Vísir - 17.12.1974, Blaðsíða 10

Vísir - 17.12.1974, Blaðsíða 10
Vlsir. Þriöjudagur 17. desember 1974. Umsjón: Hallur Símonarson. Visir. Þriðjudagur 17. desember 1974 f Viðar ekki með FH á morgun „Þetta veröur erfiöur leikur fyrir mig, hvort sem ég spila meö FH eöa stjórna Hauk- unum” sagöi Viöar Simonarson, leikmaöur meö FH og þjálfari Hauka, er viö spuröum hann aö þvi I gær, hvort hann ætiaöi aö leika meö FH eöa skipuieggja leik Haukanna i leiknum á milli FH og Hauka í 1. deildinni annað kvöld. „Ég er i mjög óþægilegri og erfiöri aöstööu þarna, en ég held aö þaö veröi ofan á, aö ég leiki ekki með FH og stjórni heldur Haukun- um. Þaö heföi veriö vafasamt hvort ég hefði leikiö hvort eö er — sama hvort leikurinn heföi veriö viö Hauka eöa eitthvert annaö liö I deildinni — þvi ég er slæmur I öxl eftir leikinn viö Val á laugardaginn og er ekki búinn aö ná mér. Þetta verður örugglega mikill leikur eins og venjulega þegar þessi liö mætast, og maöur taiar nú ekki um, af þvi aö hann er á heimavelii beggja liöanna I Hafnarfiröi. Ég þori ekki aö spá um úrslitin — þau veröa ekki sögö fyrirfram frekar en fyrri daginn — ég vona bara aö betra liöiö sigri”, Birgir Björnsson þjálfari FH vildi ekkert um málið segja, er viö töluöum viö hann.— „Þaö kemur I ljós þegar leikurinn hefst”, var þaö eina sem viö fengum út úr honum..... —klp— Þarna gnæfir Islenzki landsllös- maöurinn, Axel Axelsson, yfir marga. þýzka landsliösmenn — og svona færi lætur Islenzki þrumufleygurinn ekki ganga sér úr greipum. Knötturinn hafnaöi i marki Gummersbach. Liö Axels, Dankersen, og Gummersbach eru I tveimur efstu sætunum f noröur- deiidinni þýzku — og stefna greinilega i úrslitakeppnina um þýzka meistaratitilinn. Myndin aö ofan var tekin I leik Dankersen og Gummersbach á dögunum, sem iauk meö jafnteflí 16-16. Ahorfendur voru 2500 I yfir- fylltri iþróttahöilinni. Axel skor- aöi fjögur mörk i leiknum og voru þrjú þeirra úr vitum, en Hansi Schmidt var markhæstur 1 leikn- um meö niu mörk — þrjú viti — og þaö bjargaöi jafnteflinu fyrir Gummersbach. Busch skoraöi næstflest mörk Dankersen, þrjú, allt viti. Fyrir framan Axel á myndinni eru frá vinstri Hansi Schmidt, Schlagheck, Westebbe og Brand. Axel á spítala - skorinn við meiðslum í olnboga í morgun Einn bezti og þekkt- asti handknattleiks- Ásgeir vann i— tap Bayern Standard Liege, liö Ásgeirs Sigurvinssonar I Belgiu, vann stórsigur i 1. deildinni belgisku á sunnu- daginn. Liöiö lék þá á útivelli gegn Beringen og sigraöi meö 3-0. Þaö færist hægt og bitandi upp töfluna. Efsta liðiö Molenbeek (Racing White) sigraöi Lierse á útivelli 4-1 og hefur 27 stig. Anderlecht vann Malines 2-0 og hefur 23 stig. Liege er meö 20 stig I sjötta sæti. Hamborg sigraði Bayern 1-0 aö viðstöddum 55 þúsund áhorfendum i Hamborg á sunnudag I 1. deild I V- Þýzkalandi og er nú i efsta sæti ásamt Kickers Offenbach. —hsim. Já/ þaö eru orð að sönnu. Húsgögn okkar eru sannkailaðir kjörgripir# sem gleðja augað og veita varanlega ánægju, auk þess sem verðgildi þeirra eykst með tímanum. Við bjóðum yður að skoða okkar f jöl- breytta úrval af: Renaissance borðstofum, stökum stól- um, skápum, borðum, sófum, bóka- skápum og skrifborðum, Rococo sófum og borðum. Ennfremur úrval af messing- og postulínsvörum, auk antik lampa með silkiskermum. Góður gripur er gulls igildi. Verzlunin Kjðrgripir Bröttugðtu 3b. ( Tíu skref frá Aðalstrœti) maður landsins, Axel Axelsson, sem leikur með vestur-þýzka liðinu Dankersen, var I gær kveldi lagður inn á sjúkrahús i Vestur-Þýzkalandi, og snemma i morgun var hann