Vísir - 27.06.1975, Blaðsíða 7
Visir. Föstudagur 27. júni 1975.
7
• WA'C; y -X-i'. ."Í '4 ' ■: ■•• • '1 '<«
Wm ibi
aft lærir að þekkja sjá
Mjúkir og harðir
hlutir segja
sína sögu
Barnið veitir hlut eftirtekt
með augunum, en það er gegn-
um snertingu við hann með
höndunum, sem það myndar sér
skoðun um hlutinn. bá öðlast
barnið oft skilning á formi leik-
fangsins með þvi að bita i það
sjúga og lykta af þvi. Það er
þess vegna nauðsynlegt að
barnið fái ekki bara lina hluti, ef
það á að kynnast umheiminum.
Takið eftir töflunni á mynd-
inni. Þarna er hægt að stinga
inn margvislegum hlutum og
bamið skynjar ólika lögun og
stærð hluta.
Ýmislegt mó sjó
í bókunum
Llkamleg snerting milli fólks
er jafnmikilvæg fyrir fullorðna
og börn. Foreldrar ættu þvi að
nota hvert tækifæri sem gefst til
að grúfa sig yfir bækur eða liti
með börnum sinum.
Fyrstu úrklippubókina, sem
jafnframt má nota til að kenna
barninu um veröldina, getur
maður útbúið sjálfur. T.d. er
hægt að klippa úr myndablöðum
og setja i plastmöppur. Það er
mikilvægt að myndir i fyrstu
bókunum sýni einmitt hluti sem
barnið kannast þegar við. Spil
með myndum á eru prýðileg til
að kenna barninu nöfn á hlutum.
Leikföngin á myndunum eru
aðeins brot af þeim hlutum sem
hugmyndarikir foreldrar geta
notað sér til aðstoðar við að
koma börnunum til þroska.
Hreyfing er
mikilvœg
Kornabarnið er sifellt að
þjálfa og herða vöðvana. Hend-
ur og fætur eru á stöðugri ferð.
Allur likaminn tekur þátt I mál
tið, og fæturnir fylgja með þeg-
ar heiidurnar teygja sig eftir
einhverju.
Gætið þvi þess að hindra ekki
hreyfingarnar með fötum, t.d.
koma sokkabuxur i veg fyrir að
börnin geti skoðað á sér tærnar
sem skyldi. Setjið barnið á gólf-
ið eins fljótt og unnt er til þess
að það öðlist viðari sjóndeildar-
hring. Barnið hefur venjulega
mestan áhuga á hlutum sem
skoppa og rúlla og þvi er nauð-
synlegt fyrir það að fara fljótt á
gólfið, gætið þess bara að hlut-
irnir skoppi ekki frá þvi.
Plastkassinn á myndinni er
mjög góður fyrir barnið þegar
þaö byrjar að bera sig um. Það
er alveg upplagt að ýta kassan-
um á undan sér, eftir að það
hefur reist sig upp við stuðning
frá trékassanum.
Hvað er fyrir
utan rúmið?
Það er afar mikilvægt að
barnið fái að öðlast sem mesta
reynslu, innanhúss og utan. Það
þarf að kynnast hita og kulda,
sandi og grasi, blautri jörð,
rigningu o.s.frv. En oftast hætt-
ir foreldrum til að vera of var-
kárir i þessum efnum. Uppal-
andinn getur aldrei lýst fyrir
barninu tilfinningunni sem fylg-
ir þvi að liggja i nýslegnu grasi
og enn siður lyktinni. Fátt
þroskar barnið meira en finna
sand renna milli fingra sér og
blanda siöan vatni saman við
sandinn. Fötur til að ausa með
eru þvi ómissandi I baðið.
Barnið skoðar og
athugar með
þessum hlutum
Barnið liggur á bakinu og veit
um að það hefur hendur og fæt-
ur. En það geta liðið margir
mánuðir áður en það veit af
bolnum og höfðinu.
Spegill hjálpar mjög til við að
kynnast eigin likama. Barniö
skilur að sjálfsögðu ekki hvað
þetta er sem það sér I speglin-
um. En það sér eitthvað sem
hreyfir sig og hefur augu, nef og
munn.
Hljómur bjallna
þjólfar eyrað
Nýfædda barnið heyrir en það
er ekki fyrr en eftir nokkrar vik-
ur sem það hlustar eftir hljóð-
inu. Það kann bezt við lágar og
vingjarnlegar raddir og þykir
það gott fyrir málþroska að
hjalað sé við barnið, t.d. meðan
skipt er um bleyju.
Við 9-10 mánaða aldur byrjar
barnið að fylgja eftir takti. En
farið samt I guðanna bænum
ekki að láta útvarpið ganga
allan daginn fyrir barnið.
Litlu börnin leika sér...
Sagt er aö börnin byrji að leika sér, þegar þau fara að fylgjast með þvi hvernig gluggatjaldiö bærist
eftir vindáttinni, eða þegar barnið snýr sér frá pelanum til að hlusta eftir framandi hljóði. Það nægir þó
barninu ekki til langframa aðhlusta. Maður kynnist ekki umheiminum nema með þvf að ,,taka I” hann.
Með fingrum og munni læra kornabörn aö greina á milli ólíkra hluta. i Ieiknum þjálfar barniö sál sina
og llkama.
Með leikföngum, sem barninu eru gefin, lærir það aö þekkja umhverfi sitt. Ákveðin leikföng eru ætluð
t.d. 1-3 ára o.s.frv. En foreldrar verða að gæta þess að láta ekki múlbinda sig við uppgefinn aldur. Börn
þroskast mjög ólikt og það er ekkert betra aö þröngva leikföngum upp á börn en mat.
barnsaugað
Enginn veit nákvæmlega hve-
nær börnin fara að skynja um-
hverfi sitt með þvi að sjá hlut-
ina. Samt sem áður er snemma
byrjað að gefa þeim leikföng i
skærum litum. Þá eru það
margir sem setja upp mjög
skær gluggatjöld i einlitum
barnaherbergjum. Talið er
betra fyrir börnin að hengja
marglitu hringlurnar við hliðinu
á rúminu heldur en strengja
þær yfir rúmið.
Margbreytilegir
litir heilla