Vísir - 07.12.1974, Qupperneq 5
Vísir. Laugardagur 7. desember 1974
ERLEND MYNDSJÁ
Umsjón: G.P.
Kœrí
jólasveinn
Kæri jólasveinn!
Viltu gera svo vel að senda mér þessi ieikföng
og ég lofa þvi að vera þægur drengur.
Þannig skrifar litill Lundúnadrengur jólasvein-
inum i Lapplandi. Fleiri slik bréf hafa streymt til
Finnlands, öll stiluð á Lappland.
Ferðamálaráð Finna stenzt ekki mátið og er nú
byrjað að svara þessum bréfum, en ekki er þar
með sagt, að orðið sé við öllum óskunum, sem i
slikum bréfum koma fram.
MAKARIOS í AÞENU
Makarios forseti Kýpur (að nafninu til) hefur verið i heimsókn i
Grikklandi, þar sem hann hefur átt viðræður við Karamanlis for-
sætisráðherra og aðra framámenn. Myndin hér að ofan var tekin af
honum, þegar hann kom fram á svalir gistihúss sins og ávarpaði
Aþeninga, sem kallað höfðu hann út.
íþróttaf rétta menn
Evrópu hafa kosið
bezta iþróttafólk ársins
1974, mann og konu.
Hlutskörpust urðu þau
Muhammed Ali,
heimsmeistari i hnefa-
leik, og Irena
Szewinska lang-
stökkvari. — Bæði
þóttu þau hafa unnið
mikil þrekvirki með
þvi að endurheimta
fyrri heimsmeistara-
tign eftir töluvert hlé á
iþróttinni.
4
íþróttafólk órsins '74
Þannig skal ólympluþorpið lfta út árið 1976 samkvæmt hugmynd arkitektsins. Ólymplu-
leikarnir verða haldnir I Montreal I Kanada, eins og menn vita. 1 þessum húsum eiga að
rúmast 10.800 iþróttamenn og starfslið leikanna. En það kostar skildinginn. 33 milljónir
dollara er ætlað að það kosti.