Vísir - 17.12.1974, Qupperneq 5
Vlsir. Þriöjudagur 17. desember 1974.
5
Umsjón Guðmundur Pétursson
ap/UnTtEbR útlönd í morgun útlöndí morgun utlöni
Njósnaði brezki ráð-
herrann fyrir Tékka?
Foringi I tékknesku ieyni-
þjónustunni mun — eftir aö hann
flúöi á náöir Vesturlanda — hafa
ljóstraö þvf upp, aö John Stone-
house, fyrrum ráöherra I stjórn
brezka Verkamannaflokksins,
hafi veriö njósnari. — Stonehouse
hvarf meö dularfuilum hætti I
Flórida í sföasta mánuöi.
Brezku blööin „The Times” og
„Daily Mirror” skýra frá þvi i
dag, aö Josef Frolik, majór úr
njósnadeild Tékka, hafi sagt
Stonehouse vera einn þriggja
þingmanna, sem ástundi njósnir.
Ekki hafa þessar upplýsingar
oröiö til þess að varpa hulunni af
dularfullu hvarfi hins 49 ára
þingmanns. I London er nefnilega
altalaö, aö hann hafi veriö á mála
hjá bandarisku leyniþjónustunni,
CIA.
Einn þingmanna Verkamanna-
flokksins, Tom Litterick, sagöi I
morgun, aö hann ætlaði að bera
upp fyrirspurn i neöri deild
þingsins varöandi þetta mál.
En opinberir aðilar verjast
allra frétta, enn sem komið er af
málinu.
Stonehouse hvarf, þegar hann
fór frá hóteli sinu á Miami. 20.
nóvember til aö synda. Skildi
hann föt sin eftir hjá
baöstrandarveröinum.
I fyrstu var haldiö, aö sjórinn
heföi tekið hann, en liki hans
hefur ekki skolað á fjörur, eins og
vant er þó i Flórida.
„The Times” og „Daily
Mirror” og halda þvi fram, að
Frolick majór hafi sagt, aö Stone-
house væri hlekkur i njósnakeöju,
sem tæki til opinberra starfs-
manna og njósnara, sem aösetur
heföi i London.
Ljóst er, að Stonehouse heföi
getaö oröið leyniþjónustu
kommúnistarikjanna aö góöu liöi,
þegar hann var við flugmála-
ráöuneytiö á árunum frá 1964 til
1966. Siðar varð hann svo póst- og
samgöngumálaráöherra.
Frolick, sem stakk af vestur
1969 — nokkrum mánuðum eftir
innrás Rússa i Tékkóslóvakiu —
býr I Bandarikjunum undir nýju
nafni. Hann mun hafa sagt, aö
tékkneska leyniþjónustan hafi
komizt i tengsl viö Stonehouse i
heimsókn þess siöarnefnda til
meginlandsins i byrjun sjötta
áratugsins.
Brezku blöðin tvö halda þvi
fram, aö brezka leyniþjónustan
hafi haft gætur á Stonehouse
siðustu fimm árin.
Stonehouse var einn af efni-
legustu stjórnmálamönnum
Verkamannaflokksins. Hann
sneri sér þó að kaupsýslumálum
1970 og lagði framavonir sinar i
stjórnmálunum á hilluna.
Valdi sprengjustaði eftir stafrófi
Maðurinn, sem i Bandarlkjun-
um hefur veriö kallaöur,
„Starfrófssprengjuvargurinn”,
fær ekki að flytja mál sitt sjálfur I
réttarhöldunum I Los Angeles. —
Hann varö þrem aö bana meö
sprengju á flugvelli Los Angeies i
ágúst s.l....
Dómarinn neitaði aö verða við
beiöni hans, um að verja málið
sjálfur, eftir að hann komst að
raun um, að sakborningurinn
neitaði að tala — „Ef hann getur
ekki talað, mun það koma honum
illa i málsvörninni”, sagði dóm-
arinn.
Hann bætti þvi við, að það væri
þó alltént tilbreyting frá lög-
fræðingunum, sem allir töluðu of
mikið.
