Vísir - 22.07.1974, Blaðsíða 12

Vísir - 22.07.1974, Blaðsíða 12
ÞaO var oft millimetrastrlð við bakkana I Laugardalslauginni i lands- keppninni við lsrael um helgina.Spenningurinn var stundum svo mik- ill. að öryggisverðirnir gleymdu sér augnablik og tóku augun af öllum grunsamlegum persónum — eins og Ijósmyndurum og öörum — og fylgdust með lokasprettinum. (Ljósmynd Bragi). Loftur með þrennu gegn ísfirðingum! Haukar unnu tsafjörð í 2. deildinni á laugardaginn með 4 PUMA ÍÞRÓTTATÖSKUR VERÐ FRÁ KR. 488-2685 PÓSTSENDUM Sportvo rurerslun IngoHfs O/tkicrkmonar Klap94.-»Ui( - — Í4U IT'»1 • - írfMkiv'ö mörkum gegn 2 i Hafnarfirði. Voru það sanngjörn úrslit, enda tækifærin — og mörkin — mun fleiri hjá Haukunum en Vestfirð- ingunum. Þeir voru samt fyrri til að skora og sló það Haukana út af laginu til að byrja með. Gunnar Pétursson skoraði það mark með þvi að skalla yfir markvörðinn. Loftur Eyjólfsson kom Haukun- um aftur á bragðið með góðu marki nokkru siðar og kom þeim siðan yfir 2:1 rétt á eftir. Hann lét ekki þar við sitja, þvi að fljótlega i siðari hálfleik þrum- aði hann boltanum i netið i þriðja sinn i leiknum... tiunda markið hans i deildinni i ár.... Steingrim- ur Hálfdánarson skoraði svo fjórða markið fyrir Hauka rétt á eftir. tsfirðingarnir voru samt ekki slegnir út með þessum 4 mörkum, heldur héldu áfram að taka rok- ur, sem komu Haukavörninni úr jafnvægi. Ein slik bar árangur rétt fyrir leikslok, er Guðmundur Mariasson skoraði með góðu skoti, og urðu þvi lokatölurnar ísraelsbúar sigruðu undir lögregluvernd! w r Israel sigraði Island með 43 stiga mun í sundinu Landskeppnin I sundi á milli is- lands og israels i Laugardals- lauginni um heigina fór fram við mjög óvenjulegar aðstæður, þeg- ar um iþróttakeppni er að ræða hér á iandi. Einkennisklæddir lögregluþjónar sátu i bilum og voru á vappi fyrir utan laugina og óeinkennisklæddir lögreglumenn — bæði íslenzkir og israelskir gengu um meðal áhorfenda og keppenda. Þessar varúðarráðstafanir voru gerðar vegna ótta viö hermdarverk Araba og eru við- hafðar alls staðar i heiminum, þar sem iþróttafólk frá Israel keppir. Ekki kom til neinna vand- ræða i Laugardalslauginni, sem betur fer, en þó varð uppi fótur og fit meðal israelsku keppendanna, þegar þeir komu í lögreglubílnum að lauginni annan keppnisdaginn. Þegar þeir ætluðu að fara inn, komu þrir Arabar, sem hér hafa starfað undanfarin ár, á móti þeim. iþróttafólkið fölnaði upp og ætlaði varla .að komast úr sporun- um, en israelski öryggisvörður- inn gekk meðfram hópnum og hafði nánar gætur á mönnunum, á meðan hópurinn þaut inn um dyrnar. Ekki hafði skrekkurinn sem þessir þrir litlu menn settu i hóp- inn, nein áhrif á sundgetu hans, þegar út i keppnina var komið, og allir voru búnir aö fullvissa sig um, að allt væri i stakasta lagi — sprengjuleit og fleira. Allir syntu eins og þeir ættu lifið að leysa og komu i flestum greinum á undan Islendingunum i mark. Úrslit keppninnar urðu þau, að ísrael sigraði með 43 stiga mun... 152 stig á móti 109... Eftir fyrri dag- inn var munurinn 23 stig. ... 77:54 Israel i vil. „Éger tiltölulega ánægður með úrslitin og fer vonbetri i átta landa keppnina i Osló á morgun”, sagði Guðmundur Gislason lands- liösþjálfari, er við töluðum við hann eftir keppnina i gær. „Þeir voru með mun sterkara lið en við héldum, en við komum ágætlega út úr mörgum greinun- um, og sums staðar mun betur en ég átti von á. Má þar t.d. nefna tvöfaldan sigur okkar i 400 metra skriðsundi... Friðrik Guðmunds- son, 4:28,7 og Sigurður Olafsson 4:30,0, og sigur Salome Þórisdótt- ur i 100 metra baksundi þar sem hún svnti á 1:18,5 min. Einnig var árangur Þórunnar Alfreðsdóttur i 100 metra flugsundi mjög góður, en þar synti hún á 1:12,1 min, sem er nýtt telpnamet. Þar varð hún i öðru sæti á eftir Raya Zoref, sem var á 1:12,0 min. Hún setti einnig telpnamet i 200 metra fjórsundi.” Margar greinar mótsins voru mjög jafnar og skemmtilegar og baráttan oft geysileg á siðustu .metrunum eins og oft vill verða I sundinu. Má þar m.a. nefna 100 metra flugsund kvenna, þar sem eitt sekúndubrot skildi á milli tveggja fyrstu, og 400 metra skriðsund karla, en þessar grein- ar voru báðar siðari daginn. Fyrri daginn voru einnig marg- ar skemmtilegar greinar eins og 100 metra bringusund karla, þar sem Steingrimur Daviðsson sigr- aði i 1.15.5 min, og 100 metra skriðsund karla, þar sem Sigurð- ur ólafsson varð annar eftir hörkukeppni við Dan Brenner, sem synti á 57,1 sek, en Sigurður var á 57,5 sek. 1 boðsundunum sigraði Israel yfirleitt með yfir- burðum nema i 4x100 metra skriðsundi kvenna — þar kom is- lenzka sveitin á undan I mark. — klp — HEMPEEs þakmálning þegar hann lítur niður á HEMPEEs þöldn og sér hve fallegum blæbrigðum mánáúrlitum hans Nú eru fyrirliggjandi 14 gullfallegir litir af HEMPEL’S þakmálningu. Um gæði HEMPEL’S þakmálningar þarf ekki að efast. HEMPEL’S er einn stærsti framleiðandi skipamálningar í heiminum. Seltan og umhleypingarriir hér eru því engin vandamál fyrir sérfræðinga HEMPEL’S MARINE PAINTS. Framleióandi á Islandi SHppfélagið íReykjavík hf Málningarverksmiðjan Dugguvogi— Símar 33433 og 33414

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.