Vísir - 17.12.1974, Side 2
Visir. Þriðjudagur 17. desember 1974.
Tisntsm:
Hvert verður nafn
ársins?
Stefán Ragnarsson, nemandi: —
Geir Hallgrimsson. Það var svo
gott að fá einhverja breytingu frá
vinstri stjórninni.
Haukur Guðjónsson, verka-
maður: —Nixon alveg örugglega.
Hérlendis ja, Geirfinnur til
dæmis.
Björn Bjarklind, skrifstofu-
maður: — Lsirhausinn, ef þeir
finna þá eigandann fyrir áramót.
Kristjana Guöjónsdóttir, hiis-
móðir og saumakona: — Senni-
lega Óli Jó, þótt þeir séu margir.,
sem keppa við hann.
Sigriöur Búadóttir, nemandi: —
Ég minnist nú ekki neins nafns,
sem er eftirminnilegra en önnur
frá árinu.
Kristinn Eymundsson, bifvéla-
virki: — Kissinger alveg örugg-
lega. Hann er búinn að gera svo
margt á árinu. Ég held nú ekki,
að neinn Islendingur sé sérlega
minnisstæður frá árinu og þó,
Guðmundur Kjærnested kvittaði
velfyrirsig með töku Þjóverjans.
Sjónvarpið „stal" myndinni
Nokkuð margir hafa hringt til
blaðsins vegna þess, hversu
skyndilega var hætt að sýna
myndina „Vesturfararnir”,
sem Tónabió hóf sýningar á
fyrir nokkrum dögum.
Myndin var sýnd í þrjá daga,
og sföan var hætt að sýna hana.
Þeir, sem hringt hafa, segja,
að þarna hafi bióinu orðiðá mis
tök, þvi að myndin sé stór-
brotið listaverk, sem viðkom-
andi vildu alls ekki missa af.
Þorvaldur Thoroddsen, fram-
kvæmdastjóri Tónabiós út-
skýrði ástæðuna fyrir þessari
skyndilegu ákvörðun:
„Þeir, sem höfðu svona
mikinn áhuga á myndinni, létu
bara ekki sjá sig. Aðsóknin var
svo dræm, að ég ákvað að hætta
sýningum.
Að visu er slæmur timi núna
fyrir mynd sem þessa. Allir eru
uppteknir vegna
jólaundirbúnings. Ástæðan
fyrir þvi, að myndin var samt
sett fram, var sú, að á jóladag
eiga að hefjast sýningar I sjón-
varpinu á nákvæmlega sömu
mynd, að visu i aðeins lengri út-
gáfu.
Sýning þessarar myndar I
sjónvarpinu kemur okkur
undarlega fyrir sjónir. Þetta er I
fyrsta skipti sem ég veit til þess,
að sýningarréttur kvikmyndar
sé seldur samtimis til
kvikmyndahúss og sjónvarps.
Við munum leita lagfæringar af
hendi dreifingaraðila i þessu
tilfelli.
Annars var ætlunin að taka
Vesturfarana til sýninga, þegar
sýningum væri lokið á jóla-
myndinni.
Það er ekki gott að segja,
hvort við tökum myndina aftur
til sýninga, eftir að hún hefur
verið sýnd i sjónvarpi. En ef hún
likar vel I sjónvarpi, eins og
reyndin hefur t.d. verið I Dan-
mörku, má vel vera, að svo
verði”.
I
Norska leikkonan Liv Ullman,
sem leikur annað aðalhlut-
verkið I „Vesturförunum” á
móti Max von Sydow. Þegar
„Vesturfararnir” voru sýndir i
danska sjónvarpinu. tæmdust
göturnar, og leikkonan hefur
öðlazt gifurlegar vinsældir fyrir
leik sinn.
ÍHALKA A GANGSTIG
IM ÖRYRKJANNA
| Ingibjörg Jónsdóttir hringdi:
„Borgin hefur lofað, að upphit-
ívið gangbraut verði sett upp á
Imilli strætisvagnabiðstöðvar á
ILaugavegi og niður að húsum
;öryrkjabandalagsins við Hátún.
; En i þessum siðustu frostum,
•'með tilheyrandihálku, hef ég orð-
lið þess áþreifanlega vör, hversu
smikil þörf er á slikri gangbraut.
sem enn bólar þó ekkert á.
Meðan ekki hefur verið gengið
frá þessu, vil ég beina þvi til for-
ráðamanna húsanna við Hátún,
að oftar verði borinn sandur á
gangvegi aðhúsunum. Hálkan er
það mikil núna, að það er á mörk-
unum að hægt sé að komast
klakklaust heim úr strætisvögn-
um”.
Dulorfull „skýrsla"
um umferðarlagabrot
Bifreiðarstjóri skrifar og
sendir meö Ijósrit af skýrslu um
umferðarlagabrot: '
„Meðfylgjandi er ljósrit af
„skýrslu um umferðarlaga-
brot”. Þar kemur fram, að bif-
reið hafi verið „lagt upp á um-
ferðareyju á Tjarnargötu viö
Vonarstræti”.
Málið er bara það, að ég get
enga umferðareyju fundið á
þessum stað, þrátt fyrir mikla
leit.
Annað i „skýrslunni” finnst
mér ekki slður athyglisvert. Þar
kemur fram að atburöurinn hafi
átt sér stað árið 1974 kl. 13.35.
