Vísir - 07.12.1974, Blaðsíða 6
6
Vlsir. Laugardagur 7. desember 1974
vísrn
Útgefandi: Heykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Sveinn R. Eyjólfsson
Ritstjóri: Jónas Kristjánsson
Fréttastjóri: Jón Birgir Pétursson
Ritstjórnarfulltrúi: Haukur Helgason
Auglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannesson
Auglýsingar: Hverfisgötu 44. Simar 11660 86611
Afgreiösla: Hverfisgötu 44. Slmi 86611
Ritstjórn: Siöumúla 14. Slmi 86611. 7 linur
Askriftargjald 600 kr. á mánuöi innanlands.
í lausasölu 35 kr. eintakiö. Biaöaprent hf.
Álitlegt fyrirtæki
Orkuskorturinn i heiminum hefur gert málm-
blendiverksmiðju að mjög álitlegu fyrirtæki á ís-
landi. Reikna má með, að þjóðfélagið geti
hagnazt um meira en einn milljarð króna á ári, ef
slikri verksmiðju yrði komið upp hér á landi.
Það virðist þvi sjálfsagt að rikisstjórnin undir-
riti hinn margumtalaða samning við Union Car-
bide um sameign verksmiðjunnar — svo framar-
lega sem full trygging er fengin fyrir þvi, að
mengun verði litil sem engin frá verksmiðjunni.
Verksmiðjan á að kosta um átta milljarða
króna, að mestu leyti lánsfé. Hlutafé rikisins á að
nema um hálfum öðrum milljarði króna, sem er
55% hlutafjárins. Starfsmenn verða tiltölulega
fáir eða aðeins 114. Verksmiðjan á að starfa alveg
eftir islenzkum lögum, þar á meðal skatta- og
tollalögum.
Samizt hefur um óvenjuhátt orkuverð frá Sig-
öldu til verksmiðjunnar. Meðalverðið hækkar
smám saman úr 5 millum i 5,7 mill og siðan i 6,2
mill. Þetta er mun hærra verð en i Noregi og
Bandarikjunum, þótt miðað sé við nýja orku-
samninga i þessum löndum.
Árlegar gjaldeyristekjur verksmiðjunnar eru
áætlaðar tæplega 3,5 milljarðar króna. Þegar
búið er að draga frá erlendan tilkostnað i hráefn-
um, ýmsum gjöldum, fjármögnun og arði til
Union Carbide, verða eftir i landinu tæplega 1,3
milljarðar króna á ári. Það er hagnaður
þjóðfélagsins i formi orkusölu, launa, skatta og
arðs.
Skattar verksmiðjunnar verða miklir. Fyrstu
fimm árin verða þeir tæplega 100 milljónir króna
á ári, siðan rúmlega 220 milljónir króna á ári
næstu fimm árin og loks rúmlega 350 milljónir
króna á ári. Þjóðarbúið munar vissulega um
minna.
Þá er áætlaður arður rikisins af eignaraðildinni
ekkert smáræði. Fyrstu fimm árin verður hann
um 180 milljónir króna á ári, siðan um 240
milljónir króna á ári næstu fimm árin og loks
rúmlega 300 milljónir króna á ári.
En peningahliðin er alls ekki eina hlið málsins.
Islendingar kæra sig ekki um tæknilega fram-
þróun, ef hún mengar umhverfi þeirra.
Heilbrigðiseftirlitið hefur tekið þátt i undir-
búningi málsins og telur mengunina verða litla
sem enga. Unnt verði að binda 99% ryksins frá
verksmiðjunni. Föstu úrgangsefnin séu alveg
hættulaus og henti vel til vegagerðar.
Margir eru þó ekki fyllilega sannfærðir um, að
þetta sé rétt. Skynsamlegt væri að fá nokkra
greinargóða menn, sem búa i héraðinu umhverfis
hina fyrirhuguðu verksmiðju, til að fara utan og
kynna sér ástandið við hliðstæðar verksmiðjur
erlendis. Slik kynnisferð yrði væntanlega til að
eyða misskilningi og fordómum um mengunar-
áhrif verksmiðjunnar.
