Vísir - 05.10.1974, Page 8
8
Vísir. Laugardagur 5. október 1974.
Þetta eru the Three
Degrees, sem nú eru
hvað óðast að leggja
heiminn að fótum sér.
Three Degrees eru
engir nýgræðingar i
poppheiminum, þvi
þær höfðu verið starf-
andi 5 1/2 ár áður en
Philadelphia plötu-
fyrirtækinu tókst að
klófesta þær.
Abalmenn Philadelphia eru
þeir lagasmiðirnir og upptöku-
meistararnir Kenny Gamble og
Leon Huff, sem að mestu leyti
eru ábyrgir fyrir „The Sound of
Philadelphia”, hinu sérstæða
„soundi” sem er að finna á öll-
um plötum fyrirtækisins og varð
m.a. þekkt hér á landi vegna
samnefnds lags. Þeir Gamble
og Huff stjórnuðu upptöku og
skrifuðu frægustu lögin á fyrstu
plötu Three Degrees fyrir
Philadelphia plötufyrirtækið.
Má þar helzt nefna „Year of
Decision, Dirty Old Man og
When Will I See You Again”.
Það var lagið „Dirty Old Man”
sem fyrst tók á rás upp alla vin-
sældalista en þegar það gerðist
voru vinkonurnar að skemmta
dátunum okkar uppi á Velli.
Annars þýðir Three Degrees
„Þrjár gráður”, en við höfum
það eftir áreiðanlegum heimild-
um að hitastigið sé miklu nær
suðumarki þar sem Three
Degrees eru að skemmta.
MEÐ
MÍNUM
EYRUM
Hann er
doktor
í tónlist
Aftur hleyp ég i skarðið
fyrir örn. í dag langar mig
að kynna ofurlitið fyrir les-
endum Three Degrees,
George McCrae og Herbie
Hancock. Allt eru þetta
blakkir listamenn, sem ný-
lega hafa hver i sinu lagi
brotizt upp á topp sinnar list-
greinar.
Eins og þau hin sem kynnt eru
hér á siðunni i dag, þá er Herbie
Hancock er enginn nýgræðingur
i tónlistinni og tónlistarlifinu.
Einnig á hann það sameiginlegt
með hinum að gangan upp á
toppinn hefur ekki verið nein
skemmtiganga. Herbie hefur i
mörg ár veriö einn virtasti jass
pianóleikari Handarikjanna og
var þar til á þessu ári svo til ein-
göngu þekktur meðal annarra
tónlistarmanna og frekar litils
hóps áhugamanna.
Eftir að hafa spilað með
flestum frægustu jassleikurum
vestanhafs ákvað Herbie Han-
cock að reyna að brjótast frægð-
arleiðina upp á eigin spýtur.
Warner Brothers skrifuðu upp á
samning við hann, og hjá þvi
fyrirtæki geröi hann að ég held 3
breiðskifur, en ekkert gekk. Og
þó, virðing sú sem hann naut óx
og óx. Var hann t.d. á þessum
tima gerður að heiðursdoktor i
tónlist við Grimmell háskólann i
Des Monter, Iowa.
Columbia hljómplötufyrir-
tækið hafði fengið augastaö á
Herbie, og strax og samnings-
timi hans við Warner Brothers
rann út, tók Columbia hann upp
á arma sina. Akveðið var að
skapa honum viðunandi vinnu-
skilyrði og sjá hvað hann kæmi
upp með. 1 byrjun þessa árs
kom út fyrsta plata Herbie Han-
cock fyrir Columbia, bar hún
nafni „Headhunters”. Skemmst
er frá þvi að segja að
„Headhunters” er fyr'sta platan
af hinum svonefndu „þróuðu”
plötum sem seldist i gull. Og
likur eru á að „Thrust” hin glæ-
nýja plata Herbie Hancock
verði önnur i röðinni. „Thrust”
kom út i siöustu viku og fór
strax i fyrstu viku beint i 47. sæti
bandariska vinsældalistans, en
það er árangur sem ekki nema
allra, allra stærstu popp-
stjörnur ná.
Mér varð það á áðan að nota
hið ofnotaða orð „þróaður” um
tónlist Herbie Hancock. Auðvit-
að er tónlist hans þróuð, en það
ætti ekki að fæla neinn frá, sem
ekki hefur áhuga á slikri tónlist.
Nú, fyrst þú á annað borð nennt-
ir að lesa hingað ættir þú einnig
að gefa þér tima og gefa Herbie
Hancock tækifæri. Þú munt
verða undrandi yfir þvi hve hin
„þróaða” tónlist Herbie Han-
cock er skemmtileg og aðgengi-
leg.
VINSÆLDALISTARNIR
,Úti er œvintýri../
George McCrae er búinn að
vera lengi að ná þvi marki, sem
hann setti sér fyrir 10 árum þeg-
ar liann ákvað að leggja söng
fyrir sig. Eftir að hafa i mörg ár
reynt að brjótast i gegn á plötu-
markaöinum gafst hann upp og
tók til við umboösmennsku fyrir
konu sina Gwen, sem er talsvert
vinsæll skemmtikraftur i
Bandarikjunum. Hann gat samt
aidrei sætt við þá ákvörðun sina
að hætta við sönginn, þvi ákvað
hann fyrir u.þ.b. 3 árum að
reyna aftur fyrir sér á þeirri
brautinni.
