Vísir - 17.12.1974, Blaðsíða 3
Visir. Þriðjudagur 17. desember 1974.
3
— Símakerfi Vestmannaeyinga loksins að komast í lag
Þaö er búið að opna nýja
simstöð í Vestmannaeyjum I
hálfa gátt, ef svo má að orði
komast. Það er hægt aö hringja
úr landi beint i simanúmer Eyja-
skeggja, en þeir sjáifir þurfa
aftur á móti að panta sin simtöl i
land i gegnum simstöðina eins og
fyrr.
„Auðvitað er það mjög
ánægjulegt, að við skulum nú
vera búnir að koma þorra Vest-
mannaeyinga I símasam-
band. En þrátt fyrir að sjálf-
virknin hafi að nýju hafið innreið
sina hér á simstöðinni, eiga
s i m s t ú 1 k u r n a r erfiða
daga fyrst i stað. Það er eins og
allir, sem komnir eru með nýja
sima, hafi verið aðframkomnir af
simleysinu og séu nú að bæta sér
það upp. Hringingarnar i land eru
svo miklar”, sagði Hilmar
Gunnarsson stöðvarstjóri i viðtali
við Visi I gær.
Sjálfvirka stöðin verður
stækkuð i þúsund númer, en það
eru um þrjú til fjögurhundruð ný
númer, sem þá verða tekin i
gagnið. Hefur verið unnið við
það myrkranna á milli undan
farnar vikur að tengja nýju
slmana, og á nú ekki eftir að
tengja nema fimmtiu til hundrað
sima.
Það ástand, að Eyjaskeggjar
þurfi að panta i gegnum simstöð
númer i landi, varir allt þar til
lokið hefur verið við nýju lang-
linumiðstöðina i Breiðholti.
Simstöðin i Vestmannaeyjum
er I sömu húsakynnum og fyrir
gos. Tækjakostur stöðvarinnar
hefur aftur á móti verið Guðjón Bergsson t.h. tekur á móti bilnum hjá formanni byggingar-
endurnýjaður að mestu. —ÞJM nefndar Jacob Mortensen
Truflanir á sjónvarpsskermum á Suðurnesjum
Veldur sendistöð hersins
í Grindavík truflununum?
Landssiminn
kannaði fyrir helgina,
hvað valdið gæti þeim
truflunum á islenzka
sjónvarpinu, sem
Suðurnesjamenn hafa
kvartað undan
Landssimanum höfðu borizt
kvartanir bæði frá Keflavik og
Njarðvikum, um að stöðugar
linur eða bylgjur gengju yfir
skerminn, þegar horft væri þar
á islenzka sjónvarpið.
Þetta eru svipaðar truflanir
og þær, sem Suðurnesjamenn
þykjast sjá á skermi Vallar-
sjónvarpsins, og þótt herinn
hafi ekki viljað viðurkenna það,
er altalað á Suðurnesjunum, að
truflanir þær séu sendar út
viljandi.
Þvi þótti Landssfmanum rétt
að kanna, hvort hugsazt gæti,
að truflanir þessar hefðu einnig
áhrif á útsendingar islenzka
sjónvarpsins.
Nokkuð erfitt reyndist aö
staðsetja truflunarvaldinn. Þó
sást að lokum, að truflanirnar
komu úr Grmdavik. Þvi er
loku fyrir það skotið, að Vallar-
sjónvarpið valdi truflunum. A
hinn bóginn er I Grindavik
stuttbylgjufjarskiptastöð hers-
ins, og er talið hugsanlegt, að
truflanirnar stafi frá henni.
Truflanirnar á Vallar-
sjónvarpinu má ef til vill rekja
til sömu stöðvar, hvort sem
truflunin, sem hún veldur, er
send út viljandi eða ekki.
—JB
ÞURFA MIKIÐ AÐ TALA
EFTIR AÐ SÍMARNIR
VORU TENGDIR AD NÝJU
Kokkur fœr Cortinu:
Fann miðann í
ruslaskúffu
,,Ég var aö róta i ruslaskúffu og
fann þá happdrættismiðana,”
sagði Guðjón Bergsson, mat-
sveinn á stúdentagarðinum,
heldur betur kampakátur.
Með þvi að bera þá saman við
vinningaskrá komst hann að raun
um, að hann hafði unnið splunku-
nýja Cortinu út á gleymdu mið-
ana.
Þetta var i happdrætti fær-
eyska sjómannaheimilisins, sem
er að aura saman i nýja byggingu
gistiheimilis sjómanna.
Jacob Mortensen, for-
maöur bygginganefndarinnar,
sem afhenti Guðjóni Cortinuna,
skýröi okkur frá þvi, aö safnazt
hefðu þrjár milljónir króna I
happdrættinu. Vildi hann, að
komiö yrði á framfæri þakklæti
hans fyrir góðar undirtektir og
stuðning við færeyska sjómanna-
heimilið. —GÞG—
Wilma tekur líka með
sér sólógítarleikara
Ástralska söngkonan Wilma
Reading, sem hingað mun
koma um áramótin, hefur til-
kynnt, að hún muni taka með
sér, auk hljómsveitarstjórans
John Hawkins, brezkan sóló-
gitarleikar, Robin Hale að
nafni. Það verður þvf fimm
manna hljómsveit, sem verður
Wilmu til aðstoðar á nýársdag i
Glæsibæ, aðrir I hljómsveitinni
eru Guðmundur Steingrlmsson,
Gunnar Ormslev, Arni Scheving
og svo auðvitað Hawkins við
pianóiö.
