Vísir - 11.09.1974, Side 7
Visir. Miðvikudagur 11. september 1974.
Hressum upp á kollinn!
7
Túpering
Það eru margir sem verða að túpera hár sitt
svo það beri sig vel og verði viöráðanlegra. Hins
vegar kunna ekki nærri þvi allir að gera það rétt.
Sumir standa og reyta hárið í allar áttir, án þess
að vita nokkuð, hvernig á að fara að þessu. Eins
og gefur að skilja fer það ekki beint vel með
hárið, hvað þá þegar úðað er yfir hárið hárlakki
á eftir. Þó að túpering sé aldrei góö fyrir hárið,
má gera hana þannig, að hún fari ekki illa með,
og það sjáum viðhér á myndunum. Notið bursta.
Fínt þegar blæs.
Mikið rok eða miklir vindar eru ekki góöir fyrir hárið. Þó er það mjög hollt að
leyfa þvf að leika frjálsu f rigningu og útilofti. En það má gera einum of mikið að þvf
góða i miklu roki. Hér á myndunum er sýnt á skemmtilegan hátt, hvernig hægt er að
binda slæður eða klúta uin hárið á misjafnan hátt:
Ef við erum
einhvers staðar
i sól, má binda
klútinn svona
undir sólhattin-
um: vafinn um
h á I s i n n o g
bundinn aftan
til.
IIMINI i
SÍOAIM |
Umsjón: Edda
Andrésdóttir
Það má sauma
litin klút I stil
við fatnað, sem
viðkomandi er
I, og binda hann
á þennan vana-
lega hátt.
Hvernig á að þvo hárið?
Sumum nægir að þvo hárið aðeins einu sinni i
viku. Aðrir þvo það annan hvern dag og sumir
jafnvel á hverjum degi, sem er kannski einum of
mikið af þvi góða. En þeir sem þvo hárið oft,
ættu aðeins að setja sjampó i það einu sinni, og
nota veikt sjampó. Veljið helzt sjampó með
lanoiin i. Tjörusjampó er ágætt fyrir þurrt hár.
Nokkrar þeyttar eggjarauöur eru hreint
fegrunarmeðal fyrir hárið. Þær gera það lika
mjög hreint.
Hér er langur
klútur bundinn i
hliðinni, eftir að
hafa verið vafið
um hárið.
Tveir endar
klútsins eru
teknir undir
hnakkann og
upp á höfuðið,
þar sem bundið
er.
Hér er klútur-
inn hnýttur á
hnakkanum.
Þa ð g e f u r
skemmtilegan
svip að bera
sólgleraugun
svona með.
Lagningarvökvi.
Að leggja hárið oft, og þá aðeins með vatni,
vill bera liiinn árangur. Og þó aö árangur
náist, þá vilja liöirnir sem koma stundum renna
fljótt úr hárinu. Þá er betra að rúlla háriö upp
með lagningarvökva, sem gerir það að verkum,
að lengur helzt i hárinu. A sumrin og þegar mikil
sól er, ber að forðast sterka lagningarvökva. Sá
sem hefur feitt eða venjulegt hár ætti að nota
pilsner, til dæmis, i stað lagningarvökva. Það
gefur góðan árangur.
Þannig komum við handklæðinu fyrir.
Þó að auövelt virðist að koma handklæðinu
fyrir á kollinum, eftir aö maður hefur t.d. þvegið
hárið, fer það stundum i handaskolum. Einhver
gæti þó kannski þurft á þvi að halda, og á þess-
um myndum sjáum við, hvernig hægt er að rúlla
handklæðinu upp á tvennan hátt.
Náttúrulega
C vítamín!
í öllum appelsínum er C-vitamín, þess vegna
er mikið af C-vitamín í Tropicana.
I Tropicana eru aðeins notaðar ferskar appelsínur
ræktaðar í Flórída.
í hverju glasi (200 gr.) af Tropicana eru 400
alþjóðaeiningar af A-vitamíni, 80 mg. af C-vitamíni
og ekki meira en 100 hitaeiningar.
sólargeislinn
frá Florida
O)
CQ
CT
CO
[ V" 4