skorinn upp vegna meiðsla i hægri olnboga. Axel fann fyrir eymsli I hægri olnboga á æfingum I fyrri viku og átti erfitt meö aö skjóta á markiö, — Verður sennilega fró handknattleik í 5—6 vikur eöa gera eitthvaö sem reyndi á höndina. Hann tók þó þátt i leik meö Dankersen um fyrri helgi og skaut aöeins þrisvar á markiö, þvi þá var hann oröinn þaö slæmur. Hann skoraöi þó mikil- vægt mark er staöan var 20:20 og leiktiminn aö renna út, en leiknum, sem var viö Bremen, lauk meö sigri Dankersen 22:20. Eftir leikinn var hann sendur til læknis, sem gaf honum sprautur, en þær dugöu ekkert, og var hann fluttur á sjúkrahús I gærkveldi, og var skorinn upp. Læknarnir töldu, aö ekki mætti biöa meö aö skera hann, en hafa sagt, aö hann muni ná sér tiltölu- iega fljótt, ef allt gengur aö óskum. Hann mun a.m.k. vera frá I fimm til sex vikur, og er þaö mjög bagalegt fyrir hiö þýzka liö hans og einnig fyrir islenzka landsliðiö, en hann hefur veriö valinn til æfinga meö þvi fyrir Noröurlandsmótiö, sem fram fer i Danmörku I byrjun febrúar. Dankersen lék á sunnudaginn — án Axels — og sigraði þá Wellinghofen meö 27 mörkum gegn 14. Wellinghofen var án fjögurra sinna beztu manna, sem annaðhvort eru brotnir eða frá vegna annarra meiðsla. Einnig var Dankersen án Axels og lands- liösmannsins Becker, sem hefur veriö einn bezti maöur liösins, en hann er meiddur á fæti. Dankersen á eftir aö leika einn leik fyrir jól, en siöan er gert hlé á 1. deildarkeppninni fram til 11. janúar. Liöiö á frekar auövelda leiki fram i miöjan febrúar, en þá vona forráðamenn liösins aö Axel veröi búinn aö ná sér þaö vel, að hann geti leikiö. —klp "STEREO 2 — QUADRADIAL4" SYRPAN Fyrir nokkru síðan kynntu MARANTZ verksmiðj- urnar nýja syrpu útvarpsmagnara. sem nefnd var „Stereo 2 — Quadradial 4“ syrpan. Þykja þessir út- varpsmagnarar enn sanna yfirburðasnilli þeirra manna, sem að baki MARANTZ framleiðslunni standa. Um þetta má nefna eftirfarandi dæmi: Um 1—2ja ára skeið hafa allir meiriháttar framleiðend- ur byggt svokallað Dolby kerfi inn í seguibands- tæki sín, en þetta kerfi eyðir suði og aukahljóðum og eykur tóngæði verulega. Hafa segulbandstækja- framleiðendur stórbætt stöðu sína á þennan hátt, en notkun þessarar tækni hefur verið takmörkuð við þau tæki. Hér varð MARANTZ til að marka þáttaskil, eins og oft áður, því að í „Stereo 2 — Quadradial4“syrpunni erstillanlegt Dolby kerfi inn- byggt í útvarpsmagnarana sjálfa, og gætir hinna hagstæðu áhrifa Dolby kerfisins því við alla notkun tækjanna (hvort heldur er útvarpsnotkun eða magn- aranotkun með plötuspilara, segulbandi eða hljóð- nema). — Að öðru leyti eru tækin í „Stereo 2 — Quadradial4“syrpunni byggð fyrir stereo-, fjórvídd- ar- og fjögrarása notkun, og er viðtækið gert fyrir fjögrarása útsendingar útvarps, en tilraunir með slíkar útsendingar eru byrjaðar i Bandaríkjunum. — Ekki þarf að fjölyrða um gæði eða almenna tæknilega byggingu og frágang þessara tækja frek- ar en annara MARANTZ tækja. — MARANTZ 4230, sem sýnt er hér að ofan, er eitt tækjanna í „Stereo 2—Quadradial 4“ syrpunni, og kostar það krónur 111.800,00 án húss. Dýrasta tækið í þessari syrpu er MARANTZ 4400, sem er jafnframt öflugasti og fullkomnasti útvarpsmagnari veraldar, en hann kost- ar kr. 272.000,00.—Tækin í „Stereo 2—Quadradia! 4“ syrpunni eru framleidd fyrir þá, sem vita, hvað þeir vilja og vilja það bezta. NESCO NESCO HF Leiöandi fyrirtæki á sviöi sjónvarps-útvarps- og hljómtækja. Verzlun Laugavegi 10 Reykjavik. Simar: 19150-19192-27788

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.