Vísir - 22.07.1974, Blaðsíða 13

Vísir - 22.07.1974, Blaðsíða 13
Vlsir. Mánudagur 22. júli 1974. 13 Iðnir Framhald af n. sihu. Symonds, Englandi, varö annar á 15:20.6 min. Landi hans Parker FH sigraði á Húsavík! FH tróð tveim stigum i stiga- pokann sinn um helgina með þvi að sigra Völsunga fyrir norðan 3:1. Eru þeir nú með 3 stig i for- skot i deildinni — en það getur orðið að 1 stigi aftur i kvöld ef Þróttur sigrar Breiðablik i Kópa- vogi. Leikur FH og Völsunga var ekki neitt sérstakt, en harður á köflum. Helgi Ragnarsson skor- aði fyrst fyrir FH en Hermann Jónasson jafnaði skömmu siðar og var staðan þannig i hálfleik. 1 siðari hálfleiknum gerði Janus Guðlaugsson út um leikinn með þvi að skora tvö góð mörk með stuttu millibili og urðu loka- tölurnar þvi 3:1 FH i vií. Ef Þróttur tapar stigi — eða stigum — i kvöld fer hagur FH-inga að verða góður. Þeir eiga 4 leiki eftir i deildinni... gegn Haukum, Selfossi, ísafirði og Þrótti. — klp — að bœta metin! 3ji á 16:22.6 min. og Jón H. Sig- urðsson, HSK, fjórði á 16:24.0 min. I 200 m hlaupinu bætti Ingunn Einarsdóttir, IR, Islandsmet sitt i 25.8 sek. eða um sekúndubrot. Erna Guðmundsdóttir, A, varð önnur á 26.5 sek. 1 100 m grhl. hljóp Ingunn á 14.6 sek — þremur sekúndubrotum betra en íslands- metið. Keppni hennar við Láru Sveinsdóttur, A, var mikil, þar til Lára féll á næstsiðustu grind. Lára sigraði i hástökki á 1.55 m , Arndis Björnsdóttir i spjótkasti, 33.40 m. Guðrún Ingólfsdóttir I kúluvarpi 11.60 m og Svandís Sig- urðardóttir, KR, i 800 m hlaupi á 2:31.7 min. 1 800 m hlaupinu setti Jón Dið- riksson, UMSB, upp mikinn byrj unarhraða — hljóp á 53 sek. fyrri hringinn, en þessi skemmtilega tilraun hans tókst ekki. I lokin runnu þeir Agúst Asgeirsson, 1:57.2 min. og Gunnar Jóakims- son, 1:58.0 min. fram úr honum. Jón hljóp á 1:59.2 min. eða var nokkuð frá sinu bezta. Það hneykslaði marga, að strákarnir voru i sérsaumuðum buxum fyrir hlaup og á þeim var brezki fán- inn. Þegar að boðhlaupi kom sið- ar voru þeir látnir skipta um bux- ur. Þjóðrækniskennd okkar Is- lendinga virðist mikil — en eins og einn forustumaður sagði eftir hlaupið. „Þvi máttu strákarnir ekki reka...i brezka fánann”. Ja, þvi ekki, og buxurnar, sem þeir kepptu i, eru mun betri en þær leikfimis- og knattspyrnubuxur, sem frjálsiþróttamenn okkar keppa venjulega i. En nóg um það. I langstökki karla varð Stef- án Hallgrimsson meistari með 6.84 m. Vilmundur stökk 6.77 m en Friðrik Þór gerði öll stökk sin ógild. 1 hástökkinu sigraði Karl West, UMSK, þegar hann stökk tvo metra i annarri tilraun, en Elias Sveinsson stökk sömu hæð i 3ju tilraun. Hvorugum tókst að stökkva 2.03 metra. Mótið heldur áfram i kvöld og verða þá margar skemmtilegar greinar. — hsim. Hola í höggi A föstudagskvöldið voru fjórir kylfingar sem mikið leika saman golf, staddir á vcllinum I Grafarholti. Þessir félagar eru þeir Guð- mundur Vignir Jósepsson, gjaldheimtustjóri, Magnús