Hvort er ég oröinn vitlaus eða
lögregluþjónninn ruglaður ? ’ ’
D. .V 0
SKYRSLA um umferðarlaga
®SáL
ökumaður bifreiðarinnar ...... hefur
í dag kl. ../.á.o.3$á ..../. ./W.aUJyCT.A
Cíý/.JjCCCú. ú/A'J-cy.'ú/.i.*.. ■... A'.QfýAf.....
gerst brotlegur gegn þeim ákvæðum um-
ferðgrlaga, sem merkt er við hér að neðan:
□ 1. Ákvæðum um stöðvunarskyldu.
(48. gr. sbr. 65. gr. umferSarlaga).
□ 2. Ákvæðum um biðskyldu.
(48. gr. sbr. 65. gr. umfcrðarlaga).
□ 3. Fyrirmælum um aðalskoðun bifreiða.
(18. gr. umferSarlaga).
□^4-. Ákvæðum um stöðu og stöðvun ökutækja.
' (51. gr. sbr. 65. gr. umferðarlaga).
□ 5. Ákvæðum um gangandi vegfarendur.
‘*r (61. gr. umferSarlaga og III. kafli reglugerðar
um umferðarmerkl).
Vegna framangreinds brots ber að greiða
sekt ajð upphæð kr. ..AA.A.. íTíkissjóð.
............ 197 /
£/Staðfír /j,y/ jáagsjitiíi'ní/
Lögreglu&aður nr.
Sjá bakhlið
/érf
87410000-3
,OÞARFI AÐ POST-
LEGGJA GÓÐAN HUG'
— segir biskup og sendir engin jólokort
„Ég ætla að biðja presta mina
og aðra vini að misvirða ekki,
þó að þeir fái ekki jólakort frá
okkur hjónum,” segir Sigur-
björn Einarsson biskup. Og
skýringin á þvi, að þau hjónin
senda ekki út jólakort er sú, að
þau ætla að verja þeim krónum,
sem sparast með þvl, til glaðn-
ings eða bjargar örsnauðum.
„Mun Hjálparstofnun kirkj-
unnar annast milligöngu þar að
lútandi,” segir biskupinn. Og
hann vill koma þeirri vinsam-
legu ábendingu til sinna mörgu
góðu vina að fara að sinu dæmi.
„Aðrir hafa meiri þörf á þvi
aö til þeirra sé hugsað á jólun-
um,” segir hann. „Góður hugur
i okkar garð kemst til skila, þótt
hann sé ekki póstlagður.”
Og biskupinn heldur áfram:
„1 leiðinni er vert aö minna á,
að holl hófsemi I skiptum á jóla-
gjöfum milli þeirra, sem einskis
þarfnast, og i jólahaldi yfirleitt,
gæti orðið svöngum börnum i
fjarlægð og bágstöddum heimil-
um nær nokkur hjálp ef sparað
væri I hjálparskyni. Það væri i
anda kristinna jóla.”
—ÞJM
GOÐUR HUGUR
ER EKKI
ALLTAF NÓG
M.Ó.M. Hafnarfirði, skrifar:
„Ekki get ég stillt mig um að
lýsa yfir hinni mestu undrun á
orðum herra biskups Sigurbjörns
Einarssonar, skrifuðum I Visi
föstudaginn 13. desember.
„Óþarfi að póstleggja góðan
hug”. Hvernig getur einn af
áhrifameiri mönnum þjóöarinnar
leyft sér að hvetja hina pennalötu
þjóð til að spara og leggja niður
þann ódýrasta kveðjumáta sem I
heiöri hefur verið hafður bæði á
tslandi og viðast hvar erlendis i
mannsaldra.
Ekki trúi ég þvi, að jólakortin
tilherra biskups lendi i ruslakörí-
unni eins og hvert annað blaða-
rusl. Hvað er ánægjulegra en að
fá jólakveðju i pósti eða bara
kveðju frá vinum og ættingjum og
jafnvel án sérstaks tilefnis.
Það eru áreiðanlega allt of
margir, sem ganga fram hjá hálf-
ósjálfbjarga gamalmenni, sem
biður eftir að komast yfir götu, og
senda aðeins hlýjan hug og ósk
um, að það komist á endanum
yfir, i stað þess að eyða fáeinum
sekúndum og leiða gamlingjann
yfir, sem mæti það meira en
hlýjan hug.
Timabært finnst mér nú orðið,
að Islendingar fari nú að huga að
hinni andlegu velferð, og noti þá
til dæmis litla kveðju.senda i
pósti, án sérstaks tilefnis.
Að öðru leyti er ég sammála
herra biskupi og bið eftir jólaboð-
skap hans, sem er einn hinn
ánægjulegasti dagskrárliður i
útvarpi og sjónvarpi”.
Tapaði tösku með
íþróttabúningum
Unglingspiltur varð fyrir þvi
óhappi að tapa stórri tösku á
fimmtudaginn. 1 töskunni var
Iþróttabúningur hans, Iþrótta-
skór og armbandsúr af Pierpont
gerð.
Utan á sjálfri töskunni sem er
svört, stendur PUMA. Drengur-
inn tapaði töskunni, þar sem
hann hafði skilið hana eftir fyrir
utan Vitabar. Þegar hann kom
aftur, var taskan horfin. Þeir,
sem kynnu að verða hennar
varir, eru vinsamlegast beðnir
að láta lögregluna vita.