Vísir - 29.07.1975, Side 2

Vísir - 29.07.1975, Side 2
2 Vísir. Þriöjudagur 29. júli 1975. VISIE SPTR'- — Hvernig á að leysa vandamál gamla fólks- ins? Sölveig Sigurðardóttir, skrif- stofustúlka: Gamla fólkið verður sjálft að fá að ákveða, hvernig það vill haga sinu lifi og hvar það vill búa. Þegar það er orðið ófært til að ákveða slikt, eru elli- og hjúkrunarheimili ágæt. Sesselja Berndtsen, húsmoóir: Lt fólk hefur heilsu til að búa eitt, á að leyfa þvi það. Fólk á, sama á hvaða aldri það er, að fá að ákveða sjálft, h vað það gerir. Það ber að gefa þvi kost á að velja með þvi að gera fleiri leiðir mögulegar. Agnea Jónsson, húsfrú: Við eig- um aðbyggja fleiri elliheimili og gera þau hlýleg og manneskjuleg. Einnig er heimahjúkrun ágæt, þegar hún hjálpar til. Hins vegar getur verið ákaflega erfitt að hafa rúmliggjandi gamalmenni á heimilum, þrátt fyrir að fólk sé allt af vilja gert. Sigurjón Marinósson, ísalstarfs- maður: Æskilegasta lausnin er sú, að foreldrarnir fái að dveljast á heimilum barna sinna. Þrauta- lending er i minum augum að setja gamalmenni á elliheimili. Heimilishjálpin er hentug, þegar hún dugar til að lengja sjálfstæða tilveru einstaklinganna. ólaffa Guðmundssóttir, verka- kona: Það verður skilyrðislaust aó bæta kjör þeirra eldri fjárhags lega og bæta alla aðstöðu, svo að eldra fólk geti bjargaö sér sjálft. Heimilisaðstoð er prýðileg í þessu skyni. Kdwin Karl Kenediktsson, at- vinnulaus: Ég sé ekkert á móti þvi, að gamalmenni séu á elli- heimilum, ef þau eru vel búin, til dæmis með sundlaugum. Æski- legast er, að börn geti tekið for- eldra sina inn á eigið heimili. Fæstir hugsa svo langt, að til þess að aðstaða batni eða tæki- færi til keppni og æfinga utan- lands aukist, þarf peninga. Keppendur og aðrir iþrótta- iðkendur verða sjálfir að borga stórfé i æfingagjöld á ári hverju. Við það bætist siðan vinnutap vegna ferðalaga og oft ferða- kostnaður bæði utanlands og innan. Að visu fórna þeir öllu vegna áhuga sins á iþróttinni. En þykir þér ekki lika gaman, þegar þeir hefja nafn og fána lands og þjóðar til vegs og virð- ingar á erlendum vettvangi? Hundabannið: Mannréttindi? Hvað með hundaréttindi? Ilundavinur hringdi: „Guði sé lof, að mann- réttindanefndin hefur ekki lýst yfir. að hundabannið sé brot á mannréttindum. Ég spyr bara. Hvað er brot á mannréttindum? Mér er ekki illa viö hunda, en það er hundur fyrir neðan mig i húsinu, sem ég bý i, og það eru hundar i ibúðunum við hliðina á mér. Fólkið fer út aðvinna. Það fer út að skemmta sér og alltaf eru hundarnir lokaðir inni á meðan. Þurfa þeir ekki greyin lika að fá friskt loft? Þurfa þeir ekki, greyin, að fá einhverja bliðu? Mér hefur að minnsta kosti skilizt það á þeim, sem vit hafa á þessum málum. En, nei. Þarna mega greyin dúsa daginn út og daginn inn og ég má (og íleiri) hlusta á geltið i þeim. Ég kalla þetta engin hundaréttindi. Og hvað á það að þýða að fara með svona mál fyrir útlenda dómstóla? Getum við ekki einu sinni búið til okkar eigin lög I svona litlu máli? Svo er annað. Fyrst hundar eru bannaöir i Reykjavik, hvers vegna má þá auglýsa hvolpa til sölu eða sem gjöf?” Bravó Jónas Ungt fólk um tvitugt skrifar: „Afskaplega er gaman að hlusta á Jónas rithöfund á sunnudögum i þættinum „Með eigin augum”. Svona rabb flétt- um dúr um lifið og tilveruna er áreiðanlega