Vísir - 07.12.1974, Side 9
Vísir. Laugardagur 7. desember 1974
9
BÆKUR
Óður um island
Hannes Pétursson skáld hefur
látiö frá sér fara ljóðabók, sem
nefnist Óður um Island. Bók
þessi er um margt sérkennileg
og óvenjuleg, en hana lýsti og
hannaði Hörður Agústsson list-
málari. Hún er talin 46 blaðslður
á vandaðan pappír og kostar kr.
1940.-. Útgefandi er Helgafell.
Gunnlaugur
Scheving
Út er komin hjá Helgafelli
bókin Gunnlaugur Scheving eft-
ir Matthlas Johannessen. A
bókarkápu segir, að bókin sé til
oröin af löngum kynnum Gunn-
laugs og Matthíasar, og hefur að
geyma ævisögu listmálarans
ásamt merkilegum viðtölum,
sem Matthias átti við hann yfir
árin, um æviferil hans, list og
skoðanir. Bókin er 262 bls. og
kostar kr. 2345.-.
Bærinn á
ströndinni
Bærinn á ströndinni heitir bók
eftir Gunnar M. Magnúss, sem
Setberg gefur út. Þetta er sagan
af Jóni Guggusyni og Guðrúnu
Lukku, sem bæði eru tólf ára,
þegar sagan hefst. I sögunni er
sagt frá reynslu og kynningu
þessara barna. Bókin er 135 bls.
aö stærð og kostar kr. 690,-
Árásin mikla
Setberg hefur gefið út bókina
Arásin mikla, sem er sannsögu-
leg lýsing byggð á viðtækri
heimildakönnun um örlagarlk-
asta viðburð heimsstyrjaldar-
innar siöari, árásina á Pearl
Harbour. Walter Lord skráði
bókina, en Björn Jónsson Is-
lenzkaöi. Bókin er prýdd nokkr-
um myndum, 207 bls. að stærð
og kostar kr. 1845,-.
GAMLAR OG NtJAR SNEKKJUR
Jólagjöfin
RAPIDMAN 824 Kr. 24.500.-
Hún gerir allt....
.
X sin — sin'1 — cos —
cos'1 — tan — tan'1
•fa ex — ln — log
■fa TT — 1/x — V5T
☆ + + X -
•fa Minni
■fr Reiknar útkomu X 108
8 stafa ljósaborð
Straumbreytir
tengjanlegur
■fa 9 volta rafhlaða
☆ 1 árs ábyrgð
Opið til kl. 6
í dag
OLIVETTI
SKRIFSTOFUTÆKNI H.F.
Hafnarstræti 17 Tryggvagötumegin.
Simi 28511.
..sem þú þorft að gera
Frá Rauðasandi
til Rússiá
Dr. Kristinn Guðmundsson,
fyrrum utanrlkisráðherra og
ambassador, rifjar upp endur-
FRÁ
RUÐVSAXDI
TIL RIJSSÍÁ
ENDURMINNINGAR SENDIHERRA
tMOASSA|K}M lllfJAI. 1111' INiXIMMINNINlWMI
OYLFI GRONDAL SKRAOI
minningar sínar I bók, sem
Gylfi Gröndal hefur skráð og
heitirfrá Rauðasandi til Rússíá.
Bókin er prýdd fjölda mynda frá
ferli dr. Kristins, blaösíður eru
184 og verðiö er kr. 1994.-.
Kvennaskólinn
i Reykjavik
Almenna bókafélagiö minnist
aldarafmælis Kvennaskólans I
Reykjavlk með bók, sem nefnist
Kvennaskólinn I Reykjavlk
1874-1974. Þetta er hin merkasta
bók að öllu ieyti og hefur að
geyma minningu skólans frá
upphafi, nemenda hans og.
kennara. Þessi bók er 335 bls. aö
stærð I stóru broti og kostar kr.
3927,-.
Skipabókin
Skipabókin heitir ný bók frá
Almenna bókafélaginu, gefin út
I samvinnu við sama frumútgef-
anda og gaf út hina vinsælu bók
Víkingarnir, sem nú er gersam-
lega uppseld. Skipabókin er
árangur samstarfs sérfræðinga
I Svlþjóð, Bandarikjunum,
Bretlandi, Danmörku, Finn-
landi, Hollandi, Noregi og
Þýzkalandi. 1 bókinni eru 1580
skýringarmyndir og teikningar.
Bókin er I mjög stóru broti og öll
hin aðgengilegasta, 280 bls. og
kostar kr. 3927,-.
STÆKKUNAR.
GLER
Fjolbreytt urval
stækkunarglerja,
m.a.stækkunargler
með Ijósi.
FRÍMERKJAMIDSTÖÐIN
Skólavöröustig 21 A-Simi 21170
MOKKAHIJFM
FRÁ HETTI, DOIU.ARM SI
KLÆÐIR ALLA
Nt SAIÐ*AÝJAR GERÐIR
FÁST í KAUPFÉLAGINU
OG í SÉRVERZLUNUM
UMLANDALLT ^ÉÉÉF
Hugmynd
að rallegrí
jólaskreytingu
Manstu í fyrra þegar komið var að jólum, og þú ætlaðir að skreyta heimilið,
jólaskrautið nægði ekki.
Það vantaði kúlur og fleira ó jólatréð, jólapappírinn
nægði ekki, og kortin voru of fó.
Áætlun þín um að gera þetta allt fullkomið fór út um þúfur.
Nú er aftur komið að jólunum, en þú hefur tímann fyrir þér í þetta sinn.
Hugmyndin þín að fallegri jólaskreytingu verður að veruleika
eftir eina ferð á jólamarkað Pennans.
Dragðu það ekki til morguns.
Jólamarkaður
Hafnarstræti 17