Ekki eru heldur allir ánægðir með
staðsetningu verksmiðjunnar á Grundartanga
norðan Hvalf jarðar. Komið hefur i ljós, að meðal
Borgfirðinga eru skiptar skoðanir um
verksmiðjuna. Það kemur þvi fastlega til greina
að koma henni fyrir annars staðar, þar sem
andúðar á stóriðjunni gætir litt eða ekki.
Þegar leystir hafa verið siðustu hnútar meng-
unar og staðsetningar, hafa íslendingar fengið
upp i hendurnar óvenju álitlegt gróðafyrirtæki.
-JK
llllllllllll
M) MFM
UMSJÓN: G. P.
Konstantin konungur og Anna Marla drottning hans I útlegö. Myndin
var tekin skömmu eftir aöhann fiúöiland tilRómar.
Vilja þeir
konunginn
heim aftur?
Grikkir ákveða núna
um helgina, hvort þeir
vilja heldur konungs-
veldi eða lýðveldi —
spurning, sem borin hef-
ur verið upp við þá
nokkrum sinnum i sið-
ustu 50 ára sögu lands-
ins.
Sex milljónir manna hafa rétt
til þátttöku I þjóöaratkvæöa-
greiöslunni um, hvort þeir vilji,
aö Konstantin útlegöarkonungur
snúi aftur heim eöa hvort stofnaö
veröi lýöveldi undir forseta.
Stjórnarskrá konungsríkisins
Grikklands var numin úr gildi I
júnl 1973 af herforingjastjórninni,
sem landinu stýröi frá 1967 þar tií
I júll I ár. Konstantln konungur,
sem kom til valda snemma árs
1964, fór I útlegö I desember 1967
eftir misheppnaða gagnbylt-
ingartilraun.
Æöimargir aöilar tala máli hins
34 ára konungs, sem býr um þess-
ar mundir I London. Þeir halda
þvl fram, að konungur geti veriö
eins konar öryggisventill I landi
eins og Grikklandi, þar sem rlkir
mikiö rót I stjórnmálallfinu. Svo
sýnist sem þeir hafi sannfært
marga Grikki. Sjónvarpsræöa
konungs I slöasta mánuöi, þar
sem hann ávarpaði þjóðina, varö
ennfremur til þess að auka álit
hans, einkum meðal fólks úti I
sveitum.
Grlska konungsveldið var upp-
haflega sett á laggirnar 1843, eftir
aö Grikkland hafði öðlazt sjálf-
stæöi, en þaö haföi áður lotið
Tyrkjum.
Fyrsta þjóðaratkvæöagreiöslan
á þessari öld um framtíð kon-
ungsveldisins fór fram 1920, þeg-
ar Konstantln konungur fyrsti var
I útlegö. Hann vann meö 99% at-
kvæöa og sneri heim til hásætis-
ins.
A hinn bóginn tapaði sonur hans
og eftirmaður, George II, I
svipaöri atkvæöagreiðslu 1924, og
Grikkland varö lýðveldi meö
kjörnum forseta. 1935 settist Ge-
orge aftur I hásæti eftir eina at-
kvæöagreiðsluna enn, þar sem
hann vann með 97% atkvæða.
George II flúði úr landi, þegar
Þjóöverjar hernámu það á strlös-
árunum, en hann sneri aftur heim
1946 eftir ennþá eitt þjóöarat-
kvæðiö.
Nú er lýöveldið og konungs-
veldiö enn á ný komiö á vogar-
skálarnar vegna þess að herfor-
ingjastjórnin undir forystu Ge-
orge Papadopoulosar afnam kon-
ungsveldið I júni 1973, tveim mán-
uöum eftir tilraun konungssinn-
aöra flotaforingja til gagnbylt-
ingar, sem kæfö var þegar I fæö-
ingu. I júll 1973 fór fram þjóöarat-
kvæöagreiðsla, sem staðfesti
stjórnarskrárbreytingu þá, er
varö þess valdandi, að Papado-
poulos settist I forsetaembætti.
Ari eftir það afsalaði herinn sér
völdum, og I síðasta mánuöi kusu
Grikkir til þings.