Erlendss., fulltrúi hjá Björg- vin Schram, Helgi V. Jóns- son, borgarendurskoðandi, og Haraldur Magnússon við- skiptafræðingur. Þá skeði það að Magnús Erlendsson sló „drauma- högg” allra golfmanna — „holu I höggi”. Skeði þetta á 2. holu sem er 145 metrar og notaði Magnús járnkylfu nr. 3. Björgvin 72 holurnar ó pari! Björgvin Þorsteinsson náöi ein- hverjum bezta árangri i golfi hér á landi, er hann sigraði í Akur- eyrarmótinu, sem lauk um helg-. ina. Hann lék 72 holurnar á 292 höggum eða nákvæmlega á pari vallarins. Afrekið er enn betra þegar þess er gætt, að það er sett á lengsta og erfiðasta golfvelli landsins, „Stóra-Bola”. Björgvin setti vallarmet 3ja dag keppninnar, lék þá á 70 högg- um — 3 undir pari — og bætti vallarmet Gunnars Þórðarsonar frá deginum áður um eitt högg. Nánar verður sagt frá Meistaramótum klúbbanna i blaðinu á morgun. — klp — Þjóðbátíd á Þingoöllum 28. júlí 1974 Dagskrá 10.57 Biásið til hátíðar. ísland farsælda frón. Leikið á lúðra af efri barmi Almannagjár. 11.00 Hringt klukkum Þingvallakirkju. 11.02 Þingfundur settur að Lögbergi. Þingsályktunartillaga um landgræðslu og gróður- verndaráætlun til minningar um 1100 ára búsetu þjóðarinnar í landinu tekin til 2. umræðu og end- anlegrar afgreiðslu. Einn alþingismaður frá hverj- um flokki tekur til máls og talar í fimm mínútur. 12.00 Hlé. 13.20 Lúðrasveitir leika á Kastölum. Rís þú, unga íslands merki, eftir Sigfús Einarsson. Lýsti sól, eftir Jónas Helgason. Öxar við ána, eftir Helga Helgason. Ég vil elska mitt land, eftir Bjarna Þorsteinsson. Blessuð sértu,sveitin mín,eftir Bjarna Þorsteinsson. Stjórnendur lúðrasveita eru Páll Pampichler Páls- son, Sæbjörn Jónsson og Ólafur Kristjánsson. 13.30 Blásið í lúðra. 13.32 Þjóðhátíð. Matthías Johannessen, skáld, formaður Þjóðhátíð- arnefndar 1974, flytur inngangsorð. 13.40 Karlakórar syngja. Víst ertu, Jesú, kóngur klár. Söngstjóri Haukur Guðlaugsson. 13.43 Biskupinn yfir íslandi, herra Sigurbjörn Einarsson, flytur ávarpsorð. 13.53 Karlakórar syngja. Yfir voru ættarlandi. Söngstjóri Haukur Guðlaugs- son. 13.55 Þjóðarganga. Gengið undir fánum byggða frá Öxarárbrú um veg austan hátíðarsvæðis og inn á Efrivelli að norðan, og fylkt undir fánum við Fangbrekku. 13.55 Lúðrasveitir leika á Kastölum. Öxar við ána, mars eftir Árna Björnsson. Vormenn íslands, eftir ísólf Pálsson. íslands Hrafnistumenn, eftir Emil Thoroddsen. Gamlir félagar, eftir Árna Björnsson. Fanfare, eftir Karl O. Runólfsson. 14.10 Blásið í lúðra. 14.12 Forscti íslands, dr. Kristján Eldjárn, flytur hátíðar- ræðu. 14.35 Karlakórar syngja. Ó, guð vors lands. Söngstjóri Jón Ásgeirsson. Ætlast er til að allir viðstaddir taki undir með karlakórunum. 14.40 Hátíðarljóð, eftir Tómas Guðmundsson. Höfundur flytur ljóðið. 14.47 Sinfóníuhljómsveit íslands. Verðlaunaverkið Tilbreytni, eftir Herbert H. Ágústsson. Páll Pampichler Pálsson stjórnar hljómsveitinni. 15.05 Blásið í lúðra. 