Akærði er júgóslavneskur inn-
flytjandi og heitir Muharem
Kurbegovic ( 31 árs). Hann hefur
tjáð sig i réttinum með þvi að
hripa niður á miða það, sem hann
hefur viljað segja. Konan, sem
hann leigöi hjá áður, segir samt,
að hann hafi verið mjög mál-
gefinn.
Kurbegovic er gefið að sök að
hafa komið af stað nokkrum
sprengingum á stöðurh, sem sam-
svöruðu stafrófinu i skamm-
stöfum samtaka þeirra, er hann
tilheyrði — „Aliens of Maerica”.
Byrjaði hann á „airport” (flug-
velli Los Angeles) fyrir „A”.
Patty Hearst fœr arf
Patty Hearst, erfingi blaöa-
veldis milljónam æringsins,
Randolph Hearst, sem rænt var
af SLA-glæpaflokknum i febrúar,
hefur erft hluta af 2 1/2 milljón
dollara.
1 erfðaskrá ömmu hennar,
Millicent Hearst (eiginkonu
blaöakóngsins William Randolph
Hearst, sem lagði grundvöllinn að
Hearst-milljónunum), var mælt
svo fyrir, að Patty skyldi erfa
hana tii jafns við föður hennar og
aðra ættingja.
Eins og menn minnast, þá
krafðist SLA-hópurinn i fyrstu
lausnargjalds fyrir Patty, en lét
siöar frá sér fara yfirlýsingu þess
efnis, að hún hefði gengið i lið
með þeim. Síöar kom i ljós, að
hún bar vopn i einni banka-
ránsferð glæpaflokksins.
Þegar flokkurinn var strá-
felldur i bardaga við lögregluna,
fannst Patty hvergi. Hún er eftir-
lýst af lögreglunni fyrir hlutdeild
i bankaráni.
Charlotte Lauge, hiu 26dra gamla móöir sexburanna liggur hér á
myndinni á sæng. Myndin var tekin skömmu eftir aö sexburarnir litu
þennan heim. Meö á myndinni eru móöir Charlotte og systir hennar.
Aðeins
ein
eftir af
sexbur-
unum
Sá fimmti af sexburunum, sem
komu i heiminn i San Jose i Kali-
forniu fyrir niu dögum, lézt i gær,
og er þá aðeins eitt stúlkubarn lifs
eftir.
Brian Lange lézt af sömu
andarteppunni og varð bróður
hans, Jason, að aldurtila i
fyrradag. —
Hin 26 ára gamla móðir þeirra
eignaðist fjórbura i desember i
fyrra og hafði þá verið á
frjósemislyfjum. Fjórburarnir
dóu, en hún hélt áfram að taka
frjósemislyfin.
Sexburarnir fæddust þrem
mánuöum fyrir timann. Læknar
gera sér þó vonir um, að sá siðasti
þeirra, Jolene litla, haldi áfram
á batavegi.
//
Við urðum að finna ána
— sagði elzta systirin, sem fór í fararbroddi fyrir systkinum sínum sex í frumskógi Perú
//
Fimmtán ára stúlka
skýrði blaðamönnum
frá þvi i gær, hvernig
hún gekk i fararbroddi
fyrir þrem bræðrum
sinum og systrum og
þrem frændum á sex
daga helgöngu þeirra i
átt til siðmenningar-
innar, eftir að litla
flugvélin þeirra hafði
hrapað i frumskógum
Perú 7. des.
Eins og sagt var frá i Visi i
gær, komst flugmaðurinn til
mannabyggða með sex börn af
níu, sem hann hafði tekið með
sér fyrir rúmri viku i skoðunar-
flug yfir skóginn.
Eftir hrakningana voru þau
lögð inn á sjúkrahús i La
Merced, sem er um 600 km frá
höfuðborginni Lima. — Þar
sögðu þau blaðamönnum hrakn-
ingasöguna I gær.
Gladys var elzt barnanna niu i
Cessnavélinni. Sagðist hún hafa
veriö sú eina, sem ekki missti
meðvitund, þegar flugvélin
skall á jörðina. Hennar fyrsta
hugsun var að bjarga bróður
sinum Oscar Zehnder (24 ára)
út úr flakinu. Hann hafði flogið
vélinni.