Ýmsir furða sig á þvi, að
Wilma, sem getur valið úr til-
boðum frá hljómleikahöllum og
stórum skemmtistöðum i
veröldinni, skuli verja sinum
dýrmætasta tima, áramótun-
um, hér á íslandi. Ekki dregur
það úr undrun manna, að hún
skuli jafnframt geta tekið
hingað með sér svo önnum kaf-
inn mann sem John Hawkins, en
hann er önnum kafinn við að út-
setja fyrirfleiri'enWilmu, og má
þar m.a. nefna Tom Jones,
söngvarann fræga.
Wilma hefur útskýrt, hvað
það er, sem dregur hana
hingað: „Það er kyrrðin og hið
vinalega fólk, sem laðar mig til
Islands. Hér er svo gott að slaka
á, milli þess sem maður
skemmtir i skarkala stór-
borganna”. Þetta var það svar,
sem hún gaf við áðurnefndri
spurningu, þegar hún var hér i
fyrra — þá i annað sinn.
Engin erlend söngkona hefur
Wilma og John Hawkins
á siðustu árum vakið hér jafn-
mikla hrifningu fyrir söng sinn
og Wilma. Ja, nema ef vera
kynni söngkonan Cleo Laine,
sem skemmti hér á Listahátið.
Og þá er vert að geta þess, að
þaö var Wilma Reading, sem
tók við hlutverki Cleo Laine I
„Show Boat” á sviði Adelphi
leikhússins I London I sumar.
Þess má að lokum geta, að
átján manna hljómsveit FIH
hefur fallið frá hljómleikahaldi
með Wilmu og Hawkins að
þessu sinni, sökum þess hve þau
verða hér á óþægilegum tima.
Hins vegar er vitað, að fyrir
hljómsveitinni vakir sérstakt
hljómleikahald i næsta mánuði
—ÞJM
V-Þýzkaland
’ Frakkland
Bretland
Gjaldeyris
//Sjóöur" í
milljónum
dollara
Italía Austurríki Svíþjóö
Danmörk
Maí 1973
f Maí 1974
'H-ÍB.-w,
Island/
____1. maf
___CJJ)
1. desember
1974
Hvað er orðið
um auðinn?
Foröi flestra Evrópurikja i
erlendum gjaideyri hefur þorrið
mjög að undanförnu, ekki að-
eins hér á landi. Þó er minnkun-
in mest hér. A myndinni eru
nokkru nýrri tölur fyrir island
en hin rikin. Gjaldeyris,,sjóður”
rikjanna er sýndur I milljónum
doliara, Ijósari „súlan” á að
tákna sjóðinn i mai 1973, hin ári
seinna. Þó eiga tölurnar fyrir
Island við mai 1974 og 1. desem-
ber sfðastliöinn.
Vestur-Þjóðverjar, Bretar og
Hollendingar bættu stöðu sina á
þessu timabili. Siðan hefur það
breytzt nokkuð, einkum hefur
staða Breta versnaö. Athyglis-
vert er, hve geysilega mikið
Vestur-Þjóðverjar hafa miðað
við hina. A þvi sannast auðlegö
þeirra. Þá er merkilegt, aö
smárikiö Sviss hefur meiri
forða af gjaldeyri en Frakkland.
Efnahagsvandræði Itala og
Dana sjást glöggt á hruni gjald-
eyrisstöðu þeirra.
Hvaö varð af auðnum? Hann
komst að miklu leyti i hendur
Araba vegna hækkunar olíu-
verösins.
—HH
LÍFEYRISÞEGAR
FÁ STUÐNING
ÚR TVEIM ÁnUM
Úr tveimur áttum hafa á
Alþingi komið tillögur um
stuðning viö lifeyrisþega. Þrir
þingmenn Sjáifstæðisflokksins
flytja tillögu um auknar ellilif-
eyrisgreiðslur til lifeyrissjóö-
félaga óvérðtryggðra lifeyris-
sjóða. Magnús Kjartansson hefur
lagt til, að veitt verði á næsta ári
800 milljónum króna meira fé til
almannatrygginga en gert er ráð
fyrir I fjárlagafrumvarpinu.
Þessu fé verði varið til að. greiöa
uppbót á tekjutryggingu aidraðs
fólks og öryrkja.
I þingsályktunartillögu sjálf-
stæðismanna er sagt, að Alþingi
skuli fela rikisstjórninni að láta
kanna, hvort grundvöllur sé fyrir
þvi að breyta lifeyrisgreiðslukerfi
óverðtryggðra lifeyrissjóða
þannig, að eftirlaunagreiðslur
þeirra fullnægi eðlilegri fram-
færsluþörf sjóðsfélaga.
Jafnframt verði kannað, með
hvaða hætti unnt verði að tryggja,
að allir lifeyrisþegar sitji við
sama borð gagnvart eftirlaunum
með tilliti til ævitekna og fram-
færslukostnaðar á hverjum tima.
1 greinargerð segir, lífeyris-
greiðsla til lifeyrisþega i óverð-
tryggðum sjóði sé nú aðeins 1/4
hluti af þeirri upphæð, sem lif-
eyrissjóðfélagi I verötryggðum
sjóði i sambærilegri stöðu og
sambærilegum launaflokki fái, ef
miðaö sé við, að lifeyrisþegar
þessir hafi byrjað aö taka eftir-
laun sin i ársbyrjun 1969.
Flutningsmenn eru Guðmundur
H. Garðarsson, Eyjólfur K. Jóns-
son og Pétur Sigurðsson.
—HH
Regnhlífar - Regnhlífar
Regnhlífarnar eru komnar, glœsilegt
litaúrval.
Regnhlíf
hefur alltaf verið kærkomin og nytsöm
jólagjöf og svo mun einnig verða i ár.
Snyrtivörur
Allar snyrtivörur i glæsilegu úrvali.
Regnhlífabúðin
Laugavegi 11
Simi 13646.