15.07 Ávörp gesta. Lúðrasveitir undir stjórn Páls Pampichlers Páls- sonar leika söng Álandseyja. Fulltrúi Álendþiga flytur ávarp. Lúðrasveitir leika þjóðsöng Bandaríkjanna. Fulltrúi Bandaríkjamanna flytur ávarp. Lúðrasveitir leika þjóðsöng Danmerkur. Fulltrúi Dana flytur ávarp. Lúðrasveitir leika þjóðsöng Finnlands. Fulltrúi Finna flytur ávarp. Lúðrasveitir leika þjóðsöng Færeyja. Fulltrúi Færeyinga flytur ávarp. Lúðrasveitir leika þjóðsöng írlands. Fulitrúi íra flytur ávarp. Lúðrasveitir leika þjóðsöng Kanada. Fulltrúi Kanadamanna flytur ávarp. Lúðrasveitir leika þjóðsöng Noregs. Fulltrúi Norðmanna flytur ávarp. Lúðrasveitir leika þjóðsöng Svíþjóðar. Fulltrúi Svía flytur ávarp. Skúli Jóhannsson, fulltrúi Vestur-íslendinga, flytur ávarp. Karlakórar syngja Þótt þú langförull legðir. Stjórnandi Jón Ásgeirsson. 16.00 Hlé. 16.01 Karlakórar syngja. Hver á sér fegra föðurland, eftir Eniil Thoroddsen. Stjórnandi Jón Ásgeirsson. Þú álfu vorrar yngsta land, eftir Sigfús Einarsson. Land míns föður, eftir Þórarin Guðmundsson. ísland ögrum skorið, eftir Sigvalda Kaldalóns. Stjórnandi Eiríkur Sigtryggsson. 16.15 Skólahljómsveit Kópavogs. Rímnadansar, eftir Jón Leifs. Stjórnandi Björn Guðjónsson. 16.20 Halldór Laxness, rithöfundur. Ávarp í minningu bókmenntanna. 16.30 Sinfóníuhljómsveit íslands. Verðlaunaverkið Ellefu hugleiðingar urn landnám, cftir Jónas Tómasson. Páll Pampichler Pálsson stjórnar hljómsveitinni. 16.45 Karlakórar syngja. Ár var alda, eftir Þórarin Jónsson. Stjórnandi Jón Ásgeirsson. Karlakórar syngja með Sinfóníuhljómsveit íslands. Landið vort fagra, eftir Árna Thorsteinsson. Þér landnemar, eftir Sigurð Þórðarson. Brennið þið, vitar, eftir Pál ísólfsson. Stjórnandi Páll Pampichler Pálsson. 16.55 Sinfóníuhljómsveit íslands og karlakórar. Minni íslands, eftir Jón Leifs. Páll Pampichler Pálsson stjórnar hljómsveitinni. 17.07 íþróttir. Glíma, sýning og jafnaðarglíma á vegum Glímu- sambands íslands. 17.19 Hlé. 17.30 íþróttir. Frjálsíþróttir: 100 metra hlaup kvenna og 1500 metra hlaup karla á vegum Frjálsíþróttasambands íslands. Þjóðdansar: Flokkur Vestur-íslendinga sýnir. Leikfimi: Flokkar á vegum Fimleikasambands íslands sýna. Félög og stjórnendur: Flokkur karla frá Glímu- félaginu Ármanni, stjórnandi Guðni Sigfússon. Flokkur frá fimleikafélaginu Gerplu, Kópavogi, stjórnendur Margrét Bjarnadóttir og Friðbjörn Ö. Steingrímsson. Flokkur stúlkna frá íþróttafélagi Reykjavíkur, stjórnandi Olga B. Magnúsdóttir, hljómlist Carl Billich, og flokkur stúlkna og pilta úr Húnavatnssýslum og Strandasýslu, stjórnandi Höskuldur Goði Karlsson. Flokkur stúlkna frá íþróttakennaraskóla íslands annast lokaatriði fyrir fánakveðju. Stjórnandi Mínerva Jónsdóttir. 19.20 Forsætisráðherra kveður hátíðargesti. Fánakveðja. Fánaberi Guðmundur Freyr Halldórs- son. 19.30 Þjóðhátíð lýkur. ísland farsælda frón. Leikið á lúðra af efri barmi 5 Almannagjár.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.