Oscar var á leið með systkini
sin og frændsystkin frá bænum
San Ramon til San Juan, sem er
i austurhluta Pasconhéraðs, en
þar ætluðu þau að halda jólin.
Gladys Zehnder sagöi, að
þegar þau drógu hin börnin út úr
véíinni hefðu þau komiszt að
raun um aö sex ára frændi
þeirra hefði farizt með vélinni.
Annar 14 ára gamall, lézt
skömmu síöar.
„Við höfðum mestar áhyggjur
þá af þvi, hvernig Ketty systir
min var á sig komin. Hún haföi
fótbrotnað á báðum og hlotið sár
á hálsi, sem hafðist illa við”,
sagði Gladys.
Með Gladys i fararbroddi, en
hún þekkti sig bezt þarna,
örkuðu þau af stað 100 km vega-
lengd I átt að Palcazuánni. Eina
sveðju höfðu þau að vopni til
þess aö ryðja sér leið i gegnum
skóginn.
Gladys og Oscar skiptust á
um að bera Ketty á bakinu. Hún
var tiu ára.
Þau náðu fljótinu. En tveim
stundum áður en formaður
fljótapramma eins fann þau,
gaf Ketty litla upp öndina.
í fyrstu höfðu þau nærzt á kexi
og súkkulaði, sem hafði verið
ætlað til jóíanna. — „Þegar
kexið var búið, drógum við
fram lífið á huicungos (frum-
skógarávöxtur, svipaður kókos-
hnetum)”, sagði Gladys.
„Oft sáum við ekkert fram
fyrir okkur i þéttvöxnum
gróðrinum. Við reikuðum bara
beintafaugum.margstungin af
moskitóflugum. En við vissum,
að við urðum að finna ána”.
Herta, 14 ára systir Gladys
sagöi, að drengirnir þrlr i
hópnum, frændur þeirra, Juan
Zehnder (12 ára), Herbert
Panduro (11 ára) og 8 ára bróöir
þeirra, Carlos, „litu á þetta eins
og hvert annað ævintýri”.
Herta sagði, að þau hefðu
verið fyrstu nóttina á slys-
staðnum hjá flakinu og lagt á
ráðin um, hvernig þau ættu að
komast til mannabyggða.
Næsta dag lögðu þau af stað en
eftir tveggja daga göngu upp-
götvuðu þau, að þau voru komin
aftur.að flakinu. Enn lögðu þau
upp á fjórða degi og komu næsta
dag að læk, sem þau fylgdu.
„Trén voru svo há og
gróðurinn þéttur, að við sáum
varla til himins. Einu sinni á
hverri klukkustund gerðum við
hlé á göngunni til að hvila
okkur. Gladys tók þá sveðjuna
og hjó okkur leið i gegnum
skóginn, en ég hugaði að börn-
unum á meðan”. — Eitt barn-
anna, sem sú fjórtán ára
kallaði svo, var systir hennar,
Kasilda — aðeins sex ára.
Drengirnir „léku á marimba
(xýlófónn úr tré), meðan við
gengum um skóginn, til þess að
fæla villidýrin frá okkur”.
Herta sagði, að þau hefðu
einnig haft aö gamanmálum,
að þau mundu komast I blöðin,
„alveg eins og Júliana
Koepcke” — sautján ára stúlka
sem ein lifði af flugslysiö i
frumskógum Perú um jólin
1972, en þá fórust 92. Koepcke
þýzk að ætterni, komst til
byggða eftir tlu daga göngu I
gegnum frumskóginn. Móðir
hennar var meðal farþega I
flugvélinni.
Zehnder-fjölskyldan, sem er
af þýzk-svissneskum ættum,
var sögð við sæmilega heilsu á
sjúkrahúsinu i La Merced.
Flugmaðurinn reyndist vera
með tvö rif brotin.
Drengirnir, Herbert (11 ára) og Carlos (8 ára), komnir heilu og
höldnu til föður slns, Carlos Panduro Zehnder. Fyrir þá var þetta
eitt allsherjar ævintýri.