vel þegið af fleirum en okkur, sem þetta skrifum. Það er alrangt, að við, unga fólkið, viljum aðeins popp og aftur popp i okkar útvarpi, en meira af svona léttmeti væri stórfint.” Ef svo er, þykir þá ekki sann- gjarnt, að þú og allur almenn- ingur taki að einhverju leyti þátt I kostnaðinum? Hugsaðu þér alla ókeypis (eða jafnvel ódýr- Ká afrek okkar Iþróttamanna hafa vakið eins mikla athygli úti um heim og sigurinn y fir Austur-Þýzka- landi i Evrópukeppni landsliða í knattspyrnu á Laugardalsvellinum i sumar. Þar lagði litla tsland að velli eina mestu iþróttaþjóð veraldar og þá var varla sá íslendingur til sem ekki var stoltur af strákun- um sinum. Ljósmynd: Bjarnleifur. EKKI GANGA ALLIR JAFN- VEL UM ELLIÐAÁR Náttúruunnandi hringdi: „Út af lesendabréfi i Visi sl. föstudag, sem bar fyrirsögnina „Má ekki lengur koma nálægt Elliðaánum”, langar mig að koma á framfæri, að það er kannski óþarfi fyrir fólk að vera alveg niður við ána, þar sem verið er að renna fyrir lax- inn. Það er leiðinlegt til þess að vita, að ekki skuli vera hægt að ganga þarna um og njóta úti- vistar án þess að verða var við svona leiðindi. Nógu stutt er sumarið samt.” Þvi miður er það lika svo, að laxveiðimenn hafa stundum fyllstu ástæðu til að stugga við krökkum þarna i kring. Eitt kvöldið, þegar ég fékk mér göngutúr með konu minni með- fram Elliðaánum, gengum við fram á eina 5-6 drengi rétt upp við Rafveituheimilið. Þeir stunduðu þá miður skemmti- legu iðju að kasta grjóti niður i ána, og einnig voru þeir með stafprik, sem varla hefur verið til annars en að reyna að rota lax með. Þarna hagar svo til, að flúðir eru út i ána og ekki sést niður að ánni frá veginum. Strákarnir stóðu þarna á flúðunum og voru hundblautir. Ætli þeir hafi ekki verið um og yfir fermingu. Þeir hlupu eins og pilur, um leið og þeir sáu til okkar. Er ekki sanngjarnt að styðja betur við íþróttirnar? Keppendur borga stórfé í œfingagjöld S.L.B. skrifar: „Allir kannast við þá ánægju- tilfinningu og stolt, sem gagn- tekur fólk þegar landinn vinnur iþróttaafrek. Við getum minnzt á sigurinn yfir Austur-Þjóðverj- um i fótbolta, Vestur-Þjóðverj- um í körfubolta og hina ýmsu sigra handknattleikslandsliðs- ins yfir stórþjóðum. Afrek i ein- staklingsgreinum, i lyftingum, frjálsiþróttum og sundi. Eftir landsleiki heyrist oft sagt, að nú verði að bæta leik- skipulagið eða auka úthaldið og strákarnir verða bara að leggja aðeins harðar að sér við æf- ingar. ari) vinnuna, sem liggur á bak við einn landsleik. Mundirðu sjá eftir þvi, þótt örlítið stærra brot af sköttum þinum rynni til að aðstoða þetta fórnfúsa fólk til að kynna landið? Til marks um almennan áhuga fyrir iþróttum er nóg að benda á það rúm, sem blöðin ætla undir iþróttafréttir og eru þær að minu mati einna al- mennast lesnar af öllu efni blað- anna. Er ekki timi til kominn, að rikisvaldið stórauki framlag sitt til iþróttamála, svo að hægt sé að minnsta kosti að borga þjálf- urum og bæta aðstöðuna fyrir allt iþróttafólk? Þvi að um leið og hægt er að borga þjálfurun- um, þá sjá loks hæfir menn til- gang i þvi að mennta sig til þess að geta þjálfað af kunnáttu, en ekki bera af hjálpsemi og áhuga. Um leið nýtast hæfi- leikar og kraftur iþróttamanns- ins betur og skynsamlegar.” LESENDUR HAFA ORÐIÐ

x

Vísir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.