði slys að
minnsta kosti einu sinni á ári.
Annar billinn var af Vest-
fjörðum en hinn að sunnan. Er
annar billinn talinn gjörsam-
lega ónýtur. hinn má gera upp.
Fimm farþegar voru i beim bil
sem éyðilagðist, en 3 i hinum.
Farþegarnir þrir sluppu
ómeiddir að mestu leyti, og
reyndist ekki þörf á að senda þá
suður til Reykjavikur. Hina
fimm var þó talið ráðlegt að
senda, og fór TF-GNA eftir
þeim. Voru farþegarnir teknir
til rannsóknar á Borgar-
spitalanum. Meiðsli þeirra
reyndust þó ekki alvarleg, og
fengu fjórir farþeganna að fara
aftur, en einn liggur á Borgar-
spitalanum. —EA
Akureyri:
Vel heppnuð hátíð
ánýju útivistar-
svœði í Kjarnaskógi
Þjóðhátiðin á Akureyri var i
alla staði vel heppnuð. Fór hún
fram meö hcfðbundnu sniði. Hún
var lialdin i Kjarna, sem er úti-
vistarsvæði, scm opnað var al-
menningi núna um helgina, en
það svæði hefur verið I umsjá
skógræktarfélags Akureyringa.
Þetta cr mjög fallegur staöur
rétt hjá flugvcllinum og var
þetta i fyrsta sinn sem margir litu
þennan staö augum, þótt hann sé
rétt við bæjardyrnar.
Þjóðhátiðin hófst á föstudaginn
með opnun iistsýninga. A laugar-
daginn var kvöldvaka I Kjarna -
skógi meö fjölbreyttum skemmti-
atriðum og dansað var i tþrótta-
skemmunni. Mikill mannfjöldi
tók þátt í hátiðarhöldunum, þar á
mcðal 100-200 Vestur-lslendingar.
Ekki sást vln á nokkrum manni.
Veörið var nokkuö gott, en heldur
Skátamótinu lokið:
HÚN HOLLY
FRÁ HAWAII
Skátalandsmótinu var slitið
um fjögurleytið i gærdag og var
það I alla staði vel heppnað. Eitt
kvöldið sýndu t.d. skátastúlk-
urnar frá Bandarikjunum
Hawai-dansa við mikinn fögnuð
áhorfenda. Eitt af merkustu
dagskráratriðum mótsius var ef
til vill það að koma á nýjum
gjaldmiöli, scm notaður var i
hir> ýmsu skemmtitæki. Hver
gestur fékk 4 kýrverð. Kostaði
það eitt kýrverð aö fara til spá-
konu, annað kýrverð aö kasta
bolta þrisvar I mynd af mót-
stjóranum. Ef menn vildu svo
vinna sér inn fleiri kýrverð tóku
þeir að sér að auglýsa
skemmtiatriöi i 1/2 minútu.
◄
Hún heitir Holly Johnson og er frá einu fylki Bandarikjanna, hinum
hlýju eyjum Hawai i miðju Kyrrahafinu.