McCrae fékk samning við litið
plötufyrirtæki T.K. Records, en
starfssvæði þess var aðallega
bundiö við Flórida. Svo vírtíst
sem þessi tilraun ætlaði aö
verða endurtekning á fyrri til-
raunum George.
Samningur sá, sem George
haföi gert, átti að renna út á
þessu ári og þóttust forráða-
menn T.K. Records vera búnir
að fá fyrir þvi fullar sannanir að
hvorki borgaði sig aö leggja
tima né peninga i að gera plötur
með George McCrae. Sem sagt,
ákveðið var aö endurnýja ekki
samninginn.
En ævintýrin eru enn að ske.
Eitt sinn er George var I
þungum þönkum á labbi fyrir
framan stúdió T.K. Records
heyrði hann lag óma út um op
inn glugga, hann stoppaði og
hlustaði betur. Siðan tók hann á
rás til forstjóra fyrirtækisins og
bað hann um leyfi til að fá að
syngja þetta lag inn á plötu, sem
tónlistarmennirnir væru að æfa
inni i stúdiói. En eins og áöur
sagði voru forráðamenn T.K.
Records ákveðnir að leggja ekki
út meiri vinnu fyrir George
McCrae, enda var svarið suttt
og laggott. Nei! George var ekki
siður ákveðinn, hann fullyrti að
strax og hann hefði heyrt lagið
heföi hann fengið þá tilfinningu
að þetta væri það lag sem hann
heföi beöiö eftir alla sina söng-
tið. Og eftir aö hann hafði
hlustað betur á lagið, varð þessi
tilfinning að sannfæringu. Svo
viss var George McCrae I sinni
sök, að ákveðið var að hann
fengi lagið, þó eiginlega hefði
verið búið að ráðstafa þvi.
Nú, við vitum öll hvernig fór.
Umrætt lag var auövitað „Rock
Your Baby” sem farið hefur
eins og eldur i sinu um alla vin-
sældalista heimsins. Og ef eitt-
hvert lag á eftir að tengja
minningu manna við sumarið
’74, þá er það „Rock Your
Baby”. Allavega er vist að þetta
sumar liður George McCrae
aldrei úr minni.
London.
1. ( 2) Annie’s song: ......................John Denver
2. ( 3) Hang on in there baby: ...........Johnny Bristol
3. ( 1) KungFu fighting:....................CarlDouglas
4. (11) Rock me gently:.......................Andy Kim
5. (15) Long tall glasses:....................Leo Sayer
6. (19) Sad sweetdreamer:................Sweet Sensation
7. ( 6) Youyouyou: ........................Alvin Stardust
8. (10) Can’t get enough of your love babe:.Barry White
S. ( á) YvivaEspana:..............................Sylvia
10. ( 7) Queen of clubs: ......K.C. and the Sunshine Band.
New York.
1. ( 4) Thencameyou:....................Dionne Warwicke
2. ( 5) Nothing from nothing: .............Billy Preston
3. ( 2) I honestly love you:...............Olivia Newton
4. ( 7) Earache my eye: ...............Checch and Chong
5. ( 1) Rock me gently:.......................Andy Kim
6. ( 9) Beachbaby: ...........................First class
7. (10) You haven’t done nothin’:.........Stevie Wonder
8. (16) Can’t get enough:.................Bad Company
9. (11) AnotherSaturday night:................CatStevens
10. (15) SweethomeAlabama: ...............Lynyrd Skvnyrd
Bonn:
1. ( 1) Rockyourbaby: ...................George McCrae
2. ( 2) Thesixteens:...............................Sweet
3. ( 3) Sugar baby love:.......................Rubettes
4. ( 5) My boy lollypop:.......................MaggieMae
5. (12) Rocket:......................................Mud
6. ( 4) Honeyhoney: ................................Abba
7. ( 7) To night:
8. (8) The night Chicagodied: ...............Paper Lace
9. ( 6) Charley:............................Santabarbara
1Ó. (10) Das tor zum garten..(The garden gate):
...................................Bernd Cluever
Amsterdam
L < 1) Rockyourbaby: ....................George McCrae
2. ( 2) Wall Street shuffle:........................I0cc
3. ( 5) In the summernight: ....................Teach in
4. ( 4) Air disaster: ..................Albert Hammond
5. ( 3) Gigi l’amoroso:..........................Dalida
6. (28) Kung Fu fighting:...................Carl Douglas
7. ( 7) Manofaction: .................Les Reed Orchestra
8. ( 6) Auf Wiedersehen:...................Demis Roussos
9. (22) Swinging on a star: ..............Spooky and sue
10. (16) Een kind zonder moeder: ..................Mieke
Hong Kong.
1. (1) I shot the sheriff:.........................Eric Clapton
2. ( 2) Watcrloo:...................................Abba
3. ( 5) Rock your baby: .................George McCrae
4. ( 7) It could have been me:..................SamiJo
5. (12) Rock me gently:.......................Andy Kim
6. ( 8) I’m leavin’ it aII up to you:.........Donny and
...................................Marie Osinond
7. (11) Rings:......................................Lobo
8. ( 3) Tell Laura I love hcr:...........Thonny T. Angel
9. ( 4) Fecl like makin’love: ............Roberta Flack
10. ( 6) You and me against the world:.......Helen Reddy