Niöurstööur þjóöaratkvæöa-
greiöslunnar I júll 1973 voru
aldrei teknar gildar af stjórn-
málamönnum landsins, sem
heldur ekki viðurkenndu lögmæti
herforingjastjórnarinnar.
Konstantin konungur kallaöi
þjóöaratkvæöagreiösluna I tlu
mlnútna ræöu, sem tekin var á
sjónvarpssegulband, „nauögun á
þjóðarvilja”.
Konungurinn játaöi þar á sig
fyrri mistök. Hann hét þvl aö
viöurkenna lýöræöislegt frelsi
þjóöarinnar og aö valdið lægi hjá
henni. Hann jafnvel fullvissaöi
kommúnista um, aö allir Grikkir
skyldu jafnir fyrir lögunum, hvar
I flokki sem þeir stæöu.
Þrjár nefndir hafa komizt á
laggirnar, sem styðja konung og
kalla sig „vini konungslýðveld-
is”. Þær hafa starfað saman að
þessu sameiginlega stefnumáli
sinu og opnaö skrifstofur I Aþenu
og ýmsum þéttbýliskjörnum úti á
landi, þar sem rekinn er áróður
fyrir endurkomu konungsins.
Eitt af þvl, sem þeir hafa á móti
lýðveldisstofnun, er það, aö vel
gæti fariö svo — eftir nokkur ár —
aö viö forsetaembættinu tæki
sóslalisti eða maður með
kommúniskar skoðanir.
Þeir minna fólk óspart á, að
Konstantin konungur er I útlegö
núna vegna þess að hann reyndi
aö losa þjóöina við herforingja-
stjórnina I desember 1967. Sú til-
raun fór út um þúfur vegna þess,
að þriöji herinn, sem hafði bæki-
stöö nærri Salonica, brást og
veitti konungi ekki þann stuðning,
sem honum var nauðsynlegur,
þar sem hann hafði komið sér fyr-
ir á Noröur-Grikklandi.
Andkonungssinnar saka á hinn
bóginn konung um að hafa veriö
orsök þess pólitiska glundroöa,
sem skapaðist I landinu 1965, en
þeir halda þvl fram, að það hafi
kallað fram byltingu hersins I
aprll 1967.
Forsætisráðherra frjálslyndra,
George Papandreou heitinn,
sagöi af sér 1965 eftir ágreining
viö Konstantln konung um yfir-
stjórn hersins. Konungssinnar
segja, að Papandreou hafi neyðzt
til aö segja af sér, eftir að uppvíst
varö um samsæri nokkurra for-
ingja hersins sem ætluðu aö taka
yfir stjórn alls heraflans.
Andstæðingar konungs halda
þvl jafnframt fram, að konungur
hafi sætt sig við herforingja-
stjórnina I átta mánuði, áöur en
hann gerði byltingartilraun slna.
A þeim tíma undirritaði konungur
— segja þeir — 210 tilskipanir
herforing jaklíkunnar.
Konungur hefur þráfaldlega
neitað þvi að hafa undirritað
nokkrar tilskipanir ofurstanna.
Hann heldur því þvert á móti
fram, að hann hafi unnið stööugt
aö þvl aö svipta þá völdum og aö
hann hafi farið I útlegö til þess að
koma I veg fyrir blóösúthellingar
og borgarastyrjöld.
Konstantin settist I hásætið eft-
ir fráfall fööur síns, Páls kon-
ungs, I marz 1964. Hann hefur
verið sakaöur um mistök og fyrir
aö hafa sótt ráö til misviturra
ráögjafa, en sérstaklega hefur
honum verið núiö um nasir að
hafa verið undir slæmum áhrifum
frá móöur sinni, hinni þýzkættuöu
Frederiku drottningu. Hún leggur
nú stund á hugleiöslu I Indlandi og
hefur lýst því yfir, að hún ætli sér
aö dvelja þar áfram.
Eitt af áróöursspjöldunum, sem hengd voru upp I Aþenu fyrir þjóöarat-
kvæöagreiösluna I jdil 1973. „Nai” á